Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 25 Útsölumarkaður GK REYKJAVÍK er í fullum gangi á Skúlagötu 17 útsölumarkaðurinn er opinn alla daga vikunnar frá kl. 12–18 herrafatnaður-dömufatnaður-skór-barnaskór-efni Reykjavik Collection Valentiono Jeans Helmut Lang Day Bruuns Bazaar Calvin Klein Base Ahler Whistles Minus Reiss Jigsaw pom’dap fluxa OLIVER Stone bjó til fína háðs- ádeilu um fjölmiðlafár og nánast of- beldisdýrkun í Bandaríkjunum með sinni umdeildu mynd, Natural Born Killers. Þeir sem misskildu hana sögðu að Stone væri ekkert betri en pakkið sem hann lýsti og væri sjálfur að upphefja ofbeldið. Ekkert var fjær sanni. Í 15 mínútum, sem frum- sýnd var um síðustu helgi, gengur leikstjórinn og handritshöfundurinn John Herzfeld í smiðju til Stones að þessu leyti en hefur ekki erindi sem erfiði. Hann ætlar að gera það sama, fjalla um þorsta fjölmiðlana eftir of- beldi og dýrkun á ofbeldismönnum og frægðina sem þeir sækjast eftir og ýtt er undir af fjölmiðlunum, en myndin hans verður hálfgerður hrærigrautur, óþarflega ofbeldisfull og missir einhvern veginn marks sem þjóðfélagssýn. Titill hennar er fenginn af kunnum orðum listamannsins Andy Warhols sem sagði að hver jarðarbúi ætti eft- ir að hljóta sína fimmtán mínútna frægð og hún segir frá tveimur lög- reglumönnum á höttunum eftir glæpamönnum frá Austur-Evrópu, sem fara um New York myrðandi að lokum sér til frægðar. Robert De Niro, sem virðist leika í annarri hverri mynd þessa dagana, er eldri og reyndari og kann að spila á fjöl- miðlana, hefur hlotið sína frægð með því að láta fjölmiðlana vita af því þegar hann vinnur þrekvirkin. Hinn, sem Edward Burns leikur eins og hann sé sífellt að stilla sér upp fyrir Calvin Kline-auglýsingu, amast út í fjölmiðlana og græðgi þeirra í of- beldisfréttir. Þarna er einnig Kelsey Grammer (hinn óviðjafnanlegi Fras- ier) sem fulltrúi fjölmiðlanna en hef- ur sáralítið erindi í raun. Kannski mesti gallinn við myndina sé sá að við höfum séð þetta allt sam- an áður og ekki aðeins í Natural Born Killers. Myndin á að vera eins- konar úttekt á lömuðu réttarkerfi sem býður upp á glufur fyrir bíræfna morðingja að sleppa í gegnum, einn- ig fjölmiðladansinum í kringum al- ræmda ofbeldismenn og hún hefur ekkert nýtt fram að færa í þeim efn- um. Hún tapar trúverðugleika sínum einhvers staðar á milli þess sem hún er hefðbundin spennumynd og þjóð- félagsádeila. Þetta tvennt kemur aldrei heim og saman í meðförum Herzfelds. Sumir þræðirnir eru aldr- ei raktir almennilega eins og ástar- samband De Niros og glæsilegrar fréttakonu, sem aldrei verður að neinu. Og De Niro að leika á móti sjálfum sér framan við spegil er kannski það klisjukenndasta í allri myndinni. Herzfeld hefur ákveðnar meiningar en hann setur þær fram af of miklum ákafa og myndin hans verður óþarflega gegnsæ og þunn- ildisleg fyrir vikið. Skammlíf frægð KVIKMYNDIR L a u g a r á s b í ó , S t j ö r n u b í ó , B o r g a r b í ó A k u r e y r i Leikstjóri og handritshöfundur: John Herzfeld. Aðalhlutverk: Ro- bert De Niro, Edward Burns, Kels- ey Grammer, Melina Kanakaredes, Avery Brooks og Karel Roden. New Line Cinema 2000. 15 MÍNÚTUR „15 MIN- UTES“ Arnaldur Indriðason LAUGARDAGINN síðasta var opnuð sýning í Gula húsinu á verkum nokkurra erlendra listnema sem stundað hafa myndlistarnám hér heima um lengri eða skemmri tíma. Sýninguna kalla þeir Forrest, sem bersýnilega er orðaleikur byggður á heitinu forest – skógur – og for rest – til hvíldar. Sýnendurnir er frá sex þjóðlöndum; tveim asískum – Víet- nam og Japan – og fjórum evrópsk- um – Frakklandi, Englandi, Þýska- landi og Ítalíu. Það er af sem áður var þegar héð- an var einstreymi af íslenskum list- nemum til annarra landa án þess að við fengjum nokkurn í staðinn frá öðrum þjóðum. Bein tengsl Listahá- skólans við umheiminn hafa auðveld- að erlendum nemendum að sækja sér hingað nokkurra mánaða menntun sem skiptinemar. Í staðinn halda ís- lenskir nemendur til annarra landa og dvelja þar í jafnlangan tíma. Þeg- ar þess er gætt að fátt er eins hollt fyrir hugann og breyttar aðstæður, nýtt umhverfi og önnur menning má segja að slík nemendaskipti séu á við margra missera nám. Að vísu eru listnemar bundnir af ýmsum kvöðum sem setja þeim skorður. Þar er fyrst að telja vanda- mál á borð við kostnað af gerð flók- inna og efnismikilla listaverka. Flest- ir þeirra sem dvelja fáeina mánuði í öðru landi reyna að komast af með eins lítil útgjöld og þeim er frekast unnt. Þannig er ekki að finna dýr verk í Gula húsinu heldur hugvitssamlega nýtingu á ódýrum efniviði. Sýning þeirra Asami Kaburagi, Cécile Parcillié, Charlotte Williams; Juliu Oschatz, Juliu Steinmann, Luigi Puxeddu, Manuel Ruberto, Nguyen Viet Thanh og Verenu Lettmayer er á öllum hæðum hússins og tekur til fjölbreytilegra hugmynda og efnisvals. Það er merkilegt að sjá hve sterk sérkenni landanna eru þeg- ar öllu er á botninn hvolft. Það er eins og sýnendur leitist við að byggja verk sín á grunni þeirrar hefðar sem skap- ast hefur í heimalöndum þeirra á undanförnum tveim áratugum. Ef til vill er þessi fylgni við þjóðleg sérkenni ómeðvituð. Hún sannar eigi að síður að hver þjóð á sér sín tján- ingarlegu sérkenni sem hvergi hafa glatast þótt samband margra land- anna – hér er einkum átt við löndin í Evrópusambandinu – hafi orðið svo náið að þau mynda orðið eina efna- hagslega heild. Þess háttar samruni breytir þó ekki menningarlegum sérkennum svo sem tungumáli og venjum, en hvers konar listsköpun hvílir einmitt á þeirri undirstöðu sem venjuleg dag- leg tjáning býr henni. Sú flatneskja sem menn telja sig sjá samfara stöð- ugt nánara sambandi landa í millum sýnir sig á öðrum sviðum en í mynd- listinni. Að minnsta kosti eru skörp skil milli listnemanna í Gula húsinu eftir því hvaðan þeir koma. Sú bábilja að listsköpun samtímans sé öll á eina bókina lærð kemur ekki heim og saman við sýningu nímenninganna við Lindargötuna. Þar geta menn hvílst í skóginum og notið þess að sjá gróður af jafnólíkum toga og trén eru mörg. Skógur til hvíldar MYNDLIST G u l a h ú s i ð , L i n d a r g ö t u Til 30. mars. Opið daglega frá kl. 15–18. BLÖNDUÐ TÆKNI – NÍU ERLENDIR LISTNEMAR Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson Eitt af verkunum á sýningunni í Gula húsinu. Halldór Björn Runólfsson SÍÐASTA sýning á Abigail heldur partí sem sýnt er á Litla sviði Borg- arleikhússins, verður á morgun, fimmtudagskvöld, kl. 20. Verkið, sem er eftir Mike Leigh, var frum- sýnt í nóvember sl. Leikurinn gerist eina kvöldstund á heimili hjónanna Beverly og Laurence. Beverly, sem Margrét Helga Jóhannsdóttir leikur, er af- skaplega þreytandi og lítt dönnuð húsfreyja sem er umhugað um að vera hinn fullkomni og heillandi gestgjafi, en tekst það einhverra hluta vegna ekki sem skyldi. Laur- ence, leikinn af Hjalta Rögnvalds- syni, er dæmigerður vinnuþjarkur, á sífelldum þönum vegna vinnunn- ar og skipana konu sinnar. Leik- stjóri er Hilmir Snær Guðnason. Harpa Arnardóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sóley Elíasdóttir í Abigail heldur partí. Síðasta sýning á Abigail heldur partí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.