Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ N Ú UM Sjómanna- daginn er liðið ár síðan tvær skonn- ortur franska flot- ans, „La Belle Poule“ og „L’Etoile“ komu í heimsókn hingað til Íslands. Skipin eru nákvæm eftirlíking fiskiskonnortanna (góletta) sem voru hér við land í hundruða tali á síðari hluta 19. aldar og allt fram undir 1935, þegar síðasta skútan frá Pompól í Bretaníu var hér á Íslands- miðum. Skipin komu hingað í boði menn- ingarborgar Reykjavíkur og fyrir tilstilli franska sendiráðsins. Þessar æfingaskútur franska flot- ans voru byggðar árið 1932 í Fé- camp í Normandí. Þær eru úr eik, notaðar til þjálfunar og kennslu nemenda Sjóliðsforingjaskólans í Brest; 37,5 metrar á lengd (mesta lengd) og 25,30 metrar í sjólínu,7,40 m á breidd og djúprista 3,65 metrar, særými (deplacement) 225 tonn og búnar 285 hestafla hjálparvél, en flatarmál allra segla er 450 m2..Venjulega eru 15 menn í áhöfn. Upphaf þessarar heimsóknar má rekja til Fulltrúaráðs Sjómanna- dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði sem ætlaði að fá seglskip til Reykja- víkur í tilefni 60 ára afmælis Sjó- mannadagsins 1998. Á 50 ára afmæli Sjómannadagsins árið 1988 komu hingað þrjú seglskip, Georg Stage frá Danmörku, þrímastrað rásiglt skip (fullreiðaskip), og kútterarnir Jóhanna og Westward Ho frá Fær- eyjum, tvímastraðar skútur eins og þær sem voru hér á skútuöldinni um og eftir aldamótin 1900. Þessi þrjú seglskip sigldu þá í skrautsiglingu ásamt íslensku og dönsku varðskipi inn til hafnar á Sjómannadaginn 1988. Þetta þótti falleg sjón í góðu veðri hér úti á sundunum og ætlunin var að endurtaka þetta árið 1998. Á 50 ára afmælinu, 1988, átti að fá mun fleiri seglskip hingað til Reykjavík- ur. Urðu það okkur sem unnum að þessu í umboði Sjómannadagsráðs mikil vonbrigði að ekki tókst að fá fleiri skip. Flestir höfðu þá afsökun að skipin tækju þátt í mikilli hátíð vegna 200 ára landnáms Breta í Ástralíu. Óskir um að fá skipin hing- að til lands höfðu þó verið sendar með góðum fyrirvara, einu og tveim- ur árum fyrr. Það var því öllu áhugafólki um seglskip og tengsl við Frakka mikið ánægjuefni að þessar tvær þekktu og fallegu skonnortur komu hingað til lands í fyrra. Það sem er þó ennþá ánægjulegra er hvað heimsókn skip- anna hingað til Íslands tókst á allan hátt frábærlega vel og verður skráð í sögu franska flotans og samskipta Íslands og Frakklands sem merki- legur atburður. Komu skonnortanna var gerð góð skil í Morgunblaðinu og Lesbók Morgunblaðsins í merkilegum greinum sem Elín Pálmadóttir skrif- aði, en grein og skýrsla Gonidecs, þriðja stýrimanns á Pourquoi pas?, sem var sá eini sem komst af, varpar nýju ljósi á hversvegna Pourquoi pas? hrakti upp á Mýrar og hvers slags aftakaveður var, þegar skipið fórst , 16. september 1936. Því hefur t.d. verið haldið fram að skipstjórn- armenn hafi villst á vita og tekið vit- ann á Akranesi í stað Gróttuvita. Það var alls ekki, þeir vissu allan tímann hvar þeir voru staddir og kom auðvitað vart annað til greina með þrjá þrautreynda skipstjórnar- menn í brúnni. Yann Carriou, skip- herra á ĺEtoile, tók með sér þessa skýrslu ásamt myndaalbúmi Goni- decs. Ég kynntist nokkuð Yann Carriou skipherra þessa daga sem skipin lágu hér í Reykjavík. Hann er al- úðlegur maður, Bretóni að uppruna og ber með sér að hann er góður sjó- maður. Ógleymanlegt er þegar hann ræddi og útskýrði skýrslu Gonidecs í káetu sinni. Um siglingu skonnortanna, l’Étoile og la Belle Poule, hefur Car- iou sent mér fróðlega skýrslu og myndir. Skýrslan er samtals 23 blað- síður, þéttrituð í A-4 broti og nefnist „Ferð léttskonnortanna til Íslands í júní-mánuði 2000.“ Þetta er merki- legt plagg, sem er stórfróðlegt og skemmtilegt að glugga í. Hefur Carriou leyft mér að vitna í þessa skýrslu að vild. Heimsóknin og sigling skonnort- anna vakti mikla athygli í Frakk- landi, auðvitað sérstaklega í hópi sjómanna. Yann Carriou ritaði fróð- lega og skemmtilega grein um ferð- ina í blað franska flotans, „Cols bleus“, sem kom út í nóvember sl., og hann nefnir „Í kjölfar Pourquoi- pas?“. Hann rekur þar rannsóknir Jean-Baptiste Charcot í norðurhöf- um, sem fór í 28 heimsskautaleið- angra bæði til suður- og norður- heimskautslanda og fórst með skipi sínu Pourquoi-pas? hér á Mýrum 16. september 1936. Frá 1925 var Ísland bækistöð og viðkomustaður þessa mikla land- könnuðar á hverju ári, en hann lagði sérstaka áherslu á rannsóknir á Norðaustur Grænlandi, sem var þá ókortlagt. Í febrúarhefti siglingatímaritsins „Voiles et voiliers“ birtist löng grein, sérstaklega fallega myndskreytt, um ferð skonnortanna, samtals 10 blaðsíður; einnig birtist löng grein og ríkulega myndskreytt í hinu vandaða riti „Chasse-Marée“. Í skýrslu sinni segir Carriou um brottförina frá Pompól: „Ekki er lagt upp í ferð til staðar eins og Ís- lands án þess að viss spenna sé í lofti. Öllum um borð var ljóst að við vorum að fara í sögulega ferð, af því að Íslandsskútur flotans ( l’Étoile og la Belle Poule) höfðu aldrei siglt þangað fyrr og eru fyrstu Íslands- skonnorturnar sem sigla til Íslands síðan 1935.“ Við bryggjuna þar sem Íslands- skúturnar lágu fyrrum, lyfti krani tveimur bryggjupollum (fyrir land- festar skipa) um borð áður en lagt var úr höfn. Festarstaurarnir eru úr granít og fyrr á tíð voru skúturnar bundnar við þessa polla. Þetta er gjöf frá Pompól til Reykjavíkur- borgar. Bryggjupollarnir eru tengd- ir saman með keðju og er gjöfin táknræn um gömul og ný tengsl þessara tveggja borga. Laugardaginn 3. júní fóru áhafnir skonnortanna eins og siður var fyrr á tíð áður en skipin sigldu á Íslands- mið í kapellu vorrar frúar í Perros- Hamon og að ekknakrossinum við Pompól. Við hátíðlega athöfn var lagður blómsveigur í kirkjugarðin- um í Plúbaslanekju (Ploubazlanec) að vegg með minningarskjöldum yf- ir þá sem fórust á Íslandsmiðum. Þegar siglt er úr höfn kl. átta um kvöldið er fjöldi fólks á bryggjunni til að kveðja. Stefnan er sett vestan við Land́s End á suðvesturodda Englands og í Írlandshaf og Georgs- sund, þar sem eru miklir straumar. Á leiðinni til Íslands komu þeir við í Suðureyjum, þar sem Pourquoi pas? kom einmitt iðulega við á leið sinni til Íslands til að taka kol og vistir. Að morgni 10. júní reis Ísland úr hafi og lýsir Carriou því skemmti- lega: „Klukkan 0700 A ( tímabelti Greenwich) sést Ísland framundan á stjórnborða. Klukkan 0730 þekkjum við ísilagða tinda Mýrdalsjökuls. Vegna fjarlægðar birtist Ísland okk- ur eins og fjallaþyrping, þakin ís, en smám saman rís eyjan úr Norður- Atlantshafinu, tignarleg og hrífandi. Þarna er loks þetta goðsagnaland... Heimsókn skonnorta franska f Tvær skonnortur franska flotans komu til Íslands fyrir réttu ári. Guðjón Ármann Eyjólfsson rifjar upp heimsóknina. Skipverjar l’Etoile við Norðurheimskautsbauginn 13. júní. Skonnortan Belle Poule út af Snæfellsjökli. Skútan l’Etoile á gömlum handfæraslóðum út af Vestfjörðum. Opna úr franska tímaritinu Voiles et voiliers. Á stóru myndinni er skútan l’Etoile út af Vestfjörðum. Á innfelldu myndinni er Yann Carriou, skipherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.