Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 28
28 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Erum flutt
Hverfisgötu 50,
sími 552 2690
BORÐSKREYTINGAR
BLEIKAR borðskreytingarvirðast fremstar meðaljafningja í augnablikinu áfermingarborðið, segir
Nanna Björk, þótt stelpur séu nán-
ast jafnmikið hrifnar af bláa litnum
líka. Ef hægt er að lýsa tískunni í
borðskreytingum í fáum orðum dett-
ur henni fyrst í hug að segja að þær
séu áberandi væmnari en áður, sér-
staklega litirnir, og séu jafnvel dálít-
ið fljótandi, eða bara óraunveruleg-
ar.
Nanna stakk upp á fjórum mis-
munandi gerðum skreytinga, sem
ættu að falla flestum í geð, bleikri og
blárri, „fönkaðri“ í tveimur skærum
litum og einni með páska- og aust-
rænu ívafi. „Bleikt, ljósblátt og fjólu-
blátt eru dálítið áberandi litir núna
og skreytingar í þeim dúr örlítið
„baby“-legar, en fólk virðist alveg
óhrætt við þessa liti núna. Í bleiku
skreytingunni setti ég saman brúð-
arslör og bergfléttu í bland, í þeirri
bláu valdi ég kaldan og stífan efnivið
til mótvægis,“ segir hún.
„Fönkaða“ skreytingin er bleik og
appelsínugul, hvöss með beinum lín-
um, ágengum litum og fljótandi
bleikri gerberu í vaxskál.
„Í bláu skreytinguna setti ég vafn-
inga af organsa ofan í glervasa með
hænsnaneti, en organsa er mikið
notað í skreytingar í augnablikinu,
og skreytti með blaðlausum rósum. Í
mínum huga er skreyting víðtækari
en margir virðast álíta, hún er í raun
framlenging á sínu nánasta um-
hverfi, sama í hvaða stíl það er. Hún
er meira eins og þema sem látið er
ganga út í gegnum veisluna eða hús-
næðið og öll smáatriði skapa heild-
armynd.“
Austræna skreytingin með páska-
blænum minnir á vorið, í henni eru
túlípanar og brúðarkolla í glærum
vasa. „Mér finnst hún einföld og
páskaleg og ganga til dæmis á sushi-
borðið eða eitthvað þess háttar,“
segir hún.
Nýir straumar gera vart við sig
reglulega í innanhússskreytingum
þótt fagfólk sé í raun alltaf að finna
hjólið upp aftur og aftur. „Þær tengj-
ast í raun byggingarlist, fatahönnun
og innanhússhönnun,“ segir hún.
„Sem stendur er mikið um litað
vatn í skreytingum, sem látið er
standa í glærum vösum með einföld-
um blómum. En mér finnst sjálfri
mest spennandi að vinna með „fönk-
aða“ og skæra liti, sem ögra viðtekn-
um hugmyndum um litablöndun en
skapa stílhreina heild um leið.“
Nanna Björk segir fermingar-
stelpurnar jafnhrifnar af bláum
skreytingum og bleikum, en er ekki
jafn viss um piltana, sem ekki virðast
blanda sér að ráði í þá umræðu. Ein-
hverjir virðast líka vilja skreyta í
kringum kransakökur með styttum,
að hennar sögn, þótt eitthvað hafi
dregið úr því í gegnum tíðina.
Hvað sumarið varðar hefur Blum-
enbüro í Hollandi lagt línur sem
segja fyrir um ljósar skreytingar þar
sem væmnin er síst á undanhaldi.
Klaus Wegener og Profil Floral
benda aftur á móti í átt að Andy
Warhol.
Bleikt, blátt og
örlítið væmið
Þótt ferskir vindar blási annað veifið í blóma- og
borðskreytingum er ekki svo auðvelt að fara of
langt frá upprunanum. Nanna Björk Viðarsdóttir,
verslunarstjóri í Breiðholtsblómum, lagði til fjögur
tilbrigði við fermingarborð.
Tilbrigði við hænsnavír og „organsa“. Bleikt og rómantískt á fermingardaginn.
„Fönkuð“ fermingarskreyting.
Nanna Björk Viðarsdóttir, versl-
unarstjóri í Breiðholtsblómum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fermingarskraut með páskalegum og austrænum blæ.