Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 56
U M KL. 7:55 á svefnsæl- um sunnudagsmorgni í desember árið 1941, á meðan meirihluti íbúa eyjarinnar O’ahu á Hawaii lágu friðsælir í drauma- landi, læddist svart ský í formi flug- vélaþyrpingar skyndilega yfir þessa suðrænu paradís í Kyrrahafinu. Íbú- um O’ahu var brugðið en þeir voru ekki hræddir, fyrir þeim var styrjöld einfaldlega of fjarstæð. En raun- veruleikinn var annar. Innan skamms hellirigndi sprengjum og tundurskeytum yfir herstöðvar eyj- arinnar og á tæpum tveimur klukku- stundum var allur Kyrrahafsfloti bandaríska sjóhersins þurrkaður út. Manntjón var í þúsundatali og fæstir þeirra sem létu lífið urðu innrásar- innar nokkurn tíma varir. Þessar staðreyndir voru kvikmyndagerðar- mönnunum Michael Bay og Jerry Bruckheimer hvati í að ráðast út í framleiðslu kvikmyndarinnar Pearl Harbor sem kom í land sem ein dýr- asta kvikmynd sögunnar. Pearl Har- bor er ástarsaga sem skerpir fók- usinn á atburði umhverfis þessa sögulegu innrás og áhrif hennar á líf tveggja flugmanna (Ben Affleck og Josh Hartnett) og einnar hjúkrunar- konu (Kate Beckinsale). Geggjað verkefni Pearl Harbor er stórbrotin kvik- mynd um atburð sem breytti sögu Bandaríkjanna, og í senn sögu heims. „Hvenær og hvernig fæddist sú hugmynd að búa til kvikmynd um Pearl Harbor?“ byrjar blaðamaður á að spyrja leikstjórann. „Ég sat fund með Joe Roth (yf- irmanni kvikmyndadeildar Disney) og við ræddum u.þ.b. 20 mismunandi hugmyndir. Mér líkaði ekki ein ein- asta en einhver sem sat úti í horni spurði – „en að gera mynd um Pearl Harbor?“ Sá sem réðist í verkefni af slíkri stærð hlyti að vera geggjaður, var það fyrsta sem ég hugsaði. Þetta var snemma árs 1999.“ Michael Bay hefur alltaf verið mikill áhugamaður um sögu og þótt hvorki handrit né hugmynd væri til staðar ákvað hann að rannsaka nán- ar hvort grundvöllur að kvikmynd um þennan atburð væri fyrir hendi. Eftir að hafa lesið bækur og gamlar blaðagreinar, skoðað heimildar- myndir o.fl. flaug hann til Hawaii að skoða þá staði sem ráðist var á. Atburður sem varð að segja frá „Að sjá holur í götum, gangstétt- um og veggjum eftir byssukúlur Japananna, sem skilin hafa verið eft- ir ósnert til að minna fólk á þennan dag, var mjög áhrifaríkt,“ segir Bay. „Því næst flaug ég til San Diego og hitti fyrir stóran hóp af sjóliðum sem lifðu innrásina af. Pearl Harbor varð skyndilega ekki lengur einhver fjar- læg og dofin hugmynd heldur mjög svo nálæg og raunveruleg. Að hlusta á frásögur þessara 80 ára gömlu manna og horfa í vot augu þeirra er þeir segja frá þessum degi í ná- kvæmum smáatriðum var ógleyman- legt. Ég vissi þá að þetta var verk- efnið fyrir mig, atburður sem ég yrði að segja frá.“ Jerry Bruckheimer bætir við: „Það skemmtilega við að búa til svona bíómynd er að manni gefst tækifæri á að taka virkan þátt í mál- efni sem hafði stór áhrif, ekki aðeins á Bandaríkin heldur á allan heiminn. Gefur manni tækifæri á að sanka að sér allri þeirri vitneskju sem völ er á að finna og raða saman aftur á sem athyglisverðastan máta.“ Erfið fjármögnun Gífurleg áhersla var lögð á að gera umhverfi og bragð myndarinnar sem líkast því sem það var á Hawaii í byrjun fjórða áratugarins. Frá her- skipum, sem að hluta voru smíðuð, að skóreimum leikaranna og allt þar á milli. En Bruckheimer og Bay eru þó snöggir að benda á að Pearl Har- bor sé ekki heimildarmynd heldur frekar óður til þeirra hugrökku karla og kvenna sem létu lífið fyrir land sitt. „Áður en við hófumst handa áttum við endalaust efni af hljóðrituðum sögum,“ segir Bay. „Svo hefst hið erfiða ferli að velja og hafna, púsla saman bútum. Sem heimildarmynd hefði hún aldrei end- að undir tíu klukkustundum að lengd.“ En baráttan við að koma Pearl Harbor á hvíta tjaldið átti sér ekki eingöngu stað fyrir framan linsuna. Fyrir aftan myndavélina var einnig hart barist. Tökurnar fóru t.a.m. hægt af stað, aðallega vegna kostn- aðarágreinings. Michael Bay gekk fjórum sinnum út og sagði upp störf- um því Disney samþykkti ekki áætl- aðan kostnað upp á 208 milljónir dollara (21,6 milljarða króna). Þegar Disney sökkti einnig 145 milljónum (15 milljörðum króna) sáu Bay og Bruckheimer ekki fram á að geta gert myndina eins og þeir vildu gera hana. „Ég vildi segja þessa sögu á minn hátt eða sleppa því,“ sagði Bay. Það var svo ekki fyrr en leikarar og kvikmyndagerðarmenn féllust á að setja launagreiðslur á frest þar til myndin skilaði hagnaði að verkefnið fór í gang með samþykkta kostnað- aráætlun upp á 135 milljónir dollara (14 milljarða króna). Þar af komu 8 milljónir (832 milljónir króna) úr vasa Bays og Bruckheimers og allur umframkostnaður skyldi einnig á þeirra ábyrgð, sem er afar sjaldgæft fyrirbæri í Hollywood. Árásin kvikmynduð Upptökur hófust á O’ahu, Hawaii, 4. apríl 2000 með hefbundinni bless- un staðarprests. Bay segist alltaf hafa verið með skýra mynd í huganum um hvernig árásina ætti að útsetja. Hann hafði á undanförnum mánuðum setið fyrir framan tölvuskjá á skrifstofu sinni í Los Angeles og með aðstoð hönnuða og teiknara búið til Pearl Harbor í nákvæmri mynd, ásamt skipunum sem í höfninni sátu, sem hann studd- ist svo við til að kortleggja tökurnar fyrir fram. 500 manna hópur áhættuleikara, staðleikara og kvik- myndagerðarfólks beið tilsagnar Bay er hann staðsetti vandlega allar þær 12 Panavision-kvikmyndatöku- vélar sem áttu að mynda árásarsen- una frá landi, lofti og sjó og var Bay sjálfur tökumaður einnar þeirra. Það tók tæknilið myndarinnar heilan mánuð að stilla upp sprengiefnum á skipunum áður en ráðist var í tökur. Með notkun dýnamíts, príma og annarra sprengiefna, hlupu spreng- ingarnar kröftuglega af stað á sex skipum í höfninni og 16 þúsund lítrar af bensíni loguðu skært til að mynda reykinn sem fyllti höfnina í árásinni. „Þetta voru stærstu sprengingar sem ég hef á ævinni séð,“ segir Bay ákafur. „Hristingurinn var svo mikill að ég gat ekki haldið tökuvélinni kyrri og myndatakan því öll á fleygi- ferð.“ Þetta voru mestu sprengingar sem nokkurn tíma hafa verið fram- kvæmdar fyrir kvikmynd. Stjórn- anda tækniliðsins var meira að segja brugðið. Á yfir 40 ára ferli hefur hann aldrei verið valdur að öðrum eins látum. Bay heldur áfram: „Þetta var uppskrift að stórslysi því á sama tíma og sprengingarnar gengu á vorum við með flugvélar á sveimi, þyrlu fyrir loftmyndatöku og fólk á bátunum. Með smá mistökum hefðu hlutirnir getað farið illa. En við vorum mjög vandlega samstillt og þótt ótrúlegt megi virðast gekk allt snurðulaust fyrir sig. Enginn fékk á sig svo mikið sem skrámu.“ Með þá stafrænu möguleika sem fyrir hendi eru í eftirvinnslu bíó- mynda í dag, þarftu að leggja sjálfan þig og aðra í alla þessa voðalegu hættu? „Pearl Harbor hefur gífurlega mörg stór skot sem tekin voru upp á kvikmyndavél. Og einnig eru staf- rænu skotin stór í sniðum en ég nota færri fyrir vikið. Blanda þessu tvennu svo saman. Eins stór og staf- ræni heimurinn er orðinn í kvik- myndum í dag trúi ég því að raun- veruleikinn sé enn þá raunverulegri. Það má enn þá gera greinarmun á hvað er ekta og hvað ekki. Ég reyndi að stilla þessu þannig upp að þú eigir bágt með að sjá muninn.“ Hugrakkur leikstjóri „Það má telja leikstjóra á fingrum annarrar handar sem hafa kunnáttu, og jafnvel hugrekki, til að ráðast í svona stórt verkefni,“ segir Bruck- heimer Bay til hróss. „Það kallar á ómælda einbeitingu og skipulagn- ingu leikstjórans. Lucas hefur gert það, Spielberg og Cameron geta það. En hvert leitar maður svo?“ Pearl Harbor er fjórða samvinnu- verkefni Bay og Bruckheimers en samstarf þeirra hófst árið 1994 með kvikmyndinni Bad Boys. Bay var á þeim tíma eftirsóttur leikstjóri tón- listarmyndbanda og sjónvarpsaug- lýsinga og var jafnframt yngsti leik- stjóri sem unnið hafði til bókstaflega allra verðlauna í þeim geira. Saman hafa þeir síðan gert myndirnar The Rock og Armageddon sem báðar nutu mikilla vinsælda. En Pearl Harbor er sú langstærsta sem þeir hafa nokkurn tímann tekið sér fyrir hendur. Bruckheimer hefur fram- leitt margar af arðbærustu myndum Hollywood og hefur fyrir löngu skip- að sér í hóp með sigursælustu fram- leiðendum sögunnar. Bíógestir eru farnir að þekkja nafnið Jerry Bruckheimer jafnvel og nöfn kvikmyndastjarna. Hver er formúlan að því? „Auðvitað á maður að eigna sér heiðurinn af þeim myndum sem maður hrindir í framkvæmd, hvort sem þær eru góðar eða slæmar. Annars gerir það einfaldlega einhver annar, í það minnsta ef myndin er góð. Við Don Simpson, fyrrum sam- starfsmaður minn, hönnuðum okkar eigin ímynd svo það færi aldrei á milli mála hver ætti heiðurinn. Það vilja allir fá lof fyrir vinnu sína. Stúdíóin vilja miklu frekar setja sinn stimpil á myndirnar – Paramount- mynd – Disney-mynd o.s.frv. En þú verður að berjast fyrir þínu og vera tilbúinn að falla með því líka. Myndirnar mínar hafa halað inn mikinn pening. Ef þær gerðu það ekki væri ég ekki í þessum sporum í dag. Ef ég fengi ágætis lof fyrir myndirnar mínar en það væri enginn ágóði af þeim værum við ekki hér að spjalla saman í Pearl Harbor.“ Stórmyndaframleiðandann Jerry Bruck- heimer þarf vart að kynna fyrir kvik- myndaunnendum. Hann hefur nú sent frá sér enn eitt risavaxna kassastykkið – Pearl Harbor. Hálfdan Pedersen flaug til Hawaii og hitti framleiðandann ásamt leikstjóranum á vötnum Pearl Harbor. Michael Bay mundar tökuvélina. Ástir í skjóli styrjaldar: Ben Affleck og Kate Beckinsale. Bruckheimer á heimavelli. Jerry Bruckheimer og Michael Bay eru mennirnir á bak við Pearl Harbor FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Micro-húðfegrun fyrir eftir Guðrún er búin að fá Micro-húðfegrun og Tattoo á brúnir, augu og varir. Hún er ánægð – hvað með þig? Upplýsingar í s. 561 8677 Á vötnum Perluhafnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.