Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 26
26 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÖRÐUN
L
ÍNA Rut naut aðstoðar
Margrétar Friðriksdóttur
förðunarfræðings, sem hún
kveður í raun sína hægri
hönd, og afréðu þær að leggja til
mismunandi úrfærslur til þess að
sýna fjölbreytni þótt möguleikarnir
séu nánast endalausir. Fermingar-
stúlkurnar fjórar, Björg, Katrín,
Rakel og Sigga, voru fyrirsætur sem
fyrr.
Græntóna glimmer
Á augu Bjargar völdu Lína Rut og
Margrét glimmer með grænum tóni
og upplýsir Lína að glimmer geti
bæði virkað hvítt, en breytt lit þegar
ljós fellur á það, og með allskyns lit-
brigðum. Gott er að setja vaselín
saman við glimmerið til þess að það
tolli betur á að hennar sögn.
Auk glimmersins var málað í
kringum augun með grænum
blýanti, augabrúnir litaðar með
brúnum augnskugga og gloss sett á
varirnar.
Lína Rut segir stúlkur á þessum
aldri ekki þurfa meira undirlagen
fljótandi meik eða litað dagkrem.
Kökumeik sé alger óþarfi, nema
nauðsynlegt sé að fela húðvandamál
af einhverju tagi.
Þá mælir hún hvorki með kinnalit
né varalitablýanti fyrir ungu stúlk-
urnar. „Þær þurfa ekkert á því að
halda. Á þessum aldri er oftast það
mikil fylling í vörunum að teiknaðar
útlínur eru alger óþarfi. Hins vegar
mega þær nota blýant ef þær ráða
vel við hann og kunna að mála fallega
og beina línu. Það reynist hins vegar
mörgum konum vandasamt, hvað þá
svona ungum stúlkum,“ segir hún.
Bleikt og fjólublátt
Sigga var máluð með fjólubláum
og bleikum augnskugga.
„Litirnir frá Hard Candy, sem ég
þekki best, eru með léttri sanseringu
sem ekki er jafnafgerandi og glimm-
eraugnskugginn sem minnst var á.
Við máluðum fyrst í kringum augun
með feitum blýanti frá þeim og sett-
um augnskuggann ofan í hann. Með
þessu móti festist augnskugginn
mjög vel og ekki þarf að hafa áhyggj-
ur af því að hann fari fljótt af.
Glimmer og sanseraðir augnskuggar
eiga til að fara af eða hrynja niður á
andlitið en með því að nota blýantinn
undir festist augnskugginn betur á.
Ekki er víst að tími sé til þess á ferm-
ingardaginn að vera stöðugt að kíkja
í spegilinn,“ segir Lína Rut.
Þá settu þær örlítið af vínrauðum
augnskugga í ytri augnkróka Siggu
og máluðu örmjóar línur kringum
augun með dökkbláum blýanti.
Á varirnar settu þær mattan vara-
lit og gloss yfir.
Ein næstum ómáluð
og önnur öll í brúnu
Katrín var máluð með örlitlu af
möttum augnskugga og brúnum
blýanti og fékk smávegis af glossi á
varirnar. Rakel var einvörðungu
máluð með sanseruðum brúnum lit-
um.
Til þess að sniðganga ekki mæður
fermingarbarna máluðu Lína Rut og
Margrét andlit Margrétar Kristínar
tónlistarkonu, sem að vísu er ekki að
fara að ferma alveg strax, en alveg á
réttum aldri til þess að sýna muninn
á förðun yngri og eldri kvenna.
„Magga Stína er förðuð með
bleiku og vínrauðu alveg eins og
Sigga en með silfurlitan blýant í
innri augnkrókum til þess að fá fram
bjartara yfirbragð. Einnig settum
við á hana bleikan kinnalit, bleikan
lit á augnbein, þykkt-
um varirnar með
blýanti og settum á
þær mattan varalit og
gloss. Magga Stína er
reyndar með þannig
andlit að hún þolir
ansi margt þegar
förðun er annars veg-
ar,“ segir Lína Rut en
upp úr 30 er betra fyrir konur að
vanda litavalið að hennar sögn.
Bjartari liti með árunum
„Því eldri sem konan er, því bjart-
ari liti þarf hún til þess að draga
fram ferskleika húðarinnar. Eitt
dæmi er brúnn augnskuggi sem
margar konur nota með góðum ár-
angri á unglingsárum en ekki er víst
að henti þeim jafn vel þegar árin
færast yfir. Sumar geta notað
plómulitan skugga eða brún-
an með bleikum tóni, en það
gildir ekki um allar.
Lína Rut hefur gert
tvö myndbönd þar sem
hún kennir yngri og
eldri konum að farða
sig eftir aldursskeiði.
Farið er hratt yfir
sögu til þess að sýna
sem flestar út-
færslur og er förðun
yngri kvenna til
dæmis sýnd í styttri
útgáfu á myndband-
inu fyrir þær eldri,
enda hætta konur
ekki endilega að
fylgjast með förð-
unartískunni eftir
30. „Þær vilja sjá
hvernig ungu
stúlkurnar mála
sig og ég sýni
þeim fjölda lita-
samsetninga og
hvar þær mega
nota glimmer og sanseringu og hvar
ekki þegar aldurinn færist yfir, svo
dæmi sé tekið. Of mikil sansering
getur til dæmis dregið fram poka í
kringum augun. Sumar mæður eru
líka á móti því að ungar dætur þeirra
séu að mála sig mikið, en ef það er
rétt og vel gert, er allt í lagi að leyfa
þeim það stundum,“ segir hún.
Alls ekki
slæmt að eldast
Konurnar í myndböndunum eiga
allar sameiginlegt að vera ekki fyr-
irsætur og eru á öll-
um aldri og segist
Lína Rut hafa viljað
sýna konum fram á að
fyrirsætur séu ekki
endilega fullkomnar,
heldur oftast bara
góður grunnur að
byggja á til þess að
sýna andlitsfarða og
föt. „Konurnar í myndböndunum
gætu allar verið fyrirsætur sjálfar
þótt þær séu það ekki,“ segir Lína
Rut að síðustu og tekur undir þá
skoðun margra kvenna að ekki sé
jafnslæmt að eldast á yfirborðinu og
maður gæti ætlað. „Því eldri sem ég
verð að utan, því betur líður mér að
innan,“ segir Lína Rut Wilberg förð-
unarmeistari og listmálari að lokum.
Andlitsförðun
við allra hæfi
Katrín var lítið máluð, með brúnum
og möttum litum.
Konur þurfa
að breyta
litavali með
aldrinum.
Björg með grænan glimmeraugn-
skugga og grænan augnblýant.
Margrét Kristín tónlistarkona var
förðuð með bleiku og vínrauðu.
Morgunblaðið/Ásdís
Rakel var máluð með brúnum
sanseruðum litum.
Sigga var förðuð með vínrauðum,
bleikum og fjólubláum augnskugga.
Sumar mæður eru á
móti því að ungar
dætur þeirra séu að
mála sig en ef það
er gert rétt horfir
málið öðruvísi við
Þessi stúlka heitir Inga
og er um tvítugt.
Guðfinna er 24 ára og tekur
miklum breytingum með förð-
uninni, eins og sjá má.
Margar stúlkur á fermingaraldri fylgjast vel með
tískunni og fyrir þær sem farða sig er mest um vert
að kunna dálítið til verka. Lína Rut Wilberg förð-
unarmeistari og listmálari bjó til nokkur tilbrigði við
andlitsförðun á fermingardaginn, en leggur áherslu
á að best fari á lítilli förðun við sjálfa athöfnina.
FYRIR OG EFTIR