Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 37
SAGA FERMINGARKVERANNA
MENN tóku nú að ráðgera að semja
nýtt lærdómskver handa íslenskum
fermingarbörnum. Fór Pétur Pét-
ursson biskup þess á leit við Helga
Hálfdánarson prestaskólakennara
að hann tæki verkið að sér. Þetta
gerði Helgi á árunum 1876 og 1877
og sama ár var bókin prentuð og
send prestum landsins til rannsókn-
ar. Hún fékk góðar viðtökur hjá þeim
og kom önnur útgáfa, lagfærð og
breytt í samræmi við nokkrar at-
hugasemdir sem höfðu borist, strax á
næsta ári. Hinn 24. september 1878
heimilaði ráðherra Íslandsmála að
bók Helga væri notuð við hlið hinna
tveggja, Balles og Balslevs. Bókin
hét fullu nafni „Kristilegur barna-
lærdómur eftir lútherskri kenningu“
en var þó bara yfirleitt kölluð Helga-
kver og stundum „átjánkaflakverið“.
Til að auðvelda foreldrum og hús-
bændum að spyrja börnin út úr efni
kversins útbjó Pétur biskup spurn-
ingar og gaf út á bók, sem nefndist
„Stuttur Leiðarvísir til að spyrja
börn úr Barnalærdómi síra Helga
Hálfdánarsonar prestaskólakenn-
ara“. Kom bókin út tvisvar, 1878 og
1883.
Einstakir prestar kenndu Helga-
kver fram yfir 1930 og þorri ís-
lenskra barna lærði það utan að í
hálfa öld, enda varla hægt að segja að
önnur bók væri notuð eftir útkomu
þess næstu tvo áratugina. Kom 12.
útgáfa hennar árið 1924 og sú 13. árið
2000, í flokknum Lærdómsrit Bók-
menntafélagsins.
Annað tossakver
Árið 1899 kom út í Reykjavík bók-
in „Kristilegur barnalærdómur.
Skýring á Fræðum Lúthers hinum
minni“ eftir Thorvald Klaveness,
prest í Ósló, í þýðingu Þórhalls
Bjarnarsonar, forstöðumanns
prestaskólans, síðar biskups. Hún
var löggilt til fermingarundirbúnings
með ráðgjafabréfi 6. júlí sama ár.
Naut þetta kver allmikilla vinsælda
og kom 6. prentun þess út 1923.
Klavenesskverið var talsvert styttra
en Helgakver og kölluðu sumir það
af þeim sökum tossakverið enda var
kver Balslevs úr sögunni þegar hér
var komið og nafnið því á lausu.
Árið 1906 voru gefin út „Kristin
barnafræði í ljóðum“ eftir sr. Valdi-
mar Briem, síðar vígslubiskup. Bók-
in er í tveimur hlutum og í daglegu
tali nefnd „Ljóðakverið“. Í fyrri hlut-
anum, sem ber heitið Kristileg trú-
aratriði, eru 20 kaflar. Í seinni hlut-
anum, Kristilegar lífsreglur, eru 10
kaflar. Á blaðrönd eru prentaðar
ívitnanir í ritninguna, oft 5–6 á hverri
blaðsíðu. Allmargar ívitnanir eru
merktar stjörnu og ber að nema þær
utan að.
Árið 1931 kemur svo út bókin
„Kristin fræði“ eftir sr. Friðrik Hall-
grímsson. Sú bók var oftsinnis prent-
uð síðan, enda var hún það kver sem
mest var notað löngum eftir útkomu
þess.
Ári síðar, 1932, kemur „Námsbók í
kristinfræðum handa börnum“ eftir
sr. Böðvar Bjarnason.
Árið 1937 birtist „Kver til ferming-
arundirbúnings ungmenna“ eftir sr.
Þorstein Kristjánsson, lengst af
prest í Sauðlauksdal.
Enn lífsmark með Helgakveri
Enn mátti sjá lífsmark með Helga-
kveri um miðja öldina þegar sr. Guð-
mundur Einarsson prófastur gaf það
út í endurskoðaðri og styttri útgáfu
1944, „sniðið eftir Barnalærdómi
Helga Hálfdánarsonar“. Það nefnd-
ist „Kristilegt barnalærdómskver til
undirbúnings undir fermingu“. Og
sama ár kom út „Vegurinn“ eftir sr.
Jakob Jónsson og átti eftir að verða
prentuð nokkrum sinnum.
Árið 1953 kom út „Líf og játning“
eftir Valdimar V. Snævarr.
Árið 1957 kom „Leiðarljós“ eftir
sr. Árelíus Níelsson.
Árið 1964 kom út. „Fermingar-
undirbúningur“ sr. Páls Pálssonar á
Bergþórshvoli, fjölritað sem handrit.
Sú bók kom aukin og endurbætt árið
1990 og bar þá nýtt heiti, „Ferming-
arkverið“.
Árið 1970 birtist svo „Kristin trú-
fræði“ eftir Ebbe Arvidsson og Tage
Bentzer, í þýðingu sr. Þóris Steph-
ensen. Kom hún út nokkrum sinnum
eftir það.
Og 1976 kemur „Líf með Jesú“ eft-
ir Jan Carlquist og Henrik Ivarsson í
þýðingu Einars og Karls Sigur-
björnssona. Önnur útgáfa þeirrar
bókar kom út 1997, í þýðingu Karls
Sigurbjörnssonar biskups.
Árið 1986 er gefin út bók-
in „Ef þú bara vissir“; höf-
undur Gunnar Pleijel en
þýðandi sr. Tómas Sveins-
son.
Og árið 1994 kemur svo
nýjasta bókin; hún nefnist
„Samferða“ og er eftir sr.
Jón Ragnarsson.
Eru þá upp talin barna-
lærdómskver í lúterskum sið á Ís-
landi.
Helgakver og
arftakar þess
Úr bókinni: Frosti F. Jóhannsson (ritstjóri). Íslensk þjóðmenning. V. Reykjavík 1988.
Ferming í dómkirkjunni í Reykjavík.
Prestur er Friðrik Hallgrímsson,
sem þjónaði við dómkirkjuna frá
1925 til 1945. Hann er líka mað-
urinn á bak við fermingarkverið
Kristin fræði, sem út kom fyrst árið
1931 og a.m.k. þrír prestar notuðu
enn á árunum 1979–1980.