Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 42
OLIL Amble, heimsmeistari í
fjórgangi, er ákveðin í að nýta sér
ekki rétt sinn til að mæta með
Kjark frá Horni og freista þess að
verja titilinn. Gildir þar einu þótt
henni takist ekki að vinna sér sæti í
liðinu með öðrum hesti. Segist hún
líta svo á að ef ekki sé hægt að
mæta með hestinn jafngóðan eða
betri en þegar þau unnu titilinn sé
betur heima setið í þeim efnum.
Hún sagðist engin tök hafa á að
þjálfa hest í öðru landi en hún býr í
og Kjarkur hefði að hennar mati
ekki fengið þá þjálfun sem þarf til
að vera hæfur í titilvörn og þar með
hafi hún afgreitt hlutina fyrir sig.
OLIL er hinsvegar með mörg
járn í eldinum, bæði hvað varðar
þátttöku í íþróttahlutanum og eins
kynbótadóma á HM. Sagði hún að
Kvistur frá Hofi væri efstur á blaði
þessa stundina hvað íþróttakeppn-
inni viðkæmi en vissulega kæmu
fleiri hross til greina sem of snemmt
væri að nefna til sögunnar. Olil
sagðist vera með sex stóðhesta og
þar á meðal væru Snerrir frá Bæ
sem hún segir að gæti vel komið til
greina sem HM-kandídat, til dæmis
í fjórgangi. Þá er hún með þá Ljós-
vaka frá Akureyri sem henni líkaði
mjög vel við og segist geta sett
hvern sem er á bak, vel taminn og
ljúfur hestur. Flygill frá Leirár-
görðum er einnig hjá henni og
sömuleiðis Þráinn frá Sigtúni.
ÞRÁINN var sem kunnugt er
sagður undan Ófeigi frá Flugumýri
en nú mun komið á daginn að hann
sé undan Viljari frá Skarði sem er
reyndar undan Ófeigi.
ELÍAS Þórhallsson hefur einu
sinni freistað inngöngu í íslenska
landsliðið í hestaíþróttum en ekki
haft erindi sem erfiði. Nú er hann
búinn að setja stefnuna á úrtökuna í
júní og hyggst mæta með stóðhest-
inn Frama frá Ragnheiðarstöðum í
fimmganginn og jafnvel reyna að
komast með hann í samanlagða sæt-
ið.
BENEDIKT Líndal keppti síð-
ast 1987 á heimsmeistara- eða Evr-
ópumóti í Austurríki en mótið verð-
ur einmitt haldið þar í ár. Þótt liðin
séu fjórtán ár frá því hann var síð-
ast í íslenska landsliðinu segist
hann enga löngun hafa til að komast
í liðið á nýjan leik. „Ég er eiginlega
vaxinn upp úr þessu,“ segir Bene-
dikt og hlær við.
LÉTTIR frá Ási, keppnishestur
Benedikts, þætti sjálfsagt góður
fyrir íslenska landsliðið en hann er
ekki falur, að sögn Benedikts sem
ætlar að eiga hann sér til skemmt-
unar. Hann hyggst stefna með hann
á fjórðungsmótið í sumar og svo eru
þeir félagar skráðir á Ístöltið um
næstu helgi. Önnur plön eru ekki
fyrirliggjandi á þeim bænum en
frekari þátttöku sagði Benedikt
ráðast af því hvað hentaði sér eins
og til dæmis þátttaka á Íslandsmóti.
Stórsýning í Arnargerði
Enn slær Smári frá
Skagaströnd í gegn
Öðru sinni efndu hestamenn í Austur-Húnavatnssýslu til
sýningar í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi en á síðasta
ári var byggingin vígð með fyrstu sýningunni. Valdimar
Kristinsson brá sér norður og skoðaði hvað Húnvetningar
höfðu upp á að bjóða í hestakosti á miðjum vetri.
EKKI þarf að orðlengja það að til-
koma reiðhallarinnar á Blönduósi
veldur straumhvörfum í hesta-
mennsku á félagssvæði Neista í
Austur-Húnavatnssýslu. Þeir sem
stunda hestamennsku á Blönduósi
geta leitað skjóls við þjálfun hrossa
þegar veður gerast válynd og hinir
sem eiga lengra að sækja njóta
hennar við námskeiðshald ýmiskon-
ar og svo gæti hún nýst ágætlega
fyrir samkomur af ýmsu tagi.
Á sýningunni á laugardag komu
hross nokkuð víða að. Auk heima-
hrossa var komið með kynbóta-
hross úr Eyjafirði og Skagafirði.
Þá fjölmenntu nokkrir vaskir svein-
ar að sunnan með bæði stóðhesta
og vekringa.
Af þeim hrossum sem þarna
komu fram voru það að sjálfsögðu
stóðhestarnir sem augu manna
beindust helst að og mátti vel
skynja þarna að stóðhestasam-
keppnin er mikil og virðast menn
leita allra leiða til að kynna sína
gripi sem vonlegt er. Eins og á
reiðhallarsýningu í Víðidalnum í
fyrravor var það Safírssonurinn
Smári frá Skagaströnd sem aftur
sló í gegn og má hiklaust útnefna
hann hest sýningarinnar á Blöndu-
ósi. Þessi hestur virðist einstakur í
allri framgöngu, mjúkur og fjaðr-
andi með góðri fótlyftu og fram-
gripi og fasi sömuleiðis. Þarna virð-
ist fara eðlisgæðingur sem óhætt er
að spá í. Það var eigandi hestsins,
Hlynur Unnsteinn Jóhannesson,
sem sýndi hann og liðu þeir létt um
salarkynnin í Arnargerði við góðar
undirtektir sýningargesta.
En það voru fleiri athyglisverð
hross sem þarna gat að líta. Adam
frá Ásmundarstöðum er í feikna
góðu formi hjá Loga Laxdal, sem
sýndi klárinn í sólósýningu auk
þess að taka þátt í skeiðkeppni og
vinna þar á nýju vallarmeti 4,18
sek. ef svo má að orði komast. Þá
stóð Randver frá Nýjabæ vel fyrir
sínu ásamt Vigni Jónassyni, litfag-
ur og hreyfingamikill en skeiðinu
haldið til hlés að þessu sinni. Það
olli vonbrigðum margra að stóð-
hesturinn Hróður frá Refsstöðum
mætti ekki til leiks eins og til stóð,
en mikil stemmning virðist í kring-
um þann hest.
Þrjú ræktunarbú úr Húnavatns-
sýslum sýndu afurðir sínar á sýn-
ingunni og bar þar að sjálfsögðu
hæst hrossin frá Steinnesi, en það
var fyrr á árinu útnefnt ræktun-
arbú ársins í Austur-Húnavatns-
sýslu. Í þeim hópi voru fjögur
hross og vakti þar athygli brún-
skjóttur foli á fimmta vetri sem
Gammur heitir, undan Sprota frá
Hæli og Sif frá Blönduósi. Þar er á
ferðinni fallegur og ganggóður foli
sem vert er að spá frekar í.
Frá Þóreyjarnúpi komu fram
tveir hestar og var annar þeirra
stóðhesturinn Skinfaxi, sem nú er
orðinn níu vetra gamall kraftmikill
hestur en töltið dálítið skeiðborið
við þessar aðstæður. Þá komu fram
fjögur hross frá Hofi í Vatnsdal þar
sem einn af þremur HM-kandídöt-
um Ásgeirs Svan Herbertssonar,
Flóra frá Hofi, var í fylkingar-
brjósti, glæsileg tölthryssa undan
Orra frá Þúfu og Fríðu frá Hofi. Þá
má einnig nefna efnilega Kolfinns-
dóttur sem Hríma heitir og er í
móðurlegginn undan Hlökk frá
Hólum sem var aftur undan Feyki
frá Hafsteinsstöðum.
Þá kom fram glæsihryssan Birta
frá Ey sem Gísli Gíslason sýndi
ásamt Kólfi frá Stangarholti,
kraftahestur undan Kolfinni frá
Kjarnholtum sem Mette Mannseth
sýndi.
Tveir synir Gusts frá Hóli II
voru sýndir, þeir Kraftur frá
Bringu sem Sverrir Reynisson
sýndi og Kjarni frá Árgerði sem
Sigurður V. Matthíasson sat. Þá fór
Daníel Jónsson mikinn á Garpi frá
Auðsholtshjáleigu.
Ekki verður svo skilið við hesta-
kost sýningarinnar að geta ekki-
gæðingsins gamla Hjúps frá Leys-
ingjastöðum sem Tryggvi
Björnsson sýndi. Hann er nú átján
vetra gamall og engin ellimörk að
sjá á honum. Var virkilega gaman
að sjá þennan höfðingja og það
hversu vel hann eldist, gangteg-
undir og fas ekki síðra en þegar
hann stóð á hátindi frægðar sinnar.
Nú til dags sjást varla orðið
hjálmlausir knapar á opinberum
sýningum og í keppni er það hreint
og klárt bannað að koma fram án
slíks öryggistækis. Húnvetningar
virðast mjög frjálslyndir í þessum
efnum því margir knapar komu
þarna fram án hjálma athuga-
semdalaust. Sumir höfðu sett á sig
húfur, hvort sem það var nú fyrir
kulda sakir eða að þeir voru að
reyna breiða yfir hjálmleysið.
Völlurinn í reiðhöllinni á Blöndu-
ósi er aðeins 20 x 40 metrar og set-
ur það vissulega skorður í öllu sýn-
ingarhaldi. Nálægð áhorfenda við
hestana er mikil og truflaði suma
þeirra talsvert. Stór kostur er að
hægt er opna í gegnum höllina
þannig að sýna má skeið í gegnum
hana. Þá er alltaf breytilegt hvern-
ig hross bregðast við í litlu rými og
ber vissulega að taka tillits til þess.
Allt fór þetta ágætlega fram og
vissulega er það góð tilbreyting
fyrir hestaáhugamenn að fá sýn-
ingu sem þessa einu sinni á vetri.
„Einhver varð að gera þetta“
Allir fagna tilkomu reiðhallarinn-
ar á Blönduósi en menn gera sér þó
grein fyrir því að eitt er að reisa
mannvirki og annað að reka það.
Það var að frumkvæði Árna Þor-
gilssonar á Blönduósi sem höllin
var reist eða eins og hann svaraði
þegar hann var spurður um ástæð-
ur þess að hann réðst í þessa bygg-
ingu „Það varð einhver að gera
þetta.“ Næsta skrefið hjá honum
var að fá fleiri aðila í eignarhlut-
deild og nú þegar hafa Samtök
hrossabænda í Austur-Húnavatns-
sýslu keypt tæplega 10% hlut í
höllinni. Leitað hefur verið til ým-
issa aðila um koma að rekstrinum
að sögn formanns samtakanna,
Björns Magnússonar á Hólabaki,
og hafa aðeins komið jákvæð við-
brögð frá sveitarfélögum í sýslunni.
Sagði Björn að auka þyrfti nýtingu
hallarinnar og nefndi hann sem
dæmi að hún hefði staðið auð og
ónotuð í allt fyrrasumar. Knatt-
spyrnumenn hafa nýtt sér reiðhall-
ir víða um land að vetrarlagi en
ekki hefur verið um slíkt að ræða á
Blönduósi enn sem komið er.
Ekki er annað hægt að segja en
Húnvetningar séu vel búnir reið-
höllum, því auk Arnargerðis er
reiðhöll á Þingeyrum og Gauksmýri
í vestursýslunni og vel kann að
vera að einhverjir séu búnir að
breyta hlöðum eða hluta af þeim í
einhvers konar innanhússvinnuað-
stöðu til tamninga og þjálfunar
hrossa.
Af þessu má ætla að góðar fram-
farir blasi við Húnvetningum á
næstu árum í reiðmennsku og verð-
ur fróðlegt að fylgjast með fram-
vindu mála í þessum efnum.
Morgunblaðið/ValdimarSmári frá Skagaströnd var án efa hestur sýningarinnar.
Knapi er eigandinn Hlynur Unnsteinn Jóhannesson.
Eins og vera ber hófst sýningin með fánareið heimamanna. Lengi hefur verið vitað um gott tölt í Adam frá Ásmund-
arstöðum en nú er hann að sanna sig. Knapi er Logi Laxdal.
Gísli Gíslason verður án efa illvígur í tölt-
keppni sumarsins á Birtu frá Ey sem þykir fá-
dæma efnileg tölthryssa.
Hjúpur frá Leysingjastöðum hefur engu gleymt á nítjánda
aldursári og fór vel hjá Tryggva Björnssyni. Trúlega er
hann ennþá besti gæðingur Austur-Húnvetninga.
HESTAR
42 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Milli manns og hests...
... er
arhnakkur
Fermingargjafir
í miklu úrvali
Frábær
fermingartilboð