Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ARMBANDSÚR Hjalta Ástþórs Sigurðssonar, skipstjóra á Unu í Garði sem sökk út af Skagafirði að- faranótt þriðjudags, stöðvaðist um sex mínútur yfir þrjú. Hjalti sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að úrið hefði líklega laskast þegar hann barðist við að komast út um glugga á brúnni í þann mund sem skipið sökk. Una í Garði fór til rækjuveiða frá Siglufirði um klukkan átta á mánu- dagskvöld. Skipverjar höfðu landað fyrr um daginn eftir fjögurra daga vel heppnaðan túr. Upphaflega hafði sú veiðiferð átt að standa í viku og því var ákveðið að halda aftur að stað og veiða í tvo daga, m.a. til að rugla ekki í frídögum skipverja. Veiðar- færum var kastaði um hálftíu og trollið snerti botninn um hálftíma síðar. Skipverjar fóru fljótlega í koj- ur en sjálfur stóð Hjalti vaktina í brúnni til klukkan hálftvö um nótt- ina. Þá leysti Ásgrímur Pálsson stýrimaður hann af. Ekkert óvana- legt var þá á ferðum og veður svo stillt að ekki hvítnaði í báru. Skolaði upp um stiga „Síðan veit ég ekki meira fyrr en hurðinni er sparkað upp hjá mér. Ás- grímur kemur inn og segir mér að skipið sé að sökkva. Ég hendist fram úr kojunni og fram í stýrishúsið,“ sagði Hjalti. Þá hafi hann strax gert sér grein fyrir því að skipið var „dautt“, enga hreyfingu hefði verið hægt að greina á skipinu. Skipið hall- aði þá nokkuð á stjórnborðshlið og var talsvert sokkið að aftan. Hjalti rauk þá aftur í káetu sína og hugðist klæða sig. Þegar hann var kominn í buxurnar var skipið komið á hliðina og hnédjúpt vatn í káetunni. Í þann mund sem hann brölti út um dyrnar komu þeir Ásgrímur stýri- maður, Gunnlaugur, ellefu ára sonur hans, og Leó Þorsteinsson vélstjóri fljótandi upp um stigann sem lá nið- ur í vistarverur skipverja. Öllum skolaði þeim síðan fram í stýrishús sem var hálft í kafi. Leó komst út um dyr á stýrishúsinu en Ásgrímur klifraði út um glugga á því framan- verðu. Hjalti rétti síðan Gunnlaug út um gluggann. Hann sneri sér síðan við og teygði sig í búnað sem losar björgunarbáta frá bátnum. Þegar hann var búinn að því var sjór farinn að fossa inn um gluggann og brúin í Unu í Garði komin undir yfirborð sjávar. „Ég einhvern veginn kemst út um gluggann og spýtist þarna ein- hvern veginn upp,“ sagði Hjalti. Þegar honum skaut upp náði hann strax taki á öðrum björgunarbátnum og vó sig upp á hann. Hinir þrír, sem komust út úr Unu í Garði, voru þá þar fyrir. Hjalti segir hræðilegt að hafa misst tvo unga menn í slysinu, þá Árna Pétur Ólafsson og Ástmar Ólafsson. Stýrimanninum hafi tekist að vekja þá en síðan hafi enginn séð þá. Hann skilji í raun ekki hvers vegna hinir fjórir björguðust fremur en þeir tveir. Um þetta hafi hann og aðrir sem komust af mikið hugsað og samúð þeirra sé hjá fjölskyldum mannanna. Eiginlega í sama mund og Hjalti komst í björgunarbátinn reis stefnið á Unu í Garði upp en báturinn sökk síðan aðeins örfáa metra frá skip- brotsmönnunum. Þeir reyndu þá í ofboði að losa björgunarbátinn úr ör- yggislínu sem fest var við Unu í Garði. Þeir höfðu hins vegar engan hníf og gátu því ekki skorið á línuna. „Það flæddi yfir bátinn og við fórum í sjó upp að mitti áður en báturinn losnaði,“ sagði Hjalti. Eftir þetta tóku skipbrotsmenn við að koma sér fyrir í björgunar- bátnum. Þeir jusu bátinn og þurrk- uðu og skriðu síðan í álpoka. Þeir skiptust síðan á að ausa og þurrka sjó úr botninum á meðan þeir biðu björgunar. Hann bætir því við að Gunnlaugur, ellefu ára sonur stýri- mannsins hafi staðið sig ótrúlega vel en eins og öðrum skipbrotsmönnum var honum úthlutað verkefnum í björgunarbátnum. Hjalti segir að skipbrotsmennirnir hafi lagt alla áherslu á að bjarga drengnum. Hann hafi í raun alltaf verið á lofti og kast- að á milli manna í hamaganginum. Vissu ekki hvað tímanum leið Þar sem úr Hjalta stöðvaðist í hamaganginum við að komast út úr sökkvandi bátnum vissu þeir ekki hvað tímanum leið. Þegar þeim var bjargað fimm klukkustundum síðar héldu þeir að þeir hefðu verið í björgunarbátnum í þrjár og hálfa klukkustund. Hjalti segir þetta til marks um að allir hafi haldið ró sinni. „Einhvern veginn vorum við alveg vissir um að við yrðum sóttir. Það var samt gott að heyra þegar flug- vélin kom.“ Flugvélin er flugvél Flugmálastjórnar sem fann björgun- arbátinn kl. 6:40 á þriðjudagsmorg- un. Rúmri klukkustund síðar voru skipbrotsmenn teknir um borð í Húna HU-62 sem var næsti bátur við þá. Skipstjórinn á Húna er Ásgeir Blöndal en þeir Hjalti voru skips- félagar fyrir 20 árum en höfðu ekki sést síðan. Stefnan var síðan tekin til lands og skipbrotsmennirnir komu til Blönduóss upp úr hálfþrjú á þriðjudag. Þá voru um tólf klukku- stundir liðnar frá því Una í Garði sökk. Hjalti segir móttökurnar á Blönduósi hafa verið frábærar og vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem tóku á móti þeim. Á sjúkrahús- inu biðu síðan fjölskyldur þeirra eftir þeim. Hjalti segist að mestu vera búinn að jafna sig líkamlega eftir slysið. Enn eigi hann þó eftir að komast yfir andlega áfallið. Aðspurður segist hann ekki hafa gert upp við sig hvort hann hefji aftur sjómennsku. Þegar sá tími kemur verði sú ákvörðun tek- in í samráði við fjölskylduna. Skipstjóri Unu í Garði lýsir atburðarásinni er skipið sökk út af Skagafirði Brúin í kafi þegar skipstjórinn komst út Morgunblaðið/Þorkell Hjalti Ástþór Sigurðsson var skipstjóri á Unu í Garði þegar hún fórst aðfaranótt þriðjudags. FORYSTUMENN stjórnarand- stöðuflokkanna telja að ákvörðun Árna Johnsen að segja af sér þing- mennsku hafi verið rétt, málið sé sorglegur harmleikur, en fara verði ofan í saumana á því og m.a. upplýsa hver beri hina stjórnsýslulegu ábyrgð. „Mér finnst þetta sorglegt mál í alla staði. Þetta er harmsaga,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. ,,Ég tel að Árni hafi tekið rétta ákvörðun í þessari stöðu,“ segir hann. „Það kemur spánskt fyrir sjónir að þetta skyldi geta gerst,“ segir Össur ennfremur. „Mér finnst að þarna hafi verið átakanlegur skortur á eftirliti og tel að þó að Árni verði auðvitað að bera ábyrgðina á sínum persónulegu gjörðum sjálfur, þá verði að kanna rækilega með hvaða hætti þær kring- umstæður urðu til sem gátu leitt til þessa. Hvernig gat það gerst að þing- maður, hver sem það er, öðlist völd af þessu tagi? Einhver hlýtur að bera ábyrgð á því. Hvert var hið stjórn- sýslulega yfirvald yfir byggingar- nefndinni? Það hlýtur að bera form- lega ábyrgð. Þetta held ég að menn þurfi að brjóta til mergjar til þess að læra af þessu og koma í veg fyrir að þetta geti gerst aftur. Eftir því sem ég best veit höfðu þeir sem voru með þingmanninum í þessari nefnd komið athugasemdum á framfæri við það ráðuneyti sem fer með málefni Þjóð- leikhússins. Það hefur m.a. komið fram að framkvæmdastjóri Fram- kvæmdasýslu ríkisins hafi borið at- riði, sem honum þóttu umdeild, undir menntamálaráðuneytið. Ég tel að það þurfi að brjóta þátt þess til mergjar. Í sporum menntamálaráð- herra teldi ég rétt að birta alla minn- ispunkta ráðuneytisins um þetta til að hreinsa loftið,“ segir Össur. Á eftir að draga langan slóða á eftir sér ,,Það er óskaplega dapurlegt að horfa upp á þennan mannlega harm- leik og mig tekur þetta sárt eins og aðra félaga Árna á þessum vinnustað [Alþingi]. Ég er búinn að sitja þarna með honum lengi og það má margt vel um hann segja þó að þessi ósköp hafi yfir hann dunið,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar-græns fram- boðs. Steingrímur segir að ákvörðun Árna að segja af sér þingmennsku hafi verið rétt. ,,Og það var skynsam- legt að taka hana strax vegna þess að allt annað hefði bara dregið þetta á langinn og gert þetta enn verra fyrir hann og alla aðila. Eftir stendur auðvitað að það þarf að upplýsa þessi mál að fullu, ekki bara það sem að Árna Johnsen snýr, heldur líka það sem snýr að stjórn- sýslunni, eftirlitskerfinu, og hinni pólitísku ábyrgð sem þessum málum tengist, þ.á.m. og ekki síst ábyrgð ráðherra viðkomandi málaflokks. Þetta hlýtur allt að gerast í fram- haldinu. Út af fyrir sig er úttekt Rík- isendurskoðunar eðlileg byrjun á því máli, en ég geri ráð fyrir því að þetta eigi eftir að draga langan slóða á eftir sér og eigi, áður en upp er staðið, eft- ir að verða að miklu máli,“ segir hann. Steingrímur segist telja víst að þetta mál eigi eftir að koma til um- fjöllunar og umræðu á Alþingi. „Ekki síst þessir þættir sem snúa að stjórn- sýslunni, eftirlitinu og hinni pólitísku ábyrgð. Þar er komið að þætti okkar stjórnmálamannanna í þessu. Um hitt sjá aðilar eins og Ríkisendur- skoðun og þá væntanlega rannsókn- arlögregla og ákæruvaldið,“ segir Steingrímur. Forysta Sjálfstæðisflokks getur ekki hvítþvegið sig af málinu Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að Árni hafi ekki átt annarra kosta völ en segja af sér þingmennsku úr því sem komið var. ,,Þetta er gróflega dap- urlegt mál allt saman og skelfilega ógott í alla staði. En hann hefur vafa- laust tekið rétta ákvörðun. Hitt er svo annað mál að það er mikill misskilningur ef forysta Sjálf- stæðisflokksins telur sig geta hvít- þvegið sig af þessu máli. Mennta- málaráðuneytið hlýtur að bera sína stjórnsýslulegu ábyrgð og hann [Árni] er þingmaður Sjálfstæðis- flokksins á þingi, þannig að það er að minnsta kosti sérkennilegur hvít- þvottur, en það er auðvitað undireins gripið til þess. Að sjálfsögðu ber hann ábyrgð á sínum gerðum en allt er þetta lyginni líkast og óskaplega sorglegt,“ segir Sverrir. Forystumenn stjórnarandstöðu um mál Árna Johnsen Rétt ákvörðun að segja af sér þingmennsku SÆMUNDUR HF-85 fékk í gærdag djúpsprengju um borð með veiðar- færunum þar sem hann var á veiðum í Jökuldjúpi, suðvestur af Snæfells- jökli. Skipstjórinn tilkynnti Landhelgis- gæslunni klukkan 16:44 að líklega hefðu þeir fengið djúpsprengju um borð. Eftir að sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar hafði rætt við skipstjórann var ljóst að um djúp- sprengju var að ræða og jafnvel að hún væri með kveikibúnað, en svo reyndist þó ekki vera. Var bátnum ráðlagt að halda inn Faxaflóa og um þremur tímum síðar voru skipverjar á Sæmundi fluttir yfir í varðskipið og hófu tveir sprengjusérfræðingar að kanna sprengjuna. Mikill gróður var á sprengjunni þannig að útilokað var fyrir skip- verja að gera sér grein fyrir því hvort kveikibúnaður væri á sprengj- unni. Skipverjar á Sæmundi voru komn- ir aftur um borð í bátinn rúmlega átta. Fengu djúpsprengju í veiðarfærin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.