Morgunblaðið - 26.04.2001, Side 26
NEYTENDUR
26 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÝMIS heildsölufyrirtæki hafa verið
að tilkynna um verðhækkanir á
framleiðsluvörum og innfluttum
vörum undanfarið.
Allar vörur í erlendum gjaldmiðl-
um hafa hækkað um sem nemur 8%
hjá Eðalvörum.
„Þessi hækkun er aðeins hluti af
þeirri dollarahækkun sem átt hefur
sér stað. Það hefur orðið gengisfell-
ing og fyrirtækið er því að taka á sig
verulega hækkun,“ segir Sigurður
Þórðarson, framkvæmdastjóri Eðal-
vara. „Um er að ræða vörur eins og
gingseng, drottningarhunang og
hvítlauk svo fátt eitt sé nefnt. Hækk-
unin tók gildi 24. þessa mánaðar en
neytendur verða þó ekki varir við
hana strax, þetta fer auðvitað eftir
birgðastöðu í verslunum.“
Tæplega 4 til 12% hækkun
á flestum vörum
Verðhækkun frá 4 til 12 % hefur
átt sér stað á flestum vörum hjá
Eggerti Kristjánssyni hf. Að sögn
Marteins Magnússonar, markaðs-
stjóra Eggerts Kristjánssonar hf., er
ástæða hækkuninar sú að verið sé að
leiðrétta verð vara miðað við gengi.
„Gengi hefur verið á skelfilegri sigl-
ingu og krónan hefur nánast verið í
frjálsu falli. Ég vil líkja þessu við
ástandið eins og það var í kringum
1980 þegar verðbólgan óð áfram og
gengið féll.
Við erum að tala um hækkun á
bilinu 3,6% til 12%,“ segir Marteinn
og bætir við að fyrirtækið hafi viljað
halda í stöðugleika og þess vegna
dregið of lengi að hækka.
Að sögn hans eru flestallar vörur
að hækka og má t.d. nefna Maille
Dijon-sinnep, Jakobs- og Lu-kexin.
Verðhækkunin tók gildi 20. þessa
mánaðar.
4,7% meðaltalshækkun á gosi
„Við hækkuðum 1. apríl og hækk-
unin er að meðaltali 4,7%,“ segir
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Víf-
ilfells. „Allar tegundir af gosi eru að
hækka en hækkunin er þó aðeins
mismunandi eftir pakkningum. Það
sem við seljum mest af hækkar
minnst, þ.e. tveggja lítra flöskur,“
segir Þorsteinn.
Ástæðu hækkunarinnar má að
sögn hans rekja til mikilla kostnað-
arhækkana en nánast öll hráefni eru
innflutt nema miðarnir á flöskurnar.
„Krónan hefur veikst mjög mikið,
eins og alþjóð veit, og við höfum
reynt eftir fremsta megni að forðast
hækkanir en þess má geta að síðasta
hækkun hjá fyrirtækinu átti sér stað
1. desember árið 1999. Það er von-
andi að það fari að hægjast á verð-
bólgunni og að krónan fari að styrkj-
ast því þá getum við siglt lygnan
sjó,“ segir Þorsteinn.
Flestar vörur hækka
um 1,5 til rúmlega 4%
Niðursuðuverksmiðjan Ora ehf.
hækkaði fljótlega eftir páska verð á
flestum vörum sínum sem nemur 1,5
til rúmlega 4%.
„Við hækkuðum verð síðast árið
1999 en að þessu sinni eru hráefn-
ishækkanir tengdar gengi, langvar-
andi óhagstæðri gengisþróun og
hækkun á fiski, flutningi og olíu svo
dæmi séu tekin,“ segir Eiríkur
Magnússon, fjármálastjóri Ora.
Ný merkingarákvæði
hækka verð
Nýlega hækkaði Karl K. Karlsson
hf. nokkrar vörutegundir sem koma
frá Bandaríkjunum um 6 til 7%.
„Sem dæmi um þær vörur sem eru
að hækka má nefna Hellmans-
mæjones, Newmans-salsasósur og
gæludýramat,“ segir Eygló Björk
Ólafsdóttir, markaðstjóri Karls K.
Karssonar hf. „Hækkunin samsvar-
ar gengisþróuninni sem einmitt er
meginástæða verðhækkunarinnar.
Þá þurfa vörur sem koma frá Banda-
ríkjunum að uppfylla sérstakar
merkingarskyldu fyrir matvörur.
Ennfremur tóku nýlega gildi merk-
ingarákvæði í tengslum við gælu-
dýramat.“ Að sögn Eyglóar hefur
þessi tilkostnaður sökum aukinnar
kröfu um merkingar á vörum frá
Bandaríkjunum áhrif á verðlagn-
inguna og þá til hækkunar.
Þrír vöruflokkar hækka
frá 4 til 5,5%
Um næstu mánaðamót mun Ryd-
enskaffi hf. hækka þrjá vöruflokka.
Krydd mun hækka um 5,5%, sælgæti
um 4,5% og kaffi um 4%.
„Litlar sem engar verðhækkanir
hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu síð-
an árið 1999. Ástæður hækkunarinn-
ar eru þær að miklar kostnaðar-
hækkanir hafa átt sér stað á
undanförnum misserum,“ segir Gísli
Vagn Jónsson, framkvæmdastjóri
Rydenskaffi hf. „Frá janúar 2000 til
apríl 2001 hefur mikil gengishækkun
átt sér stað og sem dæmi hefur gengi
evru hækkað um tæp 10%, flutnings-
kostnaður hækkaði um rúm 7% á síð-
astliðnu ári og nýlega um 5%. Laun
og launatengd gjöld hafa einnig
hækkað umtalsvert samkvæmt
kjarasamningi. Einnig hafa mismikl-
ar hækkanir á innkaupsverði átt sér
stað án þess að þeim hafi verið
hleypt út í verðlagið svo nokkru
nemi. Þrátt fyrir þessar hækkanir
hefur okkur tekist að halda svo til
óbreyttu verði á allflestum lagervör-
um allt síðan árið 1999 en þetta hefur
verið mögulegt vegna mikillar hag-
ræðingar í rekstri.“
Bold-þvottaefni lækkar um 9%
Bæði verðhækkanir og verðlækk-
anir hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu
Íslensk-Ameríska að undanförnu. „Á
Bahlsen- saltvörum og Campbells-
súpum hefur orðið í kringum 10%
hækkun, Beauvais niðursuðuvörurn-
ar hækka um 3 til 7% og SunQuick-
þykkni um 12%,“ segir Pálína Magn-
úsdóttir, markaðsstjóri hjá Íslensk-
Ameríska og bætir við að ástæðu
hækkananna megi rekja til gengis-
breytinga.
„Þá höfum við náð fram lækkun á
innkaupsverði á Bold-þvottaefni en
það skilar sér í 9% lægra verði,“ seg-
ir Pálína.
Ís frá Mars hækkar um 5%
Hinn 1. mars tóku nokkrar verð-
hækkanir gildi á innflutningsvörum
frá Sláturfélagi Suðurlands. Meðal-
talshækkunin nemur rúmlega 6% yf-
ir heildina.
„Verðhækkunin er fyrst og fremst
komin til vegna lækkunar íslensku
krónunnar en einnig vegna hækkun-
ar frá birgjum,“ segir Gunnar G.
Gunnarsson, deildarstjóri innflutn-
ingsdeildar Sláturfélags Suðurlands.
„Á síðasta ári var gengisþróun
marga evrópskra gjaldmiðla hag-
stæð og gaf okkur tækifæri á verð-
lækkun á nokkrum lykilvöruflokk-
um. Seinnihluta síðasta árs hefur
gengisþróun verið óhagstæð og
verðhækkanir hafa tekið gildi á inn-
kaupum frá helstu birgjum. Verð-
hækkanir frá birgjum eru að jafnaði
á bilinu 1 til 5%. 1. mars hækkuðu
t.d. allar gerðir af Pedigree Mixer
um 5%, allur ís frá Mars um 5% og
Opies- vörur um 5%,“ segir Gunnar.
2,9% hækkun á Colgate-vörum
Hjá Ó. Johnson & Kaaber ehf.
hafa Colgate-vörur hækkað sem
nemur 2,9%. „Ástæða verðhækkun-
arinnar er gengisbreyting. Í raun
hefði hækkunin samkvæmt henni átt
að nema 5 til 6% en við ákváðum að
taka hluta af hækkuninni á okkur því
við höldum í þá von að þetta fari að
ganga niður aftur,“ segir Alfreð S.
Jóhannsson, sölustjóri Ó. Johnson &
Kaaber ehf. Neytendur munu að
hans sögn verða varir við hækkunina
á næstu vikum.
Ýmsar vörur eru að hækka í verði um þessar mundir
Verðhækkanir
nema frá 1,5 til 12%
Í GÆR var, að sögn Níels B. Jóns-
sonar, sérfræðings hjá Hollustu-
vernd ríkisins, farið fram á við
heildsala og þá sem framleiða viss-
ar tegundir sólarvarnarkrema að
þeir tækju úr sölu tímabundið
vörur með efnum sem talin eru
geta verið skaðleg. Sölustöðvunin
gildir þangað til búið er að gera
markaðsrannsókn og kanna hvort
ástæða sé til að banna vörurnar
endanlega.
Í fréttum í gær kom fram að
lyfjaverslanir, matvörumarkaðir
og stærsta snyrtivöruversl-
anakeðja Danmerkur hafa þegar
hætt sölu á slíkum sólarvörnum í
kjölfar nýrrar svissneskrar rann-
sóknar. Hún sýnir að þrjár teg-
undir UV-sía geti valdið krabba-
meini í brjóstum og eistum, dregið
úr sæðisframleiðslu og valdið
hormónatruflunum hjá fóstrum og
litlum börnum. Um er að ræða efn-
in 4-methylbezylidene camphor,
octyl methoxcinnamate og benz-
ophenone-3 en þau er að finna í
fjölda sólarvarna, einnig teg-
undum sem ætlaðar eru börnum.
Þegar Níels er spurður hvort
umrædd efni séu í öðrum teg-
undum snyrtivara segir hann að
sér sé ekki kunnugt um að þau séu
í öðru en sólarvörnum. Hann bend-
ir á að þá gætu þau t.d. verið líka í
vörum eins og varasalva ef hann er
með sólarvörn.
Þekkt snyrtivörumerki
Umrædd efni eru í vörum ým-
issa þekktra snyrtivörumerkja
eins og til dæmis í vissum teg-
undum sólarvarna frá Clarins,
Elizabeth Arden, Biotherm, Body
Shop, Clinique, Nivea Sun, Piz
Buin og Roc.
„Um leið og fréttist af þessu máli
voru þær vörur frá Body Shop sem
innihalda umrædd efni um-
svifalaust teknar úr sölu hér á
landi,“ segir Ragnar Halldór
Blöndal hjá Body Shop. „Það stríð-
ir gegn hagsmunum okkar að selja
vöru sem talin er skaðleg heilsu
fólks.
Við bíðum svo eftir frekari fyr-
irmælum erlendis frá en munum
ekki halda áfram innflutningi á
þessum vörum.“
Pharmaco er m.a. með umboð
fyrir tvö snyrtivörumerki, Roc og
Clarins, sem samkvæmt úttekt
dönsku Umhverfisstofnunarinnar
framleiða m.a. sólarvörn sem inni-
halda umrædd efni. Guðbjörg Al-
freðsdóttir, framkvæmdastjóri
Pharmaco segir að framleiðendur
þessara snyrtivara séu að vinna í
þessum málum og hafi ekki enn
tekið ákveöðun um hvað verði
gert. „Við munum einnig bíða eftir
fyrirmælum frá Hollustuvernd rík-
isins og taka ákvörðun í framhaldi
af því.“
Hún bendir á að þær sólarvarn-
arvörur frá Vichy sem hafi einnig
verið í þessari könnun innihaldi
ekki umrædd efni en Pharmaco er
með umboð fyrir Vichy snyrtivör-
ur.
J.S. Helgason hefur m.a. umboð
fyrir snyrtivörur frá Nivea en sam-
kvæmt könnun dönsku Umhverf-
isstofnunarinnar innihéldu Nivea
vörur eitt af efnunum sem um ræð-
ir. „Ef neytendur skoða rannsókn
dr. Schlumpf er ég viss um að þeir
sannfærast um að sólarvörn sé
hættulaus,“ segir Ólafur Gylfason,
framkvæmdastjóri J.S. Helgason-
ar. „ Í þessari rannsókn sem var
tvíþætt var annarsvegar prófað í
tilraunaglasi 5 efni sem m.a. finn-
ast í sólarvörn. Í ljós kom að þau
ollu frumubreytingum. Það var
hinsvegar notað 2 milljónum meira
magn en leyfilegt er að nota í UV-
síum samkvæmt bandarískum og
evrópskum stöðlum.
Í seinni hluta rannsóknarinnar
fengu rottur efnin innvortis í fjóra
daga og kom þá í ljós að þrjú gætu
ollið ófrjósemi. Í þessari tilraun
samsvaraði magnið 750 þúsund
sinnum það sem leyfilegt er að
nota af UV-síum.
Ég fagna því að fjallað sé um
innihaldsefni snyrtivara enda er
aldrei of varlega farið.
Telji Hollustuvernd ríkisins
ástæðu til að innkalla eitthvað af
þessum vörum munum við að sjálf-
sögðu taka tillit til þess. Það hefur
verið gert í Danmörku tímabundið
en eftir því sem ég kemst næst hef-
ur ekki verið fram á það í Noregi,
Finnlandi né í Svíþjóð.“
Sigurður Reynaldsson, inn-
kaupastjóri hjá Hagkaupum, segir
að beðið sé eftir fyrirmælum frá
Hollustuvernd ríkisins og um leið
og þau berist verði farið eftir þeim.
UV-síur í sólarvörn sagðar skaðlegar
Sólarvarnarvörur tekn-
ar úr sölu hérlendis
Morgunblaðið/Ómar
Neytendur geta kannað á innihaldslýsingum umbúða hvort eftir-
talinna efna sé getið, 4-methyl-benzylidene camphor, octyl-meth-
oxycinnmate og benzophenone-3.