Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ GUÐRÚN Ögmundsdóttir, Sam- fylkingunni, var málshefjandi í um- ræðunni, en til andsvara var Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra. Kom fram í máli Guðrúnar og raun- ar fleiri alþingismanna mikil ánægja með þær tvær skýrslur um vændi á Íslandi sem unnar hafa verið á veg- um dómsmálaráðuneytisins, og sagði hún margs að vænta með framhaldið. Skýrslan hafi ekki kom- ið sér á óvart persónulega, enda hafi reynsla sín í starfi opnað þennan heim fyrir sér. Hún sagðist hins vegar vita til þess að skýrslan hafi komið mörgum í opna skjöldu, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, enda hafi flestir eflaust talið að svona lag- að þrifist alls ekki á Íslandi. „Því miður hefur oft einkennt um- ræðu hér á landi um erfið mál, eins og ofbeldi, sifjaspell og vændi, að við höldum alltaf að það viðgangist ekki hjá okkur. Hvaðan koma slíkar hug- myndir um að við séum með ein- hverja félagslega yfirburði og höfum engin sóðaleg vandamál eins og aðr- ar þjóðir?“ spurði þingmaðurinn og sagði þetta sjálfstætt rannsóknar- efni útaf fyrir sig. Snýr ekki aðeins að unga fólkinu Guðrún benti á að umræddar skýrslur og umræða um vændi á Ís- landi í kjölfar þeirra, skapi nú mögu- leika og tækifæri til að opna augun og gera eitthvað í málunum. Sagði hún margt hanga á spýtunni og ekki þyrfti aðeins að hafa áhyggjur af unga fólkinu; fátækar konur á öllum aldri, þess vegna fast að sjötugu, þurfi að selja sig vegna hreinnar og klárrar fátæktar. Nefndi hún tvennt sem væri órjúfanlegur angi af þessum heimi þar sem einnig þyrfti að bregðast við með skjótvirkum hætti. Hið fyrra væri mansalið, sem þjóðir heims væru nú að skera upp herör gegn og væri mál málanna í dag í Evrópu og Bandaríkjunum. Sagði hún þann þátt teygja anga sína hingað til lands og talið sé að ákveð- inn hópur af dönsurum nektardans- staða sé í þeirri stöðu að vera seldur land úr landi. „Ég veit meira að segja um slíkt og það er grafalvarlegt mál sem á ekki aðeins við um sjálfráða konur, heldur líka barnungar stúlkur sem tældar hafa verið burt að heiman.“ Hitt atriðið, sem Guðrún nefndi, snýr að klámi. Sagðist hún telja að venjulegt fólk hafi ekki einu sinni hugmyndaflug til að ímynda sér hvað fari fram í stórum hluta klám- heimsins og þeirrar kvikmynda- gerðar sem til hafi orðið. Ljósblátt, sem særi suma, sé barnaleikur við hliðina á slíku efni, þar sem sé að finna hart klám sem feli í sér ofbeldi og niðurlægingu og þar sem öllum gildum sé snúið á haus. Dæmi um þetta séu myndaflokkar eins og barnaklám, flengingar og barsmíð- ar, ófrískar konur, feitar konur og hér þurfi auðvitað að taka til hend- inni, því þetta þrífist hér á landi sem aldrei fyrr og afar auðvelt sé að verða sér úti um efni af þessum hrottafengna toga. Þingnefndum verði sýnd brot úr slíkum myndum Guðrún sagði að þetta geti ekki verið fyrirmyndir ungs fólks í kynlífi og hafði hún hug á því að sýna brot úr þessum myndum fyrir allsherj- arnefnd og félagsmálanefnd, og kannski ætti þingheimur allur að skoða brot af því sem er í boði. Það sé vissulega ekki fagurt, en raun- veruleikinn engu að síður. Guðrún sagði í lok máls síns, að ekki ætti að varða við hegningarlög að selja sig vegna félagslegrar neyð- ar og því verði að breyta núgildandi lögum. Hins vegar eigi að herða eins og hægt er löggjöf vegna dólga og milligöngumanna sem hafi líf og neyð fjölda kvenna, ungra stúlkna, drengja og jafnvel barna í hendi sér. Taldi hún einnig forgangsmál að koma á fót ráðgjöf fyrir þá sem stunda vændi og þær konur sem seldar eru á milli landa. Nefnd skipuð til að gera tillögur um viðbrögð Í máli dómsmálaráðherra kom fram, að skýrslurnar tvær séu vel unnar og leggi grundvöll að stefnu- mótun til framtíðar í þessum mála- flokki. Ítrekaði hún jafnframt að í samráði við ríkisstjórnina hafi hún ákveðið að skipa nefnd sem hafi það hlutverk að gera tillögur um við- brögð við þessum niðurstöðum. Nefndinni verði falið að meta vand- ann af þverfaglegum sjónarhóli. M.a. verði farið yfir gildandi refsilög sem varða vændi og kynferðislega misnotkun, rannsókn og meðferð slíkra mála, þar með talinn stuðn- ingur við þolendur og hvort unnt sé að veita börnum og unglingum rík- ari refsivernd á þessu sviði. Þá verði verkefni nefndarinnar að kanna hvort ástæða sé til að setja reglur um rekstur og starfsemi nektardansstaða til þess að sporna við vændi. Sólveig sagðist telja mikilvægt að málið fari í þennan farveg og fái vandaða umfjöllun. Viðfangsefnið sé ekki einfalt og þurfi að fá viðamikla skoðun. Minnti hún þingmenn á þau tímamót sem urðu með tilkomu nauðgunarmálanefndar og niður- stöðum hennar í lok 9. áratugarins. Fram að þeim tíma hafi kynferð- islegt ofbeldi að ýmsu leyti ekki fengið viðhlítandi umfjöllun í stjórn- kerfinu, en nú hafi flestar tillögur þeirrar nefndar komist í fram- kvæmd og bætt mjög meðferð þess- ara mála, þótt enn sé verk fyrir höndum. Kynlífsiðnaður hefur sprottið upp „Ég vonast til þess að sú nefnd sem ég hef ákveðið að skipa geti með sama hætti tekið á máli sem alltof lengi hefur legið í þagnargildi. Umræðan hefur þó aukist að und- anförnu, sem á ekki síst rætur að rekja til þess að svonefndur kynlífs- iðnaður hefur sprottið upp hratt hér á landi og dafnað vel, að því er virð- ist. Sú þróun vekur auðvitað upp ýmsar áleitnar spurningar, m.a. um hver við viljum að íslenskt samfélag stefni í þessum efnum,“ sagði hún. Dómsmálaráðherra sagði enn- fremur að skýrsla um vændi á Ís- landi og félagslegt umhverfi þess sýni napran veruleika þeirra sem stundi vændi. Vændið tengist iðu- lega fíkniefnanotkun, einstakling- arnir eigi oft að baki sögu um mis- notkun eða bágar heimilisaðstæður, og vændið sjálft skilji eftir djúp sár. Ýmislegt sem fram komi í skýrsl- unni bendi jafnframt til þess að gild- andi löggjöf vinni gegn því að þessir einstaklingar leiti sér aðstoðar vegna vanda síns, jafnvel í heilbrigð- iskerfinu. Sú spurning hljóti því eðli- lega að vakna hvort ekki sé eðlilegt að færa íslenska löggjöf til samræm- is við Norðurlöndin að þessu leyti. Þá benti ráðherra á að á Íslandi miðist svokallaður kynferðislögald- ur við 14 ár, sem þýði að refsivert sé að hafa kynmök við einstakling yngri en 14 ára. Þetta viðmið sé hærra á Norðurlöndunum og telji hún mikilvæg rök hníga að því að hækka þetta aldursviðmið hér á landi. Hækkun kynferðislegs lögald- urs myndi því stuðla að ríkari vernd fyrir þennan aldurshóp gegn eldri einstaklingum sem hyggjast not- færa sér þroskaleysi þeirra í kyn- ferðislegum tilgangi. Ennfremur nefndi hún að í öllum öðrum ríkjum Norðurlanda sé að finna sérstök ákvæði sem leggja refsingu við kaupum vændisþjón- ustu barna og ungmenna. Engin ákvæði í íslenskum lögum geri hins vegar afdráttarlaust refsivert að kaupa vændisþjónustu af börnum eldri en 14 ára. Sagðist hún telja eðlilegt og sjálfsagt að lögð sé refs- ing við slíku þegar börn eiga í hlut og skýrslan bendi til þess að þörf sé á lagabreytingum í þá veru. Slíkt breyting fæli í sér að refsivert yrði að kaupa vændisþjónustu af einstak- lingi, yngri en 18 ára. Fjölmargir þingmenn tóku til máls í umræðunni og luku allir lofs- orði á dómsmálaráðherra fyrir að standa fyrir úttekt á þessum mála- flokki. Lýstu þeir jafnframt yfir áhyggjum af stöðu mála og þeirri þróun sem hefði átt sér stað á und- anförnum árum. Hjálmar Árnason, Framsóknar- flokki, sagði að skýrslurnar leiddu í ljós smánarblett á samfélaginu og ljóst væri að þverpólítískur vilji væri um aðgerðir, t.d. breytingu á refsi- ákvæðum með það að augnamiði að ná þeim sem nýti sér eymd annarra og jafnvel hagnist á henni. Sagðist hann vænta mikils af því nefndar- starfi sem ráðherra hefði boðað. Sigríður Jóhannesdóttir, Sam- fylkingunni, sagði í þessu ljósi nauð- synlegt að beina sjónum að því sem gerði jarðveginn frjóan fyrir af- brigðilegar hugmyndir um kynlíf og æstu fólk til dáða á þeim refilstigum. Sagði hún kynlífsiðnað blómstra hér á landi svo með ólíkindum væri. Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri grænum, fagnaði því þó að umræða um vændi væri nú að koma upp úr kafinu hér á landi. Staðfest sé að vændi fyrirfinnist hér og skipulagt vændi tengist þeim kynlífsiðnaði sem hér hafi fengið að dafna við mikið andvaraleysi yfirvalda. Benti Steingrímur á að Ísland væri eitt Norðurlanda um að refsi- vert væri að lenda í þeirri ógæfu að selja líkama sinn, en það ætti auðvit- að að vera öfugt og þeir sem nýti sér kynlífsþjónustu eigi að sæta ábyrgð. Vísaði hann m.a. til nýrra laga í Sví- þjóð um refsingar við kaupum á kynlífsþjónustu. Soffía Gísladóttir, Sjálfstæðis- flokki, sagði að tímamót fælust í að ekki væri lengur um upphrópanir og fjaðrafok, heldur marki áfanga- skýrslan upphaf upplýstra aðgerða um þessi viðkvæmu mál. Alþingismenn lýstu, við utandagskrárumræðu, áhyggjum sínum af klámbylgju hér á landi Tækifæri til að gera eitthvað í málunum Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Dómsmálaráðherra var til andsvara. Skýrsla um vændi var unnin á vegum dómsmálaráðuneytisins. Vændi á Íslandi var til umræðu utan dag- skrár á Alþingi í gær, í ljósi nýrrar skýrslu dómsmálaráðuneytisins. Dagskrá Alþingis miðvikudaginn 28. mars 2001, 100. fundur hefst kl. 13:30 Atkvæðagreiðslur: 1. Barnaverndarlög. 2. Útsendir starfsmenn. 3. Viðskiptabankar og sparisjóð- ir. 4. Kísilgúrverksmiðja við Mý- vatn. 101. fundur hefst strax á eftir. Fyrispurnir til samgönguráð- herra: Steinsteypa til slitlags- gerðar, fsp. frá GE Verð á mölun steinefna fyrir Vegagerðina, fsp. frá GunnB. Póstþjónusta, fsp. frá JB. Fyrirspurn til heilbrigð- isráðherra: Brjóstastækkanir, fsp. frá KF. Fyrirspurnir til umhverf- isráðherra: Náttúruvernd- aráætlun, fsp. frá ÞSveinb. Kostnaður við aðal- og svæð- isskipulag, fsp. frá JÁ. Vikurnám við Snæfellsjökul, fsp. frá JÁ. Viðbrögð við skýrslum Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar, fsp. frá KF. Eftirlit með matvælum, fsp. frá KF. Fyrirspurn til dómsmálaráð- herra: Samfélagsþjónusta, fsp. frá ÞKG. Fyrirspurn til viðskiptaráð- herra: Uppgjörsaðferðir fjár- málafyrirtækja, fsp. frá EKG. SNARPAR umræður urðu um við- brögð íslenskra stjórnvalda við gin- og klaufaveikifárinu í Evrópu á Al- þingi í mánudag. Kristján Pálsson, Sjálfstæðisflokki, upplýsti þá að inn- flutningur gæludýrafóðurs væri enn leyfður, m.a. á fóðri sem innihéldi svína- og nautakjöt, og þá væri enn leyft að flytja inn korn og kornfóður frá löndum þar sem sýkingar hefði orðið vart. Sagði Kristján að sér virt- ist sem ekki væri tekið á þessum málum af þeirri alvöru sem bæri, miðað við alvöru málsins. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra brást reiður við þessum um- mælum þingmannsins og sagði starfsfólk ráðuneytisins og fleiri að- ila leggja nótt við dag að verja landið fyrir þessari plágu. „Það getur vel verið pólitískur fengur fyrir menn að koma upp og segja að ekki sé tekið á málum af nægilegri alvöru. En það er ekki rétt og allir eru tilbúnir til samstarfs, ekki síst íslenska þjóðin,“ sagði hann. Kristján Pálsson sagðist undrast viðbrögð ráðherra. „Það er ekki póli- tískur fengur fyrir nokkurn mann að standa í þessu vandamáli og mér finnst með ólíkindum að ráðherra skuli segja þetta. Ég tel mig ekki græða eitt einasta atkvæði á þessu og við töpum, öll þjóðin, ef þetta fer illa,“ sagði hann. Ráðherra sagði að sér hefði hlaup- ið kapp í kinn, en bætti því við að sér þætti ekki heiðarlegur málflutningur að láta í veðri vaka að menn hans væru ekki vakandi. Innflutningur á notuðum landbúnaðartækjum bannaður Gunnar Birgisson, Sjálfstæðis- flokki, gerði gin- og klaufaveikina einnig að umtalsefni og spurði um innflutning notaðra vinnuvéla, sem ef til vill gætu borið með sér smit. Svaraði ráðherra því til að eitt af hans fyrstu verkum í embætti hefði verið að banna innflutning notaðra landbúnaðartækja. Gunnar spurði einnig um aðgerðir varðandi farþegaflutninga ferjunnar Norrænu nú í sumar. Sagði ráðherra að vinna yrði sett í gang varðandi þau mál, þótt enn sem komið er hefði áhersla verið lögð á varnir í flugstöð- inni í Keflavík. Deilt um varnirnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.