Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 31
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 31
FREGNIR af því sem gerðist í bú-
stað Slobodans Milosevic, fyrrver-
andi Júgóslavíuforseta, í Belgrad
um helgina voru framan af óljósar.
En nú er meðal annars orðið ljóst
að hann veifaði níu millimetra
skammbyssu af þýskri gerð, Sig-
Sauer, er hann ræddi við fulltrúa
stjórnvalda og hótaði að fyrirfara
sér. Mikið var af vopnum og
sprengiefni í bústaðnum og þar
var um 30 manna lífvörður, liðs-
menn stjórnmálaflokks Miru
Markovic, eiginkonu Milosevic. Er
bílalestin með Milosevic hélt loks
af stað frá bústaðnum í Dedinje-
hverfi aðfaranótt sunnudags eftir
fjögurra stunda, stanslausar samn-
ingaviðræður skaut dóttirin, hin 36
ára gamla Marija, fimm skotum að
bílunum. „Gefstu ekki upp, það er
betra að þú deyir,“ æpti hún og
snökti.
Ein kúlan hitti bíl fulltrúa
stjórnvalda. Byssa dótturinnar var
með viðarskefti og var gjöf frá nú-
verandi yfirmanni landhersins,
Nebojsa Pavkovic, skreytt teikn-
ingu af honum.
Þráteflið stóð í meira en 30
stundir, það hófst á föstudag er
lögreglumenn reyndu að afhenda
Milosevic stefnu en lífverðirnir vís-
uðu þeim burt að skipun hans.
Mun hann að sögn BBC hafa sagt
að lögreglumennirnir og yfirboð-
arar þeirra væru „leiguþý“ Atl-
antshafsbandalagsins. Á laugar-
dagsmorgun reyndu sérsveitir
lögreglunnar, meðal annars vopn-
aðar hvellsprengjum, að fara yfir
múrinn umhverfis
húsið en urðu frá að
hverfa vegna skot-
hríðar varðmanna.
Fjórir lögreglumenn
og ljósmyndari særð-
ust, einn lögreglu-
maðurinn hættulega.
Klippt var á raf-
magns-, vatns- og
símalínur að húsinu
en þar mun hafa ver-
ið dísilrafstöð.
Hundruð stuðnings-
manna leiðtogans
fyrrverandi söfnuð-
ust saman við húsið
en einnig var þar
mikið af andstæðingum Milosevic.
Lögreglan reyndi að koma í veg
fyrir áflog.
Á laugardagskvöld urðu ráða-
menn landsins sammála um að láta
Milosevic ekki komast upp með að
hundsa stefnuna og Dusan Mih-
ailovic innanríkisráðherra tjáði
honum að ef hann gæfist ekki upp
fyrir klukkan sex á sunnudags-
morgun yrði beitt valdi. Skömmu
fyrir miðnætti bárust boð um að
Milosevic vildi hefja samningavið-
ræður og lyktaði þeim um nóttina
með því að hann gafst upp.
Nokkrir af æðstu mönnum sós-
íalistaflokks Milosevic fóru á fund
hans meðan á umsátrinu stóð og
sögðu þeir að hann hefði ekki verið
beittur þrýstingi. „Staðreyndir
voru lagðar á borðið og hann tók
sjálfur ákvörðun,“ sagði einn
þeirra.
Fékk róandi lyf
Heimildarmenn
segja að sumir lífverð-
irnir hafi verið
drukknir, aðrir bæta
því við að Milosevic
hafi einnig staupað sig.
Hann hafi ýmist verið
fullur sjálfstrausts eða
örvæntingarfullur, hafi
stundum hótað að
skjóta sig og fjölskyld-
una. Milosevic hafði
áður sagt að hann
myndi aldrei láta taka
sig lifandi.
Fangaklefi Milosevic
er um sex fermetrar, honum fylgir
sturta og innréttingar eru nýjar.
Álman þar sem klefinn er hefur
gengið undir nafninu Hyatt en
gistihús Hyatt-hótelkeðjunnar eru
afar íburðarmikil.
Tekið var á móti Milosevic í
fangelsinu með því að láta hann af-
henda mittisól, úr og einkaskjöl.
Hann fékk róandi lyf og tíu mín-
útum síðar var hann í fastasvefni
enda sagði verjandi hans, Toma
Fila, að forsetinn fyrrverandi hefði
verið örþreyttur. Fila sagði í gær
að Milosevic væri dapur og ætti
erfitt með að skilja hvaða umskipti
hefðu orðið í lífi hans.
Eiginkonan Mira hleypti í gær
rannsóknarlögreglumönnum inn í
bústaðinn. Sat hún í kápunni á
meðan þar sem ekki var enn kom-
inn á hiti. Á borði var diskur með
brauði og pylsu.
Milosevic hótaði sjálfsvígi og dóttirin skaut að lögreglu
„Betra að þú deyir“
Belgrad. Reuters, The Daily Telegraph.
Slobodan Milosevic