Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 15
TILTÖLULEGA fleiri konur
en karlmenn taka þátt í
félagsstarfi aldraðra í Mos-
fellsbæ eða að jafnaði um
70%, að sögn Svanhildar Þor-
kelsdóttur, forstöðumanns
félagsstarfsins þar, en hún
sagðist ekki kunna skýringu á
því en vonast til að það komi í
ljós í þeirri könnun sem ráð-
gert er að framkvæma. En
eins og fram kom á höfuð-
borgarsíðunni síðastliðinn
laugardag er vinna hafin að
samþættingu í félagsstarfi í
Mosfellsbæ og hefur Stefanía
Traustadóttir félagsfræðing-
ur verið ráðin tímabundið til
að fylgja því tilraunaverkefni
eftir. Markmiðið er að gefa
bæði öldruðum borgurum
sveitarfélagsins og unglingum
kost á fjölbreyttu frístunda-
og/eða tómstundastarfi.
Samþætting felur í stuttu
máli í sér að flétta sjónarhorn
kynferðis inn í stefnumótun
og ákvarðanatöku. Byggt er á
því að við undirbúning stefnu-
mótunar og ákvörðunartöku
sé safnað saman kyngreind-
um upplýsingum og tekið mið
af annars vegar þörfum og
væntingum karla og hins veg-
ar kvenna. Við samþættingu
er beitt sömu aðferðum og við
árangursstjórnun, þó með
áherslu á sjónarhorn kynferð-
is. Reykjavíkurborg og Akur-
eyrarbær hafa unnið að sam-
bærilegum verkefnum. Ráð-
gert er að verkefninu ljúki 30.
júní.
Af þessu tilefni hafði Morg-
unblaðið samband við Svan-
hildi og spurðist fyrir um
hvernig félagsstarfi aldraðra
væri háttað þar núna, í upp-
hafi þessa tilraunaverkefnis.
Ýmislegt um að vera
„Það er ýmislegt um að
vera hjá okkur á veturna,“
sagði Svanhildur. „Þetta til-
raunaverkefni, sem er nýfarið
af stað hér í Mosfellsbæ, og
sem Stefanía Traustadóttir
heldur utan um, gengur út á
að kanna hvað meira er hægt
að gera og þá hvernig.
Félagsstarf fyrir eldri borg-
ara hefur verið starfrækt frá
árinu 1982. Starfsemin fer
fram á þriðjudögum frá
miðjum september til maíloka
og felst m.a. í hannyrðum,
spilamennsku, söng, leiklist,
leikfimi, bókbandi og ýmiss
konar annarri skemmtun, s.s.
bíó- og leikhúsferðum. Í
tengslum við tómstundastarf-
ið er einnig boðið upp á fót-,
andlits- og hársnyrtingu. Og
undanfarin ár hefur svo verið
farið í nokkurra daga
skemmtiferð í júní eða júlí.
Haustið 1990 var stofnaður
kór aldraðra, Vorboðinn, sem
er undir stjórn Páls Helga-
sonar og það hefur verið öfl-
ugt félagsstarf í tengslum við
kórstarfið.“
Konur í meirihluta
Eins og áður sagði sækja
fleiri karlar en konur það sem
í boði er í félagsstarfinu eða
að jafnaði einungis um 30%.
„Við erum með skraut-
skriftarnámskeið í gangi núna
og það er að verða hálfnað.
Þar eru 9 þátttakendur og þar
af er einungis einn karlmaður.
Örlygur Richter er leiðbein-
andi. Þetta hefur ekki verið
áður hjá okkur. Það er nefni-
lega ekki hlaupið að því að fá
kennara í þessu en ég var svo
lánsöm að ná í Örlyg sem er í
ársleyfi frá skólastjórastarfi í
Fellaskóla. Í bókbandinu hef-
ur hlutfallið verið nokkuð
jafnt milli kynjanna en á tré-
skurðarnámskeiðinu eru karl-
mennirnir í meirihluta. En
karlmenn taka þátt í ýmsu
öðru líka; ég hef t.d. séð þá
prjóna.“
Sumarferð
á Norður-Strandir
Þjónustumiðstöð aldraðra
er til húsa í íbúðum aldraðra
við Hlaðhamra. Þar er mið-
stöð heimaþjónustu og þar fer
fram félagsstarf aldraðra. Að
sögn Svanhildar eru allir vel-
komnir að taka þátt, í raun
ekki um nein neðri aldurs-
mörk að ræða, en formlega sé
þó miðað við 67 ára aldur.
Hins vegar sé ekkert sem
banni fólki að koma þótt það
sé yngra.
Og heilmikið stendur til á
næstunni í félagsstarfi aldr-
aðra í Mosfellsbæ, því 24. apr-
íl næstkomandi er áætlað að
fara í skoðunarferð út í Viðey,
4. maí er ráðgerð skemmtun í
Hlégarði með eldri borgurum
frá félagsmiðstöðinni Gerðu-
bergi, 15. maí ferð upp með
Þjórsá til að skoða þar tvær
virkjanir og 23. maí verður
svo lokahóf haldið á Mótel
Venusi. Og sumarferðin að
þessu sinni verður norður á
Strandir, 1., 2. og 3. júlí. Ekki
er að efa, að hún muni vekja
lukku í röðum þeirra sem í
hana fara.
Mikið hefur verið um að vera í félagsstarfi aldraðra í Mosfellsbæ í vetur
Karlmenn í mikl-
um minnihluta
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Örlygur Richter leiðbeinir á skrautritunarnámskeiði á vegum félagsstarfs aldraðra í Mos-
fellsbæ. Eitt af því sem stefnt er að því að gera er að framkvæma könnun meðal eldri borg-
ara um hvert áhugasvið þeirra sé, til að gera enn betur við þá í tómstundum og dægradvöl.
Mosfellsbær
SAMÞYKKT hefur verið nýtt
skipulag fyrir Aðalstræti.
Gatan verður gerð að ein-
stefnu í norður en hún hefur
verið með tvístefnu frá
Bröttugötu að Túngötu. Gatan
verður að hluta til hlaðin með
tilhöggnum steini og að hluta
til malbikuð með ljósu mal-
biki. Einnig verður hún snyrt
og settur við hana trjágróður.
Á móts við verslunina Linsuna
verða gerð tvö bílastæði og
stæði fyrir þrjá leigubíla verð-
ur framan við Morgunblaðs-
húsið. Þá verður eitt bílastæði
fyrir fatlaða við hlið veitinga-
staðarins Hlöllabáta.
Að sögn Helga Pétursson-
ar, formanns samgöngunefnd-
ar Reykjavíkurborgar, ber
gatan ekki tvístefnu á kaflan-
um milli Bröttugötu og Tún-
götu og þar fara um 20 stræt-
isvagnar á hverri klukku-
stund.
Aðalstræti breytt
Miðbærinn
BÆJARYFIRVÖLD í Hafn-
arfirði hafa einkavætt rekst-
ur ferðamálaskrifstofu og
upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála. Bæjarstjórnin gerði í
lok mars þjónustusamning
við Jón Halldór Jónasson,
sem starfað hefur sem ferða-
málafulltrúi bæjarins um
nokkurra ára skeið, um
reksturinn. Inntak samn-
ingsins er að Jón Halldór
mun taka að sér að vinna þau
verkefni sem heyra undir
ferðamál bæjarins og kveður
samningurinn á um að það
verði gert fyrir sömu upp-
hæð og varið hefur verið til
málaflokksins undanfarin ár.
„Í samningnum er skil-
greint hvað við eigum að
gera fyrir bæinn,“ sagði Jón
Halldór. „Ef við náum að
gera það á hagkvæman hátt,
þá gerir það okkur kleift að
nýta önnur sóknarfæri sem
fyrir hendi eru og vinna með
ferðaþjónustufyrirtækjum
að ýmsu markaðsstarfi.“
Jón Halldór sagði að nýja
fyrirtækið hefði hlotið nafn-
ið Upplýsingamiðstöð Hafn-
arfjarðar ehf. og sagði hann
að eftir því sem hann best
vissi væri þetta í fyrsta skipti
sem einkafyrirtæki hefði
verið falið að sjá um öll
ferðamál sveitarfélags.
Auk þess að vinna verk-
efni fyrir bæinn mun Jón
Halldór geta útvíkkað starf-
semina og tekið að sér verk-
efni fyrir aðra aðila en bæj-
arfélagið, eins og áður sagði.
Slíkt var ekki mögulegt á
meðan málaflokkurinn var
hluti af rekstri bæjarsjóðs og
er það von bæjarstjórnar að
þetta nýja fyrirkomulag geti
orðið málefninu til fram-
gangs og auðveldað til muna
þjónustu við einstaka aðila í
ferðaþjónustu.
Nýtt fyrirtæki fær 10
milljónir á ári frá bænum
Jón Halldór sagði að
vegna aðhalds í fjármálum
bæjarins hefði framlag til
ferðamála verið skorið niður
fyrir árið 2000. Hann sagði
að fyrirhugað hefði verið að
skera meira niður fyrir þetta
ár en að eftir heilmikla um-
ræðu um málið hefði verið
hætt við frekari niðurskurð.
Ákveðið hefði verið að fara
þá leið að gera þjónustu-
samning þar sem grunnþjón-
usta bæjarins í ferðamálum
væri vel skilgreind. Hann
sagði að samningurinn væri
til þriggja ára og að Upplýs-
ingamiðstöðin fengi 10 millj-
ónir króna á ári frá bænum í
reksturinn.
Upplýsingamiðstöðin
verður áfram til húsa á Vest-
urgötu 8 í Hafnarfirði, en
bærinn, sem á húsið, mun
áfram sjá um rekstur þess.
Jón Halldór sagði að í kjölfar
samningsins hefði starfs-
mönnum verið fjölgað, en
auk hans eru tveir starfs-
menn í hlutastarfi. Hann
sagði að ferðamálanefnd
Hafnarfjarðar myndi áfram
starfa að stefnumótun í
ferðamálum fyrir bæinn.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar ehf. mun vinna að ferðamálum fyrir bæinn sem og vinna með ferðaþjónustufyrirtækjum
að ýmsu markaðsstarfi. Frá vinstri: Fanný Gunnarsdóttir, rekstrarfulltrúi upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, Sigurbjörg
Karlsdóttir markaðsfulltrúi og Jón Halldór Jónasson, ferðamálafulltrúi og framkvæmdastjóri.
Ferðamálaskrifstofa
Hafnarfjarðar einkavædd
Hafnarfjörður
GUÐRÚN Sóley Gunnars-
dóttir og Jóhann Friðrik Har-
aldsson hafa verið kjörin
íþróttamenn Seltjarnarness.
Aðrir sem fengu tilnefn-
ingu í kjöri á íþróttamanni
ársins eru Enric Már Du
Teitsson, knattspyrna, Gígja
Gunnlaugsdóttir, frjálsar
íþróttir, og Gísli Kristjánsson,
handknattleikur.
Guðrún Sóley verður tvítug
á þessu ári. Hún leikur knatt-
spyrnu með meistaraflokki
KR þar sem hún er uppalin og
hefur leikið með öllum yngri
flokkum félagsins. Hún lék
sinn fyrsta meistaraflokksleik
árið 1996 þá aðeins 14 ára
gömul. Í dag hefur hún leikið
103 meistaflokksleiki. Hún
hefur unnið til margra titla
með liði sínu, s.s. Íslands-
meistara, bikarog deildarbik-
ar bæði innan- og utanhúss.
Hún hefur leikið með 18 ára
landsliði Íslands og er nú
fastamaður í A-landsliði KSÍ
og hefur leikið 8 leiki með því
liði. Guðrúnu hefur boðist full-
ur námsstyrkur til náms í hin-
um þekkta Notre Dame-há-
skóla í Virginíu í Bandaríkj-
unum næsta haust. Ef hún
þiggur það boð mun hún leika
í bandarísku háskóladeildinni
en í henni keppa um 270 há-
skólar um öll Bandaríkin.
Jóhann Friðrik er 21 árs
gamall Seltirningur og byrj-
aði að æfa skíði með skíða-
deild KR þegar hann var 8
ára gamall. Hann hefur unnið
til margra verðlauna í gegn-
um tíðina og undanfarin ár
hefur Jóhann æft mikið er-
lendis til þess að geta náð
þeim árangri sem þarf til þess
að skipa sér í fremstu röð. Ár-
ið 2000 var Jóhann við æfing-
ar með landsliði Íslands sem
var með aðsetur í Altemark í
Austurríki.
Árangur Jóhanns á alþjóð-
legu FÍS-móti sem haldið var
á Akureyri í fyrra var mjög
góður en þá var hann í fyrsta
sæti í stórsvigi. Á Íslands-
mótinu árið 2000 var hann í
þriðja sæti í stórsvigi og í
öðru sæti í svigi á eftir Kristni
Björnssyni. Með þessum ár-
angri tryggði Jóhann sér
þátttöku á heimsmeistara-
móti og heimsbikarmóti fyrir
árið 2001. Í vetur hefur Jó-
hann Friðrik æft með breska
skíðalandsliðinu sem ámjög
góða skíðamenn og æfir liðið í
Lofer í Austurríki.
Íþróttamenn
ársins kjörnir
Seltjarnarnes