Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI
18 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA FLOKKS FJÁRMÖGNUN
Áhættufjármagn fyrir fyrirtæki.
Langtímafjármögnun fasteignaviðskipta og fjármagnstrygging.
Stór verkefni eru okkar sérsvið.
Engin umboðslaun fyrr en fjármagn er staðfest.
Miðlarar verndaðir.
FULLTRÚI
óskast til að vera milliliður okkar við afgreiðslu umsókna
um fjármögnun.
Vinsamlegast sendið upplýsingar á ensku til:
Venture Capital Consultants
Investment Bankers.
16311 Ventura Blvd., Suite 999,
Encino, Kalifornía 91436, U.S.A.
Fax 001 818 905 1698. / Sími 001 818 789 0422.
BAUGUR hefur opnað fyrstu Top
Shop verslunina í Svíþjóð í nýrri
verslanamiðstöð rétt fyrir utan
Stokkhólm og er þetta þriðja versl-
unin sem Baugur Sverige AB, sem
tilheyrir sérvörusviði Baugs, opnar á
Stokkhólmssvæðinu. Áður hafa ver-
ið opnaðar tvær Miss Selfridge búðir
í miðbæ Stokkhólms. Fyrirhugað er
að opna allt að fimm Top Shop versl-
anir í Svíþjóð og framundan er opn-
un níu þúsund fermetra Debenhams
verslunar á besta stað í Stokkhólmi,
við Drottningargötu, á næsta ári.
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri
Baugs segir að uppbyggingin í Sví-
þjóð hafi gengið vel fram að þessu og
áform fyrirtækisins um frekari
starfsemi á Norðurlöndum gangi
eins og ráð var fyrir gert. Áður en
hafi verið farið út í fjárfestingar í
Svíþjóð hafi farið fram ítarleg grein-
ing og að vel athuguðu máli ákveðið
að byrja á Stokkhólmssvæðinu. Með
Top Shop reki Baugur nú þrjár búð-
ir í Stokkhólmi og líkja megi opnun
Debenhams á næsta ári við opnun
um tíu Top Shop búða, umfang fjár-
festingarinnar sé slíkt. Fjárfesting
Baugs í Svíþjóð nemi nú um milljarði
á tveimur árum. Baugur komi til
með að fjárfesta frekar á Norður-
löndum og beri þar hæst fyrirhug-
aða opnun Debenhams verslunar í
Kaupmannahöfn sem ætlunin sé að
opna 2003.
Jón Ásgeir segir að sóknartæki-
færi Baugs á næstu árum muni fyrst
og fremst liggja í sérvöruhluta starf-
seminnar í samstarfi við ensku keðj-
urnar Arcadia en þar eru vörumerki
á við Miss Selfridge, Top Shop, Dor-
othy Perkins, Burton og fleiri, og
svo Debenhams verslunarkeðjuna
sem eru þekktar deildarvöruversl-
anir. Hann segir að eftir opnun Smá-
ralindar í haust geri áætlanir ráð
fyrir að fjárfestingar á Íslandi verði
litlar á næstu árum og vöxtur fyr-
irtækisins verði fyrst og fremst er-
lendis. Á Norðurlöndum séu spenn-
andi markaðir og möguleikarnir
miklir. Fyrir stór sænsk fyrirtæki
séu verslanir eins og Top Shop og
Miss Selfridge lítil verkefni en fyrir
Baug séu þetta viðráðanleg verkefni
sem fyrirtækið geti vel tekist á við.
Kristjón Grétarsson fram-
kvæmdastjóri Baugs Sverige AB
segir að hann búist við að Top Shop
fái góðar viðtökur í hinni nýju versl-
unarmiðstöð Heron City. Miðstöðin
sé vel staðsett og við hliðina sé ein
stærsta IKEA verslun í Svíþjóð. Á
svæðið komi rúmlega átta milljónir á
hverju ári. Heron City sé ekki versl-
unarmiðstöð í venjulegum skilningi,
heldur frekar skemmti- og afþrey-
ingarmiðstöð sérstaklega hönnuð
með þarfir ungs fólks í huga. Hún
henti því verslun eins og Top Shop
afskaplega vel en markhópur Top
Shop sé einmitt ungt fólk. Hann sé
sannfærður um að verslunin eigi eft-
ir að fá góðar viðtökur. Aðspurður
um reynsluna af sænska markaðin-
um og horfurnar á næstu árum segir
Kristján að þrátt fyrir að við fyrstu
sýn virðist sænski markaðurinn
mettaður séu mikil tækifæri á hon-
um. Fyrir á markaðunum séu
rótgróin sænsk vörumerki og versl-
anir sem hafi langa sögu. Top Shop
bjóði hins vegar vöru beint frá Lond-
on. Slíkt hafi ekki áður þekkst á
markaðnum. Það sé vel pláss á
markaðnum fyrir slíka verslun.
Reynslan af rekstri Miss Selfridge
verslanana hafi verið góð og sam-
kvæmt skoðanakönnun sem gerð var
í byrjun árs kom í ljós að helmingur
aðspurðra þekkti merkið Miss Self-
ridge þrátt fyrir að verslunin hefði
einungis verið tæpt ár í rekstri. „Við
erum því bjartsýnir á framhaldið,“
segir Kristján.
Baugur opnar fyrstu Top Shop-verslunina í Stokkhólmi í nýrri verslanamiðstöð
Tómas Orri
Í síðustu viku opnaði Baugur TopShop-verslun í Stokkhólmi en Baugur stefnir að því að verða stærsti hluthafinn í
bresku sérleyfiskeðjunni Arcadia sem á TopShop-sérleyfið.
Fjárfestingin
í Svíþjóð einn
milljarður
FLUGLEIÐIR hf. gerðust nýlega
aðilar að Aeroxchange, sem er
nokkurs konar rafrænt markaðs-
torg stórs hóps alþjóðlegra flug-
félaga, í þeim tilgangi að lágmarka
innkaupakostnað.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir til-
ganginn með Aeroxchange vera að
byggja upp rafræn viðskipti á milli
flugfélaga víðs vegar um heiminn
við hvert annað og ekki síður fjöl-
marga
lykilbyrgja flugfélaganna. Í raun
sé um að ræða innkaupa- og út-
boðskerfi sem sýni stöðu ákveðinna
birgða hjá félögunum.
„Fyrst á dagskrá eru varahlutir,
netvæddur skiptimarkaður með
varahluti, en hugsunin er sú að að-
ildarfélögin geti myndað einhvers
konar samstarf um samnýtingu í
sínum birgðum“, segir hann og
nefnir dæmi:
„Vanti viðhaldsstöðina hjá Flug-
leiðum varahlut er hægt að sjá á
Netinu hvaða flugfélög eiga hlutinn
til og hvar hann er staðsettur, t.d.
gæti SAS átt þennan hlut í við-
haldsstöð sinni í Kaupmannahöfn.
Þá má fá varahlutinn lánaðan á
skjótan og auðveldan hátt og svo
er sambærilegum hlut skilað eða
greitt fyrir á annan hátt, eins og
um semst.“
Að sögn Guðjóns er þessi vara-
hlutaskiptimarkaður aðeins hluti af
þeim virðisaukandi lausnum sem
Aeroxchange býður upp á og
gæti verið upphafið að víðtækara
samstarfi félaganna. Þannig gæti
hugmyndin tekið til hins gríðarlega
stóra markaðar sem veitingahluti
flugrekstrar er, eða til annarrar
þjónustu og jafnvel eldsneytis.
„Þetta er að renna af stað og
Flugleiðir vilja vera virkir þátttak-
endur í því. Flugleiðir hafa verið
þreifa fyrir sér með rafræn við-
skipti á milli fyrirtækja hér innan-
lands. Við erum farin að kaupa inn
margs konar hluti með þessum
hætti og það hefur reynst vel“,
segir hann.
Í fréttatilkynningu frá Aerox-
change segir að Flugleiðir ásamt
flugfélögunum Varig Brasil og
Thai Airways séu nýjustu aðilarnir
að þessu samstarfi flugfélaga sem
verði nú 26 talsins. Aeroxchange-
samstarfið hófst í október sl. og
tekur til flugfélaga á borð við Air
Canada, America West Airlines,
FedEx, KLM, Lufthansa, SAS og
Singapore Airlines.
Flugleiðir aðilar að rafræn-
um markaði með varahluti
Ljósmynd/Björn Blöndal
Vanti viðhaldsstöðina hjá Flugleiðum varahlut er hægt að sjá á Netinu hvaða flugfélög eiga hlutinn til og hvar
hann er staðsettur. Þá má fá varahlutinn lánaðan á skjótan og auðveldan hátt.
● HLUTABRÉF Íslenskra að-
alverktaka hf. og Íslenska hugbún-
aðarsjóðsins hf. verða flutt af Vaxt-
arlista á Aðallista Verðbréfaþings
Íslands þann 1. apríl næstkomandi
þar sem félögin hafa bæði náð til-
skildum þriggja ára aldri í núverandi
rekstri og uppfylla önnur skilyrði
skráningar á Aðallista.
Að lokinni færslu félaganna
tveggja verða 50 félög skráð á Að-
allista Verðbréfaþings Íslands, sam-
tals að markaðsverðmæti yfir 330
milljarðar kr.
Færast yfir
á Aðallista VÞÍ
STUTTFRÉTTIR
● ÍMARK heldur hádegisverðarfund
á morgun, fimmtudaginn 29. mars, í
Versölum, Húsi iðnaðarins við Hall-
veigarstíg, kl. 12-13.30 og er yfir-
skrift fundarins: Hvað má auglýsa?
Hvað á að leyfa í auglýsingum? Hvað
á að banna? Á ekki að banna neitt?
Reglur eða ekki reglur?
Framsögumenn á fundinum verða
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins,og Gunnar Smári Egilsson
blaðamaður.
Hvað má
auglýsa?