Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur og fer í
dag. Sveabulk, Freyja,
Olympic Prawn og
Laola koma í dag. Detti-
foss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Olga og Pétur Jónasson
komu í gær. Lagarfoss
fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrif-
stofan er opin miðvikud.
kl. 14–17, s. 551 4349.
Fataúthlutun og fata-
móttaka er opin annan
og fjórða miðvikud. í
mánuði frá kl. 14–17, s.
552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040, frá kl.
15–17.
Mannamót
Félagsstarfið Norður-
brún 1 og Furugerði 1.
Þriðjudaginn 3. apríl
verður farið í Fljótshlíð-
ina. Stutt stopp í Hvera-
gerði, súpa, brauð og
kaffi í Hlíðarenda,
Hvolsvelli. Njálusafnið
skoðað og ekið að Tuma-
stöðum. Leiðsögu-
maður: Anna Þrúður
Þorkelsdóttir. Lagt af
stað frá Norðurbrún kl.
10.15, frá Furugerði kl.
10.30. Skráning og nán-
ari upplýsingar á Norð-
urbrún í síma 568-6960
og í Furugerði í síma
553-6040.
Aflagrandi 40. Í dag
verður heimsókn í Lista-
safn Íslands á sýningu
frá fagurlistasafni Par-
ísarborgar, Petit Palais;
lagt af stað kl. 13.30.
Árskógar 4. Kl. 9–16.30
klippimyndir, harð-
angur, kl. 13 smíða-
stofan opin, trésmíði/
útskurður og spilað. Kl.
14 kynnir Ferðaskrif-
stofan Sól ferðir til Kýp-
ur og Portúgal. Árni
Norðfjörð harmonikku-
leikari, happdrætti með
ferðavinningum og
fleira til skemmtunar.
Farið verður í Þjóðleik-
húsið miðvikud. 11. apríl
að sjá söngleikinn
„Singing in the rain“.
Látið vita um þátttöku
fyrir 1. apríl.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10
banki, kl. 13 spiladagur
og vefnaður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðvikud.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Handa-
vinnustofan opin frá kl.
9.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10–13
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska, byrj-
endur.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Vorfagn-
aður í Kirkjuhvoli í boði
Oddfellow 29. mars kl.
19.30.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11, byrj-
endur velkomnir, mynd-
mennt kl. 13 og píla kl.
13.30. Á morgun eru
púttæfingar í Bæj-
arútgerð kl. 10–11.30,
myndmennt kl. 13,
kvöldvaka í boði Lions-
klúbbs Hafnarfjarðar kl.
20, kaffihlaðborð og
dans. Sigurbjörn Krist-
insson verður með
myndlistarsýningu í
Hraunseli fram í maí.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga kl. 10–
13. Matur í hádeginu.
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Hlemmi í
dag kl. 9.45. Söngfélag
FEB, kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla Sig-
valda fellur niður í
kvöld. Baldvin Tryggva-
son verður til viðtals um
fjármál og leiðbeiningar
um þau á skrifstofu
FEB á morgun,
fimmtudag, kl. 11–12.
Panta þarf tíma.
Dagsferð verður farin í
Grindavík-Bláa lónið-
Reykjanes 2. apríl.
Brottför kl. 10 frá Ás-
garði, Glæsibæ. Skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB. Þriggja daga ferð
á Snæfellsnes 27.–29.
apríl. Gististaður: Snjó-
fell á Arnarstapa. Áætl-
að að fara á Snæfells-
jökul. Komið í Ólafsvík,
á Hellissand og Djúpa-
lónssand. Brottför frá
Ásgarði, Glæsibæ, 27.
apríl kl. 9. Skráning haf-
in. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Ath. skrifstofa FEB er
opin kl. 10–16. Uppl. í s.
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postulíns-
málun, kl. 13.30 sam-
verustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Kl. 9–16.30
vinnust. opnar, kl. 10.30
gamlir leikir og dansar,
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13.30 tónhornið.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Á föstu-
daginn kl. 14 verður
ferðakynning Ferða-
skrifstofunnar Sólar.
Happdrætti, ferðavinn-
ingar. Árni Norðfjörð
leikur á harmonikku.
Umsjón: Edda Bald-
ursdóttir. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 10–17; kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi, kl.
10 ganga, kl. 13
keramikmálun, kl. 13.30
enska. Smári Pálsson og
Haukur Pálmason verða
með erindi og fræðslu
um alzheimer-sjúk-
dóminn og aðra skylda
minnissjúkdóma í Gull-
smára miðvikud. 28.
mars kl. 13.30.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
keramik, tau- og silki-
málun og jóga, kl. 11
sund í Grensáslaug, kl.
15 teiknun og málun.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
ætla að hittast á morg-
un, 29. mars, kl. 10 á
Korpúlfsstöðum. Kaffi-
stofan er opin. Allir vel-
komnir. Nánari upplýs-
ingar veitir Þráinn
Hafsteinsson í síma
5454-500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
12.30 útskurður, kl. 9–
16.45 handavinnustof-
urnar opnar, kl. 10 sögu-
stund, kl. 13–13.30 bank-
inn, kl. 14 félagsvist,
kaffi og verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, myndlistarkennsla
og postulínsmálun, kl.
13–16 myndlist-
arkennsla, glerskurður
og postulínsmálun, kl.
13–14 spurt og spjallað.
Fimmtudaginn 29. mars
verður heimsókn í Lista-
safn Íslands á sýn-
inguna Náttúrusýnir.
Upplýsingar og skrán-
ing í afgreiðslu í síma
562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bankaþjónusta,
kl. 10 morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 13 handmennt og
kóræfing, kl. 13.30 bók-
band, kl. 14.10 versl-
unarferð.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar, opið hús í dag
kl. 14–16. M.a. kemur
Sigríður Norðkvist
harmonikkuleikari í
heimsókn. Bílferð fyrir
þá sem þess óska. Upp-
lýsingar veitir Dagbjört
í s. 510-1034.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30, spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund í Gerðu-
bergi í kvöld kl. 20.
Fundurinn er öllum op-
inn, upplýsingar veitir
Auður Thorarensen, s.
564-6443.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 félagsvist.
Í dag er miðvikudagur 28. mars,
87. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Þá sagði Drottinn við Móse: „Far
þú og stíg ofan, því að fólk þitt,
sem þú leiddir út af Egyptalandi,
hefir misgjört.“
(II. Mós. 7.–8.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
NOKKUÐ var fjallað um skýja-kljúfa og aðrar háar byggingar
í svörum vísindavefjarins í Morgun-
blaðinu síðastliðinn laugardag. Vík-
verji hugleiddi út frá því hvort fram-
takssamir byggingamenn á Íslandi
ættu ekki að ráðast í að reisa einn
slíkan hérlendis.
Við höfum svo sem alltaf talið okk-
ur hafa nóg af lóðum og plássi fyrir
byggingar og getað skellt þeim niður
á hin og þessi auð svæði og jarðir eins
og hver vill hafa. Í umræðum um
framtíð Vatnsmýrarinnar komu fram
ýmsar háhýsahugmyndir og mætti
ekki alveg eins koma slíkum bygg-
ingum fyrir annars staðar á höfuð-
borgarsvæðinu eða annars staðar á
landinu?
Annars eru háhýsi vandræðabygg-
ingar. Það er nefnilega svo dýrt að
reka þær. Þar þarf að viðhafa sér-
stakar ráðstafanir til að tryggja
vatnsþrýsting uppi á efstu hæðum,
og síðan einhvers konar öfugar ráð-
stafanir til að hemja frárennslisvatn-
ið á leiðinni niður svo það dúndrist
ekki gegnum undirstöður hússins!
Ferðatíminn í lyftunum getur líka
orðið nokkuð langur ef þær eru hæg-
fara eins og venjulegar húslyftur
sem við þekkjum. Þar væri þá
kannski hægt að koma fyrir blaða-
standi og sætum þannig að menn
gætu stundað tímaritalestur síðasta
spölinn á leiðinni heim.
En hvernig sem þessu yrði nú fyr-
irkomið vill Víkverji brýna hugvits-
menn á sviði bygginga til að setja
fram raunhæfa hugmynd um svona
nokkuð. Hugmynd um 30 til 50 hæða
íbúðar- eða atvinnuhúsnæði.
Kannski nokkur slík hús saman og
hafa notkunina blandaða. Þetta
myndi þýða minni ferðaþörf, menn
gætu skellt sér með lyftunni úr há-
hýsinu sínu, gengið yfir að því næsta
og haldið í lyftu á ný til vinnu. Eða
skokkað stigana? Eru kannski ekki
stigar í háhýsum?
x x x
ÞAÐ kom Víkverja á óvart aðheyra að ekki virðist gert ráð
fyrir hjólreiðamönnum á breikkaðri
Reykjanesbraut. Ekki nema að þeim
verði búin sérstök braut og það er
kannski rétt frá öryggissjónarmiði.
Það ætti hins vegar varla að vera
mikið mál að gera ráð fyrir hjólreiða-
mönnum á Brautinni þar sem nú eru
þar nýjar og betri vegaxlir þar sem
menn hjóla um í dag án þess að
nokkrar athugasemdir séu gerðar.
Og lítið hefur heyrst um að þeir hafi
orðið fyrir bílum. Geta hjólreiða-
menn þá ekki haldið áfram að hjóla
þar eftir að Brautin verður breikk-
uð? Verður hraðinn aukinn svo mikið
að þeim standi of mikil ógn af bílaum-
ferðinni? Eru hjólreiðamenn ekki
jafnvel eða -illa settir ef ekið er á þá
hvort sem bíll er á 90 eða 110 km
hraða?
Víkverja finnst í það minnsta ljóst
að varla er hægt að banna fólki að
hjóla á þjóðvegum. Það er að vísu
bannað um Hvalfjarðargöng en
hvers eiga hjólreiðamenn að gjalda?
Mega þeir bráðum hvergi vera?
x x x
HIN ágæta útvarpsstöð Klassík100,7 leikur yfirleitt þokkalega
góða tónlist og áheyrilega og hlustar
Víkverji iðulega á þá stöð. Þar á bæ
ríkir þó leiðinlegur kækur sem er að
tónverk sem eru fleiri en einn eða
tveir þættir eru yfirleitt klippt sund-
ur. Aðeins er leikinn einn þáttur og
svo kemur eitthvað allt annað verk
úr allt annarri átt og sjaldnast nokk-
ur kynning á milli. Er svo undir hæl-
inn lagt hvenær aðrir þættir viðkom-
andi tónverks heyrast. Jafnvel eru
sömu þættirnir endurteknir. Þetta
þyrfti að laga og er Víkverji sann-
færður um að stöðin þætti batna við
þetta. Ef menn eru á annað borð
áhangendur sígildrar tónlistar þola
þeir að heyra heilt verk í senn en ekki
einhverja blöndu af hinu og þessu.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 nirfill, 4 gagna, 7 reyna,
8 hagnaður, 9 afkvæmi,
11 skelin, 13 andvari, 14
smádjöfulinn, 15 forað,
17 kappsöm, 20 kyn, 22
gengur, 23 viðurkennir,
24 út, 25 híma.
LÓÐRÉTT:
1 bitur kuldi, 2 leiftra, 3
eining, 4 geð, 5 minnist á,
6 ákveð, 10 skreytni, 12
miskunn, 13 sendimær
Friggjar, 15 illúðlegur
maður, 16 stækkuð, 18
hnífar, 19 lesta, 20 sóm-
inn, 21 afhroð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 september, 8 fagur, 9 námið, 10 agg, 11 rýrar,
13 aumar, 15 tagls, 18 hafur, 21 ein, 22 svört, 23 aulum,
24 snautlegt.
Lóðrétt: 2 elgur, 3 tærar, 4 menga, 5 eimum, 6 afar, 7
æður, 12 afl, 13 una, 15 tása, 16 grönn, 17 settu, 18 hnall,
19 féleg, 20 róma.
K r o s s g á t a
VIÐ gleymum því oft að
dýrin eru sköpunarverk
Guðs eins og mennirnir og
við ráðsmenn þeirra. Fyrir
stuttu síðan birtist í fjöl-
miðlum umfjöllun um kind-
ur í sjálfheldu. Þá datt mér
í hug hvort einhver ofur-
kappinn á borð við Ómar
Ragnarsson geti ekki flogið
yfir hjá þeim og hendi niður
til skepnanna heybagga.
Herdís Tryggvadóttir.
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR fannst í
Seláshverfi í Árbænum
laugard. 24. mars sl. Uppl. í
s. 557-9391.
Skotta er týnd
FYRIR u.þ.b. mánuði hvarf
Skotta frá heimili sínu í
Mosfellsbæ. Skotta er grá-
brún og hún var með
bleika, merkta ól. Ef ein-
hver hefur orðið hennar
var, vinsaml. hafið samb. í
s. 699-1078.
Páfagaukur hvarf
að heiman
KVENKYNS páfagaukur,
blár og hvítur, flaug út um
glugga á Meistaravöllum
fyrir u.þ.b. viku. Vinsaml.
hafið samb. í s. 562-8628.
Krummi er týndur
KRUMMI er kolsvartur,
ómerktur, geltur fress og
mjög mannelskur. Hann
hvarf frá Borgarhverfinu í
Grafarv. fyrir u.þ.b. viku.
Ef einhver hefur orðið hans
var, vinsaml. hafið samb. í
s. 699-1078.
Diljá er týnd
DILJÁ er ómerkt, drapplit
læða sem hvarf frá Norð-
urbænum í Hafnarf. að
kvöldi 1. mars sl.Uppl. í s.
565-1695 eða 866-7376.
Tapað/fundið
Trek-hjól hvarf frá
Víðistaðaskóla
TREK 4500-hjól, svart og
gult, hvarf frá Víðistaða-
skóla í Hafnarfirði föstud.
16. mars sl. Hjólið er ferm-
ingargjöf og eigandanum
mikils virði. Ef einhver hef-
ur orðið var við hjólið, vin-
saml. hafið samb. í s. 555-
3494.
Gullhálsmen tapaðist
GULLHÁLSMEN tapað-
ist í byrjun mars, sennilega
nálægt Kvennaskólanum
eða á Kvennaskólaballi,
sem haldið var á Hótel Ís-
landi. Á bakhlið mensins er
nafnið Mathilde. Skilvís
finnandi er vinsaml. beðinn
að hafa samb. í s. 552-2101.
Gleraugu í óskilum
STÁLLITUÐ gleraugu
fundust á horni Engihlíðar
og Miklubrautar fyrir
stuttu. Uppl. í s. 561-7485
eða 897-4684.
Svartur leðurjakki
tekinn í misgripum
SVARTUR karlmannsleð-
urjakki var tekinn í mis-
gripum á Prikinu laugard.
17. mars sl. Fundarlaun.
Uppl. í s. 695-9411 eftir kl.
16.30.
Nýleg karlmannsgler-
augu töpuðust
NÝLEG karlmannsgler-
augu töpuðust á Gauk á
Stöng laugard. 17. mars sl.
Þetta er gífurlega mikill
missir fyrir eigandann.
Vinsaml. hafið samb. í s.
699-2359 eða 864-3606.
Svart sjal tapaðist
FORLÁTA svart, spænskt
sjal með rauðum rósum og
grænum blöðum tapaðist
annaðhvort á balli í Frí-
múrarahúsinu eða í leigubíl
í Kópavoginn laugardags-
kvöldið 24. febrúar sl.
Skilvís finnandi er vinsaml.
beðinn að hafa samb. í s.
554-1776.
Kvenúr tapaðist
KVENÚR tapaðist sunnu-
daginn 18. mars sl., senni-
lega á leiðinni frá Kolaport-
inu að versl. 10–11 í
Austurstræti. Skilvís finn-
andi er beðinn að hafa
samb. í s. 553-7893.
Svartur karlmanns-
frakki tekinn
í misgripum
SVARTUR karlmanns-
frakki var tekinn í misgrip-
um úr fatahenginu á Sport-
kaffi föstud. 23. mars sl.
Uppl. í s. 566-8128 eða skil-
ið honum á Sportkaffi.
Kápa tekin
í misgripum
KÁPA var tekin í misgrip-
um á þingi Framsóknar-
flokksins á Hótel Sögu
helgina 16.–18. mars sl.
Uppl. í s. 586-8629 eða 696-
4836.
Svargrár hálfsíður
ullarjakki tapaðist
SVARGRÁR, hálfsíður ull-
arjakki var tekinn í mis-
gripum á árshátíð Íslenska
útvarpsfélagsins í Perlunni
laugard. 10. mars sl. Uppl. í
s. 586-1366 eða 694-4440.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sköpunarverk
Guðs