Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 52

Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. LEIT að olíu og gasi innan íslensku efnahagslögsögunnar, á 42 þúsund ferkílómetra svæði á suðurhluta Jan Mayen-hryggjar, hefst í dag á veg- um norska fyrirtækisins InSeis. Fyrirtækið er hið sama og hefur unnið að sams konar leit við Noreg. Er rannsóknarskipið Polar Princess nú á leið hingað á vegum fyrirtæk- isins og verða störf hafin þegar í stað. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra greindi frá þessu á blaða- mannafundi í gær og að hún hefði á miðvikudag veitt fyrirtækinu leyfi til slíkrar leitar á grundvelli laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, sem sett voru í mars á þessu ári. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkt leyfi er veitt. Tilefni lagasetningarinnar, sagði Valgerður, var áhugi sem er- lend olíufélög höfðu sýnt á olíuleit í jarðgrunni Íslands. Áhugi erlendra olíufélaga beinist að jaðarsvæðum Steinar Þór Guðlaugsson, jarðeðl- isfræðingur á Orkustofnun, sagði frá því að svæðið sem um ræðir væri að mörgu leyti líkt þeim svæð- um sem væri að finna vestast í land- grunni Noregs og austast í land- grunni Grænlands. Þarna væri svokallað meginlandsberg og setlög- in svipuð og á áðurnefndum stöðum. Steinar sagði að áhugi erlendra ol- íufélaga væri í auknum mæli að beinast að jaðarsvæðum, vegna ný- legra rannsókna, til dæmis við Nor- eg, Bretlandseyjar og Færeyjar og sagði hann að Jan Mayen-hrygg- urinn teldist vissulega til slíkra jað- arsvæða. InSeis hyggst stunda umfangs- miklar hljóðendurvarpsmælingar á umræddu svæði. Samkvæmt reglu- gerð með áðurnefndum lögum, er leyfið veitt fyrirtækinu til þriggja ára. Felur leyfið í sér heimild til borunar í þeim tilgangi að afla upp- lýsinga um almenn skilyrði til myndunar og varðveislu kolvetnis. Feli leit í sér dýpri borun en 25 metra niður fyrir hafsbotn verður að sækja um leyfi til þess til ráðu- neytis. Leyfið veitir leyfishafa ekki rétt til borunar eftir kolvetni, vinnslu kolvetnis eða forgangsrétt til að fá slíkt leyfi síðar. Á þetta lagði Val- gerður áherslu og sagði mikilvægt að gera greinarmun á leyfi til leitar annars vegar og leyfi til rannsókna og vinnslu hins vegar. Hún tók fram að fyrirtækið hefði upplýsinga- skyldu gagnvart Orkustofnun, bæði yrði að veita upplýsingar um gang mála jafnóðum og einnig um verk- lok. Norskt fyrirtæki fær leyfi til olíu- og gasleitar í íslenskri efnahagslögsögu Leit að olíu og gasi á Jan Mayen-hrygg hefst í dag              Um hádegisbilið í gær sendi for- sætisráðherra frá sér svohljóðandi yfirlýsingu: „Árni Johnsen alþingismaður hafði samband við mig nú fyrir stundu og tilkynnti mér að hann hygðist segja af sér þingmennsku og myndi senda bréf um þá ákvörðun til forseta Alþingis á næstu dögum. Ég styð ákvörðun Árna og tel hana rétta. Jafnframt harma ég að Árna hafi orðið á þau alvarlegu mistök sem leiddu til þessarar ákvörðunar.“ Forsætisráðherra sagði við Morg- unblaðið að Árni hefði haft samband við sig skömmu fyrir hádegi og til- kynnt sér þetta. „Mér þykir þetta mjög miður því Árni er um margt ágætismaður þótt honum hafi orðið þetta á sem er óverjanlegt,“ sagði hann. Davíð sagði að Árni hefði verið „ósköp dapur eins og augljóst er, og við sjálfsagt báðir“ er þeir ræddust við. Biður Morgunblaðið afsökunar Árni Johnsen sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær, harma hvernig málum væri komið og kvaðst ekki geta skýrt þá framgöngu sína að hafa sagt fjölmiðlum, þar á meðal Morgunblaðinu, ósatt um þéttidúk sem keyptur var á vegum Þjóðleik- hússins en Árni sagði hafa verið geymdan í geymslu á vegum Þjóð- leikhússkjallarans í Gufunesi. Hið rétta er að dúkurinn var sendur til Vestmannaeyja, en sendur aftur þaðan á þriðjudag og komið fyrir í geymslunni í Gufunesi og teknar af honum myndir sem birtust í Morg- unblaðinu í gær og í fréttum Rík- issjónvarpsins. „Þetta eru mistök sem ég get ekki annað en beðist afsökunar á. Ég verð því að biðja Morgunblaðið afsökunar á því að upplýsingar sem ég gaf voru ekki réttar,“ sagði Árni Johnsen. Afsögn þingmanns tekur gildi frá og með þeirri dagsetningu sem er á afsagnarbréfinu, að sögn Helga Bernódussonar, aðstoðarskrifstofu- stjóra Alþingis. Helgi sagði að þingforseti myndi kynna bréfið þingheimi þegar þing kæmi saman. Jafnframt yrði fyrsti varamaður Árna boðaður til setu á þingi. Er það Kjartan Ólafsson, garðyrkjubóndi og framkvæmda- stjóri Steypustöðvar Suðurlands. Samkvæmt lögum um þingfarar- kaup og þingfararkostnað nýtur þingmaður þingfararkaups til síð- asta dags þess mánaðar er kjörtíma- bili eða þingsetu lýkur. Alþingismað- ur á og rétt á biðlaunum er hann lætur af þingmennsku. Ekkert segir í lögunum um hvað gilda skuli í þess- um efnum þegar þingmaður segir af sér áður en kjörtímabili lýkur en tek- ið fram, að leiki vafi á um rétt alþing- ismanns samkvæmt lögunum skeri forsætisnefnd úr. Árni Johnsen segir af sér þingmennsku  Ósannindi/26  Rétt ákvörðun/6  Biður blaðamenn/10 Þéttidúkur var sendur frá Vestmannaeyjum og komið fyrir í geymslu á vegum Þjóðleikhússkjallarans ÁRNI Johnsen, fyrsti þingmaður Sunnlendinga, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Árni tilkynnti Davíð Oddssyni, for- sætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, um þessa ákvörðun sína í gærmorgun. Hann tók þessa ákvörðun þegar upplýst var að hann hefði greint fjölmiðlum rangt frá því hvar þéttidúk, sem hann keypti í nafni bygging- arnefndar Þjóðleikhússins, væri að finna. Dúkurinn fór upphaflega til Vest- mannaeyja, en Árni sendi hann til Reykjavíkur á þriðjudag þegar fjölmiðlar voru farnir að flytja fréttir af störfum hans fyrir nefndina. HJALTI Ástþór Sigurðsson, sem var skipstjóri á Unu í Garði þegar hún fórst ásamt tveimur mönnum aðfaranótt þriðjudags, kann ekki aðrar skýringar á slysinu en að leki hafi komið að bátnum. Veður var stillt þegar slysið varð og því telur Hjalti að skip- verjar hafi ekki orðið varir við lek- ann. Þegar bátnum var beygt um 60° á stjórnborða hallaðist hann skyndilega á aðra hliðina. Hjalti dregur í efa að frá því að báturinn fór fyrst að halla og þar til hann sökk hafi liðið lengri tími en ein mínúta. Sjálfur var hann síðastur frá borði en þá var brúin á bátnum komin á kaf. Hann segist í raun ekki skilja hvernig eða hvers vegna þeir fjórir sem komust af hafi sloppið. Um fimm tímar liðu frá því báturinn sökk þar til þeim var bjargað um borð í Húna HU 62. Hann undrast þó nokkuð hvers vegna þyrla Landhelgis- gæslunnar var ekki send eftir þeim. Einn skipverjanna hefði hæglega getað verið slasaður. Skipstjórinn á Unu í Garði Telur leka vera einu skýringuna  Brúin/6 ÞJÓÐVERJINN Lutz Brauckhoff er á ferðalagi um heiminn á sér- stæðu þríhjóli. Hann segist vera frá Dortmund en ferðalagið hafi hafist í Englandi. Þaðan hjólaði hann til Skotlands og Hjaltlands hvaðan förinni var heitið hingað til lands. Lutz segist vera búinn að hjóla um 2000 kílómetra. Frá Reykjavík segist hann fara til Rotterdam og á þá eftir eina 400 kílómetra heim til Dortmund. „Þetta er fyrirmyndar ferðamáti sem heldur manni í toppformi,“ sagði Lutz áður en hann hélt glaðbeittur för sinni áfram. Morgunblaðið/RAX Búinn að hjóla 2.000 kílómetra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.