Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 35
SAGA FERMINGARKVERANNA
FLJÓTLEGA varð mönnum ljóst,
að Fræðin minni voru eiginlega
ekki við barna hæfi án þess að
skýringar kæmu til. Því voru samd-
ar bækur, eða svonefnd kver, þar
sem efni þeirra er skýrt og greint í
sundur. Ýmist voru Fræðin minni
þá prentuð fremst eða jafnharðan,
eftir því sem hver grein þeirra um
sig var útlistuð. Eins kom það fyrir,
að Fræðin minni væru ekki prent-
uð, heldur lögð til grundvallar. Oft
var efnið reitt fram í spurninga-
formi og því talað um barnaspurn-
ingar og að ganga til spurninga.
Voru spurningakverin framan af
ekki aðeins ætluð börnum heldur
einnig fullorðnum.
Gissur Einarsson Skálholtsbisk-
up mun fyrstur hafa þýtt Fræðin
minni á íslensku, árið 1542, en lík-
legt er talið að þau hafi fyrst verið
prentuð að Breiðabólstað í Vest-
urhópi 1562 í þýðingu Odds Gott-
skálkssonar sem mun hafa verið
gerð úr latínu. Elsta útgáfa Fræð-
anna minni sem varðveist hefur er
frá 1594, í þýðingu Odds en líklega
endurskoðuð af Guðbrandi Þorláks-
syni Hólabiskupi.
Fræðin minni voru á ný prentuð
á Hólum 1599 í „Biblia laicorum það
er Leikmanna biblía“ eftir Johann
Aumann, í þýðingu Guðbrands Þor-
lákssonar. Og annað rit, „Biblia
parva eður almennilegur Catech-
ismus með sjálfum ritningarinnar
orðum stuttlega útlagður úr latínu
máli á norrænu af Arngrími Jóns-
syni“, var tvívegis prentað á Hólum,
1596 og 1622. Þetta er sjálfstætt
kver og fylgir ekki Fræðunum
minni. Höfundur er ókunnur.
Gísli Þorláksson biskup á Hólum
samdi einnig rit af þessum toga og
kom það út á Hólum 1674. Það
nefndist „Examen catecheticum.
Það er stuttar og einfaldar spurn-
ingar út af þeim litla Catechismo
Lutheri. Hvar til að leggjast nokkr-
ar góðar og nauðsynlegar bænir
fyrir ungdóminn út af þeim tíu
Guðs boðorðum og öðrum Catech-
ismi pörtum.“
Eins ritaði Jón Vídalín Skálholts-
biskup barnaspurningakver og
nefndist það „Stutt og einföld und-
irvísun um kristindóminn“. Það
kom út þrívegis, raunar ekki fyrr
en eftir dauða biskups, var fyrst
prentað í Kaupmannahöfn 1729 en
kom út síðast 1748.
Jón Árnason Skálholtsbiskup
kemur næstur við þessa sögu en
hann lét í vígsluför sinni, 1722,
prenta kver eftir sig, fól prestum
dreifingu þess er hann kom til
landsins aftur og fór ekki dult með,
að hann myndi hafa nánar gætur á
hvernig prestar ræktu fræðslu-
skyldu sína. Kverið ber heitið-
„Spurningar út af Fræðunum. Sam-
anteknar handa börnum og fáfróðu
almúgafólki“. Kom það með vissu
þrívegis út eftir þetta, prentað í
Kaupmannahöfn 1733, 1737 og 1741
og e.t.v. einnig 1727. Kverið, sem
var einkum notað á Suðurlandi,
gekk í daglegu tali undir nafninu
Jónsspurningar.
Kverin líta dagsins ljós
Marteinn Lúther
Bjarni Thorsteinsson (1781–
1876) amtmaður lýsir kvernámi
sínu þannig, en honum var gert
að lesa undir fermingu „Sann-
leika guðhræðslunnar“ eftir
Erik Pontoppidan, en bókin
gekk í daglegu tali undir nafn-
inu Ponti:
„Faðir minn var, eftir því
sem gera er hér á landi, allvel
hagur á tré og járn og aðrar
smíðar. Mér fannst líka sjálfum
í barnæsku að til slíkrar vinnu
væri ég best fallinn, en síður til
lesturs og utanbókarnáms, en
móðir mín mat þetta síðara
mest eftir þeirra tíma námsað-
ferð. Hún kenndi mér kristin-
dóminn eftir kveri Pontoppid-
ans, barnalærdómsbókinni
langorðu, sem þá tíðkaðist. Mér
var alveg ómögulegt að læra
Ponta alveg orðrétt utan bókar,
því annaðhvort gleymdi ég ein-
hverju eða bætti einhverju inn í
frá eigin brjósti, sem bæði móð-
ur minni og prestinum líkaði
stórilla...“
[Bjarni Thorsteinsson: „Skráð af
honum sjálfum.“ Merkir Íslend-
ingar. Ævisögur og minningar-
greinar. 2. bindi. Reykjavík
1947. Bls. 265–266.]
„Píndur
undir
Ponta“
Bjarni Thorsteinsson
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur Skál kr. 6.300
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.