Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 31

Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 31 Elsku afi sting, nú ertu farinn og þú kemur ekki aftur. Þín verður sárt saknað en samt ávallt minnst með bros á vör og gleði í hjarta fyrir þau ár sem þú kitlaðir mig með skegginu og leiddir okkur barna- börnin í kringum jólatréð. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þitt barnabarn, Erla Rún. Elsku afi, ég mun ávallt muna eft- ir þér og öllum góðu stundunum sem ég hef átt með þér og ömmu. Það verður erfitt að hugsa sér lífið án þín. Ég sakna þín. Þitt barnabarn. Íris Elfa. Við erum þakklát fyrir þær stundir sem við áttum með þér og munum varðveita minningu þína í huga okkar. Við viljum kveðja þig með þessari bæn: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guð geymi þig elsku Árni Már og langafi, Jóhanna Ingadóttir og Lilja Karen. Starfsmaður minn til áratuga er fallinn frá ótímabært. Ótal kærar minningar eru frá þessum árum í Morgunblaðshúsinu við Aðalstræti. Ef ég fer rétt með voru árin yfir tuttugu sem við áttum saman þar og þau þakka ég. Árni var afbragðsstarfsmaður er treysta mátti í hvívetna og ágætur fagmaður. Vinsæll var hann hjá samstarfsmönnum sínum, hnittinn og skemmtilegur og einnig mesta ljúfmenni í allri umgengni. Orðvar var Árni, styggðaryrði til nokkurs manns voru óþekkt í munni hans. Hamingja Árna hlýtur að hafa verið mikil að eignast átta börn með sinni ágætu konu og koma þeim öllum á legg. Minningin um þennan elskulega dreng mun verða mér björt og fög- ur, svo og öllum þeim er hann þekktu. Ég votta Sigríði Jóhönnu og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Páll Vígkonarson. Ég hitti Árna Waage fyrst þegar ég hóf nám í prentmyndagerð í Myndamótum hf. í maí 1963. Árni var þá á þriðja ári í náminu, glaðleg- ur strákur með ljóst liðað hár. Árni tók strax að sér að leiðbeina nýja lærlingnum og ég tók hann mér til fyrirmyndar því hann var bæði af- burða duglegur og góður fagmaður. Fljótlega tókst með okkur þannig samvinna að við vissum hvaða verk- færi hinn vantaði í það og það skipt- ið og hvað átti að gera næst svo orð voru því óþörf. Ekki það að við töl- uðum ekki saman því við áttum svipuð áhugamál og ræddum þau af miklum áhuga og vorum stundum galsafengnir svo öðrum þótti nóg um. Við vorum saman allan daginn og stundum heldur uppátækjasamir og því oft uppnefndir Knold og Tott af starfsfólki í Morgunblaðshúsinu. Við Maja fórum fljótlega að heim- sækja Árna og Siggu sem þá áttu tvær dætur. Með okkur tókst vin- átta sem í raun aldrei slitnaði. Ferð- irnar upp í Völvufell voru margar og alltaf gott að koma til þeirra. Þegar við fluttum til Akureyrar 1977 áttu Árni og Sigga sjö dætur og einn son en við Maja tvær dætur og einn son. Eftir að við fluttum norður fækkaði samverustundunum en við Árni hringdum hvor í annan og vorum alltaf sömu félagarnir. Árni minn, það kom mér kannski ekki mjög á óvart þegar hringt var og sagt að þú værir dáinn. Þú hafðir barist við erfið veikindi svo lengi. Áfallið var samt jafn mikið og erfitt að trúa því að þú sem varst svo lífsglaður og áttir svo mikið að gefa værir farinn til æðri heima. Þín er sárt saknað, gamli vinur. Elsku Sigga og fjölskylda, hugur okkar er hjá ykkur. Við biðjum guð að vera með ykkur í sorg ykkar og söknuði. Ríkarður B. Jónasson og María Árnadóttir (Rikki og Maja). Leiðir okkar Árna Waage lágu fyrst saman haustið 1972. Ég var þá nýbyrjaður í starfi organista í Breiðholtssöfnuði. Þar var engin kirkja en messað í Breiðholtsskóla mörg fyrstu árin. Við fyrstu mess- urnar söng lítill hópur fólks sem presturinn séra Lárus Halldórsson þekkti og útvegaði. Fljótlega aug- lýsti ég eftir fólki í kór og fékk ótrú- lega góð viðbrögð. Á annan tug gaf sig fram og varð stofnfélagar Kórs Breiðholtskirkju. Í þessum hópi voru tveir ungir og efnilegir tenórar og var Árni Waage annar þeirra. Árni var grannur vexti og léttur á sér. Hann var glað- legur og mjög áhugasamur. Rödd hans var björt og skær og var hann fljótur að læra raddir í nýjum verk- efnum. Þetta var sérlega góður eig- inleiki og kom sér vel því á fyrstu vikunum þurfti kórinn að læra marga sálma í röddum. Framundan voru jól og settum við markið á að læra Hátíðarsöngva séra Bjarna Þorsteinssonar og flesta jólasálm- ana í röddum. Þetta tókst enda voru kórfélagarnir iðnir og mjög áhuga- samir. Í öllu þessu brautryðjendastarfi var gott að hafa bjartsýna og já- kvæða kórfélaga eins og Árna. Ekk- ert verkefni óx honum í augum heldur var unnið markvisst að því að ná tökum á þeim. Árni var kosinn í stjórn kórsins og þegar hún skipti með sér verkum féll ritarastarfið á hann. Það rækti hann með stakri prýði og auk þess að gera fundum kórsins góð skil, skrifaði hann ferðasögur úr árleg- um safnaðarferðum Breiðholtssafn- aðar, sem prestur, kór og safnaðar- nefnd stóðu að. Yfirleitt heimsóttum við einhverja kirkju og önnuðumst messu þar auk þess sem við skoðuðum landið vort fagra. Á næsta aðalfundi kórsins las Árni síðustu fundargerð og bætti ferða- sögunni við. Hann sá alltaf eitthvað skemmtilegt og spaugilegt og gaf okkur hlutdeild í því. Af þeim karlmönnum sem gengu til liðs við Kór Breiðholtskirkju mun Árni hafa enst einna lengst, starfaði með mér nokkuð á annan áratug. Hann kom til liðs við kórinn við nokkur tækifæri eftir að hann hætti í honum, m.a. við vígslu Breiðholtskirkju í mars 1988 og þegar kórinn hélt upp á tuttugu ára afmæli sitt í nóvember 1992. Það var mér mikils virði að hafa hann með við þessi tækifæri, glaðan, já- kvæðan og uppörvandi eins og æv- inlega. Oft vann hann verk fyrir mig og kórinn sem tengdust fagi hans, en hann var vandvirkur og góður fag- maður. Síðast þegar hann kom við hjá mér vegna slíkrar vinnu var hann að koma beint frá því að taka á móti fyrsta langafabarni sínu. Í sumar hittumst við nokkrum sinn- um í Breiðholtslaug og ræddum margt saman, m.a. um að hittast sem fyrst til að hlusta á óútgefinn geisladisk með söng Kórs Breið- holtskirkju. Því miður auðnaðist okkur ekki að láta verða af því. Kæra Sigríður, börn og aðrir ást- vinir Árna. Ég votta ykkur öllum samúð og bið Guð að styrkja ykkur og blessa. Daníel Jónasson. Þegar dóttir mín hringdi í mig að kvöldi 6. júlí sl. og tilkynnti mér að hann Árni samstarfsmaður okkar væri dáinn, var mér brugðið. Það að hafa fengið að kynnast þeim heiðursmanni er mikið lán. Margt kemur upp í hugann. Fyrstu samstarfsárin voru kynni mín af Árna mun minni en þau urðu síðasta áratuginn. Góða skapið sem hann Árni átti og létti honum lífið í gegn- um tíðina væri mikill fengur fyrir hvern mann. Alltaf gat hann slegið á létta strengi, hversu alvarleg sem umræðan var, eða verkefnin. Hann hvatti okkur vinnufélaga sína til dáða og ekki hvað síst hvatti hann okkur til að fara út og hreyfa okkur. Það gerðum við nokkuð mörg og munum gera áfram, þótt ekki væri nema til þess að halda uppi merki Árna sem foringja þessa gönguhóps til fjölda ára. Mér er efst í huga þakklæti til Árna fyrir ánægjulega samfylgd. Ég sendi Siggu og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðjur. Kristján G. Bergþórsson. Það er föstudagur 15. júní. Við Árni kveðjumst með þéttu handtaki og óskum um gott og gleðilegt sum- arfrí, ákveðnir í því að sjást aftur hressir og kátir þriðjudaginn 10. júlí, en þá kom kallið, alltof fljótt. Mig langar í fáum orðum að minnast vinar míns Árna Waage sem lést á Mallorka 6. júlí sl. Við Árni höfum starfað saman hjá Morgunblaðinu í hartnær 20 ár, því þótt Árni hafi starfað hjá Mynda- mótum meðan blaðið var í Aðal- stræti fannst mér Morgunblaðið og Myndamót alltaf vera sama fyrir- tækið. Síðastliðin sjö ár höfum við starfað náið saman á auglýsinga- deild blaðsins. Árni var mjög lífsglaður maður, sannkallaður gleðigjafi, alltaf tilbúinn í smá sprell og stríðni. Það fengu allir, hvort sem þeir voru há- ir eða lágir, að finna fyrir því, því hann gerði engan mannamun í þeim efnum og höfðu allir yfirleitt gaman af. Aldrei leið það hádegi að við færum ekki út að skokka, ann- aðhvort tveir saman eða með gönguhópnum sem komið var á legg að frumkvæði Árna. Oft var þessi hópur kallaður Brekkusnigl- arnir í gamansömum tón ef honum fannst ekki gengið nógu hratt. Það var alveg sama hvernig viðraði; út skyldum við, og ef úti var rigning og menn eitthvað tregir við að fara út hafði hann á orði hvort við vær- um vatnshrædd eða hvort við þyld- um ekki smá vind ef hvasst var. Þá hlýddum við, því ekki gátum við látið það um okkur spyrjast að við værum hrædd. Árni hafði ýmis áhugamál, þótt fjölskyldan væri alltaf númer eitt, sem best sést á því þegar hann í vet- ur var að hjálpa tveimur dætra sinna í vinnu við íbúðir sem þær voru að flytja í. Þá fylgdumst við félagarnir með gangi mála í gegnum hann. Hann var einstaklega barn- góður maður, hann hafði alltaf eitt- hvert lag á því að fá þau til að brosa, enda stutt í barnið í honum sjálfum, og þegar börn starfsmanna komu í heimsókn drógust þau alltaf í hornið hjá honum og þá var oft kátt á hjalla. Árni var söngmaður góður og söng í nokkur ár í kirkjukór Breið- holtskirkju. Þá hafði hann núna í nokkur ár verið að læra á harmon- iku og sóttist það nám mjög vel, og auk þess að spila á harmonikuna spilaði hann listavel á munnhörpu. Árni var mjög liðtækur knatt- spyrnumaður og lék með knatt- spyrnufélaginu Víkingi allt frá yngri flokkum og upp í meistara- flokk, auk þess sem hann æfði á unglingsárum sund hjá sunddeild KR. Hann fylgdist með ensku knatt- spyrnunni af áhuga og sl. vor fór hann ásamt syni sínum, Sigurði Árna, í pílagrímsför til mekka knattspyrnunnar, Englands, og var hann mjög sæll er hann kom til baka úr þeirri för. Þau hjón Sigríður og Árni hafa á undanförnum árum farið hvert sumar til sólarstranda með eitthvað af börnum sínum og var hann í einni slíkri ferð þegar kallið kom alltof fljótt. Missir okkar allra er mikill en missir fjölskyldunnar þó mestur sem nú sér á eftir elskulegum eig- inmanni, góðum föður og ljúfum afa. Ég og kona mín viljum senda Sig- ríði eiginkonu hans og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur, ég sakna góðs vinar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sveinn H. Gunnarsson. Við fráfall míns góða vinar og vinnufélaga Árna Waage langar mig að þakka honum fyrir stund- irnar sem við áttum saman. Frá 1984 störfuðum við hjá Myndamót- um, síðar Morgunblaðinu. Engum manni á ég það eins að þakka og Árna að mér gekk vel að fóta mig í nýju starfi við aðstæður sem voru mér mjög framandi á þeim tíma. Hann var alltaf reiðubúinn að miðla mér og öðrum af reynslu sinni og þekkingu. Árni var þessi síkáti og vingjarnlegi vinnufélagi frá fyrsta vinnudegi til hins síðasta, sem gott var að vera í nálægð við, þannig að það var ávallt tilhlökkun í því að mæta nýjum vinnudegi með honum. Árni lærði prentmyndasmíði og starfaði lengst af við þá iðn. Var af- bragðs fagmaður og áreiðanlegur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Lengst af vann Árni langan vinnudag, jafnvel allt of langan, miðað við hve veikur hann var seinni hluta ævinnar. Hann kvartaði þó aldrei, sagðist í mesta lagi vera aðeins slappur og lét sig ekki vanta til vinnu út af slíkum smámunum, eins og hann nefndi það, þótt við vinnufélagar hans litum það öðrum augum. Fáar iðngreinar hafa tekið viðlíka breytingum á síðustu árum og prentverkið og greinar því tengdar og var gaman að fylgjast með því hve Árni aðlagaði sig þessum breyttu vinnubrögðum. Þegar margir aðrir lögðu árar í bát og hættu í faginu, settist Árni á skóla- bekk og endurmenntaði sig, og frá því að vera afbragðs handverks- maður varð hann frábær mynd- vinnslumaður á tölvu, var sífellt að lesa sér til og prófa sig áfram og manna duglegastur að skoða eigin vinnu og athuga hvort eitthvað hefði mátt betur fara. Síðustu ár hefur Árni lagt mikið af mörkum í því að bæta mynd- vinnslu Morgunblaðsins með því að kenna nýjum starfsmönnum og viðskiptavinum þess rétt vinnu- brögð, og hefur verið gaman að fylgjast með skjótum framförum ungra starfsmanna undir leiðsögn hans. Með sínu ljúfa skapi og skemmtilegum uppákomum tókst Árna að koma boðskap sínum fram, þannig að engum leiddist og fróðleikurinn og reynsla hans komst vel til skila. Árni var alla tíð mjög glaðlyndur maður og skemmtilegur, jafnvel á stundum hinn mesti prakkari, en hrekkir hans og stríðni meiddu aldrei nokkurn mann, heldur var uppskeran hlátur og skemmtan. Hann hafði mikið yndi af tónlist, var liðtækur söngmaður og hafði síð- ustu ár lagt stund á harmonikunám, sem honum þótti mjög skemmtilegt. En fyrst og síðast held ég að Árni hafi haft gaman af fólki, vildi blanda geði við annað fólk og hafði lag á að láta öllum líða vel í návist sinni. Árni var mikill hamingjumaður í einkalífi, hann og Sigríður kona hans sérlega samrýnd og einhuga í öllu. Og barnalán þeirra var mikið, átta börn, hvert öðru myndarlegra, sem við vinnufélagarnir fengum að fylgjast með bæði frá Árna og einn- ig með heimsóknum þeirra á vinnu- staðinn til föður síns. Missir þeirra er mikill og sendi ég þeim mínar innilegustu samúðarkveðjur um leið ég kveð minn kæra vinnufélaga. Ólafur Brynjólfsson. Með nokkrum orðum viljum við kveðja góðan vin okkar og starfs- félaga á auglýsingadeild Morgun- blaðsins, Árna Waage. Með honum er genginn einstakur maður sem skilur eftir sig skarð sem erfitt verður að fylla. Hann var sannkall- aður gleðigjafi, sérlega léttur í skapi og mikill húmoristi, og var alltaf tilbúinn í sprell og grín. Það er stutt í brosið þegar maður minn- ist einhverra af þeim góðlátlegu prakkarastrikum sem hann fann upp á og gerðu vinnudaginn skemmtilegri en ella. Það var ekki óalgengt eftir að hafa setið með Árna á kaffistofunni að búið væri að lauma sykurkari eða teskeiðum í vasann hjá manni. Eða þegar papp- írskúlurnar komu fljúgandi frá hon- um yfir skilrúmið og smullu á vel völdu skotmarki. Borðið hans var mjög miðsvæðis á deildinni og það var svo sjálfsagt að koma við hjá honum og spjalla og fá dálítinn skammt af h-vítamíninu. Hann var líka ákaflega þægilegur í samstarfi og bóngóður og þótt oft væri mikill erill og álag á skannanum, var Árni alltaf sallarólegur og reddaði hlut- unum á örskömmum tíma án þess að slá af gæðakröfunum. Hann var sérstaklega vandvirkur og hafði til að bera mikinn faglegan metnað í starfi sínu við myndvinnslu, og við sem með honum unnum, njótum góðs af því að hann var alltaf tilbú- inn til að miðla okkur af reynslu sinni og þekkingu. Árni var ómiss- andi hluti af hópnum og það er erfitt til þess að hugsa að hann sé ekki lengur á meðal okkar. Við eigum eftir að sakna hans mjög. Fjöl- skyldu hans færum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Starfsfólk auglýsingadeildar. Ég man fyrst eftir Árna þegar ég byrjaði hjá Morgunblaðinu árið 1996. Hann var glettinn á svip og stríðinn með eindæmum. Nokkru síðar var mér falið að vinna með Árna við myndvinnslu. Þarna kynntist ég fagmanninum sem gafst aldrei upp og gerði alltaf sitt besta. Það sem einkenndi hann var að hann var alltaf tilbúinn að aðstoða alla. Þó tæknin breyttist var Árni ekkert að víla það fyrir sér, hann var á því að stöðug endurmenntun væri það sem skipti máli. Hann sagði stundum: ,,Tækin eru aldrei betri en þeir sem nota þau. Á þessum tíma stundaði ég göng- ur í hádeginu með gönguklúbbnum hans Árna. Það var stund sem allir félagarnir hlökkuðu til. Árni dreif mannskapinn áfram og vildi oftar en ekki fara lengri leiðir en við hin. Þó Árni hafi ekki alltaf verið heilsu- hraustur var hann aldrei á þeim buxunum að gefast upp. Hann blés á allt væl og aumingjaskap. Í stað þess að kvarta veitti hann sam- starfsfólki sínu styrk og með já- kvæðni og bjartsýni kom hann fólki í gott skap. Árni var mikill fjölskyldumaður sem var umhugað um velferð síns fólks. Sigga, börnin og barnabörnin voru það sem skipti aðalmáli. Hann vildi allt til þess vinna að þeim liði öllum vel. Vandfyllt verður skarðið sem Árni Waage skilur eftir sig bæði hjá fjölskyldu og samstarfs- félögum. Far í friði vinur sæll. Blessuð sé minning Árna Waage. Ingi Rafn Ólafsson. Árni Waage, vinur minn og sam- starfsmaður á Morgunblaðinu, er látinn. Hann var foringinn og auk þess lífið og sálin í hádegisgöngu- hópnum okkar. Hann var ævinlega glaður og reifur, á hverju sem gekk. Oft hefði hann getað borið við að hann væri ekki sem best fyrir kall- aður þetta eða hitt hádegið, en hann gaf aldrei eftir um þumlung. Ekki stoðaði heldur fyrir okkur félaga hans að vekja athygli á leiðinlegu veðri, fljúgandi hálku, ófærð eða annríki sem ástæðu fyrir að fella niður gönguna. Hann gerði þá bara góðlátlegt grín að viðkomandi og af- vopnaði hann með athugasemdum eins og: „Búðu þig bara betur, góði.“ Þannig var hann ævinlega – uppörvandi og jákvæður, en sló aldrei af. Göngurnar endurnærðu okkur bæði andlega og líkamlega og urðu ómissandi með tímanum. Nú hefur þessi frábæri og síungi félagi kvatt okkur svo skyndilega að við sitjum eftir höggdofa. Driffjöðr- in, trúnaðarvinurinn, húmoristinn, prakkarinn, æringinn og alvöru- maðurinn, sá sem stappaði í okkur stálinu með fordæmi sínu, er allt í einu horfinn okkur langt fyrir aldur fram. Í hugum okkar er söknuður og tóm, en jafnframt þakklæti fyrir samfylgdina. Hann veitti okkur af rausn með glaðværð sinni. Farðu vel, kæri vinur og félagi. Blessuð sé minning þín. Siggu og öðrum ástvinum þínum vottum við dýpstu samúð. F.h. gönguhópsins Hilmar Pétur Þormóðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.