Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 24
24 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FERMINGARTÍSKAN
MIKILVÆGUSTU eiginleikar ferming-
arhársins eru einfaldlega heilbrigði
og gljái, segir Rut Danelíusdóttir,
hárgreiðslusveinn á hárgreiðslustof-
unni Scala. Rut útfærði nokkrar
gerðir af fermingargreiðslum ásamt
nemunum Álfheiði Maren og Erlu
Kristínu Hansen, fyrir Ferming-
arblaðið og Björgu, Katrínu, Rakel,
Siggu og Theódór sem eru að fara að
fermast.
Í hár Katrínar, sem ekki er litað,
völdu þær rómantíska og nátt-
úrulega greiðslu. Til skreytingar
lögðu þær til eitt stórt blóm, hvort
heldur sem er lifandi eða úr gervi-
efni, þótt þeim þyki lifandi blóm fal-
legust fyrir fermingarstúlkur.
Greiðsluna fyrir Siggu höfðu þær
með suðrænu ívafi en hún er með
þrjá liti af strípum (ljósar, hunangs-
og koparlitar) og hárið klippt í stytt-
ur. Settar voru rúllur í hárið til þess
að fá lyftingu en hárgerðin og lengd-
in látin ráða ferðinni, enda eru ferm-
ingarstelpur með fallegasta hárið,
segir Rut. Línan er höfð óregluleg og
frjálsleg og hárið prýtt með mörgum
litlum blómum.
Björg er með axlasítt, rautt hár og
settu þær Scala-stúlkur koparrautt
skol í hárið á henni og ljósgylltar
strípur. Hárið er klippt í styttur sem
blásnar eru út til hliðanna við andlit-
ið, í stíl við hártísku níunda áratug-
arins, og kallaðar diskóvængir.
Hár Rakelar er dökkt og sítt og
voru settar fíngerðar gullnar strípur
við andlitið, auk þess sem það var
klippt í styttur. Hár hennar var einnig
blásið út til hliðanna við andlitið og
látið mynda diskóvængi, eins og hjá
Björgu.
Fyrir Theódór völdu þær mjúka
herraklippingu og ljósar strípur.
Rut hafði yfirumsjón með fram-
kvæmdinni og segir ferming-
argreiðslur að öllu jöfnu vera nokkuð
íhaldssamar svo fermingarmyndin
eldist ekki of illa.
Hún segir fermingarstelpurnar spá
mikið og spekúlera í tískunni, með-
an strákarnir séu meira fyrir að vera
ekki of fínir, jafnvel dálítið ógreiddir
og helst með klippingu sem aðeins
er farin að eldast. Ekki er verra að
sjáist í dálitla rót, hafi hárið verið lit-
að, segir hún.
Færri strípur, fleiri krullur
Ungt fólk fylgist vel með tískunni
og segir Rut meira um en áður að
hver og einn lagi tískuna að sjálfum
sér en ekki öfugt. „Flestir virðast
spá í hvað klæði þá best og velja það
sem hentar þeim, í stað þess að láta
tískuna ráða ferðinni,“ segir hún.
Fyrir vorið segir hártískan fyrir um
gyllta, ljósa og koparliti, jafnvel út í
rautt, sem og glansandi og heilbrigt
hár. „Strípuæði“ kveður hún vera á
undanhaldi, hárið sé í mesta lagi
haft ljóst við andlitið til þessa að
lyfta yfirbragðinu en mýkri litir ann-
ars staðar á höfðinu. Einnig leggur
hún til fyrir slétt og stutt hár sem
tekið er í vængi að hárið sé dekkra
undir og ljósara ofan á.
Loks segir Rut að permanentið sé
að halda innreið sína á ný, miklir,
misgrófir liðir, stundum nánast út í
„afró“, eða bara slöngulokkar.
Fermingar-
börn með fal-
legasta hárið
Theódór með mjúka herraklippingu og ljósar strípur.Katrín með náttúrulega og rómantíska greiðslu.
ÚR OG SKARTGRIPIR, KRINGLUNNI 4-12, SÍMI 553 1150
Sængur, koddar og
rúmfatnaður er góð gjöf
Njálsgötu 86 - Sími 552 0978
Glæsileg sumarlína
Sjón er sögu ríkari
Allt um
fermingar