Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 41
ennfremur með tómatbátum, vín-
berjahelmingum og steinselju.
Ostakaka með
ávöxtum
Klassísk ostakaka handa sex. Fín
með ferskum ávöxtum út á, t.d. kíví
og/eða jarðarberjum.
Skelin
250 g heilhveitikex
1 tsk kanell
100 g bráðið smjör
Fyllingin
500 g rjómaostur
2 dl sykur
3 egg
2 tsk vanillusykur
Aukinheldur 3–4 dl sýrður rjómi og
ferskir ávextir, t.d. jarðarber og/eða
kíví, skornir í sneiðar
1. Myljið kexið vel og hrærið kanel
og bráðnu smjörinu saman við.
Þrýstið þessu í botninn og upp með
barminum á lausbotna formi sem er
u.þ.b. 24 cm í þvermál. Bakið við 175°
í 5 mín.
2. Hrærið ostinn til að mýkja hann
og að því búnu saman við hann eggj-
um, sykri og vanillusykri. Hellið fyll-
ingunni yfir botninn og bakið í 45
mín. Látið kökuna kólna í 10–15 mín.
Hrærið sýrða rjómann svo hann
verði meðfærilegri og smyrjið hon-
um svo yfir kökuna og bakið í 5 mín.
til viðbótar.
3. Losið kökuna varlega frá brún-
um formsins. Látið hana kólna áður
en hún er losuð úr forminu. Látið
kökuna standa í kæliskáp í nokkra
tíma áður en hún er borin fram fag-
urlega skreytt með niðurskornum
ávöxtum.
Eplabaka
Best sjóðheit úr ofninum ásamt
sýrðum rjóma eða þeyttum. Upp-
skrift handa sex.
2 dl bráðið smjör
4 dl haframjöl
2 dl púðursykur
½ tsk salt
5–6 epli
rúmlega 1 dl af vatni
2 msk apríkósumauk
1. Setjið ofninn á 180°.
2. Blandið saman í skál haframjöli,
púðursykri, salti og bræddu smjöri.
3. Afhýðið öll eplin nema eitt, fjar-
lægið kjarnana og skerið þau í þunn-
ar sneiðar.
4. Smyrjið eldfast fat og setjið í
það til skiptis lag af hafra-
mjölsblöndu og eplasneiðum – byrjið
og endið á haframjölinu. Dreypið
vatninu yfir.
5. Skerið síðasta eplið í þunnar
sneiðar með hýðinu og raðið þeim yf-
ir fatið, og smyrjið að lokum aprík-
ósumaukinu yfir sneiðarnar. Bakið í
miðjum ofni í 40–50 mín.
Amerískar
pönnukökur
Þetta er sáraeinföld pönnuköku-
uppskrift sem hvaða eldhúsauli sem
er ætti að ráða við. Deigið nægir í
u.þ.b. 8 kökur.
2 dl hveiti
½ tsk salt
2 tsk sykur (aðeins í pönnukökur með
sætri fyllingu)
4 egg
2½ dl mjólk
½ dl (50 g) bráðið smjör
1. Blandið þurrefnunum saman í
skál. Þeytið egg og mjólk saman við
og hrærið að lokum bræddu smjör-
inu út í.
2. Hitið pönnukökupönnuna eða
miðlungsstóra steikarpönnu á miðl-
ungsheitri hellu. Gott er að strjúka
heitan pönnubotninn með eldhús-
pappír vættum í matarolíu áður en
sjálf steikingarfeitin (smjör eða olía)
er sett á. Bráðin feitin á ekki að vera
meiri en svo að hún rétt nái að þekja
pönnuna.
3. Þegar feitin er orðin nógu heit
(farin að krauma) takið þið til við að
steikja fyrstu pönnukökuna. Þegar
loftbólur myndast í kökunni og neðra
borð hennar er orðið gyllt snúið þið
henni við. Gott ráð til að halda
pönnukökunum vel heitum á meðan
á steikingu stendur er að hafa sjóð-
andi vatn í potti á eldavélinni, setja
disk ofan á og stafla pönnukökunum
á hann.
Saltar fyllingar
– Sneiðið niður nokkrar beikon-
sneiðar og sveppi, steikið og hrærið
saman við hreina jógúrt.
– Hrærið saman rauðum grá-
sleppuhrognum og hreinni jógúrt,
kryddið með dilli.
– Hrærið saman („skramblið“) á
heitri pönnu eggjum, hreinni jógúrt
og rifnum osti.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 41
Allt um
fermingar
Á FERMINGARBORÐIÐ
Ljósmynd/Páll Stefánsson
Hanna og Áslaug matkonur.