Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRÁ ÞVÍ við fengum fullanyfirráðarétt yfir 200 mílnafiskveiðilögsögu um miðjanáttunda áratuginn, höfumvið verið einráð um stjórn okkar á fiskveiðum. Við stöndum hinsvegar enn einu sinni frammi fyrir því að væntingar manna til vaxtar og viðgangs þorskstofnsins hafa ekki gengið eftir þrátt fyrir að hálfur ann- ar áratugur sé nú liðinn frá því að kvótakerfinu var komið á koppinn. Stefnir enn í kvótasamdrátt þar sem fiskifræðingar hafa á undanförnum árum ofmetið stærð þorskstofnsins. Undir svona kringumstæðum hafa sérfræðingar Hafrannsóknastofnun- ar fengið sinn skerf af gagnrýni í gegnum tíðina og hafa ýmsir orðið til þess að gagnrýna þá aðferðafræði, sem viðhöfð er innan stofnunarinnar. Að sama skapi má segja að þjóðar- hagur sé í húfi þegar kemur að ráð- gjöf fiskifræðinga þó stjórnvöld hverju sinni hafi ekki séð ástæðu til að fara í einu og öllu eftir ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar frá því að kvóta- kerfið var tekið upp árið 1984, nema helst hin síðari ár eftir að aflareglan svokallaða tók gildi. Það hefur leitt til þess að heildaraflinn hefur gjarnan verið umfram leyfilegan hámarksafla. Eins og gefur að skilja felast miklar hættur í veiðisókn umfram veiðiþol og hefði hrun þorskstofnsins án efa af- drifaríkar afleiðingar fyrir Íslend- inga. Hafrannsóknastofnun er helsti ráðgjafi stjórnvalda í fiskveiðimálum og árlega gefur stofnunin út tölur um æskilegt aflamagn, svo ekki verði gengið „of nærri“ stofninum. Sú stefna, sem Hafrannsóknastofnun markaði, var að byggja skyldi upp fiskistofnana svo þeir gæfu af sér meiri afla og öruggari nýliðun. Vernda skyldi hrygningarstöðvar og ungan fisk í uppvexti. Möskvi var stækkaður og skyndilokunum beitt til þess að friða smáfisk svo hann næði að vaxa og stækka stofninn. 1991 : Sígur á ógæfuhliðina Þorskstofninn á Íslandsmiðum stóð enn veikt árið 1991 þrátt fyrir að Ís- lendingar hafi haft fulla stjórn á fisk- veiðum við landið frá 1. desember 1976. Skýringarnar á því að stöðugt virtist síga á ógæfuhliðina taldi Jakob Jakobsson, þáverandi forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, einkum vera tvær. Annars vegar að ekki hafi verið farið að tillögum fiskifræðinga um sókn í stofninn. Sem dæmi má nefna að árið 1984 lagði Hafrannsókna- stofnun til að veidd yrðu 200 þús. tonn af þorski en aflinn nálgaðist 300 þús. tonn það ár. Árið eftir varð munurinn enn meiri því að enn lagði stofnunin til 200 þús. tonna veiði en aflinn fór vel yfir 300 þús. tonn. Árið 1989 var afli umfram tillögur hvað minnstur en þó var veitt rúmlega 50 þús. tonnum meira en stofnunin mæltist til. Hina ástæðuna fyrir minnkandi þorskstofni sagði Jakob vera að eftir hlýviðrisskeiðið frá 1920 til 1965 hafi árferði á norðanverðu Atlantshafi verið sveiflukennt undanfarin 25 ár. Á þessu tímabili hafi oft verið mikið um pólsjó á Íslandsmiðum. Afleiðingar lé- legs árferðis á þorskstofninn kæmi m.a. fram í því að árgangarnir alveg frá árinu 1986 væru lélegir auk þess sem ástandið við Grænland hefði einnig versnað. Sérfræðingar Hafrannsóknastofn- unar lögðu til að þorskafli á fiskveiði- árinu 1991/1992 færi ekki umfram 250 þús. tonn þar sem horfurnar væru slæmar vegna lélegrar nýliðunar og líklegt væri að afli næstu þrjú árin mætti ekki fara yfir 250 þús. tonna markið. Þeir töldu þá að ef veidd yrðu 300 þús. tonn árin 1992 og 1993 myndi veiðistofn fara verulega minnkandi, úr 850 þús. tonnum í ársbyrjun 1992 í um 730 þús. tonn í ársbyrjun 1994 og hrygningarstofn minnka sömuleiðis. Í tillögum Hafrannsóknastofnunar fyrir fiskveiðiárið 1991/1992 segir m.a. svo: „Á undanförnum árum hef- ur sókn í þorskstofninn verið alltof hörð. Þrátt fyrir ítrekaðar ráðlegg- ingar Hafrannsóknastofnunar um að dregið verði úr sókn hefur ekki tekist að byggja upp þorskstofninn þannig að fleiri árgangar verði í veiðistofni og hrygningarstofn vaxi. Um 35–40% af veiðistofni hafa verið veidd árlega. Þetta hefur leitt til þess að veiðar hafa byggst að verulegu leyti á nýliðun og hrygningarstofn hefur verið í lág- marki undanfarinn áratug. Nú eru fimm lélegir árgangar að koma eða komnir inn í veiðistofninn. Hver nýliði gefur af sér um 1,7 kíló miðað við nú- verandi sóknarmynstur og er sýnilegt að afli næstu árin getur vart orðið meiri en 200 til 250 þús. tonn eigi ekki að ganga verulega á stofninn.“ Samkvæmt reglugerð sjávarút- vegsráðherra mátti á fiskveiðiárinu 1991/1992 veiða 265 þúsund tonn eða 15 þúsund tonn umfram ráðgjöf fiski- fræðinga. „Með þessari ákvörðun er lítillega vikið frá tillögum Hafrann- sóknastofnunar vegna þeirrar þröngu efnahagslegu stöðu, sem við erum í. Þetta hefur mikil áhrif á þjóðarbú- skapinn í heild og við teljum að við þessar aðstæður sé óhjákvæmilegt að huga að mótun heildstæðrar sjávarút- vegsstefnu,“ sagði Þorsteinn Pálsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, á blaðamannafundi þegar hann til- kynnti ákvörðun sína. 1992: Málamiðlun í ríkisstjórn Enn seig á ógæfuhliðina þegar komið var fram á fiskveiðiárið 1992/ 1993. Ríkisstjórnin komst að þeirri niðurstöðu á löngum fundi að leyfa veiðar á 205 þúsund tonnum af þorski þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafði gert tillögu um 190 þúsund tonna hámarksþorskafla það ár. Það var um 60 þús. tonnum minna en stofnunin lagði til fyrir árið á undan og 75 þús. tonna minni kvóti. Sjávarútvegsráðherra nefndi þessa niðurstöðu málamiðlun, í viðtali við Morgunblaðið á sínum tíma, en þegar ráðherra var spurður hvort það hefði aldrei komið til greina í hans huga að standa og falla með eigin sannfær- ingu og leggja til á ríkisstjórnarfund- inum að hámarksafli þorsks yrði tak- markaður við 190 þús. tonn, svaraði hann því til að hann hefði lagt aðal- áherslu á að finna lausn og ná sam- stöðu um málið. „Ég neita því ekkert að ég hefði viljað fá meiri árangur í friðun, en ég tel þó að við höfum náð hér mjög umtalsverðum árangri og stigið skref fram á við. Mín ósk hefði auðvitað verið sú að ná fram meiri ár- angri, en þegar menn þurfa að miðla málum, þá verða allir að fá eitthvað af sínum sjónarmiðum viðurkennd. Ég óttast það, og er reyndar alveg sann- færður um það, að ef ég hefði látið reyna á ýtrustu kröfur af minni hálfu og yfirgefið ríkisstjórnina vegna þess að þær hefðu ekki náðst fram, þá hefði niðurstaðan að öllum líkindum orðið miklum mun meiri veiði og minni verndun þorskstofnsins,“ sagði Þor- steinn og bætti við: „Hér er vissulega um málamiðlun að ræða sem hefur líka í för með sér að það er tekin nokk- ur áhætta með þorskstofninn, miðað við þær vísindalegu niðurstöður sem við höfum í höndum. Að mínu mati er hér um að ræða ásættanlega niður- stöðu miðað við allar aðstæður.“ Jakob Magnússon, þáverandi að- stoðarforstjóri Hafrannsóknastofn- unar, sagði niðurstöðuna hafa verið ofurlítið skref til uppbyggingar á þorskstofninum, en hann hefði gjarn- an viljað sjá það skref stærra. Fiski- fræðingar töldu sumarið 1992 nauð- synlegt að takmarka aflann við 175 þús. tonn næstu tvö ár á eftir með það markmið í huga að byggja hrygning- arstofninn upp enda væri styrkur hans forsenda góðrar nýliðunar. Eftir að tillögur Hafrannsókna- stofnunar fyrir fiskveiðiárið 1992/1993 voru kynntar og nokkru áður en rík- isstjórnin tilkynnti ákvörðun sína um leyfilegan heildarafla, sagðist sjávar- útvegsráðherra í samtali við Morgun- blaðið, m.a. telja að við stæðum frammi fyrir því að gera það upp við okkur hvort við ættum að setja okkur ný markmið varðandi nýtingu stofns- ins. „Fram til þessa hefur ráðgjöfin miðað að því að halda stofninum í jafn- vægi. Síðan höfum við farið verulega fram úr þessari ráðgjöf, bæði í ákvörðunum um heildarafla og í veiði- reynslu. Nú er stofninn kominn í lág- mark, og þá sýnist mér að við stönd- um frammi fyrir þeirri spurningu hvort ekki sé nauðsynlegt að setja ný markmið, sem miða að því að byggja stofninn upp. Frá mínum bæjardyrum séð eru fyrir því mjög gild rök og við munum við undirbúning endanlegrar ákvörð- unar hafa þetta í huga.“ 1993: Uppbygging stofnsins Tillögur Hafrannsóknastofnunar miðuðu við 150 þúsund tonna þorsk- afla á fiskveiðiárinu 1993/1994 og taldi stofnunin að veiðar umfram 175 þús. tonn stefndu þorskstofninum í hættu. Stefnt skyldi að uppbyggingu stofns- ins með því að takmarka aflann enn frekar og sagði Jakob Jakobsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar, niður- stöðuna ekki þurfa að koma mönnum á óvart. Nýútkomin skýrsla væri að- eins staðfesting á síðustu skýrslu, sem út hafi komið ári áður. „Mér sýnist að við getum dregið þá ályktun af þessari skýrslu að hag- kvæmar veiðar úr þorskstofninum liggi á bilinu frá 125 þús. lestum upp í 175 þús. lestir. Áhættuþættirnir eru mismunandi eftir því hvar menn ber niður á þessu svigrúmi, en utan við þennan ramma sýnist manni að ekki geti verið um skynsama eða hag- kvæma nýtingu að ræða,“ sagði sjáv- arútvegsráðherra. Stjórnvöld ákváðu að heildarafla- mark þorsks fiskveiðiárið 1993/1994 yrði 165 þús. lestir eða 15 þúsund tonnum umfram ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar sem var í fullu sam- ræmi við þá tillögu, sem Þorsteinn Pálsson lagði fyrir ríkisstjórn. „Ég tel að þetta sé mjög veigamikið skref til þess að mæta erfiðum aðstæðum sem þjóni þeim tilgangi að byggja þorsk- stofninn upp á ný, sem hlýtur að vera meginmarkmið okkar,“ sagði ráð- herra í samtali við Morgunblaðið á sínum tíma. 1994: Sögulegt lágmark Að mati Hafrannsóknastofnunar var þorskur á Íslandsmiðum í sögu- legu lágmarki vorið 1994 og gerðu fiskifræðingar þá tillögu um að aðeins yrði leyft að veiða 130 þúsund tonn á fiskveiðiárinu 1994/1995. Með því stæðu líkur til að bæði hrygningar- og veiðistofn stækkuðu, miðað við eðli- legar aðstæður í lífríki sjávar. Líkur væru á að við 130 þús. tonna afla yrði veiðistofninn kominn í 770 þús. tonn árið 1997 og hrygningarstofn í tæp 300 þús. tonn. Jakob Jakobsson benti á að allt frá 1985 eða samfellt í níu ár hefðu þorskárgangar verið lélegir og allir undir meðallagi. Af því hlyti þró- un þorskstofnsins að mótast næstu árin, en reynslan sýndi að sjaldan væri farið að tillögum stofnunarinnar. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, ákvað í kjölfar ráðgjafar- innar að heimila veiði á 155 þúsund tonnum eða 25 þúsund tonnum um- fram ráðgjöf fiskifræðinga Hafrann- sóknastofnunar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að erfitt væri að skera þorskafla frekar niður en þegar hafi verið gert. „Að hinu leytinu vitum við að við stöndum frammi fyrir mik- illi hættu og að við verðum að ná því marki að geta stækkað veiðistofninn. Það er jafnframt ljóst að hrygning- arstofninn má ekki minnka.“ 1995: Enginn niðurskurður Í fyrsta sinn um langt skeið lagði Hafrannsóknastofnunin til á vormán- uðum 1995 að veitt yrði jafnmikið af þorski á fiskveiðiárinu 1995/1996 og á árinu á undan eða 155 þús. tonn og fór sjávarútvegsráðherra í einu og öllu eftir þeirri ráðgjöf. Jók það nokkuð á bjartsýni manna hvað varðaði vöxt og viðgang þorskstofnsins. Þá var einnig í fyrsta sinn stuðst við svokallaða afla- reglu stjórnvalda sem kvað á um að VÆNTINGAR OG VONBRIGÐI Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar liggja nú undir harðri gagnrýni vegna nýútkominnar skýrslu þar sem lagt er til að dregið verði verulega saman í þorskaflaheim- ildum á næsta ári, m.a. vegna ofmats stofnunarinnar á stofnstærð þorsks á síðustu árum. Guðni Einarsson og Jóhanna Ingvarsdóttir litu yfir síðastliðin 10 ár, könnuðu ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og viðbrögð stjórnvalda við ráðgjöf fiskifræðinganna. Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.