Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 8

Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sálgæslunámskeið Viðbrögð við sorg ÍDAG frá klukkan 17 til21 verður haldið sál-gæslunámskeið á veg- um Biblíuskólans við Holtaveg og Miðborgar- starfs KFUM&K, nám- skeiðið er haldið í aðal- stöðvum KFUM&K við Holtaveg. Fluttir verða þrír aðalfyrirlestrar. Einn fyrirlesaranna er Hafliði Kristinsson ráðgjafi. Hann var spurður um þema þessa námskeiðs? „Þrír fyrirlestrar verða fluttir um stór sorgarefni. Síðan verður fjallað um sálgæslu og mátt bænar- innar. Guðlaugur Gunn- arsson kristniboði fjallar um sálgæslu og innri sár, sjálfur fjalla ég um sorgina vegna hjónaskilnaða, séra Jón Bjarman fjallar um sorgina vegna sjálfsvíga og Kjellrun Langdal fjallar um sorgina þegar dauðinn nálgast og Guðrún Ás- mundsdóttir leikkona ræðir um mátt bænarinnar.“ – Hefur þú mikla reynslu af starfi með fólki sem stendur í hjónaskilnaði? „Áður en ég fór út í þetta nám og starf vann ég sem prestur í þrettán ár og það eru líklega fáir sem fá eins mikla innsýn inn í mál hjóna sem eru að skilja eins og prestar. Það er eins og þeir hafi fengið þetta hlutverk sem þeir í reynd hafa samkvæmt lögum, þeir eiga jú að tala á milli hjóna áður en skilnaður er veittur. Sá hluti af lífsstarfi mínu hefur undirbúið mig ekkert síður en námið fyrir þennan þátt í ráðgjöfinni.“ – Hvaða ástæður liggja oftast að baki hjónaskilnaður sam- kvæmt þinni reynslu? „Ég held að ein stærsta ástæð- an sé erfiðleikar í samskiptum. Við eins og svo margir á Vestur- löndum erum mjög upptekin af að koma okkur áfram, skapa okkur frama. Við erum svo upptekin af að takast á við lífið í heild sinni að við gleymum að sinna þeim nánu samskiptum sem þurfa að ríkja á milli hjóna. Oft vaknar fólk upp við þann vonda draum að það á minna sameiginlegt en það ætlaði og það reynist eiga mjög erfitt með að takast á við þá erfiðleika sem óhjákvæmilega hljóta að koma upp hjá öllum einhvern- tíma.“ – Hvernig gengur að hjálpa fólki til að komast út úr svona kringumstæðum? „Það skiptir mjög miklu máli hvenær fólk kemur og leitar sér aðstoðar. Ef það kemur meðan enn er vilji til að vinna sig út úr erfiðleikunum eru margar leiðir færar. Þar er mestur árangur. Munurinn á starfi mínu í dag og meðan ég var prestur er sá að fólk kemur gjarnan fyrr inn til fjöl- skylduráðgjafa en til prestsins. Prestarnir fá oft mál sem eru mjög erfið viðfangs, fólk kemur oftast til þeirra til þess að fá vott- orð um að sættir hafi ekki tekist. Á undan- förnum sex til sjö árum hefur orðið mikil breyt- ing. Fólk er nú miklu tilbúnara til að vinna í málum sínum en það var áður, það á ekki bara við í erfiðleikum milli hjóna heldur almennt. Fólk er opnara fyrir því að leita sér hjálpar og ráðgjafar en áður var.“ – Tekst oft að hjálpa fólki til áframhaldandi sambands? „Já, það tekst oft. Ef tekst að hjálpa fólki til að tala saman um hluti sem skipta það máli, ef fólki tekst að leysa ágreining sinn á far- sælan hátt fyrir báða aðila, þá myndast nýtt traust og með traustinu er hægt að vinna að sambandinu á nýjan hátt og finna fleti til efla hjónabandið að nýju.“ – En hvað ef ekki tekst að við- halda hjónabandinu? „Þá skiptir miklu máli að hjálpa fólki að takast á við þennan feril sem óhjákvæmilega fer af stað þegar fólk er ákveðið að skilja. Sá ferill er ekki ólíkur missi, t.d. þeg- ar einhver deyr. Það deyja bæði draumar og vonir og síðan hverfur einstaklingur út úr hjónabandinu sem hann hafði reiknað með að yrði til frambúðar. Það er ákveðið öryggi sem glatast, bæði tilfinn- ingalega og fjárhagslega. Ef börn eru með í spilinu þá missa þau það öryggi að hafa báða foreldra hjá sér og sá aðilinn sem flytur út af heimilinu og fer frá maka og börn- um missir af tengslum við börnin eins og þau voru og verður að læra að mynda ný tengsl. Vandinn við þetta sorgarferli er sá að sá að- skilnaður er aldrei eins algjör og þegar einhver deyr. Það viðheldur sorgarferlinu stundum enn lengur en þegar einhver deyr.“ – Er hægt að stytta þetta ferli? „Með fræðslu um hvað er eðli- legt í þessum kringumstæðum er hægt að hjálpa fólki út úr bæði einmanaleikanum og gæta þess að það festist ekki í sorgarferlinu. Með því að gefa sjálfum sér tæki- færi til að leita sér hjálpar eða ráðgjafar er hægt að stytta þenn- an feril og taka um leið á þeim málefnum sem eðlilega koma upp en margir hafa tilhneig- ingu til að ýta út af borðinu vegna sársauk- ans sem fylgir því að takst á við þau. Miklu máli skiptir að takast á við sorg- arferlið barnanna vegna. Í sorg- arferli koma fyrir allar þessar til- finningar tengdar sorginni, vantrú á að þetta geti verið að ger- ast, reiðin, þunglyndið, vonleysið og síðan að lokum sættirnar við kringumstæðurnar eins og þær eru orðnar. Hafliði Kristinsson  Hafliði Kristinsson fæddist í Reykjavík 1956. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1976 og guð- fræðinámi í Bandaríkjunum 1984. Hann starfaði sem prestur í 13 ár, til 1997, þá fór hann í framhaldsnám í fjölskyldu- og hjónaráðgjöf í Fuller Seminary í Pasadena í Kaliforníu. Hann hef- ur starfað eftir það við fjöl- skyldu- og hjónaráðgjöf hér á landi. Hafliði er kvæntur Stein- unni Þorvaldsdóttur dagmóður og eiga þau þrjú börn. Með því að leita ráð- gjafar er hægt að stytta sorgarferlið EFLING stéttarfélag og Reykja- víkurborg hafa undirritað nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. febrúar til nóvember 2005. Sigurð- ur Bessason, formaður Eflingar, sagði að samningurinn fæli í sér mjög miklar breytingar fyrir félagsmenn. Með samningnum væri verið að samræma réttindi og starfskjör félagsmanna Eflingar og tekið yrði upp samræmt starfs- matskerfi í desember 2002. Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg eru um 2.500. Þeir hafa fram að þessu haft nokk- uð ólík kjör og réttindi. Þetta er til komið vegna þess að hluti starfs- manna var áður félagsmenn í Dagsbrún-Framsókn og hinn hlut- inn í Sókn, en þessi tvö félög hafa nú sameinast í eitt stéttarfélag. Sigurður sagði að búið væri að leggja mikla vinnu í að samræma kjörin. Hann vildi ekki á þessu stigi gefa upp einstakar launa- breytingar. Sigurður sagði að 2002 yrði tekið upp starfsmatskerfi sambærilegt því sem Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar hefði samþykkt að taka upp. Hann sagði að í því fæl- ist samræming á kjörum og að félagar í Eflingu fengju félagsleg réttindi sem skiptu þá miklu máli. Auk hefðbundinna kjarabóta væri í samningnum að finna bættan veik- indarétt, aukin lífeyrisréttindi, auknar orlofsgreiðslur, greiðslur í fræðslusjóð og endurskoðun á tryggingum félagsmanna. Kjarasamningurinn fer nú á næstu dögum í kynningu meðal félagsmanna. Atkvæðagreiðslu lýk- ur þriðjudaginn 10. apríl kl. 16 og fer talning fram 11. apríl. Efling og borgin semja til 2005 Svona, svona, við getum ekki fórnað flokknum bara fyrir það að þú getur ekki gripið gellurnar, Össi minn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.