Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 33
VEISLAN MÍN
GUNNÞÓRUNN Jónsdóttir fermist 22. apríl í
Dómkirkjunni og ætlar að hafa hangikjöt og
uppstú í matinn í fermingarveislunni. „Veislan
verður lítil, aðeins nánustu ættingjar. Mér finnst
hangikjöt besti jólamaturinn og þegar ég þurfti að
hugsa um hvað ætti að vera í matinn í ferming-
arveislunni ákvað ég bara að hafa hangikjöt og
hvíta sósu. Við ætlum líka að hafa laufabrauð með
og reynum að fá það í Kristjáns bakaríi. Ef það er
ekki hægt búum við það bara til sjálfar,“ segir
Gunnþórunn.
Í eftirrétt verða allar uppáhaldskökurnar henn-
ar sem ömmur og frænkur fjölskyldunnar hafa
verið beðnar um að leggja til í veisluna.
Hinn 27. mars fara fermingarbarnið, amma
hennar Gunnþórunn Jónsdóttir, og mamma Krist-
ín Björgvinsdóttir síðan til Egyptalands, meðal
annars um Sinaí-skaga, og er ferðin fermingargjöf
frá fyrrgreindri ömmu, segir Gunnþórunn.
„Amma hefur farið til Egyptalands áður og
fannst æðislegt. Ég mátti velja hvert við færum og
vildi fara á slóðir Móse og Jesú,“ segir hún.
Ekki í bleiku og með
einfalda hárgreiðslu
Fleiri fermingargjafir hafa ekki litið dagsins
ljós, enn sem komið er, og segir Gunnþórunn
fermingarsystkini sín helst nefna „græjur, sjón-
varp, vídeó og peninga“ þegar þær ber á góma.
Fötin fyrir fermingardaginn kveðst hún ekki
búin að velja ennþá, en veit það eitt að þau „eigi
ekki að vera bleik með blúndum“. Hárið á líka að
vera „plain“, í mesta lagi skreytt með nokkrum
spennum.
„Ég er alveg ótrúlega ánægð með þetta,“ segir
Gunnþórunn Jónsdóttir fermingarbarn að síðustu,
og á þar við fyrirhugaða ævintýraferð.
Hangikjöt
og uppstú
í veislunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnþórunn Jónsdóttir fermingarbarn fer senn á
slóðir Jesú og Móse í Egyptalandi.