Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 20
SUÐURNES
20 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÝMINGARSALA
Stakir stólar, sófar, sófaborð, náttborð,
sjónvarpsborð, tölvuborð, hillusamstæður,
forstofuspeglar og margt fleira.
Síðumúla 13, sími 588 5108.
ÓLAFUR Thordersen, fulltrúi Bæj-
armálafélags jafnaðar- og félags-
hyggjufólks í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar, segir að mannvirkin á
Nikkelsvæðinu séu orðin að slysa-
gildru fyrir börn og mikilvægt að fjar-
lægja þau sem fyrst. Tillaga minni-
hlutans um að skora á
utanríkisráðherra að láta hreinsa
svæðið var felld á bæjarstjórnarfundi
í fyrrakvöld.
Ólafur segir að girðingin á milli
byggðarinnar og Nikkelsvæðisins sé
orðin léleg og dæmi um að börn séu
þar að leik, meðal annars uppi á tönk-
unum. Svæðið sé því orðið að slysa-
gildru sem íbúar hafi áhyggjur af. Þá
segir Ólafur að sjónmengun sé af
ónýtum mannvirkjum á svæðinu auk
þess sem Reykjanesbær þurfi á land-
inu að halda til uppbyggingar.
Fulltrúar Bæjarmálafélagsins sem
eru í minnihluta lögðu fram bókun á
fundi bæjarstjórnarinnar. Þeir lýstu
furðu sinni á því að ekki bólaði á
hreinsun Neðra-Nikkelsvæðis þrátt
fyrir samning við bandarísk stjórn-
völd á árinu 1996 þar sem íslensk
stjórnvöld tóku að sér hreinsun allra
mannvirkjaleyfa. Lögðu bæjarfull-
trúarnir til að skorað yrði á utanrík-
isráðherra að standa við sinn hluta
samningsins sem fyrst.
Fram kom af hálfu fulltrúa meiri-
hlutans að málið er að leysast og
áskorunin því óþörf. Var tillagan felld
með sex atkvæðum meirihlutans
gegn fjórum atkvæðum minnihlutans
en Böðvar Jónsson, einn af fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins, sat hjá.
Reykjanesbær
Áskorun minnihlutans felld
Slysagildra fyrir börn
„MEÐ því að halda okkar striki,
standast staðla og reglur fyrir
þessa þjónustu og reyna heldur
að bæta í,“ segir Haraldur Stef-
ánsson, slökkviliðsstjóri á Kefla-
víkurflugvelli. Slökkviliðið fékk í
gær afhent æðstu verðlaun á sviði
brunavarna í samkeppni allra
slökkviliða Bandaríkjaflota, í
þriðja skiptið í röð.
Slökkviliðið á Keflavík-
urflugvelli hefur oft fengið verð-
laun í samkeppni slökkviliða
Bandaríkjaflota. Það hefur til
dæmis hafnað í einu af þremur
efstu sætunum í stórhús-
brunadeild keppninnar síðastliðin
fimmtán ár og vinnur nú til
fyrstu verðlauna þriðja árið í röð.
„Við verðum að fara að hætta
þessu, annars fara þeir að leggja
keppnina niður. Það er ekki eins
gaman þegar sömu mennirnir
vinna alltaf,“ segir Haraldur.
Mark H. Anthony, yfirmaður
flugflotadeildar varnarliðsins, af-
henti í gærmorgun Haraldi far-
andbikar til staðfestingar árangr-
inum við athöfn í slökkvistöðinni.
Ekkert brunatjón
í fjögur ár
Slökkviliðið útbýr nákvæma
skýrslu um starfsemi sína og
sendir inn í keppnina og er starf-
ið dæmt samkvæmt sérstöku
punktakerfi. Eins og þetta sýnir
hefur slökkviliðið á Keflavík-
urflugvelli náð góðum árangri í
brunavörnum á undanförnum ár-
um. Þannig hefur ekki orðið neitt
brunatjón síðastliðin fjögur ár og
ekki tapast mannlíf í húsbruna í
25 ár. „Við leggjum mikla áherslu
á að virkja fjölskyldurnar. Fólk
veit hvernig það á að bregðast
við þegar eldur kemur upp.“
Slökkvilið varnarliðsins er skip-
að íslenskum starfsmönnum, sam-
tals 128. Níutíu þeirra annast
brunavarnir allra mannvirkja á
varnarsvæðunum, að meðtalinni
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, svo
og allra flugvéla sem leið eiga um
flugvöllinn og 38 starfa í flug-
þjónustudeild.
Opið hús
Slökkvistöðin á Keflavík-
urflugvelli verður opin almenn-
ingi laugardaginn 5. maí en þá
verður opið hús hjá varnarliðinu í
tilefni þess að 50 ár eru liðin frá
undirritun varnarsamnings Ís-
lands og Bandaríkjanna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Björn Knútsson flugvallarstjóri afhendir Mark H. Anthony, yfirmanni flugflotastöðvar varnarliðsins, blómvönd
í tilefni af viðurkenningu sem slökkvilið varnarliðsins vann til. Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri stendur
við hlið Mark Anthony. Viðstaddir athöfnina voru brunaverðir, eldri starfsmenn og ýmsir gestir.
„Reyn-
um held-
ur að
bæta í“
Keflavíkurflugvöllur
Slökkviliðið vinnur enn til æðstu verðlauna
FORRÁÐAMENN Reykjanesbæj-
ar vonast til að niðurstaða sé að
komast í viðræður þeirra við utan-
ríkisráðuneytið um skil varnarliðs-
ins á svokölluðu Neðra-Nikkel-
svæði. Forseti bæjarstjórnar, Skúli
Þ. Skúlason, telur að næstu daga
fáist farsæl lausn á málinu.
Nikkelsvæðið er gamalt olíu-
birgðasvæði varnarliðsins og er enn
í umsjá þess þótt notkun hafi verið
hætt fyrir mörgum árum. Svæðið
er við miðju Reykjanesbæjar og
hafa bæjaryfirvöld lengi viljað fá
það til umráða enda talið það heppi-
legt byggingarland.
Olía, blý og PCB
Á Nikkelsvæðinu eru gamlir ol-
íutankar og önnur mannvirki of-
anjarðar og mikið af leiðslum í
jörðu. Þá hefur komið í ljós við
rannsóknir að nokkur jarðvegs-
mengun er þarna vegna notkunar
svæðisins. Að því er fram kemur í
grein sem Bergur Sigurðsson,
mengunarfulltrúi hjá Heilbrigðis-
eftirliti Suðurnesja, skrifaði í Vík-
urfréttir á síðasta ári er þar um að
ræða olíumengun sem stafar meðal
annars af olíuslysi 1987. Tíminn
hefur unnið á olíumenguninni. Hins
vegar er þar einnig blýmengaður
jarðvegur vegna notkunar blýheld-
innar málningar á leiðslur og tanka
og PCB-mengun við spennistöðvar.
Nauðsynlegt er talið að fjarlægja
jarðveg þar sem blýmengun og
PCB eru yfir viðmiðunarmörkum.
Með samningi við Bandaríkja-
menn um kaup á lóranstöðinni á
Hellissandi á árinu 1996 tóku ís-
lensk stjórnvöld að sér að fjarlægja
öll mannvirki og aðstöðu ofan jarð-
ar á Neðra-Nikkelsvæðinu. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði
á Alþingi undir lok síðasta árs, í
svari fyrir fyrirspurn Kristjáns
Pálssonar, alþingismanns, að
hreinsunin ætti að vera endurgjald
fyrir aðstöðuna á Hellissandi og
hann tók fram að ekki hefði verið
samið við varnarliðið um hreinsun
jarðvegs.
Umrætt landsvæði er 69 hekt-
arar að stærð. Fyrir tæpu ári bauð
utanríkisráðuneytið Reykjanesbæ
að taka það á leigu til 99 ára gegn
því að taka að sér hreinsun sem þá
var áætlað að kostaði 62 milljónir
kr. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
hafa hins vegar talið að kostnaður
við hreinsun væri meiri, meðal ann-
ars vegna aukinna krafna í um-
hverfismálum. Kaus bæjarráð
nefnd til að ræða við ráðuneytið um
málið. Ellert Eiríksson bæjarstjóri
sagði nýlega að það gengi ótrúlega
illa að koma málinu áfram.
Skúli Þ. Skúlason, forseti bæj-
arstjórnar, segir að mikilvægt sé
fyrir Reykjanesbæ að fá Neðra-
Nikkelsvæðið til afnota. Þar væri
gert ráð fyrir 500 manna byggð
sem myndi tengja Njarðvík og
Keflavík betur saman. Þá hefði
ásýnd svæðisins farið versnandi
með árunum og mikilvægt að
hreinsa þar til. Hann segir að
vendipunktur hafi orðið í maí í
fyrra þegar ráðuneytið bauðst til að
skila landinu en segir að mál sem
snerti þriðja aðila, í þessu tilviki
varnarliðið, taki langan tíma.
Farsæl lausn framundan
Segir Skúli að bæjaryfirvöld hafi
talið eðlilegast að íslenska ríkið
hreinsaði svæðið eins og það hefði
tekið að sér og afhenti Reykja-
nesbæ að því loknu. „Nú styttist í
farsæla lausn fyrir Reykjanesbæ,“
segir Skúli en treystir sér ekki til
að fara nánar út í hana. Segist eiga
von á að málið leysist á næstu dög-
um.
Reykjanesbær hefur lengi staðið í viðræðum um hreinsun og skil varnarliðsins á Nikkelsvæðinu
Segja von á farsælli
lausn næstu daga
Reykjanesbær
STARFSMENN Skipasmíðastöðvar
Njarðvíkur náðu að slökkva eld sem
kom upp í bátnum Goðatindi frá
Djúpavogi í slippnum eftir hádegið í
gær.
Samkvæmt upplýsingum Bruna-
varna Suðurnesja kom eldurinn upp
þegar starfsmennirnir voru að sjóða
á færibandi á millidekki bátsins um
klukkan 13 í gær. Eldurinn komst í
reim á bandinu og varð af mikill
reykur.
Á bryggjunni var stúlka uppi á
palli lyftara að vinna með háþrýsti-
vatnsdælu við annan bát. Annar
starfsmaður ók lyftaranum að Goða-
tindi þar sem sá þriðji tók við slöng-
unni og þau dældu vatni inn um lúgu
á millidekkinu og tókst fljótt og vel
að slökkva eldinn. Maðurinn var
fluttur á sjúkrahús vegna gruns um
reykeitrun en stúlkan hélt áfram að
dæla vatni á glæðurnar. Manninum
varð ekki meint af reyknum.
Ekki er talið að miklar skemmdir
hafi hlotist af eldinum.
Slökktu eldinn
með háþrýstidælu
Njarðvík
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Hildur Einarsdóttir uppi á lyftarapallinum en þaðan dældi hún vatni á
eldinn í Goðatindi og slökkti eldinn ásamt fleiri starfsmönnum.