Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 80
Sigríður Rut Thorarensen, eig-
inkona Ladda, og Vilhelmína
Thorarensen voru ánægðar með
frammistöðu fíflsins.
FRANSKI gamanleikurinn Fífl í
hófi eftir Francis Veber var frum-
sýndur í húsi Íslensku óperunnar
sl. föstudagskvöld við mörg og
hávær hlátrasköll áhorfenda.
Leikritið fjallar um uppann og
útgefandann Pierre sem Baldur
Trausti Hreinsson leikur, en hann
og vinir hans keppast við að
bjóða sem mestu „fífli“ til sín í
kvöldverðarboð. Fíflið sem Pierre
hefur fundið er François Pignon,
skattstofustarfsmaður sem í frí-
stundum smíðar heimsfrægar
byggingar úr eldspýtum, og leik-
inn er af Þórhalli Sigurðssyni.
Kvöldið fer öðruvísi en ætlað var
og spyrja áhorfendur sig í lokin
hvor sé meira fífl; Pierre eða
Pignon.
Leikstjóri verksins, María Sig-
urðardóttir, segir boðskap verks-
ins vera þann að maður skyldi
aldrei koma fram við nokkurn
mann sem fífl.
Leikritið hefur verið sýnt sam-
fleytt í þrjú ár í Frakklandi, en
eftir því var gerð kvikmyndin Le
Dîner des Cons sem höfundur
leikritsins leikstýrði og sýnd var
á Kvikmyndahátíð í Reykjavík í
hittifyrra við góðar undirtektir.
Fífl í hófi frumsýnt í Óperunni
Hver er fíflið?
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hressir félagar: Magnús Geir, Ragnar Kjartansson og
Kjartan Guðjónsson.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hildur Pétursdóttir, Hjörleifur Jónsson og Óskar
Jónasson spjölluðu í hléinu.
SINFÓNUHLJÓMSVEIT Íslands ásamt Kór ís-
lensku óperunnar og einsöngvurum fluttu um
helgina Carmen, óperu í fjórum þáttum, í Laug-
ardagshöll.
Carmen er ein allra vinsælasta ópera heims-
bókmenntanna, þótt hún hafi ekki vakið hrifn-
ingu þegar hún var frumsýnd í París árið 1875.
Enda var sígaunastúlkan atarna fyrsta kvenper-
sóna óperusögunnar til að hafa veikleika, fram
að því höfðu þær allar verið fulltrúar dyggða og
góðra siða.
„Tónlistin er svo rík og fjölbreytileg og það
er persónuleiki Carmen einnig. Hún er kona en
hagar sér stundum eins og lítil stelpa og stund-
um eins og karlmaður. Í hennar augum er allt
mögulegt. Hún lifir í núinu og getur ekki lifað
án ástríðunnar,“ lýsir leikstjórinn Sonja
Frisell-Schröder henni í samtali við Morgun-
blaðið.
Sonja er heimsfrægur óperuleikstjóri, en ein-
ungis topplistamenn stóðu að þessu viðamikla
verkefni. Stjórnandi var Alexander Anissimov,
en Garðar Cortes var kórstjóri. Franska mezzó-
sópransöngkonan Sylvie Brunet söng titilhlut-
verkið og var vel studd af frábærum söngvurum
víða að úr heiminum.
Carmen eftir Bizet á Íslandi
Rík og
fjölbreytt
Íslensku söngvararnir þóttu standa sig mjög vel:
Hulda Björk Garðarsdóttir var Michaela, Ólafur
Kjartan Sigurðarson var Morales og Ingveldur Ýr
Jónsdóttir söng hlutverk Mercedes.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Að lokinni sýningu skálaði Jóhann Bjarni Pálmason,
sviðsmyndar- og ljósahönnuður, við Carmen sjálfa,
Sylvie Brunet.
80 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.45Ísl tal. Vit nr. 183.
Sýnd kl. 3.50. Vit nr. 210.
Sýnd kl. 8.30 og 10.15. Vit nr. 197.
Sýnd kl. 3.40, 5.50,8 og10.15. Vit nr. 207.
Forrester fundinn
Allir hafa
hæfileika,
þú verður
bara að
uppgötva þá.
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Good Will Hunting.
Vinsælasta Stúlka n
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 217.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. vit nr. 213 kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Vit nr. 214
"Sprenghlægileg ævintýramynd"
"Frábær mynd úr smiðju Disney þar sem nornin Isma
rænir völdum og breytir Keisaranum í lamadýr.
Nú þarf Keisarinn að breyta um stíl!"
"Brjáluð Gamanmynd"
Rocky
&
Bullwinkle
"Sandra Bullock þarf að hafa sig alla við til að geta
brugðið sér í gervi
fegurðardrottningar og komast að því hver er að eyði-
leggja keppnina. Frábær
grínmynd sem sló öll met í USA."
" r ll rf f i ll vi til t
r i r í rvi
f r r r tt i r t ví v r r y i-
l j i . r r
rí y l ll t í ."
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.35. B. i. 16. Vit nr. 201.
www.sambioin.is
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.45 og 8Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.16 ára.
Sýnd kl., 5.30, 8 og 10.30.
AI Mbl
TvíhöfðiKvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.15. B. i. 14.
Tilnefnd til 2 Óskarsverðlauna
Joan Allen, besti kvenleikari í aðalhlutverki
Jeff Bridges, besti karlleikari í aukahlutverki
Gary Oldman, Christian Slater
FRAMBJÓÐANDINN
Stundum getur
þú tekið
leiðtoga af lífi
án þess að
skjóta einu
einasta skoti
Kvikmyndir.com
HL Mbl
Lalli
Johns
eftir ÞorfinnGuðnason.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
THE GIFT
Vinsælasta Stúlka n
"Brjáluð Gamanmynd"
sýnd kl. 8 og 10.30.
kirikou
og galdrakerlingin
Sýnd kl. 6.
DV
HK DV
Strik.is
Ó.H.T Rás2
Tvíhöfði
"Sandra Bullock þarf að
hafa sig alla við til að
geta brugðið sér í gervi
fegurðardrottningar og
komast að því hver er að
eyðileggja keppnina.
Frábær
grínmynd sem sló öll met
í USA."
SV Mbl
Kontrabassaleikar-
inn nefnist einleikur
eftir þýska rithöf-
undinn sérstæða Pat-
rick Süskind. Hann
var frumsýndur í
Borgarleikhúsinu sl.
föstudagskvöld og
var það leikarinn
góðkunni Ellert A.
Ingimundarson sem
fer með hlutverk
kontrabassaleikar-
ans, en mótleikarar
hans eru hljóðfærið
hans og svo áhorf-
endur sem hann
beinir máli sínu til
allan tímann.
Kontrabassaleikar-
inn er æviráðinn op-
inber starfsmaður
sinfóníunnar sem
segir áhorfendum frá
blendnum tilfinning-
um sínum í garð
hljóðfærisins og
starfsins, og frá að-
dáun sinni á ungu
óperusöngkonunni
Söru sem hefur ekki
tekið eftir honum.
Leikritið er fyrsta skáldverk
þessa fræga höfundar og sló leik-
ritið strax í þegar það var frum-
sýnt í München árið 1981, en hef-
ur áður verið sýnt á Íslandi.
Samkvæmt leiklistargagnrýn-
anda Morgunblaðsins er Ellert
mjög góður í hlutverki sínu og
hefur leikstjóranum Kjartani
Ragnarssyni tekist að skapa
skemmtilega sýningu úr þessu
athyglisverða verki.
Kontrabassaleikari í Borgarleikhúsinu
Tilfinningar
tónlistarmanns
Morgunblaðið/Þorkell
Hjörleifur Sveinbjörnsson, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir,
leikstjórinn Kjartan Ragnarsson og Katrín Hall.
Morgunblaðið/Þorkell
Leikkonan Margrét Ólafsdóttir óskar
Ellerti til hamingju með frammistöðuna.