Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 57
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 61
Laugavegi 7, Rvík. S. 552 4242, bréfs. 552 2721.
UMSJÓNARFÉLAG EINHVERFRA: Hátúni 10B, 9. h.,
Reykjavík. Opið mið. kl. 9–17. S. 562 1590. Bréfs.
562 1526. Netfang: einhverf@itn.is
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FERÐAMÁLA: Bankastræti 2,
opið frá 16. september til 14. maí mán.–fös. kl. 9–17. Lau.
kl. 9–17. Lokað á sun. S. 562 3045, bréfs. 562 3057.
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ SUÐURLANDS: Breiðumörk 2,
Hveragerði. Opið frá 15. sept. til 15. maí á virkum dögum
kl. 10–17 og um helgar kl. 12–16. Sími 483 4601. Bréfsími:
483 4604. Netfang: tourinfo@hveragerdi.is
STUÐLAR, Meðferðarstöð fyrir unglinga, Fossaleyni 17,
uppl. og ráðgjöf s. 567 8055.
VÍMULAUS ÆSKA, foreldrahópurinn, Vonarstræti 4b.
Foreldras. 581 1799, opinn allan sólarhringinn. Foreldra-
húsið opið alla virka daga kl. 9–17, s. 511 6160 og
511 6161. Fax: 511 6162.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464 og grænt nr. 800–
6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að
tala við. Svarað kl. 20–23.
ÞJÓNUSTUSETUR LÍKNAFÉLAGA: Hátúni 10B. Opið
alla virka daga kl. 13-17. Allar upplýsingar og minning-
arkort félaga S: 551-7744.
SJÚKRAHÚS heimsóknartímar
SKJÓL HJÚKRUNARHEIMILI. Frjáls alla daga.
LANDSPÍTALINN – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
FOSSVOGUR: Alla daga kl. 15–16 og 19–20 og e. samkl. Á
öldrunarlækningadeild er frjáls heimsóknartími e.
samkl. Heimsóknartími barnadeildar er frá 15–16 og
frjáls viðvera foreldra allan sólarhringinn. Heimsóknar-
tími á geðdeild er frjáls.
GRENSÁSDEILD: Mánud.–föstud. kl. 16–19.30, laugard.
og sunnud. kl. 14–19.30 og e. samkl.
LANDAKOT: Á öldrunarsviði er frjáls heimsóknartími.
Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í s.
525 1914.
ARNARHOLT, Kjalarnesi: Frjáls heimsóknartími.
HRINGBRAUT: Kl. 18.30–20.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
BARNASPÍTALI HRINGSINS: Kl. 15–16 eða e. samkl.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
KVENNADEILD, KVENLÆKNINGAD. Kl. 18.30–20.
SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14–21 (feður, systkini,
ömmur og afar).
VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30–20.
SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar-
tími kl. 14–20 og eftir samkomulagi.
ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFN.: Alla d. kl. 15–16 og 19–19.30.
SJÚKRAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar-
tími a.d. kl. 15–16 og kl. 18.30–19.30. Á stórhátíðum kl.
14–21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar
Suðurnesja er 422 0500.
SJÚKRAHÚS AKRANESS: Heimsóknartímar eru frá kl.
15.30–16 og 19–19.30.
AKUREYRI – SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga
kl. 15.30–16 og 19–20. Á barnadeild og hjúkrunardeild
aldraðra Sel 1: kl. 14–19. Slysavarðstofusími frá kl. 22–8,
s. 462 2209.
BILANAVAKT
VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfum Orkuveitu
Reykjavíkur (vatns-, hita- og rafmagnsveitu) sími
585 6230 allan sólarhringinn. Kópavogur: Vegna bilana á
vatnsveitu s. 892 8215. Rafveita Hafnarfjarðar bilana-
vakt 565 2936
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA: Sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir
og liðsinnir utan skrifstofutíma.
SÖFN
ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar eru lokuð frá 1. sept-
ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13. Einnig er
tekið á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn.
Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8–16 alla virka daga.
Nánari upplýsingar í s. 577 1111.
BORGARBÓKASAFN, aðalsafn, Tryggvagötu 15: Sími:
563 1717, fax: 563 1705. Opið mánud–fimmtud. kl. 10–20.
Föstud. kl. 11–19. Laug. og sun kl. 13–17.
BORGARBÓKASAFNIÐ í Gerðubergi, Gerðubergi 3–5:
Sími: 557 9122, fax: 575 7701. Mánud.–fimmtud. kl. 10–20,
föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. og
sunnud. kl. 13–16.
BÚSTAÐASAFN v/Bústaðaveg: Sími: 553 6270, fax: 553
9863. Mánud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19.
Sept.–maí er einnig opið laugard. kl. 13–16.
BÓKABÍLAR:Bækistöð í Bústaðasafni, sími: 553
6270.Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Bókabílar
ganga ekki í tvo mánuði að sumrinu og er það auglýst sér-
staklega.
FOLDASAFN v/Fjörgyn:Sími: 567 5320, fax: 567 5356. Má-
nud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er
einnig opið laugard. og sunnud. kl. 13–16.
SELJASAFN, Hólmaseli 4–6: Sími: 587 3320. Mánud. kl.
11–19, þriðjud.–föstud. kl. 11–17. Sumarafgreiðslutími
auglýstur sérstaklega.
SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27: Sími: 553 6814. Mánud.–
fimmtud. kl. 10–19, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig
opið laugard. kl. 13–16.
BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verður
lokað fyrst um sinn vegna breytinga.
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.–fös. 10–20. Opið
lau. 10–16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3–5: Mán.–fim. kl.
10–21, fös. kl. 10–17, lau. (1. okt.–30. apríl) kl. 13–17. Les-
stofan opin frá (1. sept.–15. maí) mán.–fim. kl. 13–19, fös.
kl. 13–17, lau. (1. okt.–15. maí) kl. 13–17.
BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið
mán.–fim. kl. 20–23.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mán. til fös kl. 9–12 og kl. 13–16. S. 563 1770.
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: Op-
ið alla daga frá kl. 10–18 til ágústloka. S: 483 1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús, Vest-
urgötu 6, 1. júní–30. ág. er opið alla daga frá kl. 13–17, s:
555 4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní–30. sept. er
opið alla daga frá kl. 13–17, s: 565 5420, bréfs. 565 5438.
Siggubær, Kirkjuvegi 10, 1. júní–30. ág. er opið lau.–sun..
kl. 13–17. Skrifstofur safnsins verða opnar alla virka daga
kl. 9–17.
BYGGÐASAFNIÐ Í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30–16.30 virka daga. S. 431 11255.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s.
423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir
samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið þri.
og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S. 551 6061.
Fax: 552 7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.–fim. kl. 8.15–22. Fös. kl. 8.15–19 og lau. 9–17.
Sun. kl. 11–17. Þjóðdeild lokuð á sun. og handritadeild er
lokuð á lau. og sun. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Op-
ið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið lau. og
sun. frá kl. 14–17. Lokað í desember og janúar.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16.
Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internet-
inu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða
safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gam-
alt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara.
Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi,
kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eld-
horn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrif-
stofan opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4. Sími 551–
7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8–19.
Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19. Breið-
holtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Graf-
arvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri., mið. og
fös. kl. 17–21.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl.
11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–21,
lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða
og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laug-
ardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á
Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og föstud. kl.
14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.
SLÁTURFÉLAG Suðurlands stóð
fyrir uppskriftasamkeppni meðal
matreiðslunema á Íslandi 24. mars
sl. „Tilgangur keppninnar var að
virkja matreiðslunema og kynna
stóreldhúsavörur Sláturfélagsins.
Skilyrðin fyrir þátttöku voru þau
að neminn varð að vera á samn-
ingi. Nota þurfti Barilla-pasta og
Marie Brizard-matarvín og/eða
McCormick-krydd,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Sláturfélagi Suður-
lands.
„Kokkalandsliðið valdi sex upp-
skriftir í úrslitakeppnina og hinn
24. mars var barist um titilinn
Neminn 2001 í Hótel- og matvæla-
skólanum í Kópavogi. Keppendur
höfðu eina klst. til þess að elda og
bera fram réttinn.
Friðgeir Ingi Eiríksson
krýndur Neminn 2001
Friðgeir Ingi er nemi á Holtinu
og gerði hann cannelloni-humar og
hörpu-pasta. Hann hlaut að launum
ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar
með Samvinnuferðum-Landsýn,
gjafabréf að upphæð 50.000 kr. frá
Ísbergi og matarkörfu frá Slát-
urfélagi Suðurlands. Að auki fékk
hann til varðveislu Nemabikarinn,
sem er farandbikar, og verðlauna-
pening til eignar.
Í öðru sæti hafnaði Atli Ottesen,
nemi á Sommelier, með kaldreykt-
an lax á hörpuskelsfrauði í fylgd
með spaghetti og shitakesveppa-
terrine. Hann hlaut að launum
gjafabréf að upphæð 30.000 kr. frá
Ísbergi og matarkörfu frá Slát-
urfélagi Suðurlands að ógleymdum
verðlaunapeningnum.
Í þriðja sæti varð svo eina stúlk-
an í keppninni, Hrefna Rósa Jó-
hannsdóttir, nemi á Apótekinu,
með saltfisks-lasagne með porto-
bello-sveppum og kardimommu-
vanillu-sósu. Hún hlaut að launum
gjafabréf að upphæð 30.000 kr. frá
Ísbergi, matarkörfu frá Slát-
urfélagi Suðurlands og verðlauna-
pening til eignar,“ segir þar jafn-
framt.
Þátttakendur í nemakeppninni.
Uppskriftakeppni
meðal matreiðslunema
TIL landsins eru komnir 11 hlaup-
arar frá 12 Evrópulöndum og
munu þeir ásamt íslenskum hlaup-
urum hlaupa með 3.000 krökkum á
aldrinum 10–12 ára í 26 grunn-
skólum í Reykjavík í dag og á
morgun, föstudag.
Í fréttatilkynningu segir: „Frið-
arhlaupið fór fyrst af stað 1987 og
síðan þá hefur það verið hlaupið í
öllum heimsálfum og yfir 126 lönd-
um. Því hefur vaxið fiskur um
hrygg á þeim 14 árum sem liðin
eru síðan það byrjaði, fjöldi þátt-
takenda hefur aukist gríðarlega og
leiðin sem hlaupin er hefur tvö-
faldast. Þessi koma hlauparanna
frá Evrópu tengist Evrópufriðar-
hlaupinu en það er hlaupið um öll
lönd Evrópu og byrjaði í Lissabon
í Portúgal 1. mars síðastliðinn.
Hér á landi verður hlaupið á
fimmtudag og föstudag milli allra
grunnskóla Reykjavíkur og endað
með lokaathöfn í Laugardal í há-
deginu á föstudeginum. Hlaupar-
arnir halda síðan af landi brott eft-
ir lokaathöfn hlaupsins á
föstudag.“
Friðarhlaup í
grunnskólum
Reykjavíkur
NEMENDUR í námskeiðinu
Tæknileg iðnhönnun við verkfræði-
deild Háskóla Íslands munu
fimmtudaginn 5. apríl kynna sam-
anburð á hönnunarkerfunum Solid
Works og Inventor frá Autodesk.
Þetta eru öflug þrívíddarhönnunar-
kerfi sem hafa náð mikilli út-
breiðslu á undanförnum árum og
hafa þau gjörbreytt starfsumhverfi
hönnuða og tæknimanna.
Í námskeiðinu eru tveir hópar.
Annar hópurinn fjallar um Solid
Works og hinn um Inventor og
munu hóparnir keppa um það hvort
kerfið er betra. Keppnin hefst kl 14
í tölvuveri véla- og iðnaðarverk-
fræðiskorar í VR II við Hjarðar-
haga 2–6, þar sem hóparnir fá tvö
eins verkefni sem þeir eiga að leysa
fyrir kl. 18.
Hóparnir hafa komið sér upp
heimasíðum og er Inventor-hópur-
inn sem styrktur er af CAD hf. með
síðuna http://inventor.verkefni.com
og Solid Works-hópurinn sem hefur
verið í tengslum við Marel með síð-
una http://solid.works.verkefni.com.
Öllum er heimill aðgangur að
keppninni meðan húsrúm leyfir.
Kynna sam-
anburð á
hönnunar-
verkefnum
HALDINN verður basar laugardag-
inn 7. apríl kl. 14 í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg í Reykjavík. Er
þetta liður í fjáröflun vegna fyrir-
hugaðra byggingaframkvæmda í
sumarbúðum KFUK í Vindáshlíð í
Kjós.
„Sumarbúðirnar hafa verið starf-
ræktar í rúm 50 ár og dvelja þar um
700 stúlkur á sumri hverju. Nú er
áformað að reisa rúmlega 400 fer-
metra viðbyggingu norðan við gamla
svefnskálann og stendur til að hefj-
ast handa við verkið í haust.
Á basarnum nk. laugardag verður
hægt að kaupa kökur og páska-
skraut og styrkja um leið gott mál-
efni. Skráning í sumarbúðirnar er
hafin á aðalskrifstofu KFUM og
KFUK við Holtaveg,“ segir í frétta-
tilkynningu frá KFUM og KFUK.
Kökubasar fyrir
Vindáshlíð
STOFNFUNDIR Samfylkingar-
félaga á Dalvík og Akureyri fara
fram laugardaginn 7. apríl.
Stofnfundur Samfylkingarfélags á
Dalvík kl. 14 á Kaffi menningu.
Stofnfundur Samfylkingarfélags á
Akureyri kl. 16.30 á Fosshóteli KEA.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, Margrét Frí-
mannsdóttir varaformaður og Svan-
fríður Jónasdóttir alþingismaður
ávarpa fundina.
Allir velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu frá Samfylkingunni.
Stofnfundir
Samfylkingar-
félaga á Norður-
landi eystra
BJÖRGUNARSKÓLI Slysavarna-
félagsins Landsbjargar stendur
fyrir fræðsluþingi dagana 7.-8.
apríl um björgunar-og slysavarna-
mál. Fræðsluþingið verður haldið í
Grunnskólanum á Húsavík og
hefst kl. 9.
Á tveggja ára fresti heldur
Slysavarnafélagið Landsbjörg ráð-
stefnuna Björgun í Reykjavík.
Þess á milli eru haldin fræðsluþing
víða um land til þess að gefa öllum
félögum í samtökunum og öðrum
viðbragðsaðilum tækifæri til að
fylgjast með því nýjasta sem er á
döfinni í björgunar- og slysavarna-
málum. Þingið á Húsavík er haldið
í samvinnu við Björgunarsveitina
Garðar og kvennadeild Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar á
Húsavík.
Á þinginu verða flutt fjöldamörg
erindi um björgunar- og öryggis-
mál. Þar má nefna erindi Ragnars
Stefánssonar jarðeðlisfræðings um
jarðskjálfta og jarðskjálftahættu á
Norðurlandi. Einnig verður fjallað
um viðbrögð björgunarsveita
vegna hópslysa, slysa í vötnum,
áfallahjálpar og leitar að týndu
fólki, svo eitthvað sé nefnt.
Dagskrá þingsins er hægt að
kynna sér á heimasíðu Slysavarna-
félagsins Landsbjargar; http://
www.landsbjorg.is, samkvæmt því
sem fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg.
Fræðsluþing um
björgunar- og
slysavarnamál
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
MORGUNVERÐARFUNDUR um
foreldrafærniþjálfun verður haldinn
á Hótel Sögu fimmtudaginn 5. apríl
kl. 8.30–10.30.
Þá mun dr. Marion Forgatch, sér-
fræðingur í fjölskyldumeðferð og
rannsóknum, halda fyrirlestur um
efnið. Hér er um að ræða meðferð-
arúrræði ætlað foreldrum barna
með hegðunarerfiðleika, byggð á
þekktri kenningu Geralds Patterson
um þróun andfélagslegs persónu-
leika, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur um
foreldra-
færniþjálfun