Morgunblaðið - 26.04.2001, Side 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 63
Vor í bænum!
Drappað og
gallabuxna blátt
st. 36—40
Verð 3.490
Drappað og
gallabuxna blátt
st. 36—41
Verð 3.490
Svartir
st. 35—42
Verð 4.490
Hvítir
st. 37—41
Verð 4.990
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, Hf., sími 555 4420
ÉG vil hneykslast á því hvað ungt
fólk nú á dögum virðist vita lítið um
hvað er á íslensku myntinni. Þetta
sást best þegar Gettu betur, spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna var
haldin, bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Þar höfðu menn þær ranghugmynd-
ir að á annarri hlið íslensku mynt-
arinnar væri skjaldarmerki íslenska
lýðveldisins. Þar eru hvorki fjölmörg
keppnislið, spyrill þáttarins né stiga-
vörður undanskilin. Ég vil hér með
leiðrétta þennan misskilning. Á ís-
lensku myntinni eru annarsvegar
margskonar sjávardýr og hinsvegar
landvættir Íslands. Skjaldarmerkið
var á þeirri mynt sem gekk úr gildi
árið 1981. Það er auðvelt að villast á
landvættunum og skjaldarmerkinu,
en einnig auðvelt að greina þau í
sundur. Íslenski fáninn er nefnilega í
skjaldarmerkinu, og einnig eru land-
vættirnir betur teiknaðir, þ.e. fleiri
smáatriði. Hinsvegar eru landvætt-
irnir, gróflega teiknaðir og einungis
eru höfuðin á þeim á myntinni, á
krónunni er einungis bergrisinn.
Vona ég að nú sé það orðið ljóst hvað
raunverulega er á íslensku myntinni.
SIGRÚN DÓRA
BERGSDÓTTIR,
nemi í Menntaskólanum
á Akureyri.
„Fáfræði“
ungs fólks
Frá Sigrúnu Dóru Bergsdóttur:
„SKRIFAÐU flugvöll“ sagði pólitík-
usinn við þjón sinn þegar atkvæðin
hans gerðu þá kröfu. – Burt með
okkar flugvöll sögðu valdamenn í
höfuðborginni og fleiri. Og Morgun-
blaðið birti um hundrað greinar með
og móti flugvellinum í Vatnsmýri.
Eftir að borgarvaldið samdi um end-
urbyggingu flugvallarins í Reykja-
vík efndi það til skoðanakönnunar
um það, hvort völlur þessi ætti að
fara eða vera eftir 15 ár.
stundum voru greinaskrifin svo
átakanleg að jafnvel fór um flugvall-
arvini. Til að mynda þá er frú ein í
Reykjavík sendi einskonar neyðar-
kall í Mbl.: „Fórnum ekki Reykja-
vík“. Reykjavík er líka höfuðborg
okkar landsbyggðarlýðsins, eða svo
höldum við. Og jafnvel höldum við,
að flugvöllurinn í Reykjavík sé okkur
ómissandi.
Og svo er ýjað að því, að marg-
nefndur völlur særi næmt fegurðar-
skyn sumra borgarbúa, væri nær að
reisa glæsileg íbúðarhús (betri borg-
ara?), kaffihús (hvenær er nóg af
þeim?), kannski skýskafa, listhús,
kirkjur? Enda fór svo, að sumir fyrr-
um Vatnsmýrarsinnar sáu villu sína,
játuðu sína nýju trú og tóku góða iðr-
an, þ.á m. sumir æðstu ráðgjafarnir.
Þá er fólk úr borgartrúboðinu var
spurt hvar ætti að byggja nýjan flug-
völl var fátt um svör. Málið hafði
ekki verið þrauthugsað. Kannski á
skeri úti í sjó, eða úti í Engey, eða í
Hvassahrauni, jafnvel í framhaldi af
Bessastaðahlaði (forsetar þurfa oft
að fara af bæ). Og ef allt um þryti
væri Keflavíkurflugvöllur á sínum
stað. Smá galli á þeirri lausn að
leigubílakostnaður gæti orðið hærri
en flugfarið.
Skrifari telur að flugstjóri hafi lýst
farsa þessum einna best með þessum
orðum: Reykjavíkurflugvöllur –
sápuópera á topp tíu.
HARALDUR GUÐNASON,
Bessastíg 12, Vestmannaeyjum.
Hugleið-
ing um
flugvöll
Frá Haraldi Guðnasyni:
Reykjavíkurflugvöllur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MIKIÐ finnst mér Flugfélagi Ís-
lands hafa hrakað. Þetta félag sem
svo lengi hefur verið stolt okkar Ís-
lendinga. Flug-
vélarnar komu og
fóru, til og frá
Ísafirði, á svo ná-
kvæmum tíma,
fyrir svona 6 til 8
árum, að hægt
var að stilla
klukkuna sína
eftir þeim. Brott-
för var frá
Reykjavík klukk-
an 07:45 og aftur að kvöldi klukkan
19:45. Smellpassaði að reka erindi
sitt yfir daginn í Reykjavík. Það var
nákvæmni í tímasetningunni og
metnaðurinn var framar öllu í allri
þjónustu við okkur farþegana. En
nú kveður við annan tón. Þessi út-
kjálki, Ísafjörður, er trúlega kominn
á aftökulista stjórnar FÍ. Honum
eru þeir hættir að sinna, nema svona
rétt þegar flugvélarnar eru verk-
efnalausar. Eða hvað?
Ég ætlaði að fara á áríðandi fund
til Reykjavíkur föstudaginn 20. apríl
sl. og hugðist notfæra mér þjónustu
FÍ þar sem tími fundarins var innan
þeirra merkilegu marka sem FÍ set-
ur varðandi flug til og frá Ísafirði í
dag. Áætlunin var brottför frá Ísa-
firði klukkan 09:45, kominn til
Reykjavíkur klukkan 10:30 og til
baka frá Reykjavík 18:30. Allt í lagi
þetta gat svona sloppið fyrir horn
með því að sleppa fyrstu mínútum
míns fundar. Ég var búinn að fylgj-
ast vel með veðri og sá að mjög gott
veður var hér vestra, sem syðra, svo
ekki var ástæða að fara að fljúga
suður hálfum sólarhring fyrr, með
tilheyrandi útbúnaði að heiman auk
viðeigandi kostnaðar, sem gisting
er.
Þá er komið að þætti foringja FÍ í
Vatnsmýrinni. Rétt þegar ég er að
búa mig af stað út úr dyrunum, á
leið inn á flugvöll, er hringt frá FÍ á
Ísafirði og mér sagt að flugi hafi
verið frestað um eina og hálfa
klukkustund. Af hverju? spurði ég.
Svarið var: Það er ófært til Vest-
mannaeyja! Ég bað starfsmann
þennan að taka mig af farþegalist-
anum og endurgreiða mér farseð-
ilinn. Ég fór inn á textavarpið til að
sjá stöðu mála, á síðu 423, því ekki
er hægt að fara á síður einstakra
flugvalla, þær síður hafa verið bil-
aðar um nokkurra mánaða skeið –
viðgerð stendur yfir. Jú, flug var í
fullum gangi. Þrjár ferðir fyrir
klukkan 11:00 til Akureyrar auk
þess sem flogið var á alla ákvörð-
unarstaði FÍ, áður en komið var að
Ísafirði, athugun á flugi til Vest-
mannaeyja. Ég hef grun um að of fá-
ir farþegar hafi verið frá Ísafirði,
þetta sinnið. En ég veit að það er
ekki skýringin. Ég hef vissu fyrir
því að loftbrúnni, sem haldið er uppi
milli Reykjavíkur og Akureyrar af
FÍ, líkt og milli stórborga í Evrópu
og Ameríku, sé æði oft mannfá.
Jafnvel að einstakir embættismenn
fái oft á tíðum eins konar einkaflug á
milli staðanna. Gott og vel, en er það
skýring fyrir mig? Nei.
Þá var að tilkynna sig til Reykja-
víkur. Afpanta ferð vinar míns, sem
ætlaði að sækja mig á flugvöllinn og
síðan að afboða komu mína á þennan
mikilvæga fund minn. Dagurinn var
mér ónýtur, ég vafalaust ekki einn í
þeirri stöðu.
En var þá ekki rétt að fá ein-
hverjar skýringar, af viti, frá Fí
varðandi þessa óvæntu breytingu á
áætlunarfluginu? En hvert á að
hringja og við hvern á að tala? Það
liggur sko ekki á hreinu. Sjálfvirkt
símkerfi FÍ minnir mig óneitanlega
á sjálfvirka heimsækjarann í gam-
anþætti Stöðvar 2, hér fyrr á árum.
Áður en þú veist af ertu kominn inn í
slíka þvælu og rugl þar, að einungis
þeir skilja sem samið hafa og er
langt í frá að teljast þjónusta. Fólk
forðast að hringja í þetta númer.
Ég er ekki einn um að hafa lent í
geðþóttaákvörðunum stjórnenda FÍ.
Auðvitað er þetta rætt manna í milli
og því miður eru alltof margir sam-
mála mér varðandi framkomu FÍ.
Starfsfólk FÍ á Ísafirði á heiður skil-
inn fyrir framkomu sína, þolinmæði
og kurteisi. Frábær þjónustulund
einkennir þau öll með tölu. Þangað
er gaman að hringja, þau vita um
hvað þjónusta í ferðamálum snýst
og vinna eins vel og kostur er, jafn-
vel úr því bulli sem á borð er borið
fyrir okkur úr Vatnsmýrinni.
Niðurstaða mín, eftir reynsluna á
föstudaginn, er að starfsmenn FÍ á
Ísafirði fá toppeinkunn fyrir sína
vinnu og þjónustu, en stjórnendurn-
ir í Vatnsmýrinni féllu á prófinu og
það ekki í fyrsta sinn. Haldi fram
sem horfir, varðandi þjónustuna hjá
stjórn FÍ, verður flugi milli Vest-
fjarða og Reykjavíkur löngu hætt,
áður en innanlandsflug leggst end-
anlega af árið 2016.
ÖNUNDUR JÓNSSON.
yfirlögregluþjónn á Ísafirði.
Af flugþjónustu Flugfélags Íslands
Frá Önundi Jónssyni:
Önundur
Jónsson
Yfirhafnir
Neðst á Skólavörðustíg
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
hú
sg
ög
n
Sérpantanir
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.