Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 39
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Í dag hefði pabbi
okkar orðið sextugur
og í dag á Gerður líka
afmæli. Þetta hefur
alltaf verið merkilegur
dagur í fjölskyldunni í gegnum árin
en í ár hafa hlutirnir breyst mikið
vegna þess að nú er pabbi ekki leng-
ur hjá okkur. Enn er allt svo óraun-
verulegt og erfitt að átta sig á að-
stæðunum sem við mæðgurnar
þurfum nú að lifa við, hvað þá að
reyna að sætta sig við þær. Hlutirnir
hafa æxlast á allt annan hátt en við
áttum von á, enginn gat séð fyrir að
pabbi myndi fara svo skjótt.
Hann var mjög lífsglaður og ætl-
aði sér að lifa mun lengur. Það bar
mikið á honum í hverskonar félags-
GUÐMUNDUR HELGI
GUÐMUNDSSON
✝ GuðmundurHelgi Guð-
mundsson fæddist á
Blómsturvöllum á
Stokkseyri 10. júní
1941. Hann lést á
Stokkseyri hinn 25.
mars síðastliðinn.
Útför hans fór fram
frá Hallgrímskirkju
3. apríl.
skap og hann var alltaf
hrókur alls fagnaðar.
Hann kunni margar
skemmtilegar sögur og
kvæði sem hann sagði
með djúpu og hljóm-
miklu röddinni sinni
sem við munum svo vel
eftir. Oft var hent gam-
an að því að hann var
eini Iðnskólakennarinn
sem gat kennt í tveim-
ur stofum í einu, svo
mikill var raddstyrkur-
inn. Röddin var tákn
fyrir þann ólýsanlega
styrk og þá ástúð sem
pabbi veitti okkur. Hann var svo úr-
ræðagóður og traustur, það var allt-
af hægt að reiða sig á hann og leita til
hans, sama hvað það var. Okkur
fannst pabbi kunna allt og geta allt.
Pabbi var okkur mikill lærimeist-
ari og hann lagði mikið upp úr því að
kenna okkur það sem hann taldi að
myndi nýtast okkur vel í lífinu. Þess
á meðal var að gefast ekki upp þótt á
móti blási, reyna frekar að harka af
sér og takast á við hlutina. Það reyn-
um við nú að hafa að leiðarljósi þó
erfitt sé. Eins ætlum við að muna og
heiðra allt annað sem við lærðum af
honum.
Óteljandi góðar stundir höfum við
fjölskyldan átt saman í gegnum árin,
hvort sem var á ferðalögum eða
heima við matarborðið. Pabbi og
mamma voru ávallt mjög dugleg að
drífa sig í ferðalög og taka okkur
dæturnar með. Munum við marga
rúntana í bílnum til skiptis að hlusta
á rokkið hans pabba eða klassíkina
hennar mömmu. Þegar rokkið
hljómaði komst pabbi í stuð og hann
var ófeiminn að taka sporið ef svo
bar undir.
Síðustu árin hefur svo sveitasælan
í sumarbústaðnum verið ríkjandi við
hvert tækifæri og alltaf var gott að
komast aðeins út úr bænum og fá sil-
ung hjá pabba. Hann var með algera
veiðibakteríu sem ágerðist með ár-
unum og fór í marga veiðitúra á
sumrin þar sem hann naut útiver-
unnar og félagsskaparins. Á veturna
fór hann svo í Ármenn og þá var
kvöldunum oft eytt í að hnýta flugur.
Báðar eignuðumst við veiðistangir
ungar og veiddum maríufiskana með
pabba okkur við hlið. Okkur þykir
leitt að hafa ekki lengur tækifæri til
að endurvekja veiðiáhugann með
pabba, en vitum að hann verður með
okkur við árbakkann síðar meir.
Annað mikið áhugamál pabba var
eldamennskan og lagði hann sig allt-
af allan fram við að gera matinn sem
bestan. Vandvirkni hans mátti vel
sjá á því sviði sem á öðrum, hann
hafði miklar áhyggjur af því hvernig
kjötið væri steikt eða að sósan væri
ekki nógu góð. Þessar áhyggjur
reyndust alltaf óþarfar og maturinn
alltaf jafn góður. Svona var pabbi
gestrisinn, dró allt fram sem til var
og var höfðingi heim að sækja. Hann
hafði mjög gaman af að prófa nýja
rétti og sérstaklega þá hollu. Það var
ekki fyrir svo löngu síðan sem hann
eldaði rétt, eftir uppskrift sem hann
hafði skrifað upp á læknabiðstofu.
Reyndist rétturinn ljúffengur og
auðvitað meinhollur.
Pabbi hugsaði alla tíð vel um
heilsu sína og var mikið í mun að lifa
eins hollustusamlega og honum var
unnt, stundum hugsaði hann svo
mikið um það að manni þótti nóg um.
Þess vegna finnst okkur það svo
hræðilega ósanngjarnt að hann skuli
hafa verið tekinn svona snemma frá
okkur, að við fáum ekki að upplifa
meira saman og að hann skuli ekki
eiga eftir að deila sorgum okkar og
gleði í framtíðinni. Við áttum besta
pabba sem nokkur getur hugsað sér
að eiga og erum þakklátar fyrir það.
Mjög erfitt er að ímynda sér lífið án
hans og við söknum hans meira en
orð fá lýst, en minningin um hann
verður ljós á lífsleið okkar.
Á þessum erfiðu tímum er ómet-
anlegt að eiga góða að og við viljum
þakka allan þann hlýhug sem okkur
mæðgunum hefur verið sýndur. Guð
blessi elsku, besta pabba okkar
ávallt.
Kristín og Gerður.
Elsku mamma mín. Mig langar
svo að senda þér kveðju, kveðju frá
mér. Ljóðið segir allt sem segja þarf
en ég vil þakka þér fyrir árin okkar
saman. Eftir að pabbi dó fékk ég að
vera sá sterki á heimilinu og sofa í
hans plássi við hliðina á þér, nú ætla
ég áfram að vera sterk þó að ég sakni
þín mikið.
Mér andlátsfregn að eyrum berst
og út í stari bláinn
og hugsa um það, sem hefur gerst
til hjarta mér sú fregnin skerst
hún móðir mín er dáin.
Þú varst mér ástrík, einlæg, sönn,
mitt athvarf lífs á brautum,
þinn kærleik snart ei tímans tönn
hans traust mitt var í hvíld og önn
í sæld, í sorg og þrautum.
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir,
svo mæt og góð, svo trygg og trú,
og tállaus, falslaus reyndist þú,
ég veit þú látin lifir.
En þar sem standa leiðin lág
ég leita mun þíns anda,
er lít ég fjöllin fagurblá
mér finnst þeim ofar þig ég sjá
í bjarma skýjalanda.
(Steinn Sig.)
Guð blessi þig fyrir allt, elsku
mamma mín.
Þín,
Svanhildur.
ANNA G.
MARKÚS-
DÓTTIR
✝ Anna Guðmunda Markúsdótt-ir fæddist í Hákoti í Þykkvabæ
2. nóvember 1913. Hún lést á
Landspítalanum í Fossvogi 11.
maí síðastliðinn og fór útför henn-
ar fram frá Þykkvabæjarkirkju
19. maí.
!"#$$
%&' ( '"#$$
$ % "")' *%&"$ + '
,% ' "")' $ ''' -& "#$$
$ ' "")' *"$ "#$$
. "$ '' "")' /,% 0'% %'"#$$
. "")' ' 1"#$$
)% /'/,'
!" # ! " # $ % &&
' ! &&
! " ()* + , &&
! && -. . -. "
( (* " ( ( (*
!" # !!
$
# # !!
%
# !!
&' #
# !!
&
#
(
( )
)'
*+
$
, #
( &#
! " !#$ %%
" &' "$ %% ( &"%)" *"
" !# &"%)" ( & %" ( "$ %%
!! "
# ! $