Morgunblaðið - 28.03.2001, Síða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 7
GUÐMUNDUR Eyjólfsson skíða-
göngumaður í leiðagangrinum
„Frá strönd til strandar 2001“ er
nú tæplega hálfnaður á leið sinni
frá Hornvík á Vestfjörðum til
Vopnafjarðar. Hann kom til
Hveravalla á mánudagskvöld en
þar er seinni birgðastöð hans. Á
mánudag gekk Guðmundur 33
km og á sunnudag lagði hann að
baki 30 km. Í gær, þriðjudag, tók
Guðmundur sér hvíldardag og
áætlar hann að halda áfram um
leið og veður leyfir. Vistirnar á
Hveravöllum eiga að duga Guð-
mundi á leiðarenda en samkvæmt
leiðangursáætlun er hann vænt-
anlegur til Vopnafjarðar í síðasta
lagi 12. apríl. Guðmundur hefur
lagt að baki alls 260 af 600 km
eða sem samsvarar 43% af heild-
arvegalengdinni.
Guðmundur
tæplega
hálfnaður
Ljósmynd/Sigursteinn Baldursson
FÉLAGSMENN í Félagi flugmála-
starfsmanna ríkisins samþykktu í
leynilegri atkvæðagreiðslu að boða
til fjögurra vinnustöðvana á tíma-
bilinu 11. apríl til 10. maí hafi samn-
ingar ekki tekist við ríkið fyrir þann
tíma. Á kjörskrá voru 119 og greiddu
100 atkvæði eða 84,03%. 97 sam-
þykktu boðun verkfalls, 2 sögðu nei
og einn seðill var ógildur.
Tillagan sem samþykkt var gerir
ráð fyrir að ef ekki nást samningar
hefjist verkfall á miðnætti 11. apríl
og standi í tvo sólarhringa. Síðan er
gert ráð fyrir að við taki þrjú önnur
tveggja sólarhringa verkföll sem
hefjist 19. apríl, 2. maí og 9. maí hafi
samningar ekki tekist.
Jóhannes Long, sem sæti á í
stjórn FFR, sagði að verkfall félags-
ins kæmi til með að hafa víðtæk áhrif
bæði á innanlands- og millilandaflug.
Félagsmenn FFR störfuðu á öllum
flugvöllum á landinu og þar á meðal í
Keflavík. Hann sagði að félagsmenn,
sem eru 119, störfuðu í margskonar
störfum. Þar á meðal við brautar-
vörslu, viðgerðir, öryggisvörslu og
aðstoð við flugumferðarstjórn (flug-
gagnafræðingar).
FFR er 55 ára gamalt félag og
sagði Jóhannes að félagið hefði aldr-
ei farið í verkfall. Síðasti samningur
félagsins hefði runnið úr gildi 1.
október sl.
Þrátt fyrir að verkfall FFR komi
til með að hafa mjög víðtæk áhrif á
flugsamgöngur er félagið ekki skyld-
ugt til að halda uppi lágmarksþjón-
ustu með undanþágulistum líkt og
flugumferðarstjórar. Jóhannes sagði
að félagsdómur hefði fyrir nokkrum
árum fellt niður kvaðir á félagið um
lágmarksþjónustu í verkfalli. Hann
sagði að félagið myndi skipa undan-
þágunefnd og hún kæmi til með að
fjalla um umsóknir um undanþágur
frá verkfalli.
Flugmálastarfs-
menn boða verkfall
ÞRJÚ snjóflóð féllu úr Súðavík-
urhlíð í gær og lokuðu veginum
um hlíðina. Vegagerðin ákvað að
loka veginum um tíma vegna
snjóflóðahættu.
Að sögn Gísla Sigurðssonar,
rekstrarstjóra Vegagerðarinnar
á Ísafirði, féllu tvö snjóflóð á
veginn með um klukkustundar
millibili, bæði úr giljum í miðri
hlíðinni. Vegagerðin ruddi veg-
inn en lokaði honum eftir seinna
flóðið um kl. 7.30 vegna snjó-
flóðahættu. Vegurinn var opn-
aður aftur eftir um klukkustund.
„Svo féll aftur flóð um klukk-
an hálfellefu. Það var það sem
við köllum meðalflóð, það var
um 1,5–2 metra þykkt á vegin-
um og um 10 metra breitt,“
sagði Gísli. Að þessu sinni kom
flóðið úr Djúpagili. Veginum var
því lokað á ný.
Þrjú snjóflóð
féllu úr Súða-
víkurhlíð
♦ ♦ ♦
VÉLSTJÓRAFÉLAG Íslands hefur
sent út kærur á hendur þeim bátum
og skipum sem reru í verkfalli sjó-
manna hinn 15.–19. mars sl. með
félagsmenn Vélstjórafélags Íslands
innanborðs. Þeim er gert að greiða
sektir vegna brota á kjarasamnings-
ákvæðum VSFÍ og Landssambands
íslenskra útvegsmanna, þar sem er
sérstaklega tiltekið að menn skuli
leggja niður störf, sigla í land og
binda skipin um leið og verkfall skell-
ur á.
Samkvæmt kjarasamningnum eru
sektir vegna brota á þessum ákvæð-
um allt að 311 þúsund krónur fyrir
hvert brot.
Að sögn Helga Laxdal, formanns
VSFÍ, verða sendar út kærur á hend-
ur útgerðum þeirra báta og skipa sem
reru allt frá því verkfall hófst hinn 15.
mars sl. og þar til því var frestað með
lagasetningu 19. mars. „Lagasetning-
in tók ekki gildi fyrr en í fyrsta lagi
fimm mínútur í miðnætti hinn 19.
mars en dæmi eru um að skip hafi
haldið til sjós fyrir þann tíma. Eins
eru dæmi um að skip hafi verið að
veiðum eftir að verkfallið skall á, sem
og skip sem voru að veiðum allan tím-
ann meðan á verkfallinu stóð.“
Ekki er ljóst um hversu margar
kærur verður að ræða en þegar hafa
kærur verið sendar nokkrum útgerð-
um. Helgi segir að um sé að ræða skip
í öllum útgerðarflokkum en mest hafi
borið á því að útgerðir vertíðarbáta
hafi brotið ákvæði kjarasamningsins.
Hann segir að í ljós hafi komið að þeir
bátar sem brotið hafi gegn löglega
boðuðu verkfalli hafi einnig brotið
ítrekað gegn helgarfrísákvæðum
kjarasamningsins. Sektirnar séu því
misháar en þær fari eftir fjölda brota.
VSFÍ kærir
verkfalls-
brjóta
FLUGMENNIRNIR Sigurður
Runólfsson og Hergill Sigurðsson,
sem eru á leið til Eþíópíu í eins
hreyfils flugvél af gerðinni Cessna
182 Skylane héldu áfram för sinni frá
Lúxemborg sl. laugardag en urðu að
snúa við samdægurs vegna bilaðs
radarsvara. Svarinn er tæki sem gef-
ur flugumferðarstjórum merki frá
flugvélum á ratsjá með upplýsingum
um einkennisnúmer flugvélar, stað-
setningu og flughæð. Blindflug er
ekki heimilt sé þetta tæki í ólagi.
Þeir áttu von á nýjum radarsvara í
gær, eða í dag, miðvikudag og munu
því að líkindum leggja fljótt af stað
aftur til Feneyja, næsta viðkomu-
staðar síns.
Sneru við
vegna bilaðs
radarsvara