Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 1
TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 28. MARS 2001
ÁTJÁN albanskir skæruliðar voru
í gær handteknir á landamærum
Makedóníu og Kosovo. Þeir hafa
hörfað í átt til fjalla eftir að make-
dónski herinn tók flest þorp og
lykilstöður skæruliðanna í áhlaupi
sem staðið hefur yfir síðan á
sunnudag. Enn er þó barist á
stöku stað næst landamærunum.
Þar hefur sést til skæruliða og
hefur eftirlit verið hert. Dregið
hefur úr flóttamannastraumnum
frá Makedóníu og eru þess jafnvel
dæmi að flóttamenn hafi snúið aft-
ur, að sögn Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
Alls stöðvaði friðargæslulið Atl-
antshafsbandalagsins, KFOR, yfir
100 manns innan landamæra Kos-
ovo í gær, grunaða um að tilheyra
albönskum skæruliðum sem barist
hafa í Makedóníu. Flestum var
hins vegar sleppt þar sem þeir
voru hvorki vopnaðir né í einkenn-
isbúningum. Urður Gunnarsdóttir,
blaðamaður Morgunblaðsins, kom
að landamærunum á tveimur stöð-
um skammt frá þorpinu Krivenik
sem er um 3 km norður af þeim.
Á báðum stöðum sást til lítilla
hópa skæruliða í skóginum og uppi
í fjallshlíðum. Þeir voru hins vegar
ekki reiðubúnir að ræða við blaða-
menn. Erfitt og hættulegt er að
athafna sig á svæðinu, þar sem
jarðsprengjum hefur víða verið
komið fyrir. Þá hefur jörð víða
verið sviðin til að marka landa-
mærin og líklega til að gera
skæruliðum erfiðara fyrir að nota
tré sem skjól.
Í Krivenik, þar sem um 400
manns búa, heyrðust í gær skot-
hvellir og sprengjudrunur frá
landamærunum en makedónski
herinn staðfesti að enn væri barist
í bænum Gracane, 3 km suður af
landamærunum. Apache-þyrlur
bandaríska hersins sveimuðu yfir
Krivenik og bandarískar og
finnskar eftirlitssveitir voru á ferli
í og við þorpið.
Í býtið í gærmorgun höfðu
pólskir og úkraínskir hermenn
gert vopnaleit í Krivenik en ekkert
fundið, að sögn þorpskennarans,
Ahmet Cajani. „Þetta hefur verið
erfitt ástand, með þyrlurnar dag-
lega yfir höfðum okkar og átökin
svona nálægt. Það eiga margir erf-
itt með svefn þessa dagana,“ sagði
hann.
Astrid van Gendereren Stort,
talskona Flóttamannahjálpar SÞ,
sagði að ekki færri en 6.000 manns
hefðu komið yfir til Kosovo síðustu
daga til að flýja átökin en líklega
væru þeir fleiri. Hún sagði erfitt
að meta fjöldann þar sem allir
hefðu fengið inni í heimahúsum.
Flóttamannahjálpin er hins vegar
reiðubúin að hýsa þá í skólum og
öðrum byggingum, fari svo að
flóttamannastraumurinn færist í
aukana að nýju. Enn sem komið er
eru flestir flóttamannanna, að
minnsta kosti 20.000 manns, enn
innan landamæra Makedóníu.
Albanskir uppreisnarmenn flýja undan áhlaupi makedónska hersins
Skæruliðar handteknir
innan landamæra Kosovo
Skopje. Krivenik í Kosovo. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Thomas Dworzak
Eftirlitsþyrlur bandaríska hersins sveima yfir höfðum íbúa Krivenik í Kosovo-héraði. Þorpið er aðeins í þriggja
kílómetra fjarlægð frá landamærunum sem liggja að Makedóníu og hefur sést til skæruliða í og við það.
Skipast í fylkingar/21
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sagði á
ráðstefnu arabaríkja, sem hófst í
Amman í Jórdaníu í gær, að „sam-
safnaðar refsiaðgerðir“ Ísraela hefðu
alið á reiði og örvæntingu meðal Pal-
estínumanna, og hvatti til þess að
friðarumleitanir hæfust á ný hið
fyrsta.
Eru þetta hörðustu orð sem fram-
kvæmdastjórinn hefur látið falla um
hernaðar- og efnahagsaðgerðir Ísr-
aela. Sagði Annan að heimurinn hefði
fullan rétt á að gagnrýna Ísraela fyrir
hersetu á arabísku landsvæði og fyrir
að „bregðast alltof harkalega“ við
uppreisn Palestínumanna.
Tvær sprengjur sprungu í Jerúsal-
em í gær um það leyti sem ráðstefna
arabaríkjanna var að hefjast, en dag-
inn áður hafði barn gyðingalandnema
á Vesturbakkanum verið skotið til
bana og Ísraelar af þeim sökum orðið
æfir í garð Palestínumanna.
Lögregla í Ísrael sagði að tilræð-
ismaður hefði sprengt sjálfan sig í loft
upp við strætisvagn í gyðingahverfi
og orðið sjálfum sér að bana og sært
að minnsta kosti sjö farþega í vagn-
inum. Fyrr um daginn sprakk bíl-
sprengja nærri strætisvagni og særð-
ust þrír. Herskáir múslimar lýstu sig
ábyrga fyrir því tilræði.
Aukin valdbeiting
af beggja hálfu
Leiðtogi Palestínumanna, Yasser
Arafat, sagði á ráðstefnunni í Amman
að þjóð sín væri í grundvallaratriðum
andvíg hryðjuverkum og ofbeldi. Ar-
afat skírskotaði ekki beinlínis til
sprengjutilræðanna í Jerúsalem.
„Það er von okkar að ráðstefnan
sendi skýr skilaboð til Ísraela og um-
heimsins þess efnis að það er ógern-
ingur að einangra palestínsku þjóð-
ina, eða svipta okkur réttindum
okkar,“ sagði Arafat. Bashar al-Ass-
ad, forseti Sýrlands, sagði að þeir
Ísraelar sem hafi greitt Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, atkvæði í
kosningunum í síðasta mánuði, væru
afsprengi samfélags þar sem ríkjandi
væri „meira kynþáttahatur en hjá
nasistum“.
Sérstakur rannsóknarfulltrúi SÞ,
Giorgio Giacomelli, sakaði í gær Ísr-
aela um að auka „óhefta valdbeitingu“
gegn Palestínumönnum er stæðu að
mótmælaaðgerðum. Hefðu Ísraelar
þar að auki fellt að minnsta kosti 13
Palestínumenn í fyrirsátum og eyði-
lagt hundruð palestínskra heimila. Í
skýrslu Giacomellis til Mannréttind-
aráðs SÞ segir að valdbeiting hafi
aukist af beggja hálfu, en hann lætur
þess getið að sér hafi eingöngu verið
falið að kanna mannréttindabrot Ís-
raela á herteknu svæðunum.
Ráðstefna arabaríkja hafin í Amman í Jórdaníu
Kofi Annan gagnrýnir
Ísraela fyrir hörku
Amman, Genf. Reuters, AP.
GRUNUR leikur á að gin- og
klaufaveiki sé komin upp í Dan-
mörku. Embættismenn danska mat-
vælaeftirlitsins staðfestu í gær að
talið væri að veikin hefði greinst í
þremur kúm frá bóndabæ nálægt
Egtved í Vejle, en um 150 kýr eru á
bænum.
Niðurstaðna nánari rannsókna á
kúnum er að vænta í dag. Innflutn-
ingur fjár á fæti til Danmerkur hef-
ur verið bannaður frá 11. febrúar og
danski landbúnaðarráðherrann, Ritt
Bjerregaard, hefur jafnframt bann-
að útflutning lifandi dýra, þar sem
flutningabifreiðar geta borið með
sér smit á bakaleiðinni. Nú er óttast
að gin- og klaufaveikin hafi engu að
síður borist til Danmerkur, en henn-
ar varð þar síðast vart árið 1983.
Bretar íhuga bólusetningu
Evrópusambandið framlengdi í
gær bann við útflutningi dýra, kjöt-
og mjólkurafurða frá Bretlandi og
hluta Norður-Írlands til 19. apríl.
Breski landbúnaðarráðherrann,
Nick Brown, lagði í gær fram áætl-
un um hvernig hefta megi út-
breiðslu gin- og klaufaveiki í land-
inu, en meðal annars verður lagt
bann við notkun matarleifa í dýra-
fóður. Bresk stjórnvöld telja nú að
smit hafi borist til landsins með
smygluðu kjöti og að afgangar af
því hafi farið í fóður. Brown sagði í
gær að ríkisstjórnin íhugaði jafnvel
að grípa til bólusetningar gegn gin-
og klaufaveiki, en hingað til hafa
stjórnvöld lagst gegn því. Óskað
verður eftir leyfi til bólusetningar
frá ESB.
Grunur
um smit
í Dan-
mörku
Brussel, Kaupmannahöfn, London. AFP, AP.
Glíma við/20
TIL átaka kom í gærkvöld milli
lögreglu og þýskra kjarnorkuand-
stæðinga, sem reyndu að hindra för
járnbrautarlestar er flutti kjarn-
orkuúrgang frá endurvinnslustöð í
Frakklandi á geymslustað í Gorleb-
en í Norður-Þýzkalandi.
Óeirðalögregla átti fullt í fangi
með að halda aftur af um 200 her-
skáum mótmælendum í Dannen-
berg, þar sem til stóð að flytja
farminn í nótt yfir á vörubíla, sem
flyttu hann síðustu 25 kílómetrana
til Gorleben. Mótmælendur skutu
blysum að lögreglu, sem þurfti að
beita táragasi til að halda þeim í
skefjum. Nokkur þúsund manns
tóku einnig þátt í friðsamari mót-
mælum við járnbrautarstöðina í
Dannenberg.
Hundruð manna reyndu að tefja
för lestarinnar í gærdag. Á mynd-
inni sést mótmælandi sitja keikur
ofan á einum af sex sérhönnuðum
Castor-gámum, sem kjarnorku-
úrgangurinn er fluttur í. Tókst
honum að komast þangað, þrátt
fyrir stranga gæzlu, með því að
stökkva ofan á lestina af lágri brú.
AP
Átök vegna
flutnings
kjarnorku-
úrgangs
Wendisch Evern, Lüneburg. AFP, Reuters.