Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Múrarar — múrarar Múrara (undirverktaka eða launþega) vantar í múrvinnu og flísalagningar. Mikil vinna framundan. Frekari upplýsingar gefur Sigurður Gestsson í síma 895 9159. Byggingarráðgjafinn ehf. Heilbrigðisstofnunin Hólmavík Hjúkrunarfræðingar Heilbrigðisstofnunin Hólmavík óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til afleysinga og fram- tíðarstarfa við stofnunina frá og með 1. ágúst næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 25. júlí. Upplýsingar gefur Jóhann Björn Arngrímsson í síma 451 3395 og 893 7085. R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR TILKYNNINGAR Auglýsing um afgreiðslur borgarráðs Reykjavíkur á auglýstum deiliskipulagstillögum og tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar afgreiðslur borgarráðs Reykjavíkur á eftirtöldum skipulagstillögum: Gufunes, akstursæfingasvæði deiliskipulag. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 8. maí sl. nýtt deiliskipulag fyrir akstursæfingasvæði neðan Gufunesvegar í Gufunesi Grafarvogi. Deiliskipulagstillagan var auglýst til kynningar frá 7. febrúar til 7. mars 2001 með athugasemdafresti til 21. mars. Ein athugasemd barst við tillöguna og voru gerðar á henni nokkrar breytingar í samræmi við athugasemdir. Umsögn um athugasemdirnar hefur verið send athugasemdaaðila og honum tilkynnt um afgreiðslu borgarráðs. Skipulagsstofnun var sent deiliskipulagið til skoðunar og gerði stofnunin ekki athugasemd við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda (birtist 20. júlí). Sólvallagötureitur, Sólvallagata, Ánanaust, Holtsgata, Framnesvegur, svæðið innan þessa gatna. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 27. mars sl. deiliskipulag reits sem afmarkast af Sólvallagötu, Ánanaustum, Holtsgötu og Framnesvegi. Deiliskipulagstillagan var auglýst til kynningar frá 12. janúar til 9. febrúar með athugasemdafresti til 23. febrúar. Athugasemdir bárust frá 2 aðilum. Var tillagan samþykkt nánast óbreytt að öðru leyti en því að felld var niður kvöð um spennistöð sem gerð var athugasemd við. Umsögn um athugasemdirnar hefur verið send athugasemdaaðilum og þeim tilkynnt um afgreiðslu borgarráðs. Skipulagsstofnun var sent deiliskipulagið til skoðunar og gerði stofnunin ekki athugasemd við að auglýsing um gildistöku þess yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda þegar smávægilegar lagfæringar hefðu verið gerðar á tillögunni (birtist 20. júlí). Gatnamót Vesturlandsvegar, Reynisvatnsvegar og Víkurvegar, breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 27. mars sl. breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 varðandi gatnamót Vesturlandsvegar, Reynisvatnsvegar og Víkurvegar. Tillagan var auglýst til kynningar frá 8. desember 2000 til 5. janúar sl. með athugasemdafresti til 20. janúar. Athugasemdir bárust frá þremur aðilum. Ekki þótti ástæða til að taka tillit til athugasemda og var tillagan samþykkt óbreytt. Umsögn um athugasemdirnar hefur verið send athugasemdaaðilum og þeim tilkynnt um afgreiðslu borgarráðs. Umhverfisráðherra staðfesti breytinguna þann 20. júní sl. og hefur birt auglýsingu um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Nánari upplýsingar eða gögn um framangreindar skipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er hægt að nálgast á skrifstofu Borgarskipulags Reykjavíkur að Borgartúni 3, Reykjavík. Borgarskipulag Reykjavíkur. Reykjavík, 18. júlí 2001. Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík og Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 - 2016, varðandi lóðina nr. 38 við Suðurhlíð í Fossvogi (fyrrum lóð Landgræðslusjóðs). Í samræmi við 1. mgr. 21. gr. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deili- skipulagi og Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 - 2016, varðandi lóðina nr. 38 við Suðurhlíð í Fossvogi (fyrrum lóð Land- græðslusjóðs). Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir að landnotkun lóðarinnar breytist úr stofnana- svæði í íbúðasvæði. Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðinni verði fjarlægðar. Lóðin stækki lítillega í austur og suður og henni verði skipt upp í tvær lóðir. Á vestari lóðinni verði ekki heimilt að byggja en á austari lóðinni verði heimilt að byggja um 5100fm íbúðarhús með um 50 íbúðum auk bílakjallara. Húsið verði á allt að þremur hæðum með inndreginni fjórðu hæð. Tillögurnar liggja frammi í sal Borgar- skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 20. júlí til 17. ágúst 2001. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að kynna sér tillögurnar og koma með ábendingar og gera athugasemdir við þær. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykja- víkur fyrir 31. ágúst 2001. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 20. júlí 2001. Borgarskipulag Reykjavíkur SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF 21. júlí, laugardagur — Skarðsheiði. Um 5—7 klst. ganga og hæðaraukning um 960 m. Fararstjóri Jónas Haraldsson, verð 2.700 en til félagsmanna 2.400. Brottför kl. 8:00 frá BSÍ og komið við í Mörkinni 6. Dagskrá þjóðgarðsins á Þingvöllum helg- ina 21.—22. júlí. Laugardagur 21. júlí Kl. 13.00 Gengið í Skógarkot. Gengið í Skógarkot og fjallað um daglegt líf á nítjándu öld og mannlífið í Þingvallahrauni. Safnast verður saman við Flosa- gjá og tekur gangan um 2—3 klst. Kl. 13.00 Leikið og litað í Hvannagjá. Dagskrá fyrir krakka á öllum aldri í Hvannagjá. Tekur um 1 klst. og farið frá þjónustumiðstöð. Sunnudagur 22. júlí Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing- vallakirkju. Prestur sr. Þórey Guðmundsdóttir og Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Kl. 15.00 Þinghelgarganga. Gengið um þingstaðinn forna og hugað að sögu og náttúru. Hefst við kirkju að lokinni guðsþjón- ustu og tekur um 1 klst. Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins á Þingvöllum er ókeypis og allir eru velkomnir. Nánari upplýs- ingar má fá í þjónustumiðstöð í s. 482 2660 og á heimasíðu þjóð- garðsins www.thingvellir.is .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.