Morgunblaðið - 28.03.2001, Qupperneq 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 15
LJÓSMYNDASTOFAN Myndrún
ehf. á Akureyri hefur flutt starf-
semi sína í nýtt húsnæði að
Hvannavöllum 14, en stofan var
áður á öðrum stað í þessu sama
húsi.
Ljósmyndastofan hefur nú mun
stærra húsnæði til umráða en frá
því hún var stofnuð fyrir tæpum
tveimur árum hafa umsvifin aukist
umtalsvert.
Rúnar Þór Björnsson ljósmynd-
ari hefur fram til þessa rekið stof-
una en nú hefur Finnbogi Mar-
ínósson ljósmyndari í Reykjavík
tekið þar til starfa og er meðeig-
andi Rúnars Þórs.
Ljósmyndastofan Myndrún hef-
ur sinnt allri almennri ljósmyndun
og svo verður áfram, en jafnframt
er þar eina stafræna stúdíóið á
Akureyri. Með umræddum breyt-
ingum, nýjum ljósmyndara og
stærra húsnæði verður stofan enn
betur í stakk búin til að taka við
fleiri verkefnum. Ljósmyndastofan
verður frá næstu mánaðamótum
opin alla virka daga frá kl. 11 til
18.
Í tilefni af þessum tímamótum
stendur yfir sýning á ljósmyndum
Finnboga, en þær hafa verið til
sýnis í Reykjavík síðustu mánuði.
Sýningin verður opin um næstu
helgi eða á laugardag og sunnudag
frá kl. 14 til 17.
Ljósmyndararnir Rúnar Þór Björnsson og Finnbogi Marínósson á
Ljósmyndastofunni Myndrún á Akureyri.
Liðsauki og
nýtt húsnæði
Ljósmyndastofan Myndrún á Akureyri
ÞETTA er nú aldeilis veðrið til snjómoksturs
en við erum nú að þessu okkur til heilsubótar
og maður þarf að hreyfa sig aðeins,“ sagði
Þorsteinn Leifsson, íbúi við Birkilund á Ak-
ureyri, þar sem hann var að moka bílaplanið
við hús sitt ásamt konu sinni Hrafnhildi Bald-
vinsdóttur.
Hrafnhildur sagði að alltaf safnaðist tölu-
verður snjór á bílaplanið hjá þeim hjónum.
„Svo virðist sem þetta sé eina planið í götunni
sem snjór safnast á og við stökkvum jafnan til
og hreinsum það jafnóðum,“ sagði Hrafnhild-
ur. Þau hjón voru sammála um að mun minna
hefði orðið úr veðri en spáð var og í gærdag
var glampandi sól á Akureyri og ágætisveður.
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn og Hrafnhildur moka snjó af bílaplaninu.
Snjómokstur
er heilsubót
REKSTUR fóðurverksmiðjunnar
Laxár gekk ágætlega á síðasta ári en
um 7,5 milljóna króna hagnaður varð
af rekstrinum. Heildarframleiðslan
nam um 3.100 tonnum á liðnu ári sem
er svipað magn og framleitt var á
árinu áður. Þetta kom fram í máli
Valgerðar Kristjánsdóttur fram-
kvæmdastjóra á aðalfundi félagsins
sem haldinn var nýlega.
Valgerður sagði að fyrirtækið yrði
10 ára gamalt nú í sumar og væri
vissulega ástæða til bjartsýni fyrir
þess hönd. Miklar fyrirætlanir væru
uppi í fiskeldi hér á landi og ætlaði
verksmiðjan sér að vera með í þeirri
aukningu sem skapaðist í kjölfarið.
„Við erum mjög bjartsýn á framtíð-
ina og sjáum fram á að verksmiðjan
muni stækka innan fárra ára en við
stefnum bæði á aukna sölu innan-
lands og eins til Færeyja,“ sagði Val-
gerður.
Mestur hluti framleiðslu síðasta
árs var seldur innanlands en einnig
var fóður flutt út til Færeyja og lítils
háttar til Danmerkur. Salan innan-
lands jókst um 500 tonn en Valgerð-
ur sagði fiskeldismenn nýta stöðvar
sínar mjög vel. Salan til Færeyja
dróst saman á milli ára en mjög hörð
samkeppni ríkir á mörkuðum þar,
einnig var verð lágt sem og gengi
dönsku krónunnar.
Tækifæri skapast
við aukið fiskeldi
Valgerður gerði sterkari stöðu
fiskeldis að umtalsefni en nú eru um
50 fiskeldisstöðvar skráðar á Íslandi
og áform uppi að auka mjög laxeldi
hér á landi. Nefndi Valgerður að bú-
ast mætti við að hún muni tífaldast á
næstu árum eða úr um 3 þúsund
tonna framleiðslu í yfir 30 þúsund
tonn. Valgerður sagði að Laxá
stefndi að sjálfsögðu á að vera með í
aukinni samkeppni en næðust þau
markmið félagsins að auka fóðursölu
innanlands sem og í Færeyjum
myndi ekki líða á löngu áður en af-
kastageta verksmiðjunnar yrði full-
nýtt.
Veltan á síðasta ári var 210 millj-
ónir á móti 220 milljónum árið áður
en verð á fóðri lækkaði milli ára.
Heildareignir félagsins námu í árs-
lok 143,3 milljónum króna. Veltufjár-
munir voru 76,2 milljónir og skamm-
tímaskuldir 23 milljónir.
Veltufjárhlutfall var 3,31 og hefur
hækkað. Fastafjármunir voru 67,1
milljón og skammtímaskuldir 6,4
milljónir króna en þær hafa lækkað
umtalsvert eða um 10 milljónir
króna. Heildarskuldir félagsins í lok
síðasta árs voru 29,5 milljónir króna
og eigið fé 113,8 milljónir. Eiginfjár-
hlutfall var því 79,45%.
Laxá framleiddi um 3.100 tonn af fóðri á liðnu ári
Vilja auka fóðursölu
hér og í Færeyjum
GENGIÐ hefur verið frá samkomu-
lagi um að Nýsköpunarsjóður og fjár-
festingasjóðurinn Tækifæri hf. leggi
fram 20 milljónir króna til kaupa á
meirihluta hlutafjár í MT-bílum í
Ólafsfirði af Sigurjóni Magnússyni,
aðaleiganda og framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. Eftir þessa breytingu á
eignarhaldi mun Sigurjón eiga 40%
hlutafjár í MT-bílum en Nýsköpunar-
sjóður og Tækifæri 60%. Sigurjón
Magnússon verður eftir sem áður
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en
hjá því starfa um tíu manns.
Sigurjón Magnússon, bifvélavirki í
Ólafsfirði, setti MT-bíla á stofn í árs-
byrjun 1999 til þess m.a. að þróa yf-
irbyggingar úr trefjaplasti á slökkvi-
og björgunarbíla. Á rúmum tveimur
árum hafa MT-bílar framleitt tvo
slökkvibíla, annan fyrir Brunavarnir
Rangárvallasýslu og hinn fyrir sveit-
arfélagið Vestmanna í Færeyjum.
Fjórir slökkvibílar eru nú í smíðum í
Ólafsfirði og eru þrír þeirra þegar
seldir til Ólafsfjarðarbæjar, Grundar-
fjarðar og Akranesbæjar.
MT-bílar hafa einnig hannað og
framleitt ýmsar aðrar vörur úr trefja-
plasti. Má þar nefna vatnabáta, vist-
væn þurrsalerni til notkunar á ferða-
mannastöðum og gönguleiðum og
yfirbyggingar á litla flutningabíla og
snjóbíla.
Í frétt frá félaginu í kjölfar þessara
breytinga segir að það hafi mikla þýð-
ingu fyrir fyrirtækið að fá sjóðina inn
í félagið. Með því aukist hlutafé veru-
lega og verði það nýtt til áframhald-
andi uppbyggingar. Þá sé einnig um
að ræða mikla viðurkenningu á þeirri
þróunarvinnu og nýsköpun sem verið
hefði hjá MT-bílum á síðustu árum og
muni það styrkja fyrirtækið til að
sækja enn frekar fram á veginn.
Haft er eftir Arne Vagn Olsen,
sjóðsstjóra fjárfestingasjóðsins Tæki-
færis, og Björgvini Njáli Ingólfssyni
hjá Nýsköpunarsjóði að þeir hafi trú á
MT-bílum og um sé að ræða áhuga-
verðan fjárfestingakost. Mikil þekk-
ing sé til innan fyrirtækisins á smíði
slökkvibíla sem og á öðrum hlutum úr
trefjaplasti og sóknarfæri séu veruleg
bæði innanlands og utan.
Nýsköpunarsjóður og Tækifæri
Kaupa meiri-
hluta í MT-bílum
í Ólafsfirði
Akureyrarkirkja
Opið hús fyrir
eldri borgara
OPIÐ hús verður fyrir eldri
borgara í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju á morgun,
fimmtudaginn 29. mars, frá kl.
15 til 17. Flutt verður blönduð
dagskrá um ástina, lífið og til-
veruna með þátttöku gesta. Jón
Árni Sigfússon leikur á harm-
oniku. Séra Svavar A. Jónsson
flytur bænaorð. Bíll fer frá
Kjarnalundi kl. 14.15, Víðilundi
kl. 14.30 og Hlíð kl. 14.45.