Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 28

Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 28
NÝ HLIÐ er komin upp á leyni- reikningahneyksli Kristilegra demó- krata í Þýzkalandi (CDU), eftir að svo virðist sem milljón mörk, and- virði um 43 milljóna króna, hafi fundizt á bankareikningi eins fyrr- verandi gjaldkera flokksins. Walter Leisler Kiep, sem í nokk- ur ár af 16 ára valdatíð Helmuts Kohls var féhirðir CDU, hefur skyndilega greitt milljónina inn á reikning flokksins, án útskýringa á því hvaðan hún kæmi. Greindi fram- kvæmdastjóri CDU, Willi Haus- mann, frá þessu í gær. Hausmann krafðist þess að Kiep gæfi skýringar á uppruna fjárins, en Walther Leisler Kiep gat sér þess til að það hefði verið á leynilegum reikningi í Sviss, sem Kiep og tveir aðrir þáverandi hátt- settir starfsmenn CDU leystu upp árið 1992. Bankareikningur þessi var skráður í Liechtenstein á skúffufyrirtækið „Norfolk Found- ation“, en það var í eigu CDU og var notað til að fela leynileg og þar með ólögleg framlög í sjóði flokks- ins. Haft hefur verið eftir þessum öðrum tveimur fyrrverandi starfs- mönnum CDU að þeir og Kiep hafi skipt með sér einni og hálfri milljón svissneskra franka, andvirði um 83 milljóna króna, er Norfolk Founda- tion var leyst upp sama ár. Samkvæmt frásögn Berlínar- blaðsins Tagesspiegel mun Kiep hafa brugðið á það ráð að millifæra þetta fé yfir á reikning CDU nú, þar sem hann ætti að öðrum kosti von á að flokkurinn hæfi málsókn gegn sér vegna þáttar hans í leynireikn- ingahneykslinu. Christian Ströbele, fulltrúi græn- ingja í sérskipaðri nefnd þýzka þingsins, sem hefur það hlutverk að rannsaka leynireikningahneykslið, tjáði Mitteldeutsche Zeitung að frá- leitt væri að CDU tæki við þessu fé fyrr en gengið hefði verið úr skugga um hvaðan það væri komið. Gat Ströbele sér þess til að það væri upprunnið hjá stórfyrirtækinu Siemens, sem fram til ársins 1993 greiddi reglulega í sjóði CDU án þess að þau framlög kæmu fram í opinberu bókhaldi eins og lög kveða á um. Milljón marka birtist á bankareikningi Berlín. AFP. Leynireikningahneyksli CDU FLESTIR hinna 143 Kosovo- Albana, sem fyrr í vikunni voru sýknaðir af Hæstarétti Serbíu af fangelsisdómum sem þeir höfðu hlotið fyrir meint hryðjuverk, voru látnir lausir í suður-serbn- esku borginni Nis í gær. Kos- ovo-Albanarnir, sem í maí 2000 voru dæmdir af héraðsdómi í sjö til þrettán ára fangelsi fyrir hryðjuverk gegn Júgóslavíuher og serbnesku lögreglunni, voru fluttir í rútum frá fangelsinu í Nis til Kosovo. Júgóslavneskir hermenn höfðu handtekið þá í Djakonica á meðan á loftárásum NATO á Júgóslavíu stóð snemm- sumars 1999. Malaría drep- ur marga MALARÍA verður árlega um 200.000 manns að bana í Lýð- veldinu Kongó sem þjakað er af afleiðingum borgarastríðs. Greindi skrifstofa þjóðarátaks gegn malaríu (PNLP) í Kinshasa frá þessu í gær, í tilefni af Malaríudegi Afríku. Talið er að á bilinu ein og hálf til 2,7 milljónir manna deyi í heiminum öllum úr malaríu á ári hverju. Moskító- flugur bera smit hinnar ban- vænu sýki sem í riti Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar WHO frá 1998 er fullyrt að sé stærsta heil- brigðisvandamálið í Afríkulönd- unum sunnan Sahara. HIV-kenn- ingu koll- varpað NIÐURSTÖÐUR nýrra vís- indarannsókna, sem birtar voru í gær gera að engu umdeilda kenningu um að HIV-faraldur- inn í mönnum eigi upptök sín í mistökum sem gerð voru við bólusetningarherferð gegn mænusótt í Mið-Afríku snemma á sjötta áratug 20. aldar. Lífefna- fræðingar í Lundúnum lýstu því yfir að þeir vonuðust til að hafa með niðurstöðum sínum kæft kenningu sem í sumra augum hefur grafið undan trausti á bólusetningar og vinnubrögð lækna. Orðrómur hefur lengi verið uppi um að HIV-veiran hafi í fyrsta sinn smitazt úr öpum í menn með illa unnu mænusótt- arbólusetningarefni sem sagt er að hafi verið unnið úr nýrna- frumum úr simpönsum, smituð- um af „apagerð“ veirunnar. Gjá milli ríkra og fátækra ÞÝZK stjórnvöld hétu því í gær að tvíefla baráttuna gegn fátækt eftir að niðurstöður könnunar á efnahagslegri stöðu einstaklinga í landinu, þeirri fyrstu sinnar tegundar, bentu til að gríðardjúp gjá væri milli ríkra og fátækra. En samsteypustjórn jafnaðar- manna og græningja, sem nú er við völd, vísaði ábyrgðinni á þess- ari þróun til þess hvernig ríkis- stjórnir Helmuts Kohls 1982– 1998 héldu á málum. Atvinnu- málaráðherrann Walter Riester sagði, er hann kynnti niðurstöð- ur könnunarinnar í Berlín í gær, að stjórnin vonaðist til að tilraun- ir hennar til að draga úr atvinnu- leysi og auka fjárveitingar til félagslega velferðarkerfisins myndu laga stöðu hinna eigna- minnstu. STUTT Kosovo- Albönum sleppt ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ RÍKISLÖGREGLA Filippseyja handtók í gær Joseph Estrada, fyrr- verandi forseta landsins, sem hefur verið ákærður fyrir spillingu. Hann hélt þó fram sakleysi sínu og kvaðst enn líta á sig sem forseta landsins. Estrada hefur verið ákærður fyrir að hafa þegið andvirði tæpra 7,8 milljarða króna í mútur og ólöglegar greiðslur á tveggja og hálfs árs valdatíma sínum. Slíkir glæpir geta varðað lífstíðarfangelsi eða jafnvel lífláti samkvæmt filippseyskum lög- um en mjög ólíklegt þykir þó að Estrada verði dæmdur til dauða. Um það bil 500 fylgismenn Estr- ada söfnuðust saman við hús hans í Manila til að reyna að hindra hand- tökuna. Lögreglan hélt að sér hönd- um í nokkra tíma áður en hún lagði til atlögu í gærmorgun. Hundruð lögreglumanna beittu kylfum til að dreifa stuðningsmönnum Estrada sem svöruðu með grjótkasti en urðu að gefast upp fyrir ofureflinu. Nokkrir særðust í átökunum. Tugir stuðningsmanna Estrada brustu í grát þegar æðstu embætt- ismenn ríkislögreglunnar komust inn í húsið til að handtaka hann. Dómstóll í spillingarmálum, sem fyrirskipaði handtökuna, hafnaði beiðni um að Estrada yrði látinn laus gegn tryggingu. Lögfræðingar Estr- ada hafa óskað eftir því að honum verði haldið í stofufangelsi þar til dómur fellur í málinu og dómstóllinn tekur þá beiðni fyrir í dag. Estrada var haldið í klefa sem var útbúinn sérstaklega fyrir hann í víg- girtum höfuðstöðvum ríkislögregl- unnar í Manila. Ákveðið var að færa hann ekki í venjulegt fangelsi þar sem líf hans gæti verið í hættu. Innanríkisráðherrann Jose Lina sagði að hann væri algjörlega óhult- ur í höfuðstöðvum lögreglunnar. Segist vera í leyfi Estrada sagði í símaviðtali við CNN eftir handtökuna að hann liti enn á sig sem forseta Filippseyja. „Hvað mig varðar er ég enn réttkjör- inn forseti samkvæmt stjórnar- skránni,“ sagði hann og kvaðst sann- færður um að hann yrði sýknaður. Estrada er 64 ára fyrrverandi kvikmyndastjarna og nýtur enn mik- illa vinsælda meðal fátækra íbúa Fil- ippseyja. Hann var ákærður til emb- ættismissis fyrir spillingu en réttar- höldum öldungadeildar þingsins í málinu var hætt í janúar þegar þau höfðu staðið í sex vikur. Meirihluti deildarinnar hafði þá hafnað beiðni saksóknara um að opna innsiglað umslag sem þeir sögðu innihalda upplýsingar sem myndu sanna sekt Estrada. Þessi ákvörðun leiddi til mikilla götumótmæla í Manila og Estrada neyddist til að flýja úr for- setahöllinni 20. janúar. Hæstiréttur landsins úrskurðaði að hann hefði í reynd sagt af sér með því að flýja. Estrada áréttaði hins vegar í gær að hann hefði aðeins farið úr forseta- höllinni til að afstýra blóðsúthelling- um og hann væri aðeins í leyfi. „Ég stend enn fast á því að valdataka nýju stjórnarinnar brýtur í bága við stjórnarskrána,“ sagði hann. Estrada er fyrsti forseti Filipps- eyja sem er ákærður og handtekinn fyrir spillingu á valdatíma sínum. Sonur hans, bæjarstjórinn Jose Ej- ercito, var einnig handtekinn fyrir aðild að spillingarmálinu ásamt sex öðrum sakborningum. Joseph Estrada handtekinn í Manila fyrir spillingu AP Lögreglumenn reyna að ryðjast framhjá hópi fólks sem reyndi að hindra handtöku Estradas í Manila í gær. Reuters Andlitsmynd af Estrada sem lögreglan tók eftir handtökuna. Segist enn vera forseti Filippseyja Manila. Reuters, AP, AFP. FRAMLEIÐSLA á svokölluðum rafeinda-pappír hefur færzt skrefi nær því að verða að veru- leika með því að tilraunagerð af ofurþunnum, sveigjanlegum raf- eindaskjá hefur litið dagsins ljós. Upplausn þessarar tilrauna- skjáþynnu er aðeins nokkur hundruð pixel, en að sögn upp- finningamanna hennar sýnir til- raunagerðin að það er tæknilega mögulegt að smíða ódýra, þunna hágæðarafeindaskjái. Markmiðið með þessum svokall- aða rafeindapappír er að hægt sé að birta rafrænan texta á þunn- um, sveigjanlegum örkum sem eru líkastar pappír að útliti og í snertingu. Hugmyndin er að ark- irnar verði bundnar saman í eins konar bók eða hefti, og hægt væri að hlaða inn á hana/það efni (texta, myndum o.s.frv.) með þráðlausum gagnaflutningi. „Fyrir þessu er í raun engin grundvallartæknihindrun. Allt sem til þarf er þegar til,“ hefur BBC News Online eftir John Rog- ers, talsmanni Bells Labs í Bandaríkjunum. Starfsmenn Bell Labs og E-Ink Corporation hafa birt myndir af tilraunaskjáþynn- um þessum. Þær geta geymt þau gögn sem hlaðið er inn á þær í nokkra mánuði, en þær ganga fyrir straumi frá örlitlum raf- hlöðum, eftir því sem uppfinn- ingamennirnir greina frá í banda- ríska vísindatímaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences. Prentað á plastþynnur Lykilframfarirnar sem sagðar eru felast í þessari nýju til- raunagerð „rafeindapappírs“ er að hún er búin til með tækni sem kölluð er örleiðaraprentun. Þessi aðferð, sem líkist stimplun, þýðir að ekki er nauðsynlegt að fram- leiðslan fari fram í dauðhreins- uðu andrúmslofti eins og þarf við framleiðslu flestra rafeindaíhluta nútímans. Einingar rafeindaskjásins eru stimplaðar á sveigjanlega plast- þynnu sem er undir einum milli- metra að þykkt. Og uppfinn- ingamennirnir eru vongóðir um að þeir geti þróað þetta áfram þannig að upplausnin aukist nógu mikið til að þynnurnar gagnist eins og hugmyndin er að nýta „rafeindapappír“. Hugsanlegt væri að heil dagblöð yrðu gefin út á rafeindapappírsformi. Rafeinda- pappír skrefi nær fram- leiðslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.