Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Byggingarlóð í Flatey til sölu
Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar lóð í Flatey á
Breiðafirði, þar sem áður stóð Barnaskóli Flateyjarhrepps.
Skilyrði fyrir byggingu á lóðinni er að byggt verði hús með
upprunalegu útliti gamla skólans, sem teiknað var af Guðjóni
Samúelssyni. Útlitsteikningar eru til og er hægt að nálgast afrit
af þeim á skrifstofu Reykhólahrepps.
Umsóknir um lóðina, ásamt verðtilboði, þar sem
byggingaráformum væri lýst, skulu berast fyrir
2. júlí nk. til skrifstofu Reykhólahrepps,
Reykhólum, 380 Króksfjarðarnesi.
Sveitarstjóri.
Um er að ræða þetta fallega 320
fm einbýlishús með innbyggðum
bílskúr og auka 3ja herbergja
íbúð á neðri hæðinni með góðum
stækkunarmöguleika, jafnvel
möguleiki að setja 3ju íbúðina í
húsið. Fallegar innréttingar.
Frábært útsýni. Fallegur ræktað-
ur garður með heitum potti og
gróðurhúsi. Húsið getur losnað fljótlega. Verð 27,5 millj. Gjörið svo vel
að líta inn á milli kl. 14 og 17 í dag sunnudag.
FOSSVOGUR - VOGALAND 10
OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 17.
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556
VIÐ lestur Landnámu og fleiri
fornra rita má sjá, að allnokkrir
landnámsmenn vóru kristnir.
Það á einkum við um landnáms-
menn, sem komu frá „norrænum
svæðum“ á Bretlandseyjum,
bæði Kelta og Norðmenn. Nefna
má Ásólf alskik, Jörund inn
kristna, Helga magra, Örlyg inn
gamla, Helga bjólu, Ketil inn
fiflska, Auði djúpauðgu o.fl. Bæj-
arnöfnin Kirkjubær á Síðu (Ketill
fíflski) og Kristnes í Eyjafirði
(Helgi magri) tala sínu máli.
Sterkar líkur standa til þess að
kristinn siður hafi fest rætur
þegar á landnámsöld beggja
vegna Hvalfjarðar. Örlygur inn
gamli reisti snemma kirkju á
Esjubergi og skömmu síðar var
reist kirkja í Görðum á Akranesi
og á Innra-Hólmi. Þeim sem vilja
fræðast nánar um „kirkjur í
frumkristni“ og kristið landnám
á nesjunum beggja vegna Hval-
fjarðar er bent á bókina Akra-
neskirkja eftir Gunnlaug Har-
aldsson.
Þrír keltneskir trúarleiðtogar
risu hátt í vestrænni kristni þeg-
ar á víkingaöld. Fyrstan skal
telja Kolumkilla (Kolumba). Á
Suðureyjum vóru ellefu kirkjur
helgaðar honum. Hinir vóru Pat-
rekur inn helgi og dýrlingurinn
Trostan. Hermann Pálsson segir
í bókinni „Keltar á Íslandi“:
„Slíkt er vert að hafa í huga þeg-
ar þess er minnst að kristnir
landnámsmenn hér komu einkum
frá Suðureyjum. Og Kolumkilli
er eini dýrlingurinn sem kirkjur
vóru helgaðar hér á landi fyrir al-
menna kristnitöku, svo vitað sé.
Auk þess virðast fyrstu kynslóðir
Íslendinga einkum hafa kynnst
tveim öðrum köppum Krists,
þeim Patreki helga postula Íra
og Drostani (Trostani)… Er það í
sjálfu sér merkilegt að þessir
þrír dýrlingar, sem Íslendingar
dýrkuðu í öndverðu, höfðu áður
styrkt krisnti keltneskra
þjóða…“
Það er íhugunarefni að tveir
firðir vestra bera nöfn þessara
keltnesku dýrlinga: Patreks-
fjörður og Trostansfjörður. Trú-
legt verður að telja að kristnir
menn í hópi landnema hafi valið
þessum fjörðum nöfn. Mikil helgi
var á Patreki á Írlandi. Trostan
var á hinn bóginn einkum dýrk-
aður í Austur-Skotlandi, en
Trostanseyja er og til á Suður-
eyjum, en þaðan kom margt
landnámsmanna. Hermann Páls-
son segir í bókinni „Keltar á Ís-
landi“: „Í öðru lagi vóru þrjár
kirkjur á Katanesi helgaðar þess-
um dýrlingi, en þaðan komu þau
Svartkell katneski sem bjó fyrst
að Kiðafelli, síðan að Eyri í Kjós,
og einnig Auður djúpúðga, sem
kom frá Katanesi til Íslands með
miklu fylgdarliði og kristna trú.“
Langt er nú síðan Patrekur og
Trostan, „kappar Krists“, eins og
Hermann Pálsson kallar þá,
fluttu kærleiksboðskapinn á
Bretlandseyjum. Boðskapur
þeirra barst út hingað með
kristnum landnámsmönnum frá
Írlandi og Suðureyjum sem fyrr
segir. Kristin kenning bjó einnig
– og ekki síður – í brjóstum
ófrjáls fólks, af keltnesku bergi
brotið, sem landnámsmenn höfðu
með sér út hingað, en þrælar
vóru víða vinnuafl á bændabýlum
10. aldar. Þrælahald lagðist hins
vegar af í kjölfar lögtöku krist-
innar trúar á Alþingi árið 1000.
Fyrir norrænt landnám sungu og
Papar helgar tíðir á eyjum og út-
nesjum Íslands. Það eru því eng-
ar ýkjur þótt fullyrt sé að krist-
inn siður á Íslandi sé jafngamall
mannvist í landinu. Það fer því
einkar vel á því að vestfirzku firð-
irnir, Patreksfjörður og Trost-
ansfjörður, beri nöfn „kappa
Krists“ inn í 21. öldina.
Í þúsund ár hefur kristinn sið-
ur mótað til góðs menningu þjóð-
arinnar, samfélag hennar og við-
horf. Fornbókmenntir okkar
vóru að stórum hluta festar á
skinn á biskupsstólum og í
klaustrum kirkjunnar. Það er og
þakkað þýðingu heilagrar ritn-
ingar á móðurmálið (Nýja testa-
menti Odds Gottskálkssonar og
Guðrandarbiblíu), öðru fremur,
að íslenzk tunga hefur varðveizt
lítt breytt fram á okkar daga.
Síðast en ekki sízt hefur kristinn
kærleiksboðskapur, kristin sið-
fræði, sett mót sitt á löggjöf og
mannúð í landinu. Kynslóð hefur
skilað kynslóð þessum dýrmæta
menningararfi, sem var, er og
verður hornsteinn giftu þjóð-
arinnar.
Enn í dag göngum við í fótspor
þess landnámsfólks, sem nefndi
Patreksfjörð og Trostansfjörð,
Kirkjubæ og Kristsnes. Við ger-
um það m.a. með því að vígja
nýja kirkju á heimaslóðum Þor-
geirs Ljósvetningagoða, þess er
las upp kristnitökulög á Lögbergi
á Jónsmessu árið þúsund. Við
gerum það vonandi líka með því
að helga eigið sálarmusteri hon-
um, sem er sannleikurinn, veg-
urinn og lífið.
Kirkjan á Patreksfirði.
Patrekur
og Trostan
Patreksfjörður og
Trostansfjörður heita
trúlega eftir kelt-
neskum dýrlingum.
Stefán Friðbjarn-
arson staldrar við
nokkur kennileiti um
íslenzka kristni á
landnámsöld.
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799.
reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-
7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kandís
og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476.
Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://
www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánudaga -
laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pantað
leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-
0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lok-
aðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–19.
Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sumar
frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–22, helg. 8–20.
Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–20. Breið-
holtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Graf-
arvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–22. Ár-
bæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–22.
Kjalarneslaug opin v.d. kl. 15-21, helg. 11-17. Upplýsing-
arsími sundstaða í Reykjavík er 570-7711.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl.
11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–20.30,
lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–21,
lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið 1. apríl til 31. maí kl. 10:00 - 21:00 og 1.
júní til 31. ágúst kl. 09:00 - 22:00
ÚTIVISTARSVÆÐI
FJÖLSKYLDU og HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla
daga kl. 10–1. Kaffihúsið opið á sama tíma. S. 5757 800.
SORPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.15–16.15.
Móttökustöð er opin mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15.
Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel, Dalveg og
Blíðubakka eru opnar kl. 12.30– 19.30.
Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða og Mið-
hraun eru opnar k. 8–19.30.
Helgaropnun laugardaga og sunnudaga kl. 10–18.30.
Endurvinnslustöðin á Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvi-
kud. og föstud. kl. 14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.