Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 43
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Vélavörður
Vélavörð, sem leyst getur af sem yfirvélstjóri,
vantar á 200 lesta línuskip frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 420 5700.
Vísir hf.
Óskum eftir starfsmanni í afgreiðslu. Vinnutími
frá kl. 6.30—13 aðra vikuna og 13—18.30 hina
vikuna. Nánari upplýsingar í símum 698 9542
og 699 3677.
Oddur bakari, Reykjavíkurvegi 62,
sími 555 4620.
Starfsfólk óskast
í veiðihús
Matreiðslumaður og 2 starfstúlkur óskast í
veiðihúsið Laxá í Kjós í sumar.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Laxá“.
Organisti
Starf organista við allar kirkjur í Kirkjubæjar-
klaustursprestakalli, samtals hálft starf, er laust
til umsóknar.
Ráðið verður í starfið frá 1. september 2001
til 31. maí 2002.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Organistafélags Íslands.
Nánari upplýsingar veita sr. Bryndís Malla Elí-
dóttir, í síma 487 4618 og Guðmundur Óli Sig-
urgeirsson í síma 487 4664 eða 985 7086.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist til Guðmundar Óla Sigurgeirssonar,
Skaftárvöllum 11, 880 Kirkjubæjarklaustur.
Sóknarnefndirnar.
Starfsmenn vantar
Ólafur og Gunnar ehf. byggingafélag byggir
starfsemi sína á útboðsstarfsemi og ná verk-
efnin yfir allar tegundir framkvæmda. Vegna
mikilla verkefna nú og framundan vantar fólk
í eftirfarandi störf:
1. Trésmiði. Verktaka til að taka að sér af-
mörkuð verkefni, mótasmíði o.fl., smiði til
starfa í mótavinnu (flekamót) og í alla al-
menna smíðavinnu, launamenn eða verk-
taka.
2. Járnabindingamenn. Auglýst er eftir
járnabindingaflokki sem getur bætt við sig
verkefnum.
3. Vélamaður. Vanan mann með vinnuvéla-
réttindi vantar á traktorsgröfu ásamt því að
sinna ýmsum verkefnum.
Nánari upplýsingar í síma 555 6440.
Fax 555 6442. netfang ogbygg@islandia.is .
Skólastjóri
Laus er staða skólastjóra við nýjan ráðgjafar-
skóla fyrir nemendur með alvarlegar geð- og
atferlistruflanir.
Skólinn verður einn af grunnskólum Reykjavík-
ur. Hann verður fyrir allt að 20 nemendur á
grunnskólaaldri, sem eru með alvarlegar geð-
og atferlistruflanir og geta ekki stundað nám
í almennum grunnskóla um lengri eða skemmri
tíma.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
● stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi
og rekstri skólans,
● veita skólanum faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar í skólastarfi.
Leitað er að umsækjanda sem:
● hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af
kennslu og stjórnun,
● hefur kennaramenntun, en framhaldsmennt-
un á sviði stjórnunar, uppeldis- og kennslu-
fræða eða geð- og atferlistruflana æskileg,
● er lipur í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veita Ingunn Gísladóttir, starfs-
mannastjóri, netfang ingunng@reykjavik.is
og Arthur Morthens, forstöðumaður þjónustu-
sviðs, netfang arthur@reykjavik.is á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, sími 535 5000. Laun sam-
kvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitar-
félaga við Kennarasamband Íslands.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og störf, ennfrem-
ur gögn og upplýsingar um frumkvæði á sviði
skólamála auk annarra gagna er málið varðar.
Umsóknir sendist til Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík.
Biskup Íslands
auglýsir eftirfarandi embætti laust til
umsóknar.
Embætti sóknarprests í Víðistaðaprestakalli,
Kjalarnesprófastsdæmi, frá 1. september 2001.
● Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknar-
presta til fimm ára.
● Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefnd-
ar, en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir
að taka fram.
● Valnefnd velur sóknarprest skv. starfs-
reglum um presta nr. 735/1998, en biskup
ákveður með hvaða umsækjanda hann
mælir náist ekki samstaða í valnefnd.
● Heimilt er að óska eftir því að almennar
prestskosningar fari fram samkvæmt 20.
gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998, en
ákvæðið er svohljóðandi:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakalli þess, að almenn
prestskosning fari fram, er skylt að verða
við því. Skrifleg ósk um kosningu skal
hafa borist biskupi eigi síðar en að hálf-
um mánuði liðnum frá þeim degi er kallið
var auglýst laust til umsóknar.“
● Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur,
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, s. 535 1500, grænt nr. 800 6550, fax
551 3284.
● Umsóknarfrestur rennur út 1. júní 2001.
● Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Það athugist að embætti sóknarpresta eru aug-
lýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og
prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta
breytingu á störfum sínum og verksviði á skip-
unartímanum, sbr. 19. grein laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
OD
DI
HF
G9
79
6
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Smith & Norland leitar að rafmagnsverkfræðingi eða
rafmagnstæknifræðingi til starfa í tæknideild fyrirtækisins.
Viðkomandi mun hafa umsjón með lækningatækjasviði fyrirtækisins
(röntgentæki, hjartarafritar o. fl.) og innkaupum og markaðssetningu
nokkurra vöruflokka á raflagnaefnissviði.
Starfið felur m.a. í sér samskipti við erlenda samstarfsaðila, pantanagerð,
ráðgjöf, tilboðagerð og önnur tengsl við viðskiptavini fyrirtækisins sem
og skyld störf.
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á ensku og nokkur þýskukunnátta er
æskileg en ekki skilyrði.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi með góða tækniþekkingu
og áhuga á sölu- og markaðsstörfum sem og mannlegum samskiptum.
Um er að ræða gott og áhugavert framtíðarstarf hjá traustu og virtu fyrirtæki
á rafmagnssviði sem selur vörur frá Siemens og öðrum viðurkenndum
fyrirtækjum.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru beðnir að senda okkur umsókn með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf fyrir fimmtudaginn 3. maí.
Upplýsingar eru veittar í síma 520 3000 eða á netfanginu sminor@sminor.is.
Farið verður með allar umsóknir sem algjört trúnaðarmál.
Rafmagnsverkfræðingur/-tæknifræðingur
Eykt ehf.
óskar að ráða starfskraft
til að annast þrif og hafa umsjón með vinnu-
búðum. Upplýsingar gefur Pétur í síma
897 9303.