Morgunblaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Svanhildur Jak-obsdóttir fæddist
að Hömrum í Reyk-
holtsdal í Borgar-
firði hinn 4.maí 1942
og ólst þar upp. Hún
lést á Landsspítala í
Fossvogi 7. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jakob Sigurðsson
frá Hömrum í Reyk-
holtsdal, f. 28. maí
1905, d. 20. júní
1970, og eiginkona
hans Aðalbjörg Val-
entínusdóttir frá
Hellissandi á Snæfellsnesi, f. 8.
febrúar 1918, hún er búsett í
Bræðraborg í Garði. Systkini
Svanhildar eru: 1) Ásta f. 9. apríl
1934, eiginmaður hennar er Þor-
steinn Pétursson, þau eru búsett í
Reykholtsdal. 2) Magnús, f. 9.
febrúar 1936 í Reykjavík. Hann ólst
upp að Holti undir Eyjafjöllum og á
Akranesi. Foreldrar hans voru
hjónin séra Jón M. Guðjónsson, f. 31.
maí 1905, d. 18. febrúar 1994, og
Jónína Lilja Pálsdóttir, f. 15. janúar
1909, d. 5. september 1980. Svan-
hildur og Ólafur bjuggu lengst af að
Hraunsvegi 5 í Ytri-Njarðvík. Börn
þeirra eru: 1) Jakob, f. 28. nóvember
1958, eiginkona hans er Violeta
Tolo Torres, f. 30. apríl 1967. Þau
eru búsett í Kópavogi. Dætur þeirra
eru Kristín Margrét, f. 31. mars
1991, og Karen Sif, f. 11. janúar
1995. 2) Lilja Aðalbjörg, f. 16. janú-
ar 1965, eiginmaður hennar er
Danny Richard Hansch, f. 8. sept-
ember 1963. Þau eru búsett í Suður
Karólínu, USA. Börn Lilju eru
Ágúst Svanur, f. 29. ágúst 1982, og
Anita Dögg, f. 29. janúar 1987. 3)
Helga Hrönn, f. 17. október 1969,
eiginmaður hennar er Sveinn Hans
Gíslason, f. 30. ágúst 1965, þau eru
búsett í Sandgerði. Börn þeirra eru
Bjarki Þór Wíum, f. 18. apríl 1992
og Petra Wíum, f. 2. desember 1997.
Útför Svanhildar fór fram í kyrr-
þey 14. júlí.
ágúst 1939, eiginkona
hans er Valgerður
Rósa Sigurðardóttir,
þau eru búsett í Kópa-
vogi. 3) Guðrún, f. 9.
nóvember 1940, eigin-
maður hennar er Sig-
urður Hallgrímsson,
þau eru búsett í
Reykjavík. 4) Berta, f.
22. ágúst 1943, d.
25.nóvember 1999,
sambýlismaður henn-
ar var Ólafur
Tryggvason, og
bjuggu þau í Garði. 5)
Borghildur, f. 2. maí
1945, búsett í Reykjavík. 6) Katr-
ín, f. 15. febrúar 1958, eiginmaður
hennar er Guðmundur Gunnlaugs-
son, þau eru búsett í Kópavogi.
Hinn 15. janúar 1959 giftist Svan-
hildur eftirlifandi eiginmanni sín-
um Ólafi Ágústi Jónssyni, f. 28.
„Og Jesús sagði: Mitt ríki er
ekki af þessum heimi.“ Mamma
mín, þessi orð Frelsarans dró ég
úr stokki með tilvitnunum úr Biblí-
unni, í aðstandendaherbergi gjör-
gæsludeildar Borgarspítalans,
nóttina fyrir kveðjustund þína. Þá
hafði ég fengið skýr hugboð um að
koma og líta til þín.
Grunaði mig þá að húsráðendur í
himnaríki hefðu gert upp hug sinn
um að nærveru þinnar væri þörf og
mikilvæg verkefni biðu þín, ef til
vill umönnunarstörf eins og þú
starfaðir oft við hér á jörðu, er þú
annaðist af hlýju og myndarskap
fatlaða og þroskahefta, t.d. á Ská-
latúni, í Keflavík og víðar. Grunur
minn um að örlög þín væru ráðin
var svo staðfestur nóttina eftir er
þú hófst ferðina þína upp himna-
stigann.
Ég veit að þú trúðir og treystir
þessum orðum Frelsarans að þegar
að þessari jarðvist lyki biði sælu-
vist og endurfundir við ástvini á
himnum. Nú hefur þú fengið stað-
festingu á trú þinni og ert komin í
Paradís. Er ég lít til baka þá er
mér efst í huga þakklæti og aðdáun
á þeim mikla dugnaði, þrautseigju
og fórnfýsi sem þú og pabbi sýnd-
uð er ég kom í líf ykkar og þið vart
komin af táningsaldri. Á örfáum
árum voruð þið búin að reisa höll á
þeirra tíma mælikvarða af litlum
efnum og við bættust tvær yngri
systur, Lilja og Helga. Þú hafðir
mikinn metnað við uppeldisstörfin
og öll umgjörð æskuáranna var
eins og best verður á kosið. Þú
gafst mér og okkur systkinunum
mikla hlýju og kærleik á uppvaxt-
arárum okkar og alla tíð síðan, þó
samverurnar hefðu mátt vera fleiri
hin síðari ár. Þá hafðir þú valið lífi
þínu ákveðinn farveg í baráttu
þinni við veikindi og veikleika.
Það að Bogga systir þín lúrði
hálftíma lengur en til stóð gaf okk-
ur Violy þá dýrmætu stund að vera
hjá þér þín síðustu andartök og
kveðja þig við fætur himnastigans.
Elsku mamma, við Violy, Kristín
og Karen munum ætíð minnast þín
í bænum okkar og erum þess full-
viss að nú dveljir þú í sæluvistinni
miklu í ljósinu skæra.
Þinn sonur
Jakob.
Elsku mamma mín.
Nú ert þú farin frá okkur og ég
trúi því að loksins líði þér vel. Þú
varst orðin svo þreytt á því að vera
með eilífa verki og gast ekki gert
það sem þig langaði til, þú varst
meira að segja hætt að geta farið í
Kolaportið að gramsa því bara það
að sitja í bíl inn í Reykjavík var of
mikið fyrir þinn þjáða líkama. Og
þú varst orðin svo beisk út í lífið og
oft sagðir þú mér að dauðinn væri
ekki slæmur og ég veit það nú að
þú varst að búa mig undir að þú
myndir brátt hverfa frá mér. En
ég hef allar góðu stundirnar
geymdar hjá mér og minnist allra
daganna sem við sátum tímunum
saman og spiluðum vitlausaspilið.
Alltaf varstu komin að aðstoða mig
og alltaf varstu búin að hringja og
bjóða Bjarka og Petru til þín ef þú
vissir að ég væri að fara eitthvað.
Bjarki minn á eftir að sakna þín
mikið því honum þykir svo vænt
um þig, hann var farinn að hringja
í þig og biðja um að fá að gista því
hann vissi að þú segðir alltaf já og
bæðir mig að skutla honum til þín.
Og Petra var svo glöð þegar þú
komst og fór í veskið þitt að leita
að tyggjói, því hún gat alltaf geng-
ið að því vísu að þú ættir það í
veskinu þínu. En nú ert þú komin í
annan og betri heim laus við allar
þjáningar og ég get huggað mig við
það að nú líður þér vel og þú fylg-
ist með okkur.
Guð blessi þig mamma mín.
þín
Helga Hrönn.
Tímarnir líða sem hverfandi hvel,
Hugurinn reikar til komandi tíða.
Enginn má vita, hvað vor kann að bíða,
vermandi sól eða bitrasta él.
Maðurinn fæðist við bros eða böl.
byltist með óðfluga tímanna straumi,
vaknar til sorgar og svæfist í glaumi
svifinn á braut eftir skammvinna dvöl.
Gleðin er léttfleyg, og lánið er valt.
Lífið er spurning, sem enginn má svara.
Vinirnir koma og kynnast og fara,
kvaðning til brottfarar lífið er allt.
Liðin að sinni er vor samverustund
síðustu kveðjur með andblænum líða.
Velkomin aftur, er sjáumst við síðar,
sólnanna drottinn oss blessi þann fund.
(Freysteinn Gunnarsson.)
Elsku Svana frænka.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við þakka þér samfylgdina í
gegnum árin, bæði sem nágranni
og sem vinur. Við þökkum þér fyrir
allar stundirnar á Hraunsveginum.
Þú varst glaðlynd, traust, fyndin,
spaugsöm og góðhjörtuð kona.
Við sendum Óla, Lilju, Helgu
Hrönn, Jakobi, Ágúst Svani og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Þínar frænkur
Katrín, Ásdís og Jóhanna.
SVANHILDUR
JAKOBSDÓTTIR
Mig langar í nokkrum orðum að
minnast ömmu minnar, Svanhvítar
Jóhannesdóttur.
Fregnin um að þú værir látin
kom síðasta þriðjudagsmorgun og
um leið helltust yfir mig minningar
bæði gamlar og nýjar, þegar ég á
fimmta ári vaknaði klukkan sjö á
morgnana heima á Sauðárkróki,
labbaði suður í Samlag og fékk far
með mjólkurbílnum í sveitina til þín.
SVANHVÍT
JÓHANNESDÓTTIR
✝ Svanhvít Jóhann-esdóttir fæddist í
Ósbrekkukoti í
Ólafsfirði 8. júní
1910. Hún lést á Heil-
brigðisstofnuninni á
Sauðárkróki 10. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Jóhannes Jónsson
og Guðbrandína
Pálsdóttir.
Svanhvít giftist
Páli Þorleifssyni
1934 og bjuggu þau
allan sinn búskap að
Enni á Höfðaströnd.
Eignuðust þau fimm börn, þau
eru: Hugljúf, Jóhannes, Þráinn,
Ingi og Auðbjörg.
Útför Svanhvítar fer fram frá
Hofsóskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Á vorin var ég svo æst-
ur að komast í sveitina
að ég mætti sjaldnast á
skólaslit, vildi frekar
komast í sauðburðinn í
Enni.
Það voru líka ófáar
stundirnar sem við
vorum búin tala saman
í símann og þá var um-
ræðuefnið oftast bú-
skapurinn. Þú hafðir
alltaf tíma til að spjalla
og þegar ég komst á
unglingsárin lagðir þú
mér marga lífsregluna
sem ég hef oftar en
ekki reynt að fylgja, og þegar ég
svo stofnaði fjölskyldu varstu ætíð
haukur í horni.
Ég man hvað ég var spenntur að
láta þig vita þegar við Magga eign-
uðumst börnin og mörg ferðin var
farin til þín í sveitina, þá sastu á
rúmstokknum og söngst vísur fyrir
börnin og spjallað var um heima og
geima eins og þegar ég var patti.
Við viljum þakka allt það góða
sem þú hefur gefið okkur gegnum
árin og allur sá tími sem með þér
var genginn mun ætíð geymast
hjörtum okkar.
Guð geymi þig og minningu þína.
Kári, Margrét, Thelma Rut
og Þröstur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
! " !
#
$
%
!"
&'
'
%
#$
! " !
#% &% ! &% !
!"
(
'()'
*+
, -.
) '
"
*" +
-! " !
)+"/01 ! 2 23 &%
)+ 0% ! ' - &%
! && "
$
$
$
$
(4
5.
& 6-,
. "
*" /$
$
'
! " !
0$
%
) 7*+ &%
7 & 0 ! 01*- % &%
0 + 0 ! 01&- 6 & &%
* - /01 2 &% * #%#! !
1! 1"
1
,
)'828
9:
5::8 *
2
/
*$
! " !
6 ! 7/ &%
; ! 7 &%
86 2- ! *& <
2- ! * /" 3 & &%"
1
$
$
=
"'4
,> 0%! * 61
/,-9.
+,%,
"
*" .
'
! " !
2- "76-, &%
01 3 & &% #! !
% 3 & &% $! "/ &6 !
); 3 & !
2-/ & 3 & &% !&4
/," 3 & !
! 1"