Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 60
MINNINGAR
60 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
allt iðaði af fjöri og framkvæmdum.
Maðurinn með ljáinn hefur verið á
ferð og skárað nærri okkur, tekið í
sama ljáfarinu vini okkar og ná-
granna Friðrik Wathne og Björgvin
Schram.
Langt er síðan við fyrst heyrðum
um þetta fyrirbrigði Vesturbæjar-
aðalinn. Hvergi hefur verið minnst á
aðal nema í Vesturbænum. Ef rétt er
munað varð þetta hugtak til vegna
þess að vestan við Læk byggðu
nokkrir stýrimenn og skipstjórar
snemma á síðustu öld veglegri hús
en almennt gerðist og báru sig rík-
mannlegar en aðrir. Tengdamóðir
mín nefndi stundum að alltaf hefðu
verið jól í Þorsteinshúsi og svo virð-
ist um fleiri hús í því hverfi. Því er á
þetta minnt hér að vinur okkar
Björgvin Schram var einn glæsileg-
asti fulltrúi þessa Vesturbæjaraðals.
Allt hans fas og framkoma bar upp-
eldi hans vitni.
Fyrir marga sem þennan vin okk-
ar þekktu voru Vesturbærinn, KR
og Björgvin Schram óaðskiljanleg.
Þegar við fluttum hingað í Sörla-
skjól var knattspyrnuferill Björg-
vins að baki. Allt um það var hann
svo kvikur og léttur á fæti, að hann
bar ekki fyrir gluggann á leið í og úr
vinnu nema andartak. Svo var hann
horfinn. En þetta nægði til að skilja
eftir í hugskoti okkar mynd af þess-
um granna og spengilega, svipmikla
og höfðinglega manni sem setti svo
sterkan svip á hverfið allt.
Sú mynd var þó oftast ekki nema
hálf. Þegar Aldís kona hans bættist
við var myndin af Sörlaskjóli 1 full-
komin.
Það voru glæsileg hjón hið ytra
sem innra. Betri nágranna gat eng-
inn maður óskað sér.
Þótt skoðanir okkar Björgvins
færu saman um flest bar þó eitt á
milli. Ég var uppalinn í Víkingi og
tregur að láta af barnatrúnni, þótt
við ramman væri reip að draga í
þeirri sveit.
Svo bar við eitt árið þegar við vor-
um að hreinsa móann eftir áramóta-
brennuna fyrir framan hús okkar að
okkur varð sundurorða. Taldi ég að
maður sem við ræddum um hefði
verið í Víkingi, en hann að sá hefði
verið KR-ingur.
Daginn eftir hringdi Björgvin og
viðurkenndi að kauði hefði verið í
Víkingi en bætti svo við, sigri hrós-
andi, „en hann gat aldrei neitt“. Þar
með sættumst við.
Við hjónin söknum Aldísar og
Björgvins. Það er nokkur huggun að
í húsi þeirra er Schram-fáninn enn
við hún. Þótt fráfall Björgvins sé
okkur harmsefni er það þó ánægju-
leg hugsun að hann skuli vera kom-
inn í faðm Aldísar. Þess hefur hann
vafalaust lengi beðið.
Við Benta sendum fjölskyldu
Björgvins innilegar samúðarkveðj-
ur.
Valgarð Briem.
Kveðja frá KR
Hinn mikli og góði KR-ingur
Björgvin Schram er látinn. Hann var
í miklum tengslum við félag sitt frá
því að hann barnungur hóf að leika
knattspyrnu. Hann varð fljótt efni-
legur í sinni grein og seinna einn sá
besti, margfaldur Íslandsmeistari í
meistaraflokki. Sennilega hefur
Björgvin Schram verið fyrsti Íslend-
ingurinn sem boðið var að gerast at-
vinnumaður. Þegar hann var í versl-
unarskóla á Englandi lék hann með
Hull City. Þar sáu útsendarar Aston
Villa hann spila og buðu honum
samning við félagið, en Björgvin
fékk ekki atvinnuleyfi. Leikni hans
og frami steig honum ekki til höfuðs.
Hann var prúðmenni utan vallar sem
innan. Þegar hans ferli lauk í knatt-
spyrnu tóku við stjórnarstörf innan
knattspyrnudeildar og í aðalstjórn
var hann um langt árabil. Síðar á lífs-
leiðinni gerðist hann formaður KSÍ
og var formaður sambandsins til
margra ára. Þrátt fyrir miklar annir
í forystuhlutverki knattspyrnu
gleymdi hann ekki sínu félagi.
Fallegt heimili þeirra hjóna
Björgvins og Aldísar í Sörlaskjóli
stóð KR-ingum alltaf opið og minn-
ast margir félagsmenn hlýju og gest-
risni þeirra frá þeim árum. Þau þóttu
einstaklega glæsileg hjón og sterkur
persónuleiki þeirra beggja dró að
sér athygli fólks. Þegar Aldís lést
fyrir um 10 árum tók Björgvin mjög
nærri sér fráfall hennar. Á seinni ár-
um kom hann með okkur í ferðalög
innanlands og utan og gladdist með
okkur á sigurstundum. Björgvin
Schram var okkur KR-ingum góð
fyrirmynd og vinátta hans var okkur
mikils virði.
Börnum og öðrum aðstandendum
sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Björgvins
Schram.
Kristinn Jónsson,
formaður KR.
Kveðja frá KSÍ
Fallinn er í valinn mikilhæfur
knattspyrnuleiðtogi, Björgvin
Schram.
Björgvin var virkur þátttakandi í
íslenskri knattspyrnu um áratuga
skeið og vann þar marga frækna
sigra. Hann var leikmaður með KR
frá 1929–1941 og þeim íslensku úr-
valsliðum sem valin voru á þeim
tíma. Eftir að virkri þátttöku hans á
vellinum lauk tók Björgvin að sér
forystustörf, fyrst hjá félagi sínu,
KR, en síðar hjá KSÍ, fyrst sem
stjórnarmaður og seinna sem for-
maður KSÍ um 14 ára skeið, frá 1955
til 1968.
Þá voru mikil baráttuár í íslenskri
knattspyrnu og hjá KSÍ. Erfitt var
að afla peninga til að halda úti starf-
seminni en allt byggðist á fórnfúsu
starfi sjálfboðaliða. En Björgvin
Schram stýrði KSÍ farsællega á
þessu erfiða tímabili og lagði þar
grundvöllinn að styrkri stöðu KSÍ í
íslenskri íþróttahreyfingu. Björgvin
Schram er einn af örfáum einstak-
lingum sem hlotið hafa æðsta heið-
ursmerki KSÍ, Heiðurskross KSÍ en
það heiðursmerki er eingöngu veitt
þeim aðilum sem unnið hafa knatt-
spyrnuíþróttinni ómetanlegt gagn.
Ég hef heyrt af því margar sögur
að heimili Björgvins og Aldísar í
Sörlaskjóli hafi ávallt staðið opið
þegar knattspyrnufólk var annars
vegar. Vegna nálægðar við KR-
svæðið var þar oft gestkvæmt og
heilu liðin mættu þar í mat og snarl
milli leikja og æfinga. Það hefur ef-
laust skipt miklu máli fyrir Björgvin
að hann naut óskoraðs stuðnings og
hvatningar sinnar góðu konu í störf-
um sínum fyrir hreyfinguna.
Fjölskyldan í Sörlaskjóli hefur
reyndar meira og minna öll verið
undirlögð af knattspyrnubakter-
íunni og engin þar komist hjá því að
fylgjast með KR og KSÍ í uppvext-
inum. Ellert sonur Björgvins var for-
maður KSÍ í 16 ár milli 1974 og 1989
og samanlagt hafa þeir feðgar því
stýrt KSÍ í 30 ár af 54 árum sem
sambandið hefur verið starfrækt.
Ég minnist Björgvins Schram vel
frá mínum unglingsárum þegar mik-
il og náin samskipti voru milli fyr-
irtækis hans og fyrirtækis fjölskyldu
minnar. Hann var glæsilegur og
reffilegur maður, ávallt mjög vel til-
hafður og virðilegur, einn af þeim
mönnum sem setttu svip sinn á bæ-
inn á þeim árum. Faðir minn sagði
mér að samskiptin við Björgvin hafi
ávallt verið hnökralaus, að það hafi
alltaf allt staðið eins og stafur á bók
það sem hann hafi sagt.
Björgvin Schram var mikill heið-
ursmaður, ljúfmenni og sannkallað-
ur „aristókrat“ af gamla skólanum.
Hann var í hávegum hafður hjá KSÍ
og þar þótti okkur öllum innilega
vænt um Björgvin Schram. Hin síð-
ari ár passaði Björgvin vel upp á að
missa aldrei af landsleikjum, mætti
snemma og fylgdist vel með. Þessa
aldna heiðursmanns og mikla knatt-
spyrnuleiðtoga verður sárt saknað í
húsakynnum KSÍ í næstu landsleikj-
um.
Ég færi þér, kæri vinur, innilegt
þakklæti knattspyrnuhreyfingarinn-
ar á Íslandi fyrir þín miklu störf á
langri starfsævi. En ég veit að þú ert
hvíldinni feginn og hamingjusamur
að vera við hlið þinnar heittelskuðu
Aldísar að nýju.
Þinni stóru fjölskyldu færi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Minningin um gjöfugt ljúfmenni
og mikilhæfan forystumann mun lifa
í huga knattspyrnuhreyfingarinnar.
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ.
Kveðja frá Íþrótta- og
ólympíusambandi Íslands
Björgvin Schram var tengdur
íþróttalífinu í landinu um hálfrar ald-
ar skeið og raunar miklu lengur.
Ungur lagði hann stund á knatt-
spyrnu og komst þar í fremstu röð
og seinna varð hann formaður
Knattspyrnusambands Íslands og
þar með einn af áhrifamönnum
íþróttahreyfingarinnar. Fyrir þau
störf var hann gerður að heiðurs-
félaga ÍSÍ, 15. mars 1980, og fyllti
sæti í lávarðadeild þeirra sóma-
manna, sem settust í helgan stein
eftir brautryðjendastörf í þágu ís-
lenskra íþrótta.
Björgvin var lávarður í sjón og
raun. Háttvís og háttprúður í fram-
komu og fasi, höfðinglegur í útliti,
eðalmenni í samskiptum við aðra.
Eins og enskur lord, grannvaxinn og
léttstígur.
Fyrir unga og kraftmikla stráka í
vesturbænum í Reykjavík, í upphafi
síðustu aldar, var ekki margra kosta
völ varðandi iðkun íþrótta, nema
knattspyrna og aftur knattspyrna í
görðum og túnbölum strjállrar
byggðar og þar var grunnurinn lagð-
ur að glæsilegum ferli Björgvins
Schram. Enda KR honum í blóð bor-
ið og eldri bræður hans tveir, Gunn-
ar og Karl, báðir í meistaraflokki
félagsins. Björgvin varð sjálfur
framúrskarandi snjall knattspyrnu-
maður, var jafnan valinn í íslensk úr-
valslið, áður en Íslendingar tefldu
fram landsliðum, og margsinnis kos-
inn besti knattspyrnumaður Íslands.
Fljótlega var hann fenginn til for-
ystustarfa í KR og var varaformaður
félagsins til margra ára. Hann var
kjörinn í fyrstu stjórn KSÍ árið 1947
og formaður 1954. Þar sat hann á
formannsstóli í fjórtán ár og naut
bæði vinsælda og virðingar fyrir þau
störf sín, allt til dauðadags. Um hans
daga sem jafnan síðan, var Knatt-
spyrnusamband Íslands í farar-
broddi í störfum, nýjungum og fram-
förum á vettvangi íþróttanna. Á efri
árum, sýndi hann knattspyrnunni,
KR , KSÍ og íþróttahreyfingunni
allri mikla tryggð og mætti reglu-
lega á völlinn, allt fram til hins síð-
asta, en einnig á íþróttaþing og sam-
komur tengdum íþróttastarfinu. Þar
vakti þessi heiðursmaður athygli og
aðdáun, enda vel látinn af öllum sem
til hans þekktu og honum kynntust.
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands þakkar Björgvin Schram fyrir
langt og óeigingjarnt starf við efl-
ingu og útbreiðslu íþrótta í landinu
og sendir sínar innilegustu samúðar-
kveðjur til fjölskyldu hans.
Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri ÍSÍ.
Kveðja frá Samtökum
verzlunarinnar – FÍS
Erfitt er fyrir þá Íslendinga, sem
nú eru að vaxa úr grasi, að gera sér í
hugarlund það ástand er ríkti í versl-
un og viðskiptum á Íslandi um miðja
síðustu öld. Eftir að þjóðin hafði með
samstilltu átaki á fyrri hluta aldar-
innar komið sér upp eigin skipastóli
var full ástæða til að ætla að versl-
unin myndi blómstra á sínum eigin
forsendum og eiga sinn þátt í því að
bæta lífskjör þjóðarinnar.
Á þessum tíma kom fram ný kyn-
slóð athafnamanna sem sá fjölmörg
tækifæri í nýfengnu frelsi og vildi óð-
fús nýta þau. Ekki leið þó á löngu
uns viðskiptalífið var hneppt í viðjar
haftastefnu og skömmtunar af öllu
tagi. Það kom í hlut Björgvins
Schram og annarra brautryðjenda
að byggja upp verslunarrekstur og
erlend viðskiptatengsl við þessi skil-
yrði og berjast um leið fyrir afnámi
haftastefnunnar.
Er mér til efs að sú kynslóð versl-
unarmanna sem nú er að vaxa úr
grasi og þekkir ekki annað en frjáls-
ræði, geti nokkurn tímann sett sig í
spor þeirra sem stunduðu verslun
um miðja síðustu öld við þessar að-
stæður.
Björgvin ólst upp í vesturbænum
og eftir próf frá Verzlunarskóla Ís-
lands hélt hann til Lundúna í frekara
verslunarnám. Hann hóf störf hjá
Heildverslun Magnúsar Kjaran eftir
að hann kom heim frá námi en árið
1952 stofnaði hann eigið fyrirtæki,
Heildverslun Björgvins Schram sem
hann rak í rúm þrjátíu ár.
Á verslunarferli Björgvins áttu
hörð átök sér stað í íslensku þjóðlífi.
Hart var sótt að ríkjandi þjóðskipu-
lagi af svokölluðum kommúnistum
sem réðust að versluninni og fulltrú-
um hennar hvenær sem færi gafst. Í
huga þeirra var allur hagnaður illa
fenginn og verslun og viðskipti tákn-
gervingar hins illa kapítalisma. Eins
undarlegur og slíkur málflutningur
hljómar nú, er því ekki að leyna að
um tíma virtist hann hafa nokkurn
hljómgrunn í þjóðfélaginu. Gætti
þessara sjónarmiða jafnvel hjá
mörgum ráðamönnum sem höfðu
takmarkaðan skilning á þörfum
verslunargreinarinnar og því þjón-
ustuhlutverki sem hún gegndi í sam-
félaginu. Afleiðingin varð sú að
stjórnvöld gripu til margvíslegra
hafta og skömmtunar sem hamlaði
vexti og viðgangi íslenskrar verslun-
ar um áratugaskeið auk þess sem
lagðar voru álögur á atvinnugreinina
langt umfram það sem eðlilegt gat
talist.
Á þessum tíma reið á fyrir versl-
unina að eignast öfluga málsvara
sem gætu varið verslunina gagnvart
árásum andstæðinga hennar og
óeðlilegum afskiptum stjórnvalda.
Björgvin varð einn þessara málsvara
verslunarinnar og á þeim vettvangi
komu mannkostir hans vel í ljós þeg-
ar á reyndi. Hann var formaður
Félags íslenzkra stórkaupmanna
(FÍS) á árunum 1967–1971 og var
síðar gerður að heiðursfélaga þess.
Þá sat hann í stjórn Verzlunarráðs
Íslands frá 1966–1974 og var formað-
ur þess 1968–1972. Segir það sína
sögu um hve ríkan trúnað Björgvin
átti innan ólíkra greina verslunar-
innar að hann skyldi samtímis gegna
formannsembætti í þessum samtök-
um.
Á vettvangi FÍS var Björgvin
óþreytandi að tala máli verslunar-
innar og berjast fyrir ýmsum hags-
munamálum hennar, jafnt innan
félags sem utan. Hann gagnrýndi
hvernig atvinnugreinin hefði verið
hneppt í viðjar óraunhæfra verðlags-
hafta og varði drjúgum tíma að
smíða tillögur um úrbætur og kynna
þær fyrir ráðamönnum. Hann var öt-
ull talsmaður heilbrigðrar sam-
keppni og benti á að hún næði ekki
að þróast þar sem fjárskortur haml-
aði fyrirtækjum og heimskulegu
verðlagskerfi væri beitt. Afleiðingin
af þessu slæma kerfi væri óeðlilega
hátt verðlag í landinu sem rýrði lífs-
kjör almennings. Til að bæta úr þesu
vildi Björgvin gera breytingar á
bankakerfinu og breyta skattalögum
þannig að fyrirtækjum yrði gert
kleift að mynda eigið fjármagn. Þá
fyrst að þetta væri fyrir hendi en
fyrr ekki væri hægt að tala um
frjálsa og heilbrigða samkeppni í ís-
lenskri verslun.
Eftirfarandi setning, sem höfð var
eftir Björgvini í blaðaviðtali árið
1970, er á margan hátt lýsandi fyrir
hugarfar hans að þessu leyti: „Ég
spyr: Hvaða munur er á þeirri
krónu, sem græðist vegna hækkaðs
verðs á útflutningi okkar og þeirri
krónu, sem sparast við hagkvæmari
vöruinnkaup til landsins?“ Trúr
þessari stefnu lét hann hagræðing-
armál verslunarinnar mjög til sín
taka og beitti sér fyrir ýmsum úrbót-
um í því sambandi. Hann benti á
nauðsyn þess að innflutningsfyrir-
tæki stækkuðu og styrktust fjár-
hagslega í því skyni að ná hagstæð-
ari samningum í vörukaupum
erlendis. Þá beitti hann sér fyrir
ýmsum nýmælum innan FÍS sem
hrint var í framkvæmd og hafa fyrir
löngu sannað sig í þágu hagkvæmari
verslunar sem almenningur nýtur
góðs af. Nefna má hugmyndir um
heildsölumiðstöð, útvegun upplýs-
inga um lánstraust fyrirtækja, skipt-
ingu félagsmanna í sérgreinahópa og
margvíslega hagræðingarþjónustu.
Það var ómetanlegt fyrir versl-
unina að eiga Björgvin fyrir mál-
svara því hann naut virðingar manna
í öllum flokkum og stéttum. Á ár-
unum 1930–1940 var hann einn af
þekktustu knattspyrnumönnum
landsins og virtur jafnt af samherj-
um sem mótherjum. Var hann ótví-
rætt ein helsta íþróttastjarna lands-
manna enda dáður af áhorfendum
fyrir fallegan og prúðmannlegan
leik. Björgvin bjó að þessari reynslu
í félagsstörfum fyrir verslunina enda
naut hann víðtæks trúnaðar og virð-
ingar manna í öllum flokkum og
stéttum. Björgvin var fylginn sér og
flutti mál sitt af mikilli eindrægni en
kom ætíð fram af prúðmennsku og
sanngirni. Þarf því engan að undra
hvers vegna hann var hvað eftir ann-
að valinn í forystuhlutverk innan
samtaka verslunarinnar og tala máli
hennar út á við.
Smám saman jókst fylgi við mál-
stað verslunarinnar og dregið var úr
höftum, skömmtunum og annarri op-
inberri miðstýringu á markaði.
Lengi vel voru þó hin óvinsælu verð-
lagshöft og gjaldeyrisskömmtun við
lýði en jafnvel þau hurfu að lokum.
Segja má að baráttunni fyrir frjáls-
ræði í verslun og viðskiptum hafi
þannig lokið með fullum sigri skyn-
seminnar enda hefur vöruúrval og
kaupgeta almennings aldrei verið
meiri. Þáttur brautryðjenda eins og
Björgvins Schram í þessari baráttu
verður seint fullþakkaður.
Fyrir hönd Samtaka verslunar-
innar – Félags íslenzkra stórkaup-
manna vil ég að leiðarlokum þakka
Björgvini samfylgdina og fórnfýsi
hans í þágu félagsins. Aðstandend-
um öllum sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur.
Haukur Þór Hauksson.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félagi ÍA
Þegar knattspyrnuáhugamenn af
Akranesi líta um öxl og rifja upp
spennandi og dramatíska fótbolta-
leiki koma upp í hugann oftar en ekki
leikir á milli Akraness og KR. Það er
einhver sérstakur blær yfir þessum
nöfnum sem eru svo þekkt í íslenskri
knattspyrnusögu. Leikir á milli
Akraness og KR hafa ósjaldan verið
kallaðir leikir á milli erkifjendanna,
oft hefur mikið gengið á og ótrúlega
oft hafa þessir leikir verið úrslita-
leikir um æðstu verðlaun íslenskrar
knattspyrnu. Það hefur alltaf verið
hart barist í boltanum en baráttunni
á milli Akraness og KR hefur í hug-
um áhangenda félaganna löngum
fylgt sérstakur andi. Bæði þessi
stórveldi í íslenskri knattspyrnu
hafa unnið glæsilega sigra á knatt-
spyrnuvellinum, en stundum hafa
þau líka lent í mótbyr. Þegar KR-
liðið hikstaði var stundum glott við
tönn á Skaganum og líkt var farið í
Vesturbænum ef ekki gekk allt sem
skyldi uppi á Skipaskaga. En ill-
kvittnin hefur aldrei rist djúpt. Það
er nefnilega eitthvað sérstakt sam-
band á milli Akraness og KR.
Rétt fyrir miðja síðustu öld var
knattspyrnan á Akranesi að festa sig
í sessi, fyrsta gullöldin var handan
við hornið. Þá höfðu KR-ingar marg-
oft unnið frækna sigra. Á þeim tíma
var Knattspyrnusamband Íslands
stofnað. Stofnun þess markaði þátta-
skil í íslenskri knattspyrnusögu, en
hún var einnig upphafið að miklu og
góðu sambandi á milli KR og Akra-
ness. Í fyrstu stjórn KSÍ sátu m.a.
KR-ingurinn Björgvin Schram og
Skagamaðurinn Guðmundur Svein-
björnsson. Þeir áttu eftir að sitja
saman í stjórninni í rúm 20 ár. Þeir
félagar áttu farsælt samstarf og allt
frá þeim tíma og fram á þennan dag
hafa tengsl KR og Akraness verið
sterk og samskiptin góð.
Í dag kveðjum við Björgvin
Schram. Við kveðjum með mikilli
virðingu þennan glæsilega og prúða
mann. Við kveðjum Björgvin
Schram með þökk fyrir allt sem
hann gerði fyrir knattspyrnuna. Við
þökkum fyrir góð og trygg samskipti
öll árin sem Björgvin var í forystu
KSÍ og lengi eftir að hann hætti í
stjórninni. Fjölskyldu Björgvins
sendum við bestu kveðjur og vottum
þeim virðingu og samúð.
Hörður Ó. Helgason, formaður.
BJÖRGVIN
SCHRAM