Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Page 1

Morgunblaðið - 10.06.2001, Page 1
MORGUNBLAÐIÐ 10. JÚNÍ 2001 129. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Sunnudagur 10. júní 2001 Enn finnast á Íslandi einstaklingar sem gustar af og hafa marga fjöruna sopið. Karl einn sem Guðmundur Guðjónsson og Árni Sæberg hittu nýverið í Hornvík á Hornströndum, við rætur Horn- bjargs, reyndist vera með óborg- anlegan feril svaðilfara að baki. Hann er sagður hafa fæðst með 9 líf eins og kettirnir, en hann sé búinn ð t 21 10 Búinn með 21 líf af 9 ferðalögTöfrandi tónar sumarsbílar Jeppi frá Peugeot?börnFótboltaleikurbíóút í flóa Tuttugu ára stríð Saga alnæmis og útbreiðsla Eitt nýtt tilfell af HIV greini á Íslandi á mánuði Prentsmiðja Morgunblaðsins B VÆNTINGAR OG VONBRIGÐI 10 Markaðurinn harður húsbóndi 20 Óþekkti sjómaðurinn á Flateyri 22 Sjómenn um land allt halda sjómannadaginn hátíðlegan í dag. Skipin eru almennt í höfn í tilefni af því. Myndin var tekin fyrir skömmu um borð í Drangavík VE þegar þessar hetjur hafsins voru að huga að trollinu áður stefnan var tekin á heimahöfn og stímt var í land. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Til hamingju með daginn, sjómenn TONY Blair gnæfði í gær yfir póli- tískt landslag Bretlands, tveimur dögum eftir hinn mikla kosningasig- ur Verkamannaflokksins, ný ríkis- stjórn undir hans forystu tekin við völdum, brezki Íhaldsflokkurinn leiðtogalaus og aðild Bretlands að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu (EMU) næsta stóra málið á dag- skrá. Blair beið ekki boðanna að stokka upp í ríkisstjórninni eftir að hann fékk formlegt umboð Elísabetar Bretlandsdrottningar í gær til að mynda nýja stjórn landsins. „Blair sveiflar öxinni eftir sögulegan sigur“ var forsíðufyrirsögn Lundúnablaðs- ins Guardian, og sami tónn var sleg- inn í mörgum öðr- um blöðum. Mest kom á óvart að Robin Cook, sem álitinn hefur verið einn „evrópusinnað- asti“ ráðherrann, hættir sem utan- ríkisráðherra og við embættinu tekur Jack Straw, sem hefur frekar orð á sér fyrir að vera ekki eins sann- færður í Evrópumálunum. Þykja ut- anríkisráðherraskiptin því senda út misvísandi skilaboð um það hve snarlega stjórnin hyggist grípa til aðgerða til að búa Bretland undir inngöngu í myntbandalagið. Á gjald- eyrismörkuðum hafði sterlingspund- ið lækkað eftir að kosningaúrslitin urðu ljós, og var það byggt á vænt- ingum um að nú mundi þess ekki langt að bíða að ný stjórn Blairs drifi í því að skipta pundinu út fyrir evr- una. Blair hefur heitið þjóðarat- kvæðagreiðslu um málið. En samkvæmt heimildum Reu- ters-fréttastofunnar mun ákvörðun- in um flutning Straws í utanríkismál- in ekki tengjast neitt umræðunni um EMU-aðild; það sem Blair hafi geng- ið til með breytingunni sé það eitt að traustur maður haldi um taumana í þessu mikilvæga ráðuneyti. Fjórar konur koma nýjar inn í stjórnina, til viðbótar við þær þrjár sem fyrir voru. Alls sitja 22 í henni. Portillo nefndur sem líklegur arftaki Hagues William Hague tilkynnti afsögn sína úr leiðtogasæti Íhaldsflokksins strax og ljóst varð hve illa flokkurinn fór út úr kosningunum og er fastlega búizt við að afstaðan til myntbanda- lagsins muni hafa mikil áhrif á slag- inn sem framundan er um það hver verður arftaki Hagues. Hjá veð- möngurum er nafn Michaels Portil- los, sem er „fjármálaráðherra“ skuggaráðuneytis Íhaldsflokksins, efst á blaði yfir líklega arftaka, en hann er jafnandsnúinn EMU-aðild Bretlands og Hague. Stjórnmálaskýrendur létu svo um- mælt í gær, að óeiningin í röðum íhaldsmanna væri nú slík, að ekki væri útilokað að Verkamannaflokk- urinn ætti möguleika á að sigra í þriðju þingkosningunum í röð árið 2005 eða 2006. Tony Blair sagður „sveifla öxi“ eftir sigurinn í þingkosningunum Utanríkisráðherraskipt- in þykja koma á óvart Lundúnum. Reuters.  Fjórar konur/6 Tony Blair MOHAMMAD Khatami, forseti Ír- ans, vann yfirburðasigur í kosning- unum í landinu á föstudag og jafnvel enn stærri en fyrir fjórum árum. Vonast er til, að það muni auð- velda honum og umbótaöflunum í landinu að brjót- ast út úr þeirri herkví, sem harð- línuöflin hafa haldið þeim í. Íranska innan- ríkisráðuneytið tilkynnti í gær, að þegar taldar hefðu verið 20,5 milljónir atkvæða – sem er um helmingur þess fjölda sem var á kjörskrá – hefði Khatami fengið 77,3% en hann fékk alls 69% atkvæða í kosningunum 1997. Keppinautar hans voru níu harðlínumenn og hafði Ahmad Tavakoli, fyrrverandi at- vinnumálaráðherra, fengið mest þeirra, 15,2%. Aðrir voru með miklu minna fylgi og flestir innan við eitt prósent. Var reiknað með að kjör- sókn hefði verið yfir 80%. Kjörstöð- um var haldið opnum fimm tímum lengur en upprunalega stóð til, þar sem langar biðraðir kjósenda höfðu myndazt. Athygli vekur, að Khatami hafði fengið 58% í hinni helgu borg Qom, miðstöð harðlínuklerkanna, sem enn eru langvaldamestir í Íran. Hann hlaut á bilinu 88-93% atkvæða Írana búsettra erlendis, eftir því sem rík- isfréttastofan IRNA greindi frá. Óttast byltingu Eftir stórsigur Khatamis 1997 var frelsi fjölmiðla aukið en harðlínu- mennirnir undu því ekki lengi og hafa bannað meira en 40 dagblöð og fang- elsað blaðamenn og menntamenn. Fyrir harðlínumönnunum fer Ali Khamenei erkiklerkur og er hann yf- irmaður heraflans, dómskerfisins og ríkisfjölmiðlanna. Þá skipar hann menn í 12 manna ráð, sem getur hafn- að lögum, sem því finnst ekki vera í samræmi við stranga túlkun á íslam. Komið hefur fram að undanförnu, að margir klerkanna kringum Khamenei vilja hætta afskiptum af stjórnmálum enda hafa þeir ástæðu til að óttast, að annars kunni að fara fyrir þeim eins og keisaranum, að þeim verði bolað burt með valdi. Kosningarnar í Íran Alger ósigur harðlínu- aflanna Teheran. Reuters. Mohammad Khatami

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.