Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 39 breytt þeirri átakanlegu staðreynd, hvorki spakmæli né skáldlegar til- vitnanir fá deyft sársauka og hugar- kvöl sem harmur og sorg valda að- standendum og vinum. Það er erfitt að sjá á bak góðum samferðamanni með svo skömmum fyrirvara. Eng- inn aðlögunartími gefinn. Aðeins tveggja sólarhringa óvissa frá skyndilegum og algerlega óvæntum veikindum. Tvísýn aðgerð þar sem allt var reynt til bjargar. Svo er öllu lokið. Það er einmitt undir þessum kringumstæðum sem smæð og van- máttur mannsins í samspili tilver- unnar verður augljós þrátt fyrir alla tæknina og framfarirnar. Heiðar Ólason hittum við Valdís fyrst þegar kynni hans og Rögnu systur minnar hófust. Hann var þá rúmlega tvítugur, ungur og hressi- legur strákur frá Keflavík sem hafði komið til að vinna eitt sumar á Dalvík hjá fyrirtæki skyldmenna sinna. Síð- an hafa leiðir okkar legið saman. Margar samverustundir hafa fjöl- skyldurnar átt í rúmlega tvo áratugi og minnumst við þeirra með þakk- læti og söknuði. Heiðar var glaðvær að eðlisfari og ekki vílsamur þótt á móti blési. Hann hafði ákveðnar skoðanir á málum og kvikaði hvergi frá þeim þótt viðmæl- endur hans kynnu að hafa aðra sýn. Hann var duglegur að hverju sem hann gekk, verkhygginn og útsjón- arsamur með afbrigðum. Því kynnt- ist ég af eigin raun þegar ég, þó að í litlum mæli væri, vann með honum að byggingu einbýlishúss þeirra við Ægisgötu á Dalvík og þáði síðar í staðinn ómetanlega aðstoð hans við fyrstu skrefin við byggingu sum- arbústaðar okkar. Þá var ekki verið að tvínóna við hlutina. Verkefnið lá opið fyrir honum þótt vinnuteikning- ar væru engar, grindin reist yfir eina helgi og sperrur settar upp þá næstu. Þar með varð eftirleikurinn tiltölu- lega auðveldur. Í sumarbústaðnum hafa verið margar sameiginlegar ánægjustundir. Grillveislur þar sem Heiðar var gjarnan í hlutverki mat- reiðslumannsins sem hann leysti ávallt vel af hendi, „jólaboð“ sem reyndar eru haldin að sumrinu þar sem „stórfjölskyldan“ hefur komið saman eina dagsstund. Þar var hann hrókur alls fagnaðar í blaki og öðrum leikjum og uppátækjum. Síðast en ekki síst má nefna haustferðir sem voru orðnar því nær árlegur viðburð- ur þar sem safnað var eldiviði til vetr- arins með tilheyrandi dagamun. Þar munaði svo sannarlega um hendurn- ar og sögina hans Heiðars. Það var alltaf gott að leita til Heið- ars ef á þurfti að halda. Hjálpsemi var honum í blóð borin og þyrfti að- stoð við lagfæringar á húsnæði eða einhverju öðru var hann óðara kom- inn með verkfæri og annað sem til þurfti. Umhyggja fyrir öðrum var honum líka eiginleg. Það er börnun- um okkar mjög minnisstætt þegar aflífa þurfti kanínur sem þau áttu. Þá kom Heiðar færandi hendi með sæl- gæti þeim til huggunar. Þessi eigin- leiki kom einnig skýrt í ljós við veik- indi og fráfall tengdaföður hans fyrir rúmum fjórum árum. Sjálfur lét hann ekki mikið á því bera en við fundum hugann sem að baki lá. Heiðar var mjög félagslyndur og hafði ánægju af því að vera samvist- um við aðra og kunni vel að gleðjast með glöðum. Hann hafði einnig ánægju af því að vinna að félagsmál- um. Það sýndu störf hans á unga aldri fyrir ungtemplararegluna í Keflavík, vinna við félagsmiðstöð unglinga á Dalvík og þátttaka í starfi foreldrafélags Síðuskóla á Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Á tiltölulega stuttri ævi sinni áv- ann Heiðar sér almennar vinsældir samferðamanna sinna bæði í leik og starfi. Dugnaður, framtakssemi og vandvirkni voru hans aðalsmerki. Hann gat látið verkin tala svo eftir væri tekið. Tvisvar sinnum byggði hann og fjölskyldan einbýlishús að mestu leyti á eigin spýtur fyrst, á Dalvík og svo á Akureyri og nú síðast eftir að fjölskyldan flutti til Reykja- víkur vann hann að innréttingum á íbúðinni að Skúlagötu 44. Allt þetta hefur borið vitni um hagleik og hæfni gerandans. Elsku Ragna og fjölskylda. Kæri Óli, systkini Heiðars og fjölskyldur, svo og aðrir sem um sárt eiga að binda. Guð styrki ykkur í sorginni og leggi líkn með þján á þessum erfiðu stundum. Verum þó öll meðvituð um að við eigum góðar minningar sem eru okkur dýrmætar og lýsa fram á veginn ásamt hækkandi sól. Þótt sorgin nísti hjartað nú mun tíminn verða okkur smyrsl á sárin. Vignir Sveinsson og fjölskylda. Þakka þér Heiðar við viljum, nú þegar að við skiljum. Héðan þú hverfur nú, harm þrungin stundin sú. Þína góðvild í okkar garð, ei alla gátum þakkað, það aldrei af því varð. En til endurfunda getum við þó hlakkað. Elsku Heiðar, orðvana er maður á svona stundu. Við viljum þó þakka þér fyrir að hafa verið til og fyrir þann tíma sem við áttum hér með þér. Hvíl þú í friði. Elsku Ragna, Heiðar, Jóhann, Jonna, Erla, Eiður, Andri og Sara, Óli, Addý og fjöl- skyldur. Megi góður Guð vera með ykkur öllum. Soffía og Stefán. Það er skrítin tilfinning að kveðja góðan félaga og vin, ekki eldri en þetta, þegar við erum á toppi tilver- unnar, lausir við mesta brauðstritið og farnir að geta gert nánast allt sem okkur langar til. Fjölskylda Heiðars flutti til Keflavíkur 1965 frá Skaga- strönd þegar Óli, faðir Heiðars, fylgdi skipi sínu suður. Kynni okkar félaganna hófust fljótlega upp frá því. Margs er að minnast frá ung- lingsárunum. Skátastarf, skútusmíði, ferðir á puttanum til Reykjavíkur, ferðalög um landið og Galtalækur. Vinátta okkar strákanna styrktist til frambúðar 1970 þegar Heiðar spurði okkur hvort við værum tilbúnir að taka við Ungtemplarafélaginu Ár- vakri og taka að okkur unglingastarf í Keflavík. Aðdragandinn var að séra Björn Jónsson og Hilmar Jónsson stór- templarar vildu blása nýju lífi í félag- ið. Okkur tókst að gera þetta og jafn- framt fórum við fram á það við Æskulýðsráð Keflavíkur að fá að taka við viðameiri æskulýðsstarfsemi í bænum. Við vorum gerðir að starfs- mönnum Æskulýðsráðs og sáum um opið hús tvisvar í viku fyrir aldurs- hópinn 7 ára til 16 ára. Samhliða þessu fengum við aðgang að Æsku- lýðsheimilinu og stóðum þar fyrir dansleikjum um helgar með stór- hljómsveitum þess tíma, t.d, Júdas, Roof Tops og fleirum, á milli þess sem diskótek voru haldin. Það er svo- lítið skrítið að við, þá 16 ára gamlir, höfðum allan þann stuðning til að standa fyrir þessu á eigin ábyrgð. Í kringum þetta blómstraði svo starfsemi Árvakurs og var stór hóp- ur unglinga sem sótti ferðalög með okkur og var Galtalækur þar okkar stærsta aðdráttarafl. Þar áttum við okkar eigið Árvakursrjóður og höfð- um fengið stórt hertjald sem allir sváfu í og var þar oft þröng á þingi. Okkur er alltaf minnisstætt að með þetta stóra tjald fórum við á Saltvík- urhátíðina margfrægu og í því gisti Árvakurshópurinn. Samhliða þessu mikla starfi höfð- um við mikil samstarf við ungtempl- arafélögin í Reykjavík og Kópavogi og stunduðum gömlu dansana í Templarahöllinni og heimsóttum Hrannarana á Bárugötunni. Ætli það sé ekki nokkuð stór hópur sem fann maka sinn í kringum þetta öfluga félagsstarf. Í öllu þessu starfi var Heiðar mikill drifkraftur. Hann var skemmtilegur í viðkynningu, var staðfastur á sínum skoðunum og vildi ræða hlutina. Hann gat verið uppátækjasamur og stríðinn og það var alltaf eitthvað að gerast í kringum hann. Hann hlífði sér aldrei, var greiðvikinn og alltaf tilbúinn að leggja öðrum hjálpar- hönd. Hann var lærður skipasmiður og var stoltur af því. Um 1976 flutti Heiðar norður á Dalvík og fann hana Rögnu sína, en við héldum þó alltaf sambandi með heimsóknum og ennþá meira eftir að þau fluttu til Ak- ureyrar. Við stofnuðum síðar Fjöl- skyldu- og rjóðravinafélagið Árvak sem í var innsti kjarni gamla félags- ins og hittumst reglulega þó Heiðar og Ragna væru oft fjarverandi vegna búsetu sinnar fyrir norðan. Það var svo á síðasta ári að þau fluttu til Reykjavíkur á Skúlagötuna og sam- skiptin urðu nánari að nýju. Við mættum einn sunnudagsmorgun í morgunmat til þeirra fljótlega eftir að þau hófu búsetu hér fyrir sunnan og áttum anægjulega stund saman. Fyrir aðeins fjórum vikum hitt- umst við í Reykjavík og gerðum margt skemmtilegt, skoðuðum Lista- safn Íslands, barinn hans Gunna Palla, borðuðum á veitingastaðnum Iðnó og fórum á öldurhúsin. Það vantaði Alla og Rannveigu sem búa á Akureyri, en í því sambandi var Heiðari rétt lýst þegar það var ákveðið að sprella svolítið. Hann tók upp símann og hringdi í kunningja- fólk sitt á Akureyri, fékk þau til að kaupa konfektkassa, fara með hann í blómabúðina til Rannveigar, láta hana pakka honum inn á þann hátt eins og hún sjálf mundi vilja hafa ef hann væri til hennar. Rannveig varð mjög hissa, þegar henni var gefið upp nafn viðtakanda og sagði að hún vissi ekki til þess að hún ætti alnöfnu fyrir norðan og var þá sagt að þetta væri til hennar frá hópnum sem væri að skemmta sér í Reykjavík. Elsku Ragna, Jóhann, Erla, Heið- ar og fjölskyldur ykkar, megi góður Guð veita ykkur styrk á þessum erf- iða tíma. Minning um góðan dreng mun alltaf lifa þótt leiðir skilji að sinni. Valdimar Þorgeirsson, Einar Þórðarson, Alexander Pálsson og fjölskyldur. Síðustu daga höfum við vinirnir verið að rifja upp góðar stundir með Heiðari, og með tárin í augunum höf- um við getað brosað og jafnvel hlegið að skemmtilegum uppákomum, sem oft urðu við ýmis tækifæri í lífi okkar. Heiðar var aldeilis ekki alltaf sam- mála síðasta ræðumanni, þannig að oft urðu ánægjulegar rökræður um ýmis málefni, sem efst voru á baugi hverju sinni. Erfitt er að hugsa sér það, að aldrei framar eigi maður eftir að heyra kvartað undan „árgangn- um“, en það var samheiti sem hann hafði yfir okkur félagana. Fyrir réttum tíu árum, á 35 ára af- mælinu mínu, bauð ég þremur jafn- öldrum mínum og eiginmönnum þeirra í mat. Yfir þeirri máltíð var ákveðið að gera „matarkvöld“ að rík- ari venju í lífi okkar, og var Heiðar mjög áhugasamur um það. Heiðar var listakokkur, og eftir að þau hjón fluttu suður vorum við alltaf á leið- inni suður yfir heiðar til að halda „matarkvöld“ hjá þeim. Á þessu tæpa ári, sem þau voru búin að búa í Reykjavík, hafði það þó aldrei komist í verk. Okkur fannst tíminn alltaf vera nægur, nánast öll ævin fram- undan. Í stað skemmtilega „matar- kvöldsins“, sem við vinirnir vorum sannfærð um að eiga í vændum með þeim Heiðari og Rögnu innan tíðar, sameinumst við með djúpa sorg og sársauka í hjarta til að fylgja Heiðari til grafar. Heiðar minn, ég þakka þér fyrir samfylgdina, allar ánægjustundirnar og öll símtölin á síðasta ári. Elsku Ragna, Jói, Erla, Heiðar og aðrir að- standendur. Guð veiti ykkur styrk í þessari miklu sorg, sem minningin um góðan mann mun þó vonandi yf- irskyggja um síðir. Ellý Sæunn Reimarsdóttir. Elsku afi minn. Það er erfitt fyrir mig að skilja hvers vegna þú getur ekki komið og sótt mig eins og þú gerðir svo oft. Ég stend stundum úti í glugga og kalla á þig og bíð eftir þér. Við gerðum svo margt skemmti- legt saman eins og þegar þú fórst með mig á hestbak í fyrsta skipti. Svo fórstu líka með mig í margar heim- sóknir og það fannst okkur báðum gaman. Þú kenndir mér svo mikið um lífið, um hvað má og hvað ekki. Ég ætla aldrei að gleyma þér og því sem þú gerðir fyrir mig. Ég ætla oft að skoða myndir af þér og kalla á þig, því ég veit að þú munt hlusta. Ég var alltaf litli kúturinn þinn og verð það alltaf. Andri Freyr. *   5<    )      +(   "!(""# ! &,# .".-''!$ 4             "# 5     )* $ $ 0 1   +'    ,        /      0 1         51       /8 - ?  # 8 /" . $ .#   6<; 6@4 @  >("8  -2   1  >AA! )   6  3 # 1%1 %/!$ 4                 "#    0,   "!A"' -!     'B) ("  ) +2  7      8   0 ".-''! C1  !!".-''!   :"2.""# !!,-!" &C1  . 5! 8(""#  ,- !".-''!  80 ""# % D- & -".-''! /". !  -""#$ #     #         .  /'E ! 8!&! ), "   *      +2  :" 2! ""# -! ""# &( $5    :"' ! ".-''! C1-8""# -! ! ".-''!  !! ""# &(  8".-''! ' ! ".-''! C1  ""# /22 /  /22 / #     /22 /$ 6< F 55   81 ' >#'! 5"'2   2  , "   0 1   +'  3  /        ( &G " ".-''! C1 +2.""# 5  &  " ".-''! @!&!:"2.""# "! " ""# 0!"'  .".-''! !  / ' " ".-''! '!! ""# !  " ""#       /#    /$
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.