Morgunblaðið - 20.07.2001, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Gunnar: „Við fundum sögur
á íslenskum vefsíðum frá krökkum
sem hafa byrjað í dópi. Svo hafa
leikararnir reynt að hlera, fara í
partí og sjá þetta með berum aug-
um.“
Anna María: „Já ég fór í partí á
dögunum og fékk ansi góða innsýn
í þennan heim.“
Jón Þorgeir: „Þetta er einfald-
lega byggt á okkar reynslu af
heimi unglinga.“
– Hvernig kviknaði hugmyndin
að leikritinu?
Jón Gunnar: „Þetta passar bara
vel inn í umræðuna núna og það
vantaði leikrit um e-töfluna. Þetta
hefur kannski verið svolítið feimn-
ismál.“
Jón Þorgeir: „Þetta eru líka blá-
kaldar staðreyndir og er miklu al-
gengara en fólk heldur.“
Jón Gunnar: „Leikritið er for-
varnarstarf í leiðinni. Þetta er
ádeila á fíkniefnaneyslu en þó laus
við predikunartón. Ef þú tekur e-
töflu þá líður þér mjög vel og það
er algjör sæluvíma en svo koma
náttúrulega eftirköst sem eru 300
sinnum verri.“
– Hvaða aldurshópa eruð þið að
reyna að höfða til?
Jón Þorgeir: „Svona 15–25 ára.
Ég held að fólk geti samt alveg
JÓN GUNNAR Þórðarson er
leikstjóri og handritshöfundur
verksins en þau Jón Þorgeir Krist-
jánsson og Anna María Tómas-
dóttir eru hluti af Ofleik, 25 manna
leikhóp sem að sýningunni stend-
ur. Í reykmettuðu anddyri Tjarn-
arbíós lék blaðamanni forvitni á að
vita um hvað Leikritið E fjallar.
Jón Þorgeir: „Þetta er saga
margra krakka sem eru öll á leið í
sama partíið.“
Jón Gunnar: „Já, sögur þeirra
fléttast saman á einn eða annan
hátt.“
– Hefur leikritið einhverja sér-
stöðu meðal annarra leikrita?
Jón Gunnar: „Já, fyrst og
fremst eru það 25 unglingar sem
leika öll hlutverkin. Það hafa oft
verið skrifaðar unglingabækur og
-leikrit af eldra fólki.“
Anna María: „Já og það virkar
yfirleitt ekki alveg.“
Jón Gunnar: „Þarna er verið að
segja sögu unglinga og ekki skafið
af neinu. Við erum að segja stað-
reyndir, eins og að krakkar í 10.
bekk drekka.“
Reynsluheimur unglinga
– Nú er leikritið byggt á
reynslusögum, hvernig nálguðust
þið þær?
haft gaman af þessu þótt það sé
ekki unglingar.“
Jón Gunnar: „Það eru alveg
óhugnanleg atriði inn á milli, of-
beldi og slagsmál, en það er líka
bara raunveruleikinn.“
Fjöllistahópurinn Ofleikur
– Segið mér aðeins frá leikfélag-
inu ykkar, Ofleik.
Anna María: „Þetta byrjaði eig-
inlega á leiklistarnámskeiði í
Hagaskóla. Við ákváðum í fram-
haldi af námskeiðinu að setja upp
sýningu sem heitir Einmana og
stofnuðum Ofleik núna um áramót-
in.“
Jón Þorgeir: „Við stofnuðum
eiginlega leikfélagið til að setja
upp sýninguna.“
Anna María: „Svo gengum við í
Bandalag íslenskra leikfélaga.“
Jón Gunnar: „Þetta er ekki bara
leikfélag. Krakkarnir hittast og
mála og smíða, þetta er eiginlega
svona fjöllistahópur.“
Jón Þorgeir: „Við erum svona
eins og ein stór fjölskylda.“
– Eru einhver fleiri verkefni á
dagskránni hjá Ofleik?
Jón Gunnar: „Já já, Ofleikur er
kominn til að vera.“
Ein stór fjölskylda
Í kvöld verður Leik-
ritið E frumsýnt í
Tjarnarbíói. Aðstand-
endur verksins sögðu
Birtu Björnsdóttur
frá tilurð þess og
fjölskyldufyrirbærinu
nýstofnaða, Ofleik.
birta@mbl.is
Ofleikur frumsýnir Leikritið E
Morgunblaðið/Arnaldur
Jón Þorgeir, Anna María og Jón Gunnar.
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn
frá framleiðendum
Notting Hill & Four Weddings And A Funeral. Með
Renée Zelweger (Jerry Maguire, Nurse Betty), Hugh
Grant (Notting Hill, Four Weddings And A Funeral)
og Colin Firth (Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
Sýnd kl. 8.10 og 10.10. Vit nr. 250
Kvikmyndir.com DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 243.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit 255.
Sýnd kl.8. Vit 235. B.i. 12.
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
strik.is
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 249
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Ísl tal. Vit nr. 245
4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Vit nr. 244
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
FRUMSÝNING
Græna tröllið SHREK hefur allstaðar heillað heimsbyggð
alla og nú er röðin komin að Íslandi.
Sjáið eina skemmtilegustu og stærstu kvikmynd ársins.
Með íslensku og ensku tali.
Nýi Stíllinn Keisarans
Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 213.
The Mummy returns
Sýnd kl. 3.50 og 6. Vit 234
Spenna á yfir 380 km hraða!
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 10.30.
Kvikmyndir.com DV
strik.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Ísl tal
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
FRUMSÝNING
Græna tröllið SHREK hefur allstaðar heillað heimsbyggð
alla og nú er röðin komin að Íslandi.
Sjáið eina skemmtilegustu og stærstu kvikmynd ársins.
Með íslensku og ensku tali.
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn frá framleiðendum
Notting Hill & Four Weddings And A Funeral. Með Renée
Zelweger (Jerry Maguire, Nurse Betty), Hugh Grant (Notting
Hill, Four Weddings And A Funeral) og Colin Firth
(Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
30 - 70% AFSLÁTTUR
WWW.TISKA.IS OG LAUGAVEGUR 54