Morgunblaðið - 03.04.2001, Page 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 41
úr akrýli!
• Níðsterkir, auðveldir að þrífa
• Fást með loki eða öryggishlíf
• Nuddkerfi fáanlegt
• Margir litir, 10 gerðir, rúma 4-12
TREFJAR
Hjallahrauni 2, 220 Hafnarfjörður.
Sími: 555 1027 Fax: 565 2227
pottar
Heitir
Komið og skoðið pottana uppsetta í
sýningarsal okkar, eða hringið og fáið
sendan litprentaðan bækling og verðlista.
Verð frá aðeins kr. 94.860,-
Suðurlandsbraut 20,
sími 533 6050,
www.hofdi.is
VERSLUNARHÚS ÓSKAST !
Erum að leita að vel staðsettu 2.000 til 3.000 fermetra verslun-
arhúsi á höfuðborgarsvæðinu fyrir fjársterkan aðila. Húsnæðið
þarf að vera aðgengilegt og með nægum bílastæðum. Æskilegt
er að húsnæðið sé að mestu á einni hæð. Bæði kaup og sala
koma til greina. Áhugasamir hafi samband sem fyrst við Ásmund
Skeggjason á Höfða fasteignasölu í síma 533 6050 eða 895 3000.
Í ATKVÆÐAGREIÐSLUNNI
um framtíðarnýtingu Vatnsmýrar og
staðsetningu flugvallar fyrir innan-
landsflugið, sem fram
fór fyrir skömmu,
sýndu Reykvíkingar
með eftirminnilegum
hætti hug sinn til þess
sjónarspils sem R-list-
inn sviðsetti í tengslum
við hana. Sjónarspil,
þar sem ákveðið var að
kjósa um mál eftir að
búið var að taka bind-
andi ákvörðun um það
allt til ársins 2016. En
borgarbúar sáu í gegn-
um þetta og 63% kosn-
ingabærra Reykvík-
inga kusu að sitja
heima og taka ekki þátt
í þessum leik. Þetta
gerðist þrátt fyrir gríð-
arlega auglýsinga- og kynningarher-
ferð, þar sem borgarstjórinn lagði
allt undir og hvatti borgarbúa til að
mæta vel. Niðurstaðan er því mikill
ósigur fyrir borgarstjórann og
R-listann og vonbrigðin leyna sér
ekki.
Af hverju
atkvæðagreiðsla?
Rétt er að rifja upp af hverju at-
kvæðagreiðslan var á sínum tíma
ákveðin. Í september 1999, rétt um
tveimur vikum eftir að borgarstjóri
skrifaði eigin hendi undir fram-
kvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu
flugvallar í Vatnsmýri, samþykktu
borgarfulltrúar R-listans tillögu í
borgarstjórn um að ganga til at-
kvæðagreiðslu um framtíð flugvall-
arins. Með þessari endurbyggingu
upp á einn og hálfan milljarð var ekki
verið að tjalda til einnar nætur. Það
hlaut öllum að vera ljóst. Enda hafði
áður verið samþykkt deiliskipulag til
2016 um flugvöllinn eftir mikla und-
irbúningsvinnu. Þegar það hins veg-
ar rann upp fyrir ýmsum stuðnings-
mönnum R-listans að búið var að
hnýta alla hnúta og festa flugvöllinn í
sessi til langs tíma braust út óánægja
meðal þeirra. Það var því fyrst og
fremst til að friða þessar óánægju-
raddir í baklandinu að samþykkt var
að láta fara fram atkvæðagreiðslu.
Tvískinnungurinn er augljós. Fyrst
er tekin bindandi ákvörðun til 2016
og síðan er sagt – nú leyfum við fólk-
inu að ráða! Þetta sáu Reykvíkingar í
gegnum.
Dýr skoðanakönnun
Úrslit atkvæðagreiðslunnar sýna
að sáralítill munur er á fjölda þeirra,
sem kjósa að völlurinn fari, og þeirra,
sem kjósa að hann veri. Rúmlega
þrjú hundruð fleiri kjósa að hann
fari. Þessi munur er
ekki nema um 1%. Auk
þess verður að hafa í
huga að skoðanakann-
anir hafa sýnt að
stærsti hluti þeirra,
sem vilja að völlurinn
fari burt úr Vatnsmýri,
vill ekki að innanlands-
flug færist til Keflavík-
ur. Með hliðsjón af
þessu og jafnframt
hinni dræmu þátttöku
er ekki hægt að tala um
marktæka niðurstöðu.
Ljóst er að enn er mikið
verk óunnið. Það er líka
brýnt, ekki bara fyrir
hagsmuni Reykvíkinga
heldur landsmanna
allra, að niðurstaða fáist, sem sátt
geti orðið um. Það sem eftir stendur
er að atkvæðagreiðslan er í raun ekk-
ert annað en skoðanakönnun – sú
dýrasta sem um getur. Allt bendir til
þess að meira en 40 milljónum króna
af almannafé hafi verið varið til henn-
ar.
Að sýna sitt rétta andlit
Athyglisvert hefur verið að fylgj-
ast með viðbrögðum ýmissa R-lista-
manna í kjölfar þessarar háðulegu
útreiðar, sem atkvæðagreiðslan var í
raun fyrir þá. Að leik loknum er allt í
einu farið að tala um siðferði. Nú á
niðurstaðan að vera siðferðilega
bindandi og ef ekki sé tekið mark á
þessum niðurstöðum þá þjóni aldrei
tilgangi að kjósa. Bíðum aðeins við.
Voru ekki leikreglurnar settar fyr-
irfram? Jú, það var ákveðið að kosn-
ingin yrði aðeins bindandi að ákveðn-
um skilyrðum uppfylltum. Borgarráð
tók lýðræðislega ákvörðun um
hvernig fara ætti með niðurstöður at-
kvæðagreiðslunnar. Niðurstaðan
skyldi verða bindandi fyrir borgar-
stjórn ef 75% kosningabærra Reyk-
víkinga tækju þátt eða ef 50% kosn-
ingabærra manna kysu sama
kostinn. Hvorugt gerðist og niður-
staðan mjög fjarri því. Kosningin er
því ekki bindandi.
Það er því alveg dæmalaust af
borgarstjóra að koma eftir á og segja
kosninguna bindandi – siðferðilega
bindandi! Þessi afstaða borgarstjóra,
sem er studd af Helga Hjörvar og
Hrannari B. Arnarssyni, hefur eðli-
lega valdið usla í röðum R-listans.
Þar er greinilega enn að finna ein-
staklinga, sem telja eðlilegt að farið
sé að leikreglum og athygli hefur
vakið hversu framsóknarmenn hafa
staðið fast á sínu.
Viðbrögð borgarstjóra og annarra
borgarfulltrúa R-listans hafa afhjúp-
að þann hroka, sem einkennir stjórn-
arhætti þessa meirihluta og jafn-
framt sýnt lítilsvirðingu fyrir
lýðræðislegum vinnubrögðum.
Óhætt er að segja að þríeykið, Ingi-
björg, Helgi og Hrannar, hafi sýnt
sitt rétta andlit. Ef niðurstaðan er
þeim ekki að skapi þá hætta leikregl-
urnar að gilda. Það vakna því fremur
spurningar um siðferði þeirra, sem
bregðast við með þessum hætti.
Er atkvæðagreiðslan
tilraunarinnar virði?
Í opinberri umræðu hefur því verið
haldið fram að óháð niðurstöðunni sé
það þess virði að gera slíka tilraun
með beint lýðræði, eins og hér hafi
verið gert. Atkvæðagreiðsla, þar sem
íbúar fá tækifæri til að segja skoðun
sína og kjósa með beinum hætti, er
alvörumál, sem stjórnmálamenn eiga
að umgangast af virðingu. Þar skiptir
öllu að heiðarlega sé að verki staðið,
kostir þeir sem kosið er um séu skýr-
ir og greinilegt hver áhrif niðurstað-
an hafi. Slík atkvæðagreiðsla krefst
vandaðs og málefnalegs undirbún-
ings. Ef það er ekki gert er viðbúið að
afleiðingin verði sú að almenningur
missi trú á því mikilvæga tæki sem
almenn atkvæðagreiðsla getur verið.
Öll meðferð R-listans á þessu máli,
tilurð þess, undirbúningur og við-
brögð eftir á er vitnisburður um
hvernig ekki á að standa að verki.
Þessi atkvæðagreiðsla var því ekki
tilraunarinnar virði.
Atkvæðagreiðslan um framtíðar-
nýtingu Vatnsmýrar og staðsetningu
flugvallar fyrir innanlandsflug hefur
dregið fram í dagsljósið valdhroka og
óskammfeilni þeirra, sem nú fara
með völd í Reykjavík. Vopnin, sem
áttu að gefa R-listanum yfirbragð
lýðræðislegra stjórnarhátta hafa
snúist í höndum fulltrúa hans. Því
munu Reykvíkingar svara með við-
eigandi hætti í fyllingu tímans.
Þú breytir ekki eftir á
Inga Jóna
Þórðardóttir
Borgarmálefni
Óhætt er því að segja að
þríeykið, Ingibjörg,
Helgi og Hrannar, hafi
sýnt sitt rétta andlit,
segir Inga Jóna
Þórðardóttir. Ef
niðurstaðan er þeim
ekki að skapi, þá hætta
leikreglurnar að gilda.
Höfundur er leiðtogi sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn.
Cranio-nám
Norðurland / Akureyri
28. 04 — 3. 05. 2001
Thomas Attlee, DO, MRO, RCST
College of Cranio—Sacral Therapy
Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara
www.simnet.is/cranio
422 7228, 699 8064, 897 7469