Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 37

Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 37 feigðina nálgast. En teningunum var varpað. Það var haldið í sólina og lífs- ins notið í tvo eða þrjá daga. Móður af dansi við sína heittelskuðu settist Hörður niður og var allur. Þannig var Hörður Björnsson, aldrei mínúta til spillis. Hörður Björnsson er í dag kvadd- ur frá kirkjunni í Seltjarnarnesi, kirkjunni sem hann hannaði í grunn og taldi sitt höfuðverk. Með Herði er genginn vammlaus drengur og vin- margur. Aldrei lagði hann til nokkurs manns og „ekkert vildi honum mein gjöra“. Hörður Björnsson átti gott líf, dæmafáa heilsu, indælt heimili og heilbrigð börn. Hann óskaði sér einskis frekar. Starfið og stormurinn var hans vettvangur. Sólarlönd hent- uðu ekki þessum syni heiðarinnar. F.h. Almennu verkfræðistofunnar hf. Pétur Stefánsson. Kveðja frá Lionsklúbbi Kópavogs Það er ávallt sárt að missa góðan félaga og vin. Hugurinn leitar til lið- inna samverustunda svo sem funda og ferðalaga sem við tregum að verði ekki fleiri. Þakklæti er ofarlega í huga fyrir að hafa átt því láni að fagna að kynnast góðum manni og traustum Lionsfélaga. Hörður Björnsson gekk til liðs við Lionsklúbb Kópavogs 1960 og starf- aði þar af einurð og trúmennsku æ síðan. Hann var fyrsti félaginn sem gekk til liðs við þá nýstofnaðan Lions- klúbb í Kópavogi. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn, jafnt innan klúbbs sem fyr- ir Lionsumdæmið. Hörður var for- maður Lionsklúbbs Kópavogs 1967- 1968. Í um 30 ár var hann stallari okk- ar og sinnti hann því starfi af einskærri alúð og virðugleika. Hann hafði velferð og hagsmuni klúbbsins ávallt að leiðarljósi og hafði ekki misst úr fund frá því hann gekk til liðs við Lionsklúbbinn. Svo sjálfsögðum hafa stjórnir klúbbsins tekið honum sem stallara að þetta er eina embættið innan klúbbsins svo vitað sé að aldrei hefur verið kosinn varamaður í. Þetta er mér umhugsunarefni um mannkosti og áreiðanleika þess Lionsfélaga sem við nú kveðjum. Með hverjum félaga mótast heildin og Hörður Björnsson lagði svo sannarlega sinn skerf á vog- arskálina til mótunar og eflingar Lionsklúbbs Kópavogs. Sérstaklega áttu yngri og óreyndari félagar hauk í horni þar sem Harðar gætti. Hann var einstaklega ljúfur maður og hreinskiptinn og var þess vegna auð- velt og gott að leita ráða hjá honum. Að leiðarlokum vil ég þakka honum lærdómsrík samskipti og traust sam- starf liðinna ára. Hvíl í friði kæri vin- ur. Við Lionsfélagar vottum eftirlif- andi eiginkonu, Þórhöllu Kristjáns- dóttur, svo og fjölskyldu allri, okkar dýpstu samúð. Ólafur H. Georgsson, formaður. Fallinn er í valinn einn af dyggustu og áhugasömustu stuðningsmönnum Tónlistarskóla Kópavogs, Hörður Björnsson tæknifræðingur. Hörður gekk til liðs við Tónlistarfélag Kópa- vogs fyrir um þrjátíu árum, en Tón- listarfélagið á og rekur Tónlistarskól- ann. Á aðalfundi Tónlistarfélagsins 1973 var Hörður kosinn í stjórn og var frá þeim tíma ritari félagsins allt þar til hann baðst undan endurkosn- ingu á aðalfundi á sl. ári eða í alls 27 ár. Var hann jafnframt ritari skóla- nefndar Tónlistarskóla Kópavogs sama tíma. Hörður var góður ritari er kunni þá list að greina frá því sem gerðist á fundum á hnitmiðaðan hátt í ekki allt of löngu máli, en halda þó öll- um atriðum, er máli skiptu, til haga. Eru fundargerðir hans merk og ómetanleg heimild um starfsemi Tón- listarfélagins og skólans um nærri þriggja áratuga skeið. En Tónlistar- félagið naut starfskrafta Harðar á fleiri sviðum. Er félagið keypti hús- næði í Hamraborg 11 hér í bæ þurfti að innrétta það fyrir starfsemi tón- listarskólans. Bauð Hörður þá fram reynslu sína og þekkingu á hönnun og byggingu húsa og teiknaði allt sem teikna þurfti í því sambandi, auk þess sem hann hafði eftirlit með fram- kvæmdum fyrir félagsins hönd. Að leiðarlokum lokum eru Herði Björnssyni þökkuð áratuga óeigin- gjörn en hljóðlát störf í þágu tónlist- armenntunar í Kópavogi. Samstarfs- fólk hans mun ávallt minnast hins glaða og hressa drengskaparmanns með virðingu. Eiginkonu hans og börnum eru sendar innilegustu samúðarkveðjur. Runólfur Þórðarson. Góður vinur og félagi, Hörður Björnsson byggingarfræðingur, lést hinn 9. mars sl. liðlega 81 árs gamall. Þótt árin væru orðin nokkuð mörg kom skyndilegt andlát hans okkur starfsfélögum hans mjög á óvart, enda hafði hann verið heilsuhraustur og mætti í vinnu sína á hverjum degi, þar sem hann vann fullan vinnudag svo sem venja hans hafði verið alla tíð. Hörður Björnsson fæddist 11. febrúar 1920 í Veturhúsum í Jökul- dalsheiði og varð því 80 ára á sl. ári. Þeim tímamótum fagnaði Hörður og fjölskylda hans ásamt vinum og vandamönnum fjölmörgum með veg- legri og eftirminnilegri samkomu úti í Viðey. Eftir stúdentspróf frá Menntaskól- anum á Akureyri hóf Hörður starfs- feril sinn hjá Almenna bygginga- félaginu í Reykjavík sem tækni- teiknari árið 1942, en fór síðan til náms í byggingarfræði/húsahönnun við Stockholms Tekniska Institut 1945, þar sem hann lauk prófi 1947. Að námi loknu kom hann aftur til starfa hjá Almenna byggingafélaginu og vann þar allt til ársins 1961 við gerð arkitektateikninga af ýmsum mannvirkjum, svo sem Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi og Sements- verksmiðjunni á Akranesi. Sjálfstæðan rekstur eigin teikni- stofu hóf Hörður 1961 og hafði lengst af aðsetur í húsnæði Almenna bygg- ingafélagsins og síðar Almennu verk- fræðistofunnar, þar sem hann starf- aði allt til dauðadags. Hörður var alla tíð hrókur alls fagnaðar í hópi vinnufélaganna þau hartnær 60 ár sem hann átti samflot með starfsfólki Almenna bygginga- félagsins og Almennu verkfræðistof- unnar. Fjölmargar góðar minningar koma upp í hugann um góðan og skemmti- legan félaga við andlát Harðar. Hann tók þátt í starfi og tómstundum starfsfólksins af lífi og sál og gaf hin- um yngri ekkert eftir á ferðalögum og á starfsmannaskemmtunum allt fram til hins síðasta. Var áberandi mjög hvað Hörður og Halla kona hans tóku mikinn þátt í dansi á sam- komum okkar og leyndi sér ekki hve Hörður hafði mikla ánægju af þeirri skemmtan. Má reyndar segja að hann hafi dansað fram í andlátið, því svo vildi til að Hörður lauk sínum síð- asta dansi með konu sinni í bókstaf- legri merkingu örfáum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur í vetrarfríi á Kanaríeyjum föstudaginn 9. mars sl. Sú hefð komst snemma á hjá Al- menna byggingafélaginu að spila brids í hádeginu og kaffitímum. Hörður tók þátt í spilamennskunni af miklum áhuga og hefur sennilega ekki misst þar nokkurn dag úr nema lögleg forföll hafi hamlað. Autt og áberandi skarð hefur nú myndast við spilaborðið. Hörður var sjálfs sín herra frá 1961 og stundaði sín störf sem húsateikn- ari af mikilli elju og dugnaði og hafði lengst af yfirdrifin verkefni, sem sýn- ir að fagleg störf hans hafa verið mik- ils metin af öllum þeim sem til hans leituðu. Hann hlaut margar viður- kenningar og verðlaun fyrir störf sín, m.a. fyrstu verðlaun í samkeppni um Seltjarnarneskirkju og fer því vel á því að hann skuli nú hefja sínu síðustu för frá því glæsilega mannvirki, sem hann átti drjúgan þátt í að skapa. Við starfsfélagar Harðar kveðjum hann hinstu kveðju með þakklæti fyr- ir langt og ánægjulegt samstarf og við Marta flytjum Höllu, börnum og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum guð að blessa minningu góðs drengs og vinar. Svavar Jónatansson. ✝ Árni Sigurðssonfæddist í Vest- mannaeyjum 9. apríl 1918. Hann lést á lungnadeild Vífils- staðaspítala 19. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Sigríður Árnadóttir, f. 10. apríl 1886, d. 19. september 1972, og Sigurður Björnsson, f. 29. maí 1886, d. 9. júní 1928. Árni átti tvö systkini, Stefaníu, f. 18. ágúst 1909, d. 22. september 1986, og Jón, f. 7. nóvember 1911, d. 26. júní 2000. Árni kvæntist hinn 9. desember 1950 Vilborgu Strange, f. 22. febrúar 1923. Foreldrar hennar voru Victor Strange, f. 2. september 1896, d. 4. ágúst 1975, og kona hans, Hansína Strange, f. 8. júní 1900, d. 1. maí 1986. Börn Árna og Vilborgar eru 1) Sigríður Victoría, f. 25.7. 1951, maki Guðmundur Svavarsson, f. 3.3. 1949, dóttir þeirra er Hulda Karen, f. 4.10. 1983. 2) Garðar, f. 9.7. 1954, maki Kristrún Stefáns- dóttir, f. 4.1. 1955, þeirra dætur eru Kristrún Lísa, f. 21.5. 1975, sambýlis- maður hennar er Jó- hann Fr. Ragnars- son, f. 25.8. 1974, og Vilborg Anna, f. 8.4. 1983. 3) Þorvaldur, f. 4.3. 1964, maki Helga Birna Ingimundar- dóttir, f. 14.7. 1968, þeirra börn eru Árni Þórmar, f. 14.1. 1993, og Drífa Guðrún, f. 22.7. 1998. Árni fluttist til Reykjavíkur 1947 og hóf þá störf sem sýn- ingarmaður við Austurbæjarbíó. 1958 fluttust þau hjónin til Innri- Njarðvíkur og hófu þar rekstur eigin verslunar til ársins 1973 þeg- ar þau fluttust til Keflavíkur. Sam- hliða verslunarrekstri þeirra hjóna starfaði hann sem sýningar- maður við Nýja bíó í Keflavík. Árið 1973 varð hann sýningarstjóri við sama kvikmyndahús og sinnti því starfi til ársins 1993 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Útför Árna fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jæja, elsku afi minn. Nú er síðasta bíómyndin þín á enda, eins og Þor- valdur sagði um daginn. Þó svo að þessi endir sé búinn að vera erfiður fyrir okkur öll var samt gott að hann dróst ekki á langinn og það er ég ólýs- anlega þakklát fyrir. Ég bað svo oft fyrir þér á kvöldin og ég bað líka fyrir ömmu, því þetta er búið að vera svo erfitt fyrir hana. Mér fannst ofsalega gott þegar við hittumst öll fjölskyldan um daginn heima hjá ömmu. Það var góður endir á erfiðum degi. Ég ætla ekki að hafa þetta langt af því að ég kvaddi þig svo vel um daginn þegar við vorum bara tvö og enginn að trufla okkur. Þar áttum við gott samtal og mér leið betur eftir það. Elsku besti afi minn, ég óska þess að þér líði vel hjá Guði og ég veit að hann passar þig fyrir okkur. Ég ætla líka að biðja Guð að passa ömmu og pabba, Þorvald og Sirrýju. Ég veit að ég sé þig aftur seinna, en þangað til verða minning- arnar að nægja. Ég elska þig, afi minn, og hafðu það nú gott, hvar sem þú ert. Þitt barnabarn, Vilborg Anna. Elsku, elsku afi minn er dáinn. Ég sakna hans mjög en að sama skapi er gott að hann fékk að fara svo hann þyrfti ekki að þjást meira. En með honum hverfur á braut stór þáttur í mínu lífi. Þegar ég var lítil var ég eina barnabarn ömmu minnar og afa í tæp 8 ár og ég fékk óskipta athygli þeirra beggja. Allt sem litla prinsessan þeirra vildi fékk hún, jæja, næstum allt. Ég mun aldrei gleyma því hvað það var gaman að vera hjá ömmu og afa í Kefló þar sem maður fékk að horfa á gamlar og góðar teiknimyndir í flotta myndbandstækinu þeirra og oftar en ekki fékk ég grænan frost- pinna meðan ég horfði á myndirnar. Það besta sem ég fékk hjá ömmu og afa var ristað franskbrauð án skorp- unnar. Mér fannst algjört æði að þurfa ekki að borða skorpuna. Afi minn var sýningarstjóri í Nýja bíói í Keflavík og ég var dyggur stuðnings- maður hans þar á bæ. Fylgdi honum marga sunnudagana í bíó og fékk að valsa um að vild og sjá bíómyndirnar eins oft og ég vildi. Eftir því sem ég eltist fór ég að inna af hendi ýmis smávægileg störf í bíóinu hjá afa, ég fékk að vera í miðasölunni, afgreiða í sjoppunni og rífa af miðunum í hurð- inni ásamt því að ganga um salinn eft- ir sýningu og tína rusl. Þessi tími með afa er mér ómetanlegur og ég á aldrei eftir að gleyma þessu. Þegar afi veikt- ist í vetur tók við erfiður tími og mað- ur er aldrei undirbúinn fyrir það að afi manns deyi. En fjölskyldan stend- ur saman sem einn maður og við fáum öll styrk hvert hjá öðru. Ég veit að afi vakir yfir okkur öllum og passar okk- ur öll og hann veit hve mikið ég sakna hans. Undanfarin ár hafði ég mikið samband við ömmu mína og afa og ég sé það núna hve ómetanlegt það er að hafa hringt í þau bara til að segja hæ og kíkja við hjá þeim þegar maður átti leið suðureftir. Elsku afi, ég elska þig og ég mun aldrei gleyma þér. Passaðu ömmu mína. Þín Lísa. Elsku afi. Þakka þér fyrir að vera alltaf svo góður við mig. Ég gat alltaf komið með dótið mitt til þín ef það hafði orð- ið fyrir óhappi og þú gerðir við það þannig að það varð eins og nýtt. Ég sakna þín mjög mikið. Það var svo gaman að vera með þér í Hollandi þegar þú varðst 80 ára. Mér fannst líka svo gaman að fara með þér og ömmu í Skaftafell í fyrrasumar og þú sagðir mér frá sögunum þegar þú varst lítill strákur í sveit. Ég elska þig, afi. Þinn Árni Þórmar. Látinn er Árni Sigurðsson sýninga- stjóri og starfsmaður minn um langt árabil. Árni, eða nafni eins og við köll- uðum hvor annan, var fæddur í Vest- mannaeyjum 9. apríl 1918, þar stund- aði hann ýmis störf m.a. sem sýningamaður við kvikmyndahúsið í Eyjum. En það kom að því að hann fluttist til Reykjavíkur og gerðist verslunarmaður hjá Kjötverslun Tómasar á Laugavegi 2. Ásamt því starfaði Árni sem sýningamaður hjá Tripólíbíói og svo síðar hjá Austur- bæjarbíói. Um svipað leyti festi hann ráð sitt og gekk að eiga hina gjörvu- legu konu frú Vilborgu Strange. Vil- borg og Árni bjuggu í Reykjavík þangað til um 1958 að þau fluttu til Njarðvíkur og hófu verslunarrekstur í Innri-Njarðvík. En ekki dugði versl- unarreksturinn hjá Árna því hann vildi gera eitthvað meira og það mun hafa verið um 1965 sem hann hóf sýn- ingarstörf hjá tengdaforeldrum mín- um í Keflavík, þeim Birni Snæbjörns- syni og Elísabetu Ásberg í Nýja bíói, Keflavík. En það var árið 1967 þegar konan mín og ég tókum við rekstri Nýja bíós að ég kynntist Árna Sig- urðssyni. Þar sá ég að fór maður sem kunni til sinna verka og ef það var eitthvað sem þurfti að laga þá var Árni búinn að því um leið. Kringum 1970 hættu Árni og Villa verslunar- rekstrinum í Njarðvík. Sjálfur stund- aði ég mína dagvinnu í Reykjavík og rak heildverslun með plastvörur. Ég sá leik á borði og bauð Árna dagvinnu í Reykjavík og í fimm ár keyrðum við saman til Reykjavíkur til starfa. Á leiðinni heim á kvöldin frá Reykjavík kom það oft fyrir að nafni sofnaði en það var eins og við manninn mælt að alltaf vaknaði hann um það leyti sem ég var að koma að afleggjaranum nið- ur í Njarðvík. Við fórum stundum saman til út- landa, ein ferðin var sú lang minn- isstæðasta. Það var ferð í bíl frá Costa del Sol upp alla Evrópu til Amster- dam í Hollandi. Við vorum þrír saman og lentum í miklum ævintýrum á leið- inni. Mér er það alltaf minnisstætt hvað nafna fannst gaman að tala um þessa ferð, enda engin furða því lífleg var hún, og ég man alltaf hvað það var gott að fá uxahalasúpuna í Karlsruhe í Þýskalandi, en Árni fann hana í sjálf- sala um miðja nótt. Það var árið 1982, þegar við fjöl- skyldan fluttu til Reykjavíkur, um það leyti þegar við hófum kvikmynda- húsarekstur í höfuðborginni 2. mars, að Árni tók við rekstri Nýja bíós og var bæði sýningastjóri og rekstrar- stjóri. Því starfi gengdi hann allt til ársins 1994 þegar hann kom til mín og sagði að nú væri nóg komið og tími fyrir yngri menn að taka við. Árni og Villa höfðu gaman af því að ferðast til útlanda og ekki eru þær fá- ar ferðirnar sem þau hafa farið í sól- ina til Spánar og víðar. Þau eignuðust þrjú börn, þau Sirrý, Garðar og Þor- vald, sem vinnur hjá þeim sem þetta skrifar. Ég vil þakka nafna mínum fyrir allt sem hann hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu og þakka hon- um samstarfið í öll þau 30 ár sem við störfuðum saman. Við Guðný og fjöl- skyldan sendum Villu, Sirrý, Gæja, Þorvaldi og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur á þessari stundu. Árni Samúelsson. ÁRNI SIGURÐSSON ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.