Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar
verður haldinn fimmtudaginn 3. maí kl. 17.00
á 4. hæð í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kynning á meðaltalsreglu
3. Önnur mál
Stjórnin.
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
í Teigahverfi
á Akureyri
•
Blaðburður verður að hefjast um
leið og blaðið kemur í bæinn.
Góður gö gutúr sem borgar sig!
Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Sími 461 1600
„HÉRAÐ, sem er helgað skóla-
málum, rannsóknum og vísindum;
hérað sem ætlar sér stóran hlut í
upplýsingasamfélaginu; hérað
sem á sér athyglisverða fortíð, á
að einsetja sér að koma upp mið-
aldasafni og kynna miðaldamenn-
ingu þjóðarinnar,“ segir Tómas
Ingi Olrich alþingismaður í grein
sem hann ritar í vefritið Íslend-
ing.
Tómas Ingi leggur til í grein
sinni að sett verði upp miðalda-
safn á Akureyri sem einbeiti sér
að því að varpa ljósi á þéttbýlis-
myndun að Gásum, á viðskipta-
sögu og tengsl við meginlandið, á
siglingar og samgöngur og á laga-
setningu um viðskipti.
Arfurinn fólginn
í upplýsingum
Miðaldasafnið eigi að ganga út
frá þeirri staðreynd, sem ein-
kenni menningararf þjóðarinnar,
en það sé að arfurinn sé ekki fólg-
in í mannvirkjum heldur upplýs-
ingum. Meginviðfangsefni Íslend-
inga í kynningu á menningararfi
þjóðarinnar sé því að gera upplýs-
ingar aðgengilegar og sýnilegar.
Slíkt verkefni krefjist ekki síður
þekkingar á sviði framsetningar,
auglýsingatækni og grafískrar
tölvutækni en þekkingar á sviði
sagnfræði og fornleifafræði.
„Ég sé fyrir mér að slíkt safn
væri mjög tæknivætt. Grunnur að
slíku verkefni er því þekking og
færni á sviði sagnfræði, fornleifa-
fræði, textarýni og bókmennta-
fræði, lögfræði, myndlist og graf-
ík, hugbúnaði og tölvugrafík. Með
öðrum orðum á safnið að einbeita
sér að því að reiða sig á að geta
virkjað víð þekkingarsvið. Við bú-
um við það forskot að þekking á
öllum þessum sviðum fer hratt
vaxandi á Akureyri. Forsendur
þess að hér verði til safn af þess-
ari gerð eru því að verða til,“ seg-
ir Tómas Ingi í grein sinni.
Styrkir Ísland
sem menningarþjóð
Hann segir verkefni af þessu
tagi verða til þess að leiðrétta
þær hugmyndir sem við gerum
okkur um fortíð þjóðarinnar. Með
þessum hætti yrði verkefnið til
þess að styrkja ímynd Íslands
sem menningarþjóðar og áfanga-
staðar fyrir menningartengda
ferðaþjónustu en síðast en ekki
síst yrði það til að endurreisa
menningarsögulega ímynd hér-
aðsins. Bendir hann í því samb-
andi á að engin kynning fari nú
fram á íslenskum miðöldum í
Eyjafirði, engin kynning sé á
Gásakaupstað, engar fornleifa-
rannsóknir sem standi undir
nafni fari fram í héraðinu, sem
verið hafi uppspretta auðs og
áhrifa á miðöldum og í tengslum
við Hóladómstól verið síðasta vígi
íslenskrar sjálfstæðisbaráttu í
kaþólskum sið. „Við hér í þessu
héraði erum því hluti af van-
ræksludæmi.“
Tómas Ingi Olrich alþingismaður
Miðaldasafn
verði reist á
Akureyri
ALÞJÓÐLEGT mót í snjókrossi á
vélsleðum verður haldið í miðbæ
Ólafsfjarðar á laugardag, 28. apríl.
Þetta er annað árið í röð sem slíkt
mót fer þar fram en í fyrra komu
tveir keppendur frá Noregi og fjórir
frá Rússlandi. Víðtækt kynningar-
starf í útlöndum hefur nú skilað góð-
um árangri því þátttakendur nú
koma frá Bandaríkjunum, Noregi,
Finnlandi og Rússlandi auk Íslands
og er um að ræða keppendur í
fremstu röð í sínum heimalöndum.
Gera má því ráð fyrir að ekki hafi áð-
ur farið fram sterkara aksturs-
íþróttamót hér á landi. Alls koma
fjórir keppendur frá Bandaríkjun-
um, þrír frá Noregi, einn frá Finn-
landi og sex frá Rússlandi. Þeir síð-
astnefndu munu líkt og í fyrra fljúga
í beinu flugi til Akureyrar í herflutn-
ingavél með keppnissleða og allan
búnað. Bandarísku keppendurnir
koma einnig með eigin keppnissleða
til landsins, en þeir finnsku og
norsku koma með breytingabúnað
og fá uppsetta keppnissleða frá ís-
lenskum umboðum.
Þáttur um keppnina verður sýnd-
ur í Ríkissjónvarpinu í næsta mán-
uði. Snjókrossmót vetrarins hafa
dregið að sér þúsundir áhorfenda og
skipað íþróttinni á bekk með þeim
vinsælustu í íslensku mótorsporti.
Keppnin hefst kl. 13 á laugardag,
en jafnframt því sem um alþjóðlegt
mót er að ræða er hún lokaumferð í
keppninni um Íslandsmeistaratitla í
snjókrossi. Að keppni lokinni verður
grillveisla á mótssvæðinu fyrir kepp-
endur og áhorfendur, flugeldasýning
verður kl. 23 við Tjarnarborg og
dansleikur með Greifunum. Á
sunnudag verður efnt til hópferðar
með hinna erlendu keppendur um
fjalllendið í nágrenni Ólafsfjarðar og
er sleðafólki frjálst að slást með í för.
Fjórtán út-
lendir
keppendur
Alþjóðlegt snjókross-
mót í Ólafsfirði
SAMNINGUR um samstarf milli
Háskólans á Akureyri og Lands-
virkjunar hefur verið undirritaður,
en hann er til fimm ára. Markmið
hans er að efla grunnrannsóknir á
þeim fagsviðum sem tengjast rann-
sóknum og nýtingu á orkulindum
landsins og áhrifum hennar á sam-
félag og umhverfi. Því verður náð
með því að efla kennslu og rannsókn-
ir við Háskólann á Akureyri og mun
hann í því skyni setja á fót stöðu pró-
fessors í jarðhitafræðum og nýta til
þess styrk frá Landsvirkjun.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, sagði að samn-
ingurinn kæmi í beinu framhaldi af
þeirri stefnu háskólans að eiga sam-
vinnu við öflug fyrirtæki og stofnanir
sem stunda rannsóknir, en á síðustu
misserum hefði háskólinn eflt mjög
starfsemi sína á sviði orkumála.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði að fyrirtækið
hefði á síðustu árum lagt gífurlega
fjármuni í grunnrannsóknir á sínu
sviði og skilað þannig mikilli þekk-
ingu inn í landið. Hann nefndi að Ak-
ureyrarbær ætti um 5% í Lands-
virkjun og að fyrirtækið hefði öfluga
starfsemi norðanlands. Framundan
væri að vinna að því að nýta orku-
lindir enn betur og í því skyni horfðu
menn til stækkunar í Kröflu og í
Bjarnarflagi. Það skipti því fyrir-
tækið miklu máli að starfsemi þess
væri öflug í þessum landshluta.
Á næstu fimm árum mun Lands-
virkjun greiða framlög til Háskólans
á Akureyri sem samtals nema 23
milljónum króna og það verður nýtt í
þágu kennslu og rannsókna á sviði
jarðhitafræða. Á móti kemur árlegt
vinnuframlag háskólans við rann-
sóknarverkefni og sérfræðistörf fyr-
ir Landsvirkjun sem jafngildir hálfu
ársverki prófessors.
Stefnt er að því að Háskólinn á
Akureyri ráði prófessor með mikla
reynslu og sérþekkingu í jarðhita-
fræðum, en nú þegar starfar einn
prófessor við háskólann með sér-
þekkingu á jarðhita. Stefna forsvars-
menn háskólans að frekari uppbygg-
ingu rannsókna á sviði auðlinda-
nýtingar og umhverfisfræða.
Samstarf milli Háskólans á Akureyri og Landsvirkjunar
Grunnrannsóknir efldar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður stjórnar.
SELMA og Lilja, nemar við Verk-
menntaskólann á Akureyri, eru að
búa sig undir íslenskupróf en það
er kannski ekki svo auðvelt að gera
það innandyra þegar veðrið er
svona gott.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Lesið undir próf