Morgunblaðið - 20.07.2001, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 27
YKO, hins
oðunar að
ða eins og
ð fram.
var í maí,
m 400 þús-
ikhússins.
m á að við
sem ekki
járveiting
hann ekki
aran hafði
við kröf-
jórareikn-
ning, sem
þegar taf-
Það hefur
ellum með
inkafyrir-
nni að for-
rt aðhafst
í þessum
sótt vörur,
króna, og
hússins en
i að fjölda
enda heim
fram af
þetta mál
ektin frá í
ngi í nafni
Árni varð
að skipta
n til okkar
na og bar
hefði verið
Morgun-
hefði verið
hefði ekki
bygging-
unar aldr-
hann hefði
ann hefði
ðurkenndi
blaðið að
nana, sem
i fyrir, í
mennt um
r ekki rétt
hálfu. Ég
og fyrir-
gefningar á þessu,“ er haft eftir
Árna í blaðinu.
Hvar var dúkurinn?
Stöðugar fréttir voru í fjölmiðlum
af málum Árna Johnsen. DV sagði
frá því á þriðjudagsmorgun, að Árni
hefði pantað þakrennur frá Vírneti
hf. fyrir milligöngu BYKO í nafni
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
og í hádegisfréttum Bylgjunnar og í
kvöldfréttum Stöðvar tvö var sagt
frá því að Árni hefði keypt og sótt
dúk, sem ýmist er nefndur þéttidúk-
ur eða tjarnardúkur, í nafni bygg-
ingarnefndarinnar í verslunina
Garðheima 2. júlí sl. Athyglin beind-
ist fljótlega að þessum dúk sem kost-
aði 173 þúsund krónur.
Í frétt Stöðvar tvö sagði m.a. um
þennan dúk. „Annan júlí síðastliðinn
sótti Árni Johnsen tvær rúllur af
tjarnardúk í verslunina Garðheima
en um er að ræða sérstakan gúmmí-
dúk sem meðal annars er notaður í
að búa til tjarnir og gera við flöt þök
sem leka. Eigandi Garðheima segir
að dúkurinn hafi kostað 170 þúsund
krónur og reikningurinn hafi verið
stílaður á byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins, meðal annars vegna bíla-
stæðis og smíðaverkstæðis leikhúss-
ins.“
Haft er eftir Gísla Sigurðssyni,
framkvæmdastjóra
Garðheima, að í samtali
hans við Stefán Baldurs-
son þjóðleikhússtjóra
fyrr um daginn, hafi
komið fram að hann
kannaðist ekki við dúkinn.
Þegar upplýsingar höfðu komið
fram á Bylgjunni um dúkinn óskaði
fréttastjóri Morgunblaðsins eftir því
við höfund þessarar greinar að hann
skrifaði frétt um málið til birtingar
daginn eftir. Vegna þess sem síðar
gerðist þykir Morgunblaðinu rétt að
rekja nokkuð nákvæmlega hvernig
staðið var að fréttaöflun við vinnslu
frétta um þennan dúk.
Morgunblaðið ræddi í upphafi við
Gísla Sigurðsson, framkvæmda-
stjóra Garðheima, sem staðfesti það
sem áður hafði komið fram í frétt
Bylgjunnar að Árni Johnsen alþing-
ismaður hefði í byrjun þessa mán-
aðar keypt þéttidúk í Garðheimum í
nafni byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins. Hann sagði að Árni hefði
sjálfur sótt dúkinn og kvaðst að-
spurður ekki hafa ástæðu til að ætla
annað en að dúkurinn hefði farið til
Þjóðleikhússins.
Morgunblaðið hringdi því næst í
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóra
sem tilkynnti í upphafi samtalsins að
þar sem Ríkisendurskoðun hefði
hafið rannsókn á störfum bygging-
arnefndar Þjóðleikhússins ætti hann
erfitt með að tjá sig mikið um málið.
Ríkisendurskoðandi hefði mælst til
þess að málsaðilar, sem ættu eftir að
upplýsa stofnunina um sína hlið
málsins, tjáðu sig ekki við fjölmiðla
um málið. Stefán kvaðst þó geta
staðfest að um það hefði verið rætt
að gera við eystri hlið Þjóðleikhúss-
ins en lekið hefur inn á smíðaverk-
stæði leikhússins frá bílastæði. Um
það hefði verið rætt að nota dúk við
þessa viðgerð, en það hefði verið
gert áður með góðum árangri. Þess-
ar framkvæmdir væru hins vegar
ekki hafnar og kvaðst Stefán ekki
vita hvar þessi dúkur væri niður
kominn.
Morgunblaðið náði um kvöldmat-
arleyti samband við
Árna Johnsen sem sagði
eins og Stefán að fyrir-
hugað væri að fara í
þessar viðgerðir og
stefnt hefði verið að því
að verkið yrði unnið í sumar. Þess
vegna hefði dúkurinn verið keyptur,
en framkvæmdir hefðu tafist.
Árni var spurður hvar dúkinn
væri að finna. „Dúkurinn er í Þjóð-
leikhúsinu eða í geymslu í húsi úti í
bæ. Ég held að húsvörður leikhúss-
ins ætti að geta bent á hvar dúkurinn
er,“ svaraði Árni.
Vegna þessara orða Árna hafði
Morgunblaðið, við lokafrágang frétt-
arinnar, samband við Rafn Gestsson,
húsvörð Þjóðleikhússins, til að
freista þess að fá þetta mál á hreint.
Samtalið var ekki tekið upp á seg-
ulband, en Rafn staðfesti við blaðið
að hann vissi hvar dúkinn væri að
finna og sagði að hann væri í
geymslu á vegum leikhússins. Þegar
hann var spurður hvort hann teldi að
dúkurinn yrði notaður í viðgerðir á
leikhúsinu svaraði hann því til að
hann teldi engar líkur á öðru en að
það yrði gert. Í lok samtalsins ítrek-
aði Rafn aðspurður, að dúkurinn
væri ekki hjá Árna.
Frétt um dúkinn birtist síðan á
blaðsíðu 12 í fyrradag og auk þess
birtist tilvísun í fréttina á baksíðu.
Fullyrt að fréttin væri röng
Morguninn eftir hafði fréttamað-
ur Stöðvar tvö samband við Morg-
unblaðið, en Stöð tvö og Bylgjan
höfðu fyrst greint frá viðskiptum
Árna með dúkinn. Hann sagði að þar
sem Morgunblaðið hefði með frétt
sinni borið brigður á að ásakanir í
garð Árna um sviksemi í sambandi
við viðskipti hans með dúkinn ættu
við rök að styðjast hefði fréttamað-
urinn óskað eftir því við þjóðleikhús-
stjóra að fá að mynda dúkinn. Þjóð-
leikhússtjóri hefði sagt að það væri
ekki hægt því að dúkurinn væri
hvorki í húsinu né í geymslum á veg-
um hússins. Frétt Morgunblaðsins
væri því röng. Um sama leyti birtist
viðtal við Stefán á fréttavefnum Vísi-
.is þar sem hann segir: ,,Ég talaði við
húsvörðinn í morgun og hann segir
þetta ekki rétt eftir sér haft því hann
hafi hvorki fengið né séð þennan dúk
og hafi eingöngu orð Árna Johnsen
fyrir því að þessi dúkur sé í geymslu
úti í bæ. Þannig að það er erfitt fyrir
okkur að veita aðgang að dúknum.“
,,Það er mjög klaufalega frá þessu
sagt hjá Morgunblaðinu í morgun
því það er haft eftir húsverðinum að
dúkurinn sé í vörslu Þjóðleikhússins.
Þetta stangast algjörlega á við það
sem ég segi í sama blaði. Þetta kem-
ur út í Morgunblaðinu eins og hús-
vörðurinn viti hvar dúkurinn er og
að dúkurinn sé í einhverri geymslu á
vegum leikhússins, en það er ekki til-
fellið,“ segir þjóðleikhússtjóri.
Þarna voru komnar fram ásakanir
um rangan fréttaflutning Morgun-
blaðsins og leitaðist blaðið strax við
að varpa ljósi á málið með því að hafa
samband við Rafn Gestsson húsvörð.
Hann sagði strax að hann mætti ekki
tjá sig um málið við fjölmiðla. Hann
hefði fengið ákúrur frá sínum yfir-
manni vegna þess sem haft var eftir
honum í Morgunblaðinu. Þegar
spurt var hvort eitthvað hefði verið
rangt haft eftir honum í fréttinni
kvaðst hann ekki kannast við að
hann hefði sagt að geymslan væri „á
vegum leikhússins“. Blaðamaður
Morgunblaðsins kvaðst telja að hann
hefði sagt þetta en gat ekki sannað
það vegna þess að samtalið hafði
ekki verið tekið upp á segulband.
Rafn tjáði blaðamanni aðspurður að
hann vissi hvar dúkurinn væri. Þeg-
ar hann var spurður hvort geymslan
væri „á vegum Árna“ ítrekaði hann
það sem hann hafði áður sagt að
hann hefði fengið fyrirmæli um að
tjá sig ekki við fjölmiðla. Samtalinu
lauk því án þess að ljóst væri hvar
dúkinn væri að finna.
Þar sem fram hafði komið fyrr um
morguninn að Stefán Baldursson gat
ekki bent á dúkinn ákvað Morgun-
blaðið að hafa samband við Árna
Johnsen og kanna hvort hann gæti
skýrt þetta mál. Þegar náðist í Árna
var honum bent á að
fram hefðu komið ásak-
anir um að Morgunblað-
ið væri með rangan
fréttaflutning af máli
sem tengdist honum og
var hann spurður hvort hann gæti
bent á dúkinn. Fram kom í samtal-
inu að Morgunblaðinu vildi fá að
taka mynd af dúknum þannig að
ekkert færi á milli mála. Árni sagði
að það ætti að vera hægt og kvaðst
hringja aftur fljótlega.
Nokkrum mínútum síðar hringdi
hann og sagði að Daníel Helgason,
sem starfað hefur hjá Forum ehf.,
rekstraraðila Þjóðleikhúskjallarans,
væri tilbúinn að sýna dúkinn. Hann
gaf upp símanúmer Daníels og varð
að samkomulagi milli blaðamanns
Morgunblaðsins og hans að hittast
við geymslu Þjóðleikhúskjallarans
uppi í Gufunesi kl. 13:30 þar sem
dúkinn væri að finna.
Blaðamaður og ljósmyndari fóru
upp í Gufunes á umsömdum tíma.
Daníel opnaði geymsluna og var tek-
in mynd af margumræddum dúk.
Daníel upplýsti þar að dúkurinn
hefði verið þar í 7–10 daga. Hann
sagði að hann hefði þurft að rýma
dót úr Þjóðleikhúskjallaranum og
„...Rabbi [húsvörður Þjóðleikhúss-
ins] bað mig að kippa dúknum með.“
Þegar hér var komið sögu lá fyrir
að dúkurinn var í geymslu sem
tengdist Þjóðleikhúsinu og starfs-
maður Þjóðleikhúskjallarans hafði
fullyrt að hann hefði verið þar í 7–10
daga. Morgunblaðið taldi því ekki
forsendu fyrir því að rengja frásögn
Árna Johnsen og birtist frétt og
mynd á fréttavefnum mbl.is um mál-
ið. Þar sem Rafn Gestsson og Stefán
Baldursson vildu ekki veita fjölmiðl-
um frekari upplýsingar um málið
taldi blaðamaður Morgunblaðsins að
yfirlýsingar þeirra mætti skýra með
því að Morgunblaðið hefði sagt að
dúkurinn væri í geymslu „á vegum
leikhússins“, en hið rétta væri að
dúkurinn hefði verið í geymslu „á
vegum Þjóðleikhúskjallarans.“ Þess
má geta að Stefán Baldursson hafði
áður lagt áherslu á það við blaða-
mann Morgunblaðsins að ekki mætti
rugla saman Þjóðleikhúsinu og
byggingarnefnd Þjóðleikhússins.
Hann hafði m.a. sent athugasemd til
blaðsins á þriðjudaginn til að árétta
þetta, en í frétt um útgjöld bygging-
arnefndar var talað um Þjóðleikhús-
ið þegar með réttu var átt við bygg-
ingarnefnd Þjóðleikhússins.
Í Morgunblaðinu í gær birtist
frétt þar sem annars vegar voru
raktar þær upplýsingar, sem blaðið
taldi á þeim tíma réttar um dúkinn
en hins vegar þau sjónarmið sem
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri
hafði lýst í samtölum við útvarps-
stöðvar fyrr um daginn. Með þessu
vildi blaðið gefa lesendum færi á að
lesa orðrétt þá gagnrýni sem fram
hafði komið á fréttaflutning blaðsins
af dúknum.
Árni baðst afsökunar á að hafa
veitt rangar upplýsingar
Um kl. 9:30 í gærmorgun fékk
Morgunblaðið ábendingu um að
dúkurinn, sem nú lá í geymslu í
Gufunesi, hefði einungis verið þar í
tvo daga og að hann hefði fyrr í mán-
uðinum verið sendur til Vestmanna-
eyja. Morgunblaðið hafði þegar í
stað samband við Árna Johnsen til
að fá skýringar á þessu. Árni kvaðst í
fyrstu ekki kannast við þetta. Þegar
á hann var gengið kvaðst hann þurfa
að athuga málið, en hringdi nokkru
seinna og viðurkenndi að fyrri full-
yrðingar hans um dúkinn hefðu ver-
ið rangar. Hann hefði sent dúkinn
frá Vestmannaeyjum til Reykjavík-
ur. Þegar hann var spurður hvaða
dag þetta hefði verið svaraði hann að
þetta hefði verið sl. þriðjudag. Síð-
degis í gær hafði Árni Johnsen svo
samband við Morgunblaðið og baðst
afsökunar á framferði sínu.
Í frétt DV um málið í gær segir:
„Þéttidúkur sem Árni Johnsen al-
þingismaður keypti í versluninni
Garðheimum í byrjun júlí á nafni
Þjóðleikhússins var sendur til Vest-
mannaeyja þann 11. júlí. Sendandi
var Árni Johnsen en að auki sendi
hann bretti af húsgögnum og steina-
plötu.
Dúkurinn, sem valdið hefur miklu
uppnámi og deilum, var síðan sendur
til baka frá Vestmannaeyjum í fyrra-
dag. Það var Flutningaþjónusta
Magnúsar sem tók að sér að flytja
dúkinn ásamt húsgögn-
unum til baka frá Eyj-
um. Á vöruflutningamið-
stöðinni Flytjanda varð
uppi fótur og fit þegar
starfsmenn uppgötvuðu
að þarna var um að ræða dúkinn sem
Morgunblaðið hafði upplýst að sé í
geymslu Þjóðleikhússins. “
DV tók viðtal við sendibílstjórann
sem flutti dúkinn og staðfesti hann
að hann hefði flutt dúkinn í Gufunes
sl. þriðjudag. Hann sagði jafnframt
að Árni hefði hringt í sig og sagt sér
hvert ætti að flytja dúkinn.
Daníel Helgason staðfesti síðan
með yfirlýsingu til fjölmiðla, sem
birt er í heild í Morgunblaðinu, að
hann hefði logið að blaðamanni og
ljósmyndara Morgunblaðsins.
ndi um dúkinn leiddu
m til afsagnar Árna
Morgunblaðið/Billi
eypti í nafni byggingarnefndar Þjóð-
að Árni sagði af sér þingmennsku.
m dúkinn sem höfðu að geyma rang-
á. Egill Ólafsson rekur fréttaflutn-
m mál Árna Johnsen þar sem fram
um upplýsingum að fjölmiðlum.
Morgunblaðið/Ásdís
Dúkarúllurnar sem starfsmaður Þjóðleikhússkjallarans sýndi blaðamanni og ljósmyndara
Morgunblaðsins fyrir orð Árna fóru upphaflega til Vestmannaeyja, en Árni lét senda þær til
Reykjavíkur þegar fjölmiðlar fóru að fjalla um störf hans í byggingarnefnd Þjóðleikhússins.
Dúkurinn
var tvo daga
í Gufunesi
Árni bað Daníel
að styðja
frásögn sína