Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 37
Í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Leynifélagið
Opið virka daga 10 -18. Laugardaga 11 - 15
Fjöldi
bókatitla
með allt að
90%
afslætti!
Tilboð vikunnar! K
ostaboð da
gsins!
Veglegur bókamarkaður IÐUNNAR ...
Mikið ú
rval af
barna-
og ung
lingabó
kum!
HVAÐ er djákni? er algengasta
spurningin sem djáknar fá er þeir
kynna sig fyrst. Orðið djákni er
dregið af gríska orðinu diakonein
sem þýðir þjónusta.
Djákninn stendur mitt
á milli orðsins þjón-
ustu, þ.e. prestsins,
sem hann tengist með
vígslu, og annarra í
söfnuðinum sem gegna
sínum kristilegu skyld-
um í daglegu lífi.
Djákni er samstarfs-
maður presta og gegnir
ákveðnum afmörkuð-
um skyldum undir
stjórn sóknarprests og
í samráði við hann.
Verkefni umönnunar,
líknar og fræðslu eru
þar í fyrirrúmi. Þar
undir geta fallið hús-
vitjanir á heimili eða á
stofnanir, æskulýðs- og öldrunar-
starf. Sálgæsla getur verið mikill
hluti þjónustu djákna, fyrirbæna-
þjónusta og það að biðja með fólki.
Mikilvægt er að djákninn taki þátt í
helgihaldinu, að djáknaþjónustan
komi frá altarinu og að hún verði
sýnileg úti í samfélaginu. Það eru
sóknarnefndir sem kalla djákna til
þjónustu í kirkju, en biskup auglýsir.
Ef biskup samþykkir köllun djákna
er hann vígður með bæn og handa-
yfirlagningu á sama hátt og prestur.
Þjónusta við náungann
Breytni Jesú sjálfs er fremsta og
mesta sönnun fyrir því að kærleikur
og þjónusta við náungann er afger-
andi í kristinni trú. ,,Sannlega segi
ég yður, það allt, sem þér gjörðuð
einum minna minnstu bræðra, það
hafið þér gjört mér.“ (Mt.25:40). Það
getur verið tímabundið ástand að
vera minnimáttar en sumir þurfa að
búa við það varanlega. Tákn kær-
leiksþjónustunnar er krossinn með
kórónu lífsins, sem táknar að neyð
og dauði séu sigruð í upprisu Jesú
Krists og þeirri trú sem starfar í
kærleika.
Sambandið milli kirkju og djákna-
þjónustu er: Kirkjan er þar sem
Kristur er. Kirkjan er ekki aðeins
hópur fólks sem hefur safnast um
ákveðna trú, leitt af sömu sannfær-
ingu. Kirkjan er einnig
samfélag um hinn upp-
risna lifandi Krist sem
er nálægur í kirkju
sinni. Þess vegna eiga
hinir skírðu og trúuðu
að vinna verk Krists
hér á jörðinni með því
að predika um Guðs
ríki og með því að þjóna
náunganum eða eins og
Jesús lagði kærleiks-
boðorðið út.
Margir telja að eitt
af því besta sem ís-
lenska þjóðkirkjan hef-
ur gert undanfarin ár
sé að hún kom á
djáknaembættum.
Djáknaþjónustan
gengur út á það að rjúfa einangrun,
að skapa samfélag, að lina þjáningar
og að glæða von.
Djákni er að vera hendur Krists á
jörð. Djákni á að gera fagnaðarer-
indið sýnilegt með því að skýla,
hjálpa og aðstoða þá sem þess þurfa.
Hann á að hugga hina syrgjandi og
kenna hinum spyrjandi um veg kær-
leikans. Djákninn á að benda á nær-
veru Guðs ríkis í samfélaginu. Hann
ber neyð fólks fram í bæn frammi
fyrir Guði. Djákni lítur til Krists,
þjóns þjónanna, og þannig fær hann
djörfung til að vera þjónn hins guð-
dómlega kærleika.
Ný braut rudd í þjónustu
fagnaðarerindisins
Íslenska kirkjan er töluvert á eftir
nágrannalöndum okkar hvað
djáknaþjónustu eða diakoni varðar.
En að nokkrir söfnuðir og stofnanir
hafa ráðið til sín djákna sýnir að
áhugi á aukinni kærleiksþjónustu,
líknar- og fræðslustarfi er að aukast.
Þjóðkirkjan hefur tryggt djáknum
menntun og trúað þeim fyrir ábyrgð
til að ryðja nýjar brautir í þjónustu
fagnaðarerindisins. Vonandi fá sem
flestir söfnuðir landsins að njóta
þjónustu þeirra.
Hvað er
djákni?
Lilja G.
Hallgrímsdóttir
Höfundur er djákni í Fella- og
Hólakirkju í Reykjavík.
Þjónusta
Djáknaþjónustan
gengur út á það, segir
Lilja G. Hallgríms-
dóttir, að rjúfa ein-
angrun, að skapa sam-
félag, að lina þjáningar
og að glæða von.
Á ÍSLANDI starfar
nú á þriðja hundrað
manns við lyfjaiðnað.
Þetta er hópur sem
skilar þjóðarbúinu
miklum verðmætum
og hagræði, bæði í
formi þeirrar verð-
mætasköpunar sem
fer fram við fram-
leiðslu lyfjanna hér á
landi og verulegra
gjaldeyristekna se-
mútflutningur lyfja og
lyfjatengds hugvits
skapar fyrir þjóðarbú-
ið. Þá hafa innlendir
lyfjaframleiðendur
verið brautryðjendur í
lækkun lyfjaverðs á markaðnum.
Saga lyfjaframleiðslu á Íslandi
nær aftur til fyrri hluta þessarar
aldar þegar Reykjavíkurapótek og
Laugavegsapótek framleiddu ýmis
lyf í apótekunum sjálfum. Eftir því
sem kröfur fóru vaxandi um stöðl-
uð gæði og samræmingu í lyfja-
skráningu milli landa dró úr slíkri
framleiðslu og sérhæfð lyfjafram-
leiðslufyrirtæki hófu starfsemi.
Eins og á öðrum sviðum atvinnu-
lífsins hafa orðið talsverðar svipt-
ingar í lyfjaiðnaði, fyrirtæki sam-
einuð, önnur lögð niður og ný
stofnuð. Nú starfa tvö fyrirtæki við
lyfjaframleiðslu á Íslandi, það eru
Omega Farma og Delta.
Íslensku lyfjafyrirtækin hafa
löngum haft viðunandi markaðs-
stöðu og nú má áætla að þau hafi
tæplega 20% markaðshlutdeild á
innanlandsmarkaði. Á bak við
þessa sölu stendur íslenskt hugvit
og verðmætasköpun í innlendri
framleiðslu.
Útflutningur
Ljóst hefur verið í nokkurn tíma,
að útflutningur á lyfjum og lyfja-
tengdu hugviti er nauðsyn, til að
renna styrkari stoðum undir lyfja-
iðnað á Íslandi. Segja má að vaxt-
armöguleikar íslensks lyfjaiðnaðar
felist í sókn á erlendan markað,
sérstaklega á tímum alþjóðavæð-
ingar.
Útflutningur lyfja frá Íslandi
hófst árið 1987. Fyrst var leitað
hófanna á Írlandi, en Norðurlönd-
in, Bretland og Þýskaland fylgdu í
kjölfarið. Frekar var kosið að bera
niður á kröfuhörðum markaði í
Evrópu og byggja útflutninginn á
gæðum, í stað þess að leggja til at-
lögu við fjarlægari markaði, þar
sem kröfur eru minni og byggjast
meira á miklu magni og lágu verði.
Þessi nálgun hefur skilað því að nú
hafa íslensk lyfjafyrirtæki náð að
komast inn á enn fleiri markaði.
Auk þeirra landa sem fyrst voru
talin hafa lyf og lyfjahugvit frá
Delta og Omega Farma verið
markaðssett í fjölmörgum löndum
og má þar nefna Tékkland, Frakk-
land, Ísrael, Sviss, Austurríki, Hol-
land, Belgíu, Grikkland, Spán,
Kýpur, Ungverjaland, Slóvakíu,
Lettland, Litháen, Suður-Afríku,
Singapúr og Ástralíu.
Samstarf hefur verið við innlend
lyfjafyrirtæki á hverjum stað um
markaðssetningu á lyfjum. Samn-
ingar hafa verið gerðir um fram-
leiðslu og sölu lyfja í fjölmörgum
löndum fram yfir árið 2010.
Tækifæri íslensks
lyfjaiðnaðar
Frá 1. janúar 1995 hafa gilt hlið-
stæð lög á Íslandi og í flestum öðr-
um löndum Evrópu um einkaleyf-
isvernd. Fram til þess tíma voru
lögin með öðrum hætti á Íslandi og
hefur það veitt íslenskum lyfjafyr-
irtækjum ákveðna möguleika um-
fram erlenda keppinauta. Þótt
hægt væri að sækja um einkaleyfi á
Íslandi létu mörg erlend fyrirtæki
það undir höfuð leggjast og hefur
það gefið íslenskum lyfjaframleið-
endum færi á að vinna með lyfja-
efni og þróa framleiðsluaðferðir og
ný lyfjaform, þó svo að ekki hafi
verið unnt að hefja útflutning fyrr
en einkaleyfi var útrunnið í við-
komandi löndum. Íslensk fyrirtæki
hafa því staðið vel að vígi, þegar
opnast fyrir útflutning. Slíkt tæki-
færi gafst snemma árs 1995 í
Þýskalandi og það nýtti Delta. Á
því eina ári margfaldaðist útflutn-
ingurinn og fór úr 39 milljónum
króna í 650 milljónir. Svipað var
uppi á teningnum í ársbyrjun síð-
asta árs þegar hjartalyfið lisinopril
fór af einkaleyfi í Þýskalandi.
Omega Farma hefur einnig þró-
að og framleitt lyf á markað í
Þýskalandi. Lyfin doxazosin og bis-
oprolol eru gefin við háþrýstingi og
í meðferð vegna stækkunar blöðru-
hálskirtils. Sú staðreynd að ís-
lenskt lyf er viðurkennt á markaði
ytra sýnir að það er eins og frum-
lyfið, sem er mjög mikilvægt því
uppfylla þarf ýtrustu kröfur um
gæði lyfjanna og þær upplýsingar
sem þeim fylgja til að komast inn á
markað þar. Þetta er því ákveðinn
gæðastimpill á íslenskri lyfjafram-
leiðslu.
Sala á lyfjahugviti, þ.e. skráning-
argögnum fyrir lyf, sem unnin eru
af íslenskum vísinda- og tækni-
mönnum, er ört vaxandi þáttur út-
flutningsins. Þau ryðja fyrirtækj-
unum braut inn á markaðina. Á
síðasta ári nam útflutningur á lyfj-
um og lyfjahugviti um 1.600 millj-
ónum og stefnir hann í 2.100 millj-
ónir á þessu ári.
Framtíðin
Íslensk lyfjafyrirtæki stefna að
því að taka þátt í spennandi þróun
lyfjaiðnaðar í framtíðinni. Það er
ekki hægt, nema til komi þekking,
framsýni og vilji til að gera vel. Ef
íslensk lyfjaframleiðslufyrirtæki
vilja vera með í þróuninni verða
þau að hafa fullkomnasta búnað og
búa yfir mannauði, til að takast á
við krefjandi verkefni. Reynt hefur
verið að skjóta styrkum stoðum
undir þessa starfsemi, kalla fram
hagræðingu, gera framleiðsluað-
stöðuna góða og nýta hana sem
best. Stefnan hefur nú verið tekin á
að hefja þróun og útflutning lyfja
inn á kröfuharðasta lyfjamarkað
heims, Bandaríkjamarkað.
Mikilvægur þáttur í framrás ís-
lenskra fyrirtækja er samstarf við
erlend lyfjafyrirtæki þar sem sér-
þekking hvors aðila um sig nýtist
til að auka getu til þróunarverk-
efna og framleiðslu. Það er því
óhætt að fullyrða að íslensk lyfja-
fyrirtæki standa framarlega í hópi
þeirra fyrirtækja sem fara munu
fyrir sókn íslensks hugvits inn í
nýja öld. Þar verða þekking og
mannauður helstu markaðsafurðir
þjóðarinnar.
Eyþór E.
Sigurgeirsson
Lyf
Íslensk lyfjafyrirtæki
standa framarlega í hópi
þeirra fyrirtækja, segja
Björn Aðalsteinsson og
Eyþór E. Sigurgeirs-
son, sem fara munu fyr-
ir sókn íslensks hugvits
inn í nýja öld.
Björn er forstöðumaður markaðs-
sviðs Delta hf. og Eyþór er mark-
aðsstjóri Omega Farma ehf.
Björn
Aðalsteinsson
Íslenskur lyfjaiðnaður
– þjóðþrifastarfsemi
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is