Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ V ÍÐA UM land eru til minnis- varðar um þá sem gist hafa hina votu gröf eða farist á annan hátt, hrapað fyrir björg eða drukknað. Vestur á Flat- eyri við Önundarfjörð er legstaður óþekkta sjómannsins og er lagður blómsveigur á leiðið á hverjum sjó- mannadegi. Þar var lagður til hinstu hvílu norskur sjómaður sem fórst með skipi sínu í apríl 1942, fjarri ástvinum og ættjörð. Saltskipið sem hvarf Laugardaginn 11. apríl 1942 birtist frétt í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Óttast um norskt skip hjer við land“: Norskt skip, með saltfarm, er átti að vera komið til Ísafjarðar, er ekki komið fram, og óttast menn um að því hafi hlekst á. Skipið mun vera um 2000 smá- lestir að stærð. Blaðið frjetti í gær kvöldi, að leit muni vera hafin í dag eftir skipi þessu.“ Í Virkinu í norðri, 3. bindi, eftir Gunnar M. Magnúss er sagt frá því er norska saltskipið hvarf úti fyrir Vestfjörðum. Þar segir að marga hafi verið farið að gruna þegar leið á stríðið að óskýrða skiptapa mætti rekja til tundur- dufla. „Þá var til þess vitað, að nærri hefði skollið, að stórslys yrðu af völdum tundurdufla, t.d. þegar Esja var að koma frá Ísa- firði með á þriðja hundrað farþega frá skíðamóti. Þá var stormur og hríðarbylur og tundurdufl straukst rétt með síðu skipsins, en skips- menn höfðu ekki fest auga á það fyrir sortanum. En þar munaði að- eins hársbreidd að hryllilegt slys yrði. Daginn eftir (9.4. 1942) fór norska flutningaskipið Fanefeld [skipið er kallað Fanefjell í kirkju- bók Holtsprestakalls. Aths. blaða- manns] þessa sömu siglingaleið, kom frá Bíldudal og ætlaði til Ísa- fjarðar, fórst það með allri áhöfn, 24 mönnum. Þar innanborðs voru Sigurður Oddsson, leiðsögumaður, 67 ára, og Guðmundur Pétursson sjómaður, 22 ára, báðir frá Reykjavík. Var almennt talið, að Fanefeld hefði farizt á tundurdufli, ef til vill því sama, er Esja renndi farsællega framhjá.“ Vígvöllur undan Vestfjörðum Vélbáturinn Ingólfur Arnarson ÍS 501 hélt til línuveiða frá Flat- eyri að morgni laugardagsins 11. apríl 1942. Skipstjóri var Jón Pét- ursson. Auk Jóns voru í áhöfninni Einar Pétur Elíasson vélarmaður og hásetarnir Bjarni Einarsson, móðurbróðir Þorvaldar Garðars Kristjánssonar alþingismanns, og Pétur Jóhann Magnússon, bróð- ursonur Jóns skipstjóra. Pétur man vel þessa tilteknu sjóferð en hann var þá á 17. ári. Hann segist hafa ungur byrjað að róa og þetta verið önnur vetrar- vertíð sín til sjós. Síðari heims- styrjöldin var í algleymingi og víg- völlur hafsins undan Vestfjörðum nálægt heimamiðum Önfirðinga. Skipalestir Bandamanna lögðu leið sína fyrir vestan Ísland og ef haf- ísinn var skammt undan sigldu skipin nærri landi. Kafbátar stríðsaðila lónuðu undir yfirborð- inu og oft sigldu Vestfirðingar fram á brak og reköld í sjónum. „Ég man þegar maður var á snurvoð á þessum árum þá sá maður skipalestirnar. Ég minnist þess einu sinni að fyrsta skip í lest fór framhjá okkur klukkan tvö síð- degis og það síðasta klukkan níu um kvöldið,“ segir Pétur. „Það gekk ýmislegt á úti fyrir Vest- fjörðum á stríðsárunum. Það voru oft tundurdufl á reki þar sem við lögðum línuna. Við máttum ekki vera þar, en lögðum samt. Einu sinni vorum við að draga línuna undir Barðanum. Þá kom yfir okk- ur flugvél og vakti athygli mína hvað hún flaug lágt. Var ekki nema í masturshæð. En þegar ég sá hakakrossinn stóð mér ekki á sama. Hann gerði ekkert við okk- ur, en þetta var um svipað leyti og árásin var gerð á Vörð og einn maður fórst.“ Eftirminnilegur róður Páskarnir voru nýliðnir, páska- dagur var 5. apríl árið 1942. Afli var farinn að glæðast og steinbít- urinn byrjaður að gefa sig á lín- una, skemmtilegur veiðiskapur að sögn Péturs. Það var lagt úr höfn í myrkri og siglt á miðin undan Barðanum. Línan var lögð í Óþekkti sjómaðurinn á Flateyri Í Flateyrarkirkjugarði er leiði óþekkta sjómanns- ins. Á sjómannadegi er lagður þar blómsveigur til minningar um þá sem horfið hafa í hina votu gröf, fjarri ástvinum og ættjörð. Guðni Einarsson kynnti sér sögu óþekkta sjómannsins á Flateyri. Jón Pétursson, skipstjóri. Morgunblaðið/Sverrir Pétur J. Magnússon var í áhöfn Ingólfs Arnarsonar sem fann lík norska ssjómannsins. Ingólfur Arnarson ÍS 501. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Leiði óþekkta sjómannsins á Flateyri. Morgunblaðið/Golli Einar P. Elíasson, vélamaður á Ingólfi Arnarsyni. Hann var fæddur 29. apríl 1914. Peter kom síðast heim árið 1935. Að sögn Noru voru farmenn á þeim árum oft fjögur til fimm ár að heim- an. Þau fréttu að hann hefði gift sig hollenskri konu í Rotterdam í Hol- landi 10. janúar 1940. Tveimur vik- um seinna fór hann til sjós og sneri aldrei aftur. Þjóðverjar hertóku bæði föðurland hans og land kon- unnar, en hann lenti hinum megin víglínunnar. Peter kom til Reykjavíkur haust- ið 1942 og hitti þar óvænt nágranna NORA Reite Hatlevik erfrá Fosnavåg í sveit-arfélaginu Herøy, semer rétt fyrir utan Åle-sund í Noregi. Hún kom í fylgd tveggja barna sinna, Lars Helge Hatlevik og Elisabeth Hatlevik Myrvågnes, til að vera á sjómannadag vestur á Flateyri. Nora er úr stórum systkinahópi, bræðurnir voru fimm talsins og systurnar tvær. Elsti bróðir henn- ar, Peter Leon Reite, fór til sjós þegar hann var 17 ára gamall. og gamlan vin úr heimabyggðinni, Rolf Reite að nafni. Í Reykjavík skipti Peter um skipsrúm og réð sig á olíuskipið Bold Venture, sem var skráð í Panama. Skipið lagði úr höfn í Reykjavík og daginn eftir, 16. október 1942, var því sökkt vestur af Íslandi. Talið var að það hefði orðið fyrir tundurskeyti. Rolf Reite sneri aftur til Noregs eftir stríðið og gat sagt fjölskyldu Peters hver örlög hans urðu. Ljóðið um legstaðinn Nora hefur starfað um árabil í Norska sjómannatrúboðinu og er formaður deildarinnar í Berge. Fyrir nokkrum árum birtist ljóð um óþekkta sjómanninn í Flateyr- arkirkjugarði í blaði sjómannatrú- boðsins, Heime og ute. Ljóðið er eftir Hjört Hjálmarsson, fyrrum skólastjóra á Flateyri, og var þýtt Morgunblaðið/Árni Sæberg Nora Reite Hatlevik ásamt börnum sínum, f.v.: Elisabeth Myrvågnes, Lars Helge Hatlevik og Nora. Norsk kona heiðrar minningu horfins Á sjómannadag leggur Nora Reite Hatlevik, 69 ára gömul norsk kona, blóm á leiði óþekkta sjómannsins á Flateyri. Hún gerir það í minningu bróður síns, Peters Leons Reite, sem fórst við Ísland 1942, og annarra norskra sjómanna sem gista hina votu gröf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.