Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN 28 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ TALSVERT hefur verið fjallað um ný- gerðan kjarasamning fyrir grunnskóla enda felast í honum nýjar og breyttar áherslur í skólastarfinu. Morgun- blaðið birti grein eftir Jón Pétur Zimsen 21. mars sl. þar sem hann beindi til mín fjórtán spurningum um samn- inginn. Ég vel því svör- um mínum sama vett- vang og hann. 1. Handbók. Hand- bók um framkvæmd kjarasamningsins er í vinnslu. Þó eru tveir þriðju hlutar hennar þegar komnir í notkun. Annars vegar kynningarefni á námskeiðum með skólastjórum, trúnaðarmönnum og fulltrúum sveitarfélaga sem haldin voru á átta stöðum á landinu 8.–12. mars sl. Hins vegar 109 spurningar og svör um kjarasamninginn sem finna má á heimasíðum KÍ og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. 2. Túlkun til að fyrirbyggja ágreining. Það er rétt að ekki lá fyrir túlkun á hverju einasta atriði samn- ingsins þegar greidd voru atkvæði um hann. Enn er verið að túlka ákvæði gamla kjarasamningsins enda á samstarfsnefnd KÍ og Launa- nefndar sveitarfélaga að fjalla um ágreiningsefni sem upp kunna að koma eftir að samningar hafa verið gerðir. Aldrei í sögu Kennarasam- bands Íslands hefur legið fyrir eins ítarleg túlkun og nú á kjarasamningi áður en hann kemur til fram- kvæmda. Samninga- nefndirnar skipuðu sérstaka verkefnis- stjórn sem ásamt sam- starfsnefnd ákvað að taka fyrir atriði sem hugsanlega gæti orðið ágreiningur um til að stuðla að því að fram- kvæmd samningsins takist sem best. 3. Einfaldari vinnu- skýrslur. Allt bendir til þess að vinnuskýrslu- gerð verði mun ein- faldari en áður og birti í rauninni eingöngu upplýsingar til launa- greiðenda um greiðslur til viðkomandi kennara. 4. Verkstjórnarþáttur skóla- stjóra. Vald skólastjóra yfir störfum kennara er verulega aukið í þessum samningi enda var sá gamli gagn- rýndur fyrir það hvað skólastjóri sem yfirmaður hefði takmarkað um störf kennara að segja. Verkstjórn- arþátturinn eykst úr 3 klst. á viku í 9,14 klst. og eiga skólastjóri og kennari að semja um fyrirkomulag vinnunnar þ.á m. aukinn undirbún- ingstíma. 5. 19 kennslustundir og yfirvinna. Kennsluskylda 60 ára kennara verð- ur áfram 19 kennslustundir á viku. Kennari sem vill kenna meira á kostnað annarra faglegra starfa fer ekki strax á yfirvinnu. Ef kennarinn á hins vegar, þrátt fyrir aukna kennslu, að sinna faglegum störfum miðað við 19 kennslustunda kennslu- skyldu fer hann þá þegar á yfir- vinnu. Þannig getur hann verið kom- inn á yfirvinnu við 20. kennslustund- ina. 6. 24 kennslustundir og yfirvinna. Kennsluskylda 55 ára kennara er 24 klst. á viku og það sama á við um yf- irvinnu þeirra og við 60 ára aldurinn. Allt starf umfram vikulega vinnu- skyldu greiðist sem yfirvinna. 7. Samningurinn í skóla og á heimasíðu. Samningurinn var send- ur út í skólana í sömu viku og hann var undirritaður, bæði með tölvu- pósti og almennri póstsendingu. Jafnframt var hann settur á heima- síðuna bæði í heild sinni og sem minna skjal með samningsgreinum um laun og vinnutíma. Verið er að undirbúa sameiginlega útgáfu með Launanefnd sveitarfélaga. 8. Hvernig geta þrjár vikur orðið að einni? Fyrsti kynningarfundurinn var haldinn 9. janúar, sama dag og kjarasamningurinn var undirritað- ur. Atkvæðagreiðsla fór fram dag- ana 29.–31. janúar. Mér er óskiljan- legt hvernig Jón Pétur fær út að aðeins vika hafi liðið frá því að fyrstu fundir voru haldnir og þar til at- kvæðagreiðslan fór fram. 9. Viðbótarlaunaflokkar. Skipting viðbótarlaunaflokka, sem eru að meðaltali þrír fyrir hvern kennara, fer eftir tilteknum þekktum leik- reglum sem eiga að byggjast á mál- efnalegum grunni. Skólastjóra ber að lúta skyldu jafnræðisreglunnar og gæta samræmis og jafnræðis og mismuna ekki kennurum í neinu til- liti. 10. Launamunur eftir aldri. Launamunur á kennurum eftir líf- aldri er ekki nýr og áður óþekktur. Heldur dró saman á milli yngri og eldri kennara við samninginn sem gerður var 1997 enda var áhersla lögð á að hækka byrjunarlaunin, ný- liðar fengu þá um 10% meira en aðrir. Auk þess fengu skólastjórar verulega grunnkaupshækkun um- fram kennara. Nú var áhersla lögð á hinn dæmigerða grunnskólakennara og fannst mörgum kominn tími til. Þá fá umsjónarkennarar sérstaka launaflokkaröðun. 11. Fleiri skóladagar til að auka fjölbreytni. Skóladögum nemenda fjölgar um tíu til að auka fjölbreytni skólastarfs og skapa rými fyrir fleiri daga en hefðbundna kennsludaga. Sem dæmi má nefna foreldraviðtöl, jólatréskemmtanir, skólasetningu, skólaslit og vettvangsferðir. 12. Fleiri undirbúningsdagar. Mér dettur ekki í hug að mótmæla því að sérstökum undirbúningsdög- um kennara (starfsdögum) er fjölg- að um tvo. 13. 15 ára kennsluafsláttur í launatöfluna. Sérstakur kennsluaf- sláttur eftir 15 ára kennslu er felldur niður og settur inn í launatöfluna. 14. Ákúrur? Ég kannast ekki við að menn í samninganefnd Félags grunnskólakennara hafi fengið ákúr- ur frá skólastjórum vegna misvís- andi kynningar á samningnum. Enda gerði samninganefnd FG samninginn en ekki þeir. Ábyrgð og áhrif fagfólksins í skólunum aukin Auk spurninganna segir Jón Pét- ur Zimsen ýmislegt annað sem gefur tilefni til athugasemda. Fleiri skóla- dagar nemenda verða til við til- færslu úr vikulegum vinnutíma kennara sem var samkvæmt gamla kjarasamningnum 45,77 klukku- stundir á viku en verður 42,86 í þeim nýja. Gamli kjarasamningurinn ger- ir ráð fyrir 28 mínútna undirbún- ingstíma fyrir hverja kennslustund að hámarki en sá nýi kveður á um 20 mínútna undirbúningstíma að lág- marki. Skólastjóri á að meta í sam- ráði við hvern kennara þörfina fyrir rýmri undirbúningstíma. Þetta at- riði er mjög einkennandi fyrir þá nýju hugsun sem birtist í kjara- samningnum; valdið til að meta og ákveða vinnutímafyrirkomulag hvers kennara er að stórum hluta fært úr kjarasamningnum yfir til skólanna. Þannig er gert ráð fyrir því að skólastjóri og kennari komist að samkomulagi um útfærslu vinn- unnar. Kjarasamningurinn segir ekki til um hve margar mínútur eigi að fara í yfirferð verkefna, foreldra- samstarf eða störf umsjónarkenn- ara. Einn miðlægur samningur á ekki að gefa bindandi fyrirmæli um það hvernig skólastarfinu verður best háttað á hverjum stað. Við treystum fagfólkinu á staðnum best til að meta það, skólastjórnendum og ekki síst kennurunum. Nýjar áherslur í kjarasamn- ingi grunnskólakennara Guðrún Ebba Ólafsdóttir Kennarar Einn miðlægur samn- ingur á ekki að gefa bindandi fyrirmæli um það, segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, hvernig skólastarfinu verður best háttað á hverjum stað. Höfundur er formaður Félags grunnskólakennara. MAGNÚS Péturs- son, forstjóri Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss, ritar um þessar mundir rað- greinar í Mbl.og birt- ust tvær þeirra fyrir sl. helgi. Forstjórinn ósk- ar m.a. eftir opinberri umræðu um framtíð sjúkrahússins. For- stjórinn sér ástæðu til að afsaka sjálfan sig og fleiri er hann talar um hæstaréttardóm sem gekk í máli Gunnars Þórs Jónssonar, pró- fessors, 18. maí í fyrra. Dómsniðurstöðu sem leiddi til þess að forstjórinn sjálfur, lögfræðilegur ráðunautur hans og lækningaforstjórinn sitja nú með valdþurrðardóm á bakinu, fyrir að standa að ógildri uppsögn prófess- orsins. Þremenningarnir urðu upp- vísir að því að brjóta lög, misnota vald sitt og ekki hvað síst bera fram rangar sakargiftir til þess að ná sínu fram. Ekki nóg með það, þeir eru ennþá æðslu yfirmenn Landspítala – háskólasjúkrahúss. Sjúkrahúss sem þeir kappkosta nú að einka- vinavæða. Það, eitt og sér, ætti að vera í op- inberri umræðu. Ákvörðun verður geðþóttaákvörðun Magnúsi Péturssyni hugnast ekki sú niður- staða Hæstaréttar að húsbóndavaldið yfir prófessorum væri hjá Háskólanum. Forstjór- inn telur að ákvörðun- arvaldið eigi að vera hjá stofnuninni sem hefur starfsmanninn í vinnu. Af því að það er hans skoðun, þá virðist vera í lagi að vanvirða niðurstöðu Hæstaréttar og augljós réttindi starfsmannsins. Stjórnun- arvald yfir stærstu ríkisstofnun landsins er mikið og vandmeðfarið vald og mestu skiptir að það breyt- ist ekki yfir í geðþóttaákvörðunar- vald eins og dæmin sanna á LSH. Á það reyndi í máli Gunnars Þórs. Magnús Pétursson, telur sig bæran til þess að meta kröfur um nútíma- rekstur en hvernig eru í raun hans ,,nútímastjórnunarhættir“ sem hann hefur viðhaft þau rúmu tvö ár sem hann hefur verið forstjóri spít- alans? Rangar sakir Þegar Magnús kom til starfa 1. janúar 1999 var búið að ákveða í bakherbergjum og ,,kokkteil- veislum“ að Gunnar Þór yrði að víkja úr starfi svo annar maður kæmist í prófessorsstarfið. For- stjórinn hafði ekki svo mikið sem fyrir því að kalla Gunnar á sinn fund og kanna báðar hliðar málsins. Þess í stað undirritaði hann ásökunarbréf sem undanfara uppsagnar. Í bréfinu var Gunnar ásakaður fyrir að hafa ekki skilað af sér vottorði til sjúk- lingsins X. Vottorðinu var Gunnar búinn að skila en hinsvegar hafði sjúklingurinn óskað eftir sjúkra- gögnum sínum við skrifstofu sjúkra- hússins og skrifstofan ekki sinnt því. Málið hafði ekkert með Gunnar Þór að gera en samt sem áður átti hann að sitja upp með ásökun um annað og uppsögn framundan. Sjúk- lingurinn staðfesti þetta með bréfi (hrd.133/2000 dskj.218) Þessari að- för var mótmælt harðlega af lög- manni Gunnars en allt kom fyrir ekki. Forstjórinn svaraði bæði seint og illa athugasemdum lögmannsins og hafði þær að engu. Menn voru að brenna inni á tíma. Sameining sjúkrahúsanna var að skella á og Gunnari varð að koma frá áður. Með góðu eða illu, réttu eða röngu. Enda varð rauninn sú og uppsögnin var undirrituð af þremenningunum, er að framan greinir.Vissi forstjórinn ekkert um málið? Undirritar hann bara einhver bréf sem aðrir leggja á borð hans? Forstjóranum var í lófa lagið að kanna þetta sjálfur. Senni- lega á þetta að flokkast undir nú- tímastjórnunarhætti! Öllum aðvör- unum um að þeir væru ekki að fara að lögum var stungið undir stól. Örþrifaráð lækninga- forstjórans Gunnar vildi ekki una þessari nið- urstöðu, og höfðaði mál gegn sjúkrahúsinu. Þá greip lækningafor- stjórinn til örþrifaráða og leitaði til sjúklingsins Z í þeirri von að sjúk- lingurinn væri reiðubúinn að leggja fram einskonar kærubréf á hendur Gunnari. Lækningaforstjórinn við- urkenndi, eiðsvarinn og aðspurður við yfirheyrslur hjá Héraðsdómi að hafa haft samband við sjúklinginn Z og farið þess á leit við hann að hann skrifaði bréf sem lýsti samskiptum sjúklingsins við Gunnar Þór. Sjúk- lingurinn Z hefur lýst því svo, að ítrekað hafi verið haft samband við hann af ritara lækningaforstjórans og hann beðinn að skrifa bréf sem honum hafi skilist að ætti að vera kvörtunarbréf. Hann hafi hinsvegar ekkert haft uppá Gunnar Þór að klaga svo að um kvörtunarbréf hafi ekki verið um að ræða að hans hálfu. Fannst Magnúsi Péturssyni ekkert athugavert við þessi vinnu- brögð eða vissi hann kannski ekkert um þetta? Eiga slík vinnubrögð eitt- hvað skylt við nútímann? Sérfræðingar forðuðu sér útaf spítalanum Fjölmargir samstarfsmenn Gunn- ars reyndu mótmæli gegn þessari aðför. (hrd.133/2000 dskj.nr. 28, 29 og 30) Hjúkrunarfræðingar lýstu vanþóknun sinni bréflega. Þær voru teknar á teppið og þess krafist að þær drægju mótmælin til baka. Skoðun þeirra var ekki stjórnend- um þóknanleg. Allir bæklunar- skurðlæknar, nema einn, undirrit- uðu mótmælabréf vegna málsins. Viðbrögð yfirmanna urðu þau að settur yfirlæknir á bæklunardeild var settur af, símleiðis, fyrir að und- irrita slíkt bréf og hafa skoðun. Helmingur bæklunarsérfræðinga á bæklunardeild hætti störfum skömmu síðar. Þeir forðuðu sér. Og svo undrast menn biðlista eftir bæklunarskurðlækningum í dag? Þessir svokölluðu ,,nútímastjórnun- arhættir“ gera mönnum ekki kleift að starfa undir stjórn þessara manna. Á bak við tjöldin er verið að einkavinavæða Landspítala – há- skólasjúkrahús á kostnað skatt- greiðenda. Brottrekstur fyrir að hugsa upphátt Í ljósi þessa hefur sennilega aldr- ei verið meiri þörf á stuðningi við einkavæðingu í heilbrigðisþjónust- unni, því aðilar sem myndu bera rekstrarlega ábyrgð á slíkri starf- semi myndu þó allavega ekki seilast í fjármuni almennings, í tíma og ótíma. Það er ekki skrýtið að for- stjórinn óski eftir opinberri umræðu um framtíð spítalans og ákalli bæði starfsmenn og stjórnvöld. Því nú þarf að breyta lögum svo einkavina- væðingin verði fullkomnuð. Á for- stjórinn von á því að starfsmenn tjái sig opinberlega? Þeir aðilar, sem fyrst og fremst, hafa eitthvað til málanna að leggja. Nei, alveg örugglega ekki, þeir geta átt von á brottrekstri fyrir það eitt að hugsa upphátt, eins og dæmin sanna, und- ir merkjum ,,nútímastjórnunar- hátta“. Stjórnunarhættir á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi Arnþrúður Karlsdóttir Valdþurrðardómur Þremenningarnir urðu uppvísir að því að brjóta lög, segir Arnþrúður Karlsdóttir, misnota vald sitt og ekki hvað síst bera fram rangar sakargiftir til þess að ná sínu fram. Höfundur er eiginkona Gunnars Þórs Jónssonar prófessors.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.