Morgunblaðið - 03.04.2001, Side 22
VIÐSKIPTI
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. hefur keypt 50% hlut í saltfisk-
verkuninni GPG ehf. á Húsavík.
Geiri Péturs ehf. og Gunnlaugur
Karl Hreinsson, framkvæmdastjóri
GPG, stofnuðu GPG fyrir þremur
árum. Seljandi nú er Geiri Péturs
ehf. og eigendur því ÚA og Gunn-
laugur Karl, sem verður fram-
kvæmdastjóri félagsins áfram. Í
fréttatilkynningu segir að velta síð-
asta árs hafi verið 540 milljónir
króna og félagið hafi verið rekið með
hagnaði frá upphafi. Hjá félaginu
starfi að jafnaði um 30 manns.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að ÚA hafi
ekki verið í saltfiskvinnslu síðastlið-
in tíu ár og finnist áhugavert að
bæta henni við starfsemi félagsins.
Reynslan sé góð af að vera með sér-
hæfð dótturfyrirtæki, eins og
Laugafisk, Hólmadrang og Jökul, og
GPG falli vel inn í þetta mynstur hjá
ÚA. Þetta sé gott viðskiptatækifæri
því GPG sé vel rekið fyrirtæki með
góðu starfsfólki. Spurður um sam-
legðarmöguleika segir Guðbrandur
ákveðna samvinnu hafa verið milli
GPG og Jökuls og menn sjái fyrir
sér að hana verði hægt að auka í
framtíðinni. Þá nefndi hann sem
dæmi að ákveðið magn af stórum
fiski falli til á Akureyri og það verði
hægt að nýta hjá GPG. Annars segir
Guðbrandur að hugmyndin sé sú að
reka GPG áfram sem sjálfstætt félag
eins og verið hafi og efla það enn
frekar.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, segir að GPG á Húsavík verði rekið áfram sem sjálfstætt fyrirtæki.
ÚA kaupir 50% í salt-
fiskverkuninni GPG
Morgunblaðið/Hafþór
Í FRÉTT um afkomu SR-mjöls hf. á
viðskiptasíðu Morgunblaðsins á
laugardag voru meinlegar villur í
kortinu sem fylgdi með fréttinni.
Bæði var farið rangt með eiginfjár-
hlutfall félagsins auk þess að fyrir
mistök var söluhagnaður vegna
rekstrarfjármuna ranglega til-
greindur.
Því birtist kortið hér aftur og er
beðist velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
!"#$%
&"'($
$&)
!$
'!
*$&
&"+'%
&"(%+
!$
$+
$!,
*%-%.,
#)'
!
"
##
#
$
% &
% &
% &
$
$
Leiðrétt kort
HLUTABRÉFAVERÐ í Banda-
ríkjunum og Evrópu hefur fallið
verulega á fyrsta fjórðungi ársins
2001 þar sem fjárfestar hafa flúið
efnahagslega niðursveiflu í Banda-
ríkjunum, niðursveiflu sem hefur
haft áhrif annars staðar í heim-
inum einnig.
Föstudagurinn í liðinni viku var
síðasti viðskiptadagur fyrsta fjórð-
ungs ársins 2001 og þá kom í ljós
að nær allar helstu hlutabréfavísi-
tölur í Bandaríkjunum og Evrópu
höfðu lækkað um yfir 10% á tíma-
bilinu.
Dow Jones-vísitalan í Bandaríkj-
unum lækkaði um 9% á fyrsta árs-
fjórðungi, í 9.870 stig, og er það
mesta lækkun á þessum árstíma
frá árinu 1960. Nasdaq-vísitala
tæknihlutabréfa hefur þó lækkað
enn meira, eða um 26% á fyrsta
ársfjórðungi. Standard&Poor’s
500-vísitalan lækkaði um 13% á
fyrsta ársfjórðungi, FTSE í Lond-
on lækkaði um 10,6% og Evrópu-
vísitala Dow Jones um 12%. Úr-
valsvísitala aðallista Verðbréfa-
þings Íslands lækkaði um 9,78%.
Stýrivextir hafa verið lækkaðir
þrisvar í Bandaríkjunum á um-
ræddu tímabili en ótti við kreppu
er enn fyrir hendi. Vonbrigða
gætti meðal sérfræðinga í Evrópu
vegna þess að Evrópski seðlabank-
inn lækkaði ekki vexti í síðustu
viku. Slík vaxtalækkun hefði hjálp-
að til við að bæta skaðann af nið-
ursveiflunni í Bandaríkjunum, að
mati þeirra sérfræðinga sem
fréttavefur BBC vitnar til.
Varðandi framhaldið á öðrum
ársfjórðungi segir John Hatherly,
yfirmaður greiningardeildar M&G
eignastýringarfyrirtækisins, að
markaðurinn verði áfram óstöð-
ugur en botninum sé náð í sumum
tilvikum og verð geti farið að
hækka aftur, jafnvel á hluta-
bréfum fyrirtækja nýja hagkerf-
isins.
Hlutabréfavísitölur falla
á fyrsta ársfjórðungi
TAP af rekstri Almenna hlutabréfa-
sjóðsins hf. á árinu 2000 nam 21,9
milljónum króna samkvæmt rekstr-
arreikningi, samanborið við 47,4
milljóna króna hagnað árið áður.
Eigið fé félagsins í árslok 2000 nam
629,6 milljónum samkvæmt efna-
hagsreikningi að meðtöldu hlutafé
að fjárhæð 335,9 milljónum.
Enginn starfsmaður var hjá
félaginu á árinu 2000 en Rekstr-
arfélag Frjálsa fjárfestingarbank-
ans ehf. sá um daglegan rekstur
þess.
Í tilkynningu frá Almenna hluta-
bréfasjóðnum segir að samkvæmt
samþykktum félagsins sé heildar-
hlutafé þess í árslok 2000 samtals
468,0 milljónir króna. Félagið eigi
eigin hlutabréf að nafnverði 132,1
milljón og séu þau dregin frá hluta-
fénu nemi hlutafé samkvæmt efna-
hagsreikningi 335,9 milljónum.
Hlutafé félagsins skiptist á 1.922
hluthafa en þeir voru 2.393 í árs-
byrjun og fækkaði því um 471 á
árinu. Í árslok 2000 átti enginn hlut-
hafi yfir 10% eignarhluta í félaginu.
Stjórn félagsins leggur til að ekki
verði greiddur arður til hluthafa á
árinu 2001.
Samkvæmt tilkynningunni eru
Almenni hlutabréfasjóðurinn hf. og
Hlutabréfasjóðinn Auðlind hf. í við-
ræðum um hugsanlega sameiningu
félaganna.
Tap Almenna hlutabréfa-
sjóðsins hf. 22 milljónir
AFKOMA af reglulegri starfsemi
Tanga hf. á Vopnafirði var slök í
fyrra. Tap af rekstri félagsins nam
284 milljónum króna en tap af
reglulegri starfsemi nam 264 millj-
ónum króna samanborið við 103,5
milljóna króna tap árið áður. Í til-
kynningu frá félaginu kemur fram
að versnandi afkoma af reglulegri
starfsemi stafi fyrst og fremst af
verulegri gengislækkun krónunnar
og umtalsverðri verðhækkun á olíu.
Þannig hafi vaxtagjöld, gengis-
munur og verðbreyting langtíma-
lána hækkað úr 107,5 milljónum
króna árið 1999 í 308,2 milljónir
króna og er þetta sveifla upp á 200
milljónir. Þá jókst olíukostnaður
vegna reksturs fiskiskipa og fiski-
mjölsverksmiðju um 60 milljónir
króna. Samtals ollu þessir tveir
þættir því að afkoma Tanga versn-
aði um 260 milljónir króna. Óreglu-
leg gjöld námu 20 milljónum króna,
samanborið við óreglulegar tekjur
vegna eignasölu upp 114,8 milljónir
króna árið áður.
Betri horfur í
rekstrinum í ár
Í tilkynningu Tanga til Verð-
bréfaþingsins segir að horfur séu á
að rekstur félagsins verði betri á
yfirstandandi ári. Kostnaður vegna
gengislækkunar hafi allur færst á
árið 2000 en nú fari í hönd ár sem
skili inn auknum tekjum vegna
hennar. Auk þess hafi verð á afurð-
um uppsjávarfiska hækkað. „Eins
og gefur að skilja hefur þróun af-
urðaverðs mikið að segja fyrir
rekstur félagsins og þróunin á
mörkuðum fyrir fiskimjöl og lýsi
mun ráða miklu um niðurstöðu
rekstrarins á þessu ári. Verð á lýsi
og mjöli hefur hækkað nokkuð í er-
lendri mynt, auk þess sem geng-
islækkun síðasta árs bætir um bet-
ur. Jafnframt þessu er verð á
frystri loðnu viðunandi og horfur
góðar með A.-Evrópu markað.“
Slök afkoma hjá Tanga hf.
' "
()* "
#"!+)
#"&!#
#%'
*&'
##$
$%+
#"%#$
!&
(
.-)(
&+-(,
!
+
+
$
% &
% &
% &
$
$
HAGNAÐUR Fiskmarkaðs Íslands
hf. nam 4,2 milljónum króna á síð-
asta ári. Rekstrartekjur hans námu
282 milljónum króna og rekstrar-
gjöldin námu 255 milljónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
munagjöld nam 27,6 milljónum
króna en hagnaður af reglulegri
starfsemi nam 2,2 milljónum króna.
Þann 1. janúar 2000 var Fisk-
markaður Snæfellsness sameinaður
Fiskmarkaði Breiðafjarðar undir
merkjum Fiskmarkaðar Breiða-
fjarðar. Þann 1. júlí sl. var Fax-
amarkaður sameinaður Fiskmarkaði
Breiðafjarðar undir nýju nafni, Fisk-
markaður Íslands. Því eru ekki fyr-
irliggjandi samanburðarhæfar tölur
frá árinu 1999.
Áætlanir Fiskmarkaðar Breiða-
fjarðar gerðu ráð fyrir 12 milljón
króna hagnaði á síðasta ári en sam-
kvæmt tilkynningu til Verðbréfa-
þings Íslands má rekja ástæður fyrir
fráviki frá áætlun til kostnaðar
vegna sameiningar.
Eiginfjárhlutfall félagsins er
28,7%. Eigið fé nam í árslok 115,7
milljónum króna.
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn í Stykkishólmi þann 20. apríl og
mun stjórn Fiskmarkaðar Íslands
leggja til við aðalfund að greiddur
verði út 5% arður til hluthafa.
Fiskmarkaður
Íslands með 4,2
milljónir í hagnað
TAP Jökla-Verðbréfa hf. nam
4,1 milljón króna á síðasta ári.
Eigið fé fyrirtækisins nam 72,9
milljónum króna í lok árs.
Heildareignir eru 74,9 milljónir
króna. Eiginfjárhlutfall var
97,3% í árslok 2000 og CAD-
hlutfallið var 374,3% en það má
lægst vera 8%.
Jöklar-Verðbréf er verð-
bréfamiðlun í eigu þriggja líf-
eyrissjóða. Fyrirtækið fékk
starfsleyfi í október 1999 og
aðild að Verðbréfaþingi Íslands
í desember sama ár. Eiginleg
starfsemi hófst síðan í maí
2000. Hjá fyrirtækinu starfa
tveir starfsmenn í dag og er
Jónas Dalberg framkvæmda-
stjóri þess.
4 milljónir í tap
hjá Jöklum-
Verðbréfum