Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 64

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. V i ð s k i p t a h u g b ú n a ð u r á h e i m s m æ l i k v a r ð a Borgar túni 37 Sími 569 7700W W W. N Y H E R J I . I S Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á www.postur.is Veit Pósturinn hvar þú býrð ÍSLENSKIR og danskir sérfræð- ingar hafa með rannsóknum gert út um deilu sem staðið hefur milli Grænlendinga og Hollendinga um hvort múmía, sem sýnd hefur verið sem eskimói á Westfries-safninu í Hoorn í Hollandi, sé það í raun eða ekki. Er niðurstaða sérfræðing- anna sú að viðkomandi maður hafi lifað á plöntum og dýrum á landi en ekki fiski eða sjávarspendýrum og því geti hann ekki hafa verið græn- lenskur. Grænlenska heimastjórnin dró í efa að um eskimóa gæti verið að ræða og fannst einnig óviðeigandi að sýna hann í kajak. Fór stjórnin fram á að fá líkamsleifar mannsins sendar heim til Grænlands svo hægt væri að jarðsetja þær sóma- samlega væri um eskimóa að ræða. Var þessi ósk sett fram fyrir þrem- ur árum. Í framhaldi af því var læknirinn Niels Lynnerup, sem starfar við Kaupmannahafnarhá- skóla og hefur sérhæft sig í beina- rannsóknum, fenginn til að taka sýni úr múmíunni. Var fyrirhugað að senda það í DNA rannsókn í fyrrasumar en DNA leifar fundust hins vegar ekki í hinum meinta eskimóa og varð að leita annarra leiða. Hluti aldursgreiningar unninn hérlendis Sneri hann sér þá til sérfræð- inga við aldursgreiningarstofuna við Árósaháskóla. Hafa þeir lagt sig eftir kolefnisrannsóknum á mannvistum frá tímum víkinganna í samstarfi við vísindamenn á Ís- landi og Kanada. Hafa rannsókn- irnar staðið yfir nú á vordögum. Þær voru framkvæmdar með ör- litlu húðsýni af múmíunni. Árný Sveinbjörnsdóttir, sér- fræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans, tjáði Morgunblaðinu að stofnunin hefði lengi átt samstarf við aldursgreiningarstofuna í Ár- ósum og hér væri til svonefndur massagreinir sem nota mætti til að rannsaka og aldursgreina stöðugar kolefnissamsætur. Var Árný feng- in til að taka að sér ákveðinn þátt aldursgreiningarinnar. Með því að rannsaka kolefnin væri hægt að finna á hvaða fæðu viðkomandi hefði helst lifað. Niðurstaða íslensku og dönsku sérfræðinganna var sú að múmían væri um 200 ára gömul og hefði einkum lifað á plöntum og landdýr- um. Grænlendingar hefðu hins vegar um aldir lifað á fiski og sjáv- arspendýrum. Niðurstaðan er því sú að hollenska múmían gæti trauðla verið grænlensk. Deila um eskimóamúmíu útkljáð með aldursgreiningu ÞEIR höfðu hröð handtök, keppend- urnir í Opna Íslandsmótinu í hand- flökun, sem fram fór í Faxaskála við Reykjavíkurhöfn í gær. Þeir sem öttu kappi þegar Morg- unblaðið leit þar inn fóru fimum höndum um fiskinn og kunnu greini- lega að beita flugbeittum hnífnum. Hraðinn einn dugði þó ekki til að bera sigur úr býtum, því einnig var dæmt eftir nýtingu og gæðum. Tóm- as Kristinn Tómasson hjá Sætoppi ehf. hreppti Íslandsmeistaratitilinn. Hann hlaut einnig titilinn Gæða- meistari og Nýtingarmeistari, en Hraðameistari var Piotr Klimas- zewski hjá K&G ehf. í Keflavík. Keppnin er liður í sjómannadagshá- tíðarhöldum í Reykjavík. Í gær var einnig opnuð minning- arsýningin „Við minnumst þeirra“ í Listasafni Reykjavíkur, sem er sett upp til minningar um 1297 íslenska sjómenn sem hafa verið skráðir í minningarbók sjómannadagsins frá því hann var fyrst haldinn árið 1938. Hátíðahöldin hefjast á Miðbakka klukkan 14 í dag, en klukkan 11 hefst minningarmessa sjómanna í Dómkirkjunni í Reykjavík og verður lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Guðrún R. Guðmundsdóttir frá Suðurnesi hf. í Keflavík og Harpa Fold Ingólfsdóttir frá Sæfold ehf. í Reykjavík báru sig fagmannlega að við að hand- flaka ýsu á Íslandsmeistaramótinu í handflökun í gær. Flakað af kappi Fæða sýndi að ekki er um eskimóa að ræða TVEIR skipverjar á smábátnum Fjarka ÍS 444 björguðust í gúmbát er Fjarki sökk í fyrrinótt við Kópinn sunnan Arnarfjarðar. Skipverjar á Fríðu ÍS björguðu mönnunum úr gúmbátnum og héldu með þá til Flateyrar. Lögreglunni á Ísafirði barst til- kynning um klukkan þrjú í fyrrinótt um að báturinn væri að sökkva. Var hann þá staddur um tvær sjómílur út af Kópnum. Skipverjar skutu upp neyðarblysi og komust í gúmbát. Nokkru síðar var þeim bjargað um borð í Fríðu. Nokkur strekkingur var er slysið varð en ekki er vitað hvað gerðist. Fjarki er 6 tonna bátur og gerður út frá Bolungarvík. Lögreglan á Ísafirði tók í gær skýrslur af skipverjum beggja bátanna og fulltrúar rannsóknar- nefndar sjóslysa hófu einnig rann- sókn sína er þeir komu til Ísafjarðar í gærmorgun. Mannbjörg er Fjarki ÍS sökk MIKIÐ hefur borið á uppsögnum félagsmanna í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur (VR) undanfarna mán- uði og segir Magnús L. Sveinsson, formaður félagsins, uppsagnirnar skipta tugum. Mest ber á uppsögnum skrifstofufólks og segir Magnús upp- sagnirnar aðallega koma í kjölfar gjaldþrota fyrirtækja. „Maður hrekkur við þegar svona margar kröfur um gjaldþrot berast því þetta er nýtt umhverfi fyrir okkur miðað við það sem við höfum búið við síðustu tíu ár,“ segir Magnús. Hann segist einnig verða var við að menn haldi að sér höndum í mannaráðning- um og mörg fyrirtæki séu farin að fækka starfsfólki vegna samdráttar. Magnús sagði viðbúið að þeir félags- menn færu á atvinnuleysisbætur þar sem minna væri um nýráðningar nú. Félagsmönnum VR fjölgaði um 1500 á síðasta ári og 2000 árið áður og segir Magnús það vera til vitnis um að aukning hafi verið í þeim starfsgrein- um sem falla undir starfssvið Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur. Eftir samdrátt síðustu mánaða horfi menn hins vegar nú til opnunar verslunarmiðstöðvarinnar í Smára- lind þar sem um þúsund störf skapist sem verði til að rétta hlut félags- manna VR. „Það er því ekkert svart- nætti framundan og okkur hafa m.a. borist fréttir af því að nú þegar séu kaupmenn þar farnir að bjóða í starfs- fólk,“ sagði Magnús L. Sveinsson. Uppsagnir félags- manna VR Samdráttur í fyrirtækjum ÞROSKAÞJÁLFAR felldu í at- kvæðagreiðslu samning sem Þroska- þjálfafélag Íslands og launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir fyrir rúmri viku. 71,4% sögðu nei, en 28,6% samþykktu samningana. 39 voru á kjörskrá og var kjörsókn 71,8%. Sólveig Steinsson, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, segir að þetta hljóti að þýða að samninga- nefndirnar þurfi að setjast aftur að samningaborðinu, þar sem ljóst sé að þroskaþjálfar sætti sig ekki við samninginn sem launanefnd sveitar- félaga bauð og atkvæðagreiðslan sé afgerandi. Hún segir að trúnaðar- mannaráð félagsins muni í kjölfarið taka afstöðu til þess hvort aftur verði boðað til verkfalls hjá sveitarfélög- um sem launanefndin hefur umboð fyrir. Sólveig segir að samninganefnd borgarinnar hafi ekki boðið þroska- þjálfum sem starfa hjá Reykjavík- urborg, sem hafa verið í verkfalli frá 18. maí síðastliðnum, sambærilegan samning fyrr en síðasta þriðjudag. Þroskaþjálfar hjá borginni hafa sagt að þeir sætti sig ekki við það sem samninganefndin hefur boðið. Næsti fundur í deilunni hefur verið boðaður klukkan 17 í dag. Þroskaþjálfar felldu samning launanefndar ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.