Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 2
ANDI liðinna tíma sveif yfir vötn-
um í Hellisgerði í Hafnarfirði í gær,
þegar atriði fyrir kvikmyndina
Mávahlátur sem á að gerast í 17.
júní hátíðarhöldunum árið 1952 var
tekið upp.
Um eitthundrað aukaleikarar á
öllum aldri klæddu sig því upp á
gamla mátann til að gera atriðið
raunverulegt. Fimleikasýning,
reiptog og dansleikur við hljóm-
sveitarpallinn eru meðal þeirra at-
riða sem tekin voru upp í gær.
Kristín Marja Baldursdóttir skrif-
aði bókina sem handritið er gert
eftir.
Ágúst Guðmundsson leikstjóri
myndarinnar segir að tökur hafi
gengið mjög vel. Hann segir að nú
sé eftir að taka upp þau atriði
myndarinnar sem gerast að sumri
til, en gert er ráð fyrir að síðasti
tökudagur verði á morgun.
Gamli
tíminn end-
urvakinn
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
KRÍAN er kjarkaður
fugl þar sem hún leggur
til atlögu með eldrauðan
gogginn og hamslaust
hugrekkið að vopni við
hvern þann sem vogar
sér að nálgast varpið.
Það eru ekki nema
hraustustu menn sem
hætta sér inn fyrir víg-
línuna, og er þó spurt að
leikslokum. Á golfvell-
inum á Suðurnesi á Sel-
tjarnarnesi gætir krían
þess vel að enginn fari
nærri hreiðri hennar og
á það til að ráðast á
kylfinga sem voga sér
inn á yfirráðasvæði
hennar. Kylfingarnir
hafa því samið reglur
sem veita lausn frá
hreiðrum, þ.e. ef kúlan
lendir við hreiður má
taka hana og færa – vít-
islaust. Ef krían er mjög
ágeng má kylfingur líka
hafa aðstoðarmann sem
ver hann með því að
standa fyrir aftan hann
og halda priki á lofti.
Yfirráða-
svæðið
varið
Morgunblaðið/Arnaldur
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
Reykjavíkurborg og Vátrygginga-
félag Íslands til að greiða konu
rúmlega 3,6 milljónir króna í
skaðabætur. Héraðsdómur
Reykjavíkur hafði áður dæmt kon-
unni í vil og dæmt henni sömu
upphæð en Reykjavíkurborg og
VÍS áfrýjuðu dómnum til Hæsta-
réttar.
Konan var húsmóðir á fimm
manna heimili og vann sem sjúkra-
liði í hálfu starfi þegar hún lenti í
umferðarslysi árið 1997 „og hlaut
af nokkur lemstur“, eins og segir í
dómi Hæstaréttar. Slysið varð með
þeim hætti að bifreið í eigu Véla-
miðstöðvar Reykjavíkurborgar var
ekið aftan á bifreið konunnar. Var-
anleg örorka konunnar er 15%.
Samkvæmt skaðabótalögum eiga
þeir sem vinna við heimilisstörf
rétt á bótum verði þeir fyrir lík-
amstjóni sem verður til þess að
þeir geti ekki sinnt heimilisstörf-
unum. Bæturnar eiga að miðast við
verðmæti vinnu við heimilisstörf.
Ágreiningur um hvaða
laun yrðu lögð til grundvallar
Ágreiningur reis um hvaða laun
skyldi leggja til grundvallar við
ákvörðun bóta fyrir varanlega ör-
orku. Fram kemur í dómnum að
engra gagna eða samanburðar-
hæfra talna njóti við um það,
hvaða launaviðmiðun geti almennt
verið réttlætanleg vegna heimilis-
starfa.
Hæstiréttur ákvarðaði konunni
bætur miðað við að hún hefði unnið
í fullu starfi sem sjúkraliði.
Reykjavíkurborg og VÍS hefðu
enda ekki sýnt fram á, að konan
hefði ekki getað tvöfaldað árstekj-
ur sínar með því að vinna fulla
vinnu.
VÍS fór ekki eftir lögum
Hæstiréttur féllst á kröfu kon-
unnar um að henni yrði bætt tíma-
bundið atvinnutjón vegna heimilis-
starfa með sömu fjárhæð og hún
fékk samtals í mánaðarlaun í hálfu
starfi sem sjúkraliði, þann tíma
sem hún var óvinnufær með öllu.
Þeirri kröfu væri enda svo í hóf
stillt að hún yrði ekki skert.
Reykjavíkurborg og VÍS var
ennfremur gert að greiða konunni
sameiginlega 500.000 krónur í
málskostnað í héraði.
Við ákvörðun um málskostnað
var m.a. litið til þess að áfrýjendur
gáfu ekki viðhlítandi skýringar á
því, hvers vegna VÍS varð ekki við
margendurteknum óskum konunn-
ar um greiðslu á bótum, sem hún
myndi taka með fyrirvara, svo sem
félaginu var þó skylt samkvæmt
lögum um vátryggingarsamninga.
Fyrir héraðsdómi kom fram, að
VÍS neitaði að greiða konunni þær
bætur sem enginn ágreiningur var
um.
Konan fékk gjafsókn fyrir
Hæstarétti og var allur málskostn-
aður greiddur úr ríkissjóði, þ.m.t.
400.000 króna þóknun lögmanns
hennar, Atla Gíslasonar hrl.
Örorkubætur húsmóður
miðaðar við fullt starf
LÍKLEGA verður ekkert af sameig-
inlegu eftirliti lögreglunnar á Suður-
landi á hálendinu í sumar. Sumarið
1999 veitti Ríkislögreglustjóri styrk til
að samræma og bæta eftirlit á svæð-
inu sem mæltist að sögn lögreglunnar
afar vel fyrir. Í fyrra var ekki um sam-
eiginlegt eftirlit að ræða þar sem ekki
fékkst fjármagn til verkefnisins.
Tómas Jónsson, yfirlögregluþjónn
á Selfossi, segir að ekki hafi verið farið
fram á fjárveitingu til þess að sinna
sameiginlegu eftirliti lögregluemb-
ættanna í Rangárvallarsýslu, Vestur-
Skaftafellssýslu og í Árnessýslu.
„Okkur var synjað um fjárveitingu í
fyrra og við vitum að það þýðir ekkert
að vera að biðja um slíkt aftur. Frekar
biðjum við um fjárveitingu til þess að
sinna löggæslunni almennt.“
Spurður um sameiginlegt eftirlit
lögregluembættanna í sumar sagði
Tómas: „Það er ekki farið að huga að
sameiginlegu eftirliti embættanna.
Við erum í algjöru lágmarki hvað
mannskap og fjármagn varðar og af
þeim sökum verðum við að forgangs-
raða hverjum sköpuðum hlut. Við er-
um því mest á vegunum þar sem flest
slysin eiga sér stað og betur getum við
ekki gert. Hvort við eigum eftir að
sinna sameiginlegu eftirliti á hálend-
inu verður að koma í ljós en það er
bara rétt byrjað að opna. Við reynum
þó að sinna því eftir megni.“
Tómas sagði jafnframt að hann ef-
aðist ekki um að eftirlitið sumarið
1999 hefði skilað árangri. „Það kom
kannski ekki margt upp á í þessum
eftirlitsferðum en þær gerðu gagn
eins og hvert annað eftirlit. Þá var
mjög góð samvinna á milli embætt-
anna.“
Mikil ölvun á hálendinu
Friðjón Guðröðarson, sýslumaður í
Rangárvallarsýslu, tók undir orð
Tómasar þess efnis að engir fjármunir
væru fyrir hendi til að sinna sameig-
inlegu eftirliti embættanna. „Ég tel að
dómsmálaráðuneytið muni ekki láta
okkur hafa sérstaka fjármuni í þetta.
Við reynum þó að fara einhverjar
ferðir yfir sumarmánuðina og kannski
munu embættin eitthvað sameinast
um það. Það verður að sinna eftirliti á
hálendinu og ég mun reyna að standa
fyrir því.“
Að sögn Friðjóns var eftirlitið sum-
arið 1999 óheyrilega kostnaðarsamt.
„Þá vorum við reyndar með lækni
með okkur og einn læknir kostar nú
reyndar eins og ein meðaláhöfn á tog-
ara. En það sparar okkur þó að þurfa
að hlaupa með öll vandamál í byggð,
sbr. þau mál er tengjast ölvunar-
akstri. Við munum þó ekki taka lækna
með á hálendið í sumar vegna kostn-
aðar.“
Friðjón segir að eftirlitið skipti
miklu máli vegna forvarna og enn
fremur viti ferðalangar af lögreglunni.
„Á hálendinu er alltof mikið um ölvun
og það er á ársgrundvelli. Menn eru
ekki betri á vélsleðunum og jeppunum
á veturna. Það er alveg hrikalegt ást-
and og flest slysin á veturna eru til-
komin vegna ölvunar. Hvað utanvega-
akstur varðar þá held ég að hann sé
ekki eins slæmur og menn eru að
blása út.“
Sameiginlegt eftirlit lögreglunnar á Suðurlandi á hálendinu
Ekki sótt um fjárheim-
ild til verkefnisins
Lokaði
Club
Clinton
LÖGREGLAN í Reykjavík
átti annasama nótt aðfaranótt
laugardagsins og þurfti m.a.
að grípa inn í átök, elta uppi
árásarmenn og handtaka.
Þá neyddist lögreglan til að
loka nektardansstaðnum Club
Clinton í miðbæ Reykjavíkur
upp úr klukkan fjögur aðfara-
nótt laugardags. Eigendur
staðarins höfðu ekki leyfi til
að hafa opið lengur en til
klukkan þrjú og því varð lög-
reglan að skerast í leikinn og
loka staðnum. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík hefur
ítrekað þurft að hafa afskipti
af staðnum vegna brota af
þessu tagi.
Um tíu viðskiptavinir voru
inni á Club Clinton þegar lög-
reglan kom að og gekk átaka-
laust að koma þeim út af
staðnum.
Annir hjá lögregl-
unni í Reykjavík