Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Ruby Tuesday veitingahúsakeðjan
er ein sú allra fremsta á sínu sviði.
Keðjan starfrækir yfir 500 staði í heima-
landi sínu, Bandaríkjunum, og fer ört
stækkandi.
Ruby Tuesday Íslandi
óskar eftir starfsfólki
í eftirfarandi stöður:
● Í eldhús fullt starf/hlutastarf.
● Í veitingasal.
Reynsla ekki skilyrði.
Ef þú ert að leita að starfi hjá spennandi
fyrirtæki, þar sem möguleikar á starfs-
frama eru góðir, er Ruby Tuesday rétti
staðurinn fyrir þig.
Hægt er að nálgast umsóknareyðu-
blöð á veitingastaðnum Ruby Tues-
day í Skipholti 19.
Kennarar —
bókasafnsfræðingar
Óskað er eftir kennurum í þessar kennslu-
greinar í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ næsta
skólaár:
Eðlisfræði, fullt starf eða hlutastarf.
Efnafræði, fullt starf eða hlutastarf.
Enska, fullt starf — afleysing í eitt ár.
Fjölmiðlafræði og félagsgreinar,
fullt starf — afleysing í eitt ár.
Listgreinar,
fata- og textílhönnun, fullt starf eða hlutastarf.
myndlist með margmiðlun, fullt starf eða hluta-
starf.
Líffræði, fullt starf — afleysing í eitt ár.
Stærðfræði, fullt starf.
Allur aðbúnaður er 1. flokks í nýju húsnæði
skólans. Launakjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingi fjármálaráðherra og kennarasambandsins.
Ennfremur er óskað eftir bókasafnsfræðingi
í fullt starf til afleysinga í eitt ár.
Umsóknir um þessi störf skulu sendar til Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ við Skólabraut, 210
Garðabæ. Ekki er nauðsynlegt að sækja um
á sérstökum eyðublöðum. Í umsóknum skal
greina frá menntun og fyrri störfum.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Nánari upplýsingar veita Þorsteinn Þorsteins-
son skólameistari og Gísli Ragnarsson aðstoð-
arskólameistari í síma 520 1600.
Skólameistari.
Dalvíkurbyggð
Grunnskólakennarar
- skólastjórar
Lausar eru til umsóknar nokkrar stöður
í grunnskólum Dalvíkurbyggðar.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2001.
Dalvíkurskóli er einsetinn grunnskóli í nýju,
glæsilegu húsnæði með 275 nemendur í 1.—
10. bekk. Þar vantar kennara til almennrar
bekkjarkennslu, kennslu í myndmennt, tón-
mennt, íþróttum, heimilisfræði, hannyrðum
og tölvukennslu.
Upplýsingar gefa Anna Baldvina Jóhannes-
dóttir, skólastjóri, annba@ismennt.is, símar
460 4980 og hs. 466 1502 og Gísli Bjarnason,
aðstoðarskólastjóri, gbjarna@ismennt.is,
símar 460 4980 og hs. 466 1329.
Húsabakkaskóli í Svarfaðardal er lítill einset-
inn sveitaskóli skammt frá Dalvík með 50—60
nemendur í 1.—9. bekk. Þar er samkennsla ár-
ganga. Þar vantar skólastjóra og kennara í heila
stöðu til að annast kennslu yngri barna. Auk
þess vantar kennara til að annast kennslu í
hannyrðum, myndmennt, heimilisfræði og al-
menna kennslu á miðstigi. Upplýsingar gefur
Þóra Rósa Geirsdóttir, skólastjóri, tora-
ros@ismennt.is, símar 466 1551 og
hs. 466 1552.
Árskógarskóli á Árskógsströnd þjónar
byggðakjörnunum Árskógssandi og Hauganesi
og nágrenni. Skólinn er einsetinn, þar er sam-
kennsla árganga og er nemendafjöldi 60—70
í 1.—9. bekk. Kennara vantar í almenna bekkjar-
kennslu á miðstigi, myndmennt, íþróttir,
heimilisfræði og sérkennslu. Upplýsingar gefur
Kristján Sigurðsson krsig@ismennt.is, símar
466 1970 og hs. 466 3150.
Dalvíkurbyggð er 2.100 íbúa sveitarfélag við
utanverðan Eyjafjörð sem varð til við samein-
ingu þriggja sveitarfélaga árið 1998. Samgöng-
ur eru góðar, aðeins hálftíma akstur er til Akur-
eyrar, umhverfi er sérlega fjölskylduvænt og
atvinnulíf, þjónusta og menningarlíf mjög
öflugt og fjölbreytt. Aðstæður til útivistar og
íþróttaiðkunar eru með því besta og fjölbreyti-
legasta sem gerist hér á landi sumar jafnt sem
vetur. Hitaveita er í öllum þéttbýliskjörnunum,
ódýr upphitun og góð sundaðstaða. Skólarnir
eru framsæknir og vel búnir, hlutfall réttinda-
kennara er í hærra lagi og fer samvinna þeirra
vaxandi. Skóla- og ráðgjafarþjónusta starfar
á svæðinu í nánu samstarfi við félagsþjónustu.
Auk skólastjóranna gefur Óskar Þór Sigur-
björnsson, skólamálafulltrúi, osk-
arth@ismennt.is, Ráðhúsinu, 620 Dalvík, upp-
lýsingar um stöðurnar í símum 466 2736,
893 6257 og hs. 466 2357.
Skólamálafulltrúi.
Tannlæknastofa
Munn-og kjálkaskurðlæknir óskar eftir
aðstoðarmanneskju í fullt starf.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið menntun
á heilbrigðissviði.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 11. apríl, merktar: „E — 11094.“
Auka- og
varahlutaverslun
Óskum eftir að ráða vana sölumenn í vara-
og aukahlutaverslun okkar. Nauðsynlegt er
að viðkomandi hafi áhuga á jeppabifreið-
um. Tölvukunnátta nauðsynleg
Vagnhöfða 23, 112 Reykjavík, sími 590 2000
www.benni.is
Kennarar óskast til yfirferðar á
samræmdum prófum í 10. bekk
2001. Skilyrði er að umsækjendur
hafi kennslureynslu í stærðfræði,
íslensku, dönsku eða ensku í
10. bekk. Umsóknarfrestur er til
7. apríl nk.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá
Námsmatsstofnun næstu daga í
síma 551 0560 og á heimasíðu
stofnunarinnar. Umsóknareyðu-
blöð fást á stofnuninni Suðurgötu
39 en einnig er hægt að sækja um
á netinu; slóðin www.namsmat.is
Sumarafleysingar
Lausar stöður
Hrafnistuheimilin óska eftir starfskröftum ykkar í sumar. Við bjóðum fjölbreytt störf í
þroskandi umhverfi. Góð leið til að öðlast mikla reynslu og auka hæfni í mannlegum
samskiptum. Komið og skoðið vinnustað með góðri vinnuaðstöðu, við tökum vel á
móti þér.
Hrafnista í Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
á allar vaktir, starfshlutfall samkomulag.
Sjúkraliða
morgunvaktir og vaktavinnu
Starfsfólk til aðhlynningarstarfa, starfs-
hlutfall samkomulag.
Starfsfólk í eldhús og borðsal.
Vaktmenn.
Hafðu samband við Steinunni Þorsteins-
dóttur á staðnum eða í síma 585
9500 og 585 9529.
Hrafnista í Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðinga
á kvöld- og næturvaktir, starfshlutfall
samkomulag.
Sjúkraliða — vaktavinna.
Starfsfólk til aðhlynningarstarfa,
starfshlutfall samkomulag.
Starfsmann í býtibúr. 50% starf.
Vaktmenn.
Leikskóli á staðnum.
Hafðu samband við Ölmu Birgisdóttur
á staðnum eða í síma 585 3000 og
585 3101.